Reykjavík

Eksemplar

Reykjavík - 31.08.1912, Side 1

Reykjavík - 31.08.1912, Side 1
1R k í av t fc. Laiijsrardag’ 31. Agúst 1913 XIII.* 33 Ritstj.: Björn Fálsson cand. jur. Talsími 34. Miðstræti 10. Pósthólf A 41. Heima daglega kl. 4—5. Aukaþiugið. Nú er það afstaðið þetta aukaþing eftir sex vikna setu. Lausa-blaðsnep- ill, sem út kom hér i bænum, hefir kallað það „magra þingið“. Þetta er þó eKki réttnefnt, ef litið er til þess tvenns: að þetta var að eins aukaþing, sem ekki var framlengt einn einasta -dag (stóð að eins réttar sex vikur), og að það var kallað saman á óhentugum tíma, þar sem skipsferðum hagaði svo, að eigi var auðið að lengja þing, nema með miklum kostnaði og tímatöf, ef þingmenn áttu að geta sætt skips- ferðum heimleiðis. Só þessa gætt, þá er það furðu-mikið að vöxtum til, sera þingið afkastaði. Beri maður þetta stutta aukaþing ■saman við ið afskaplega langa þing 1911, ið eina þing, sem Björn Jónsson undirbjó málin til, þá mun það koma í Ijós, að þetta þing hefir verið starf- samara og afkastameira. Sé slept fjár- Jögum, fjáraukalögum og landsreikn- _inga-]ögum, þ. e. þeim lögum, sem aukaþing hefir ekki til meðferðar, þá kemur 1 ]jós, að stjórnin lagði 1911 ein 20 lagafrumvörp fyrir þingið, nær öll undirbúin af öðrum en stjórninni. Af þessum 20 lögum urðu þá ein 12 að lögum, 5 voru feld, en 3 óútrædd. Og þó stóð þetta fræga sjálfstæðisþing 1911 heila 85 daga, en aukaþingið nú scóð að eins 42 daga. ” Á báðum sjálfstæðisþingunum, 1909 og 1911, gekk mikill hluti þingtímans *• það, að rífast um völdin, rífast um persónur, um það, hver ætti að verða ..iðherra. Þetta þing, 1912, urðu og ráðherraskifti; en það eyddi ekki einum inasta degi frá störfum þingsins. Meirihlutinn á þingi nú vissi hvað hann vildi. Nú á aukaþinginu lagði stjórnin fyrir 15 lagafrumvörp, og hafði þó undirbúið 16, því að kolaeinokunar- frumvarpið var prentað til framlegg- ingar, er stjómin hætti við að leggja það fram.— Af þessum 15 frumvörp- um voru 7 samþykt, 4 feld og 4 óút- rædd sakir naumleika tímans. Þá voru borin upp af þingmanna shálfu 54 frumvörp, og voru 20 af þeim samþykt, 15 feld og 19 óútrædd. Auk þess voru á þessu aukaþingi samþyktar 18 þingsályktanir, 7 feldar, 2 teknar aftur og 4 óútræddar. 4 fyrirspurnir voru bornar upp fyrir ráð- herra og svaraði hann þeim. Af stjórnarfrumvörpunum, sem sam- þykt voru, var merkast frumvarpið um ritsíma- og talsímakerfið. Af óútræddu frumvörpunum var merkast frumvarp- ið til siglingalaga. Ilefði þingið verið sett 1. Júlí í stað 15. Júlí, þá hefði verið auðvelt að lúka nokkuð fleiri málum, því að þá hefði mátt framlengja þingið nokkra daga án þess að koma í bága við skipaferðir. En það sem mest og merkast ligg- ur eftir þetta þing, verður vonandi það sem minst ber á í þingtíðindun- um; en það eru aðgerðir þess í sam- bandsmálinu. Það verk var nær ein- vörðungu unnið utan þings af 7 manna nefnd. Árangur þess vonum vér að sjáist, og hann góður, þegar fram á veturinn fer að líða. Ráðherra vor fer nú með þær málaleitanir til Hafnar í næsta mánuði (Sept.). Yerði árangur þeirra eins og vér fast- lega ætlum og vonum og alt útlit er nú fyrir, þá verður árangur þessa stutta þings mikill og góður. Þá mun þess verða minst í sögunni og það ekki kallað „magurt". Fiskveiðar íslendinga og Norðmanna. (Kafli úr þingræðu 1912). Ég vil leyfa mér að vekja athygli háttvirtrar þingdeildar á atriði, sem ég býst við að ekki hafi allir deildarmenn veitt eftirtekt. Frændur vorir, Norðmenn, eru sjó- menn miklir og fiskimenn. Þeir eru á 3. milíón að tölu; en vér íslending- ar erum ekki nema 85 þúsundir. Eftir síðustu skýrslum beggja landanna(1910) hafa Norðmenn veitt 150 milíónir punda af fiski á ári; en vér íslending- ar 50 milíónir. Þar sem Norðmenn eru 2,224,000 að tölu, en vér að eins 85 þúsundir, þá hefðu Norðmenn átt að veiða 1317 milíónir punda, í stað 150 milíóna, ef þeir hefðu verið jafnsnjallir oss. Að tiltöiu við fólksfjölda vorn erum vér íslendingar óefað langmestir fiski- menn allra þjóða í heiminum, svo að þar komast engir nálægt nokkrum sam- anburði við oss. Hitt er alkunna, hversu vér stönd- um nú með verkun fiskjarins. Mér er það minnistætt, að þegar ég var ung- lingur í skóla hér, á árunum 1863 til 1870, þá var eina blaðið, sem þá var hér uppi, „Þjóðólíur", árlega að flytja hugvekjur um fiskverkun og hvetja oss til að læra af Norðmönnum í því efni. Þá sendum vér menn til Björg- vinar á fiskisýninguna, til að læra af Norðmönnum. Það voru þeir Geir Zoéga, Kristinn í Engey og Hafliði í Svefneyjum. Nú þurfa Norðmenn ekki að reyna að keppa við oss á markaði. Vor fiskur er svo miklu betur verkaður, að hann selst ávalt betur en fiskur Norð- manna. Þetta er árangurinn af upp- eldi einnar kynslóðar. Þar hafa margir lagt mikið og lofsvert starf í, bæði fiskikaupmenn og útgerðarmenn; og þó eigum vér þar einum manni fremur öðrum mikið og affarasælt starf að þakka. Það er Þorsteinn Guðmunds- son fiskimatsmaður í Reykjavík. Það sem landið á árvekni og samvizku- semi þess manns að þakka, kunnum vór ekki tölum að'telja, en þar má sjálfsagt reikna í hundruðum þúsunda króna á ári. Hálfs eyris verðmunur á pundinu munar landið um fjórðung milíónar króna á ári. Eins og það er rétt að segja oss til syndanna í því sem að er, eins er hitt ekki síður rétt, að halda því á lofti, sem er oss til verðskuldaðs þjóðar- sóma. Ég hefi fyrstur manna haldið því fram hér á þingi, að sjávarútvegurinn væri aðalatvinnuvegur þessa lands, sá atvinnuvegur, sem bæri alla aðra at- vinnuvegi vora á herðum sér sem að eins hálfbjarga ómaga. Þá var þetta talin goðgá af mér og in mesta fjar- stæða. Nú heyri ég alla kannast við þetta, og engan neita því. J. Ól. Ur norðurbygðum. Vorið 1908 lagðilandi vor, Vilhjálmur Stefánsson, ásamt öðrum manni, And- erson að nafni, upp í könnunarferð um norðurbygðir Ameríku. Tilætlun far- arinnar var, að kynna sór háttu og siðu Eskimóa, og safna menjum þaðan. Þeir félagar höfðu lítið annað með- ferðis en byssur og skotfæri, því að þeir þóttust bezt mundu kynnast Skrælingj- um ef þeir lifðu á þeirra vísu og með þeim. Þeir ætluðu að vera þar norður frá í 2 ár, en nú eru 4 ár liðin frá því þeir fóru, enda má nú búast við þeim úr þessu. Bréf hafa komið frá þeim við og við með hvalveiðaskipum frá Hercheley. Prófessor James Mavor í Toronto í Canada hefir fengið bréf frá Vilhjálmi og birt þau nýlega í ensku blaði. Eitt þeirra er á þessa leið: „Við höfum á fjórum árum farið fleiri mílur á sleða en nokkrir heim- skautafarar aðrir, sem eigi hafa haft annað matvæla en hér fæst norður frá. Við höfum fundið stóra bgyð Eskimóa á þeimstöðum.sem eru kallaðar „óbygðir" á landabréfi því, sem stjórnin hefir gefið út. Á Viktoríulandi (ey fyrir norðan Ameríku) höfum við fundið meir en þúsund Eskimóa, og frétt um fleiri, sem aldrei hafa séð hvítan mann, byssu eða eldspýtu. Við höfum búið hjá þessu fólki í fimm mánuði, höfum lært mál þeirra og gefið gaum að sið- um þeirra. Það má í frásögur færa, að við fund- um menn í suðvestur-Viktoríulandi, sem eru einkennilega ólíkir Eskimóum í útliti, meir að segja líkari Norður- landabúum en Skrælingjum. Þeir tala Eskiinóamál og að menningu standa þeir ekki hærra. Þó fann eg eitt eða tvö orð í máli þeirra, sem ekki er ó- sennilegt að sé norræn að uppruna. Eg sá um 17 af 40 af þeim ætt- flokk, sem líkastur er Evrópumönnum að útliti; þeir hafa allir ljóst skegg og augabrúnir. Þó sjást líka meðal annara ættflokka stöku menn, ljósir á brá. Mér er nær að halda, að einn eða fleiri menn, er voru í Franklíns-leið- angrinum, hafi lifað í nokkur ár meðal Eskimóa í Viktoríulandi. Byggi eg það á sögusögnum, sem eg hefi heyrt þar. Þótt svo hafi verið, er ekki hægt að byggja á því neinar skýringar um útlit og vaxtarlag þessara manna. Álíti menn, að þessi breyting í útliti hafi byrjað fyrir tæpri öld og eigi rót sina að rekja til giftingar hvítra manna og XIII., 33 Eskimóakvenna, þá gæti breytingi* ekki hafa gjörzt á svo stuttum tíma, j jafnvel þótt hvítu mennirnir hefðu skift mörgum hundruðum. Svo sýnist mer, að sé uppruni þessa Ijóshærða kyns.í Viktoríulandi af hvítu .blóði, þá er sá sögu atburður, er skýri það, hvarf ís- lenzku landnámsbygðarinnar um 1400; og mun hér um 3000 manns að ræða. í öðru bréfi segir Vihjálmur frá ýmsu um hjónaband Eskimóa, einkum þeirra, sem búa vestar á ströndinni. Lítlir helgisiðir eru hafðir þegar gift er. Samþykki foreldra þarf til fyrst og fremst og síðan brúðurinnar. Ef einhver þessara vill ekki ]já samþykki sitt til hjónabandsins, er það útrætt mál. Flest hjónabönd virðast vera að eins um stundarsakir. Ef þau standa meir en ár, þá eru allar líkur til, að það sé til frambúðar, því að hjónaskiln- aður er fátíður eftir að það hefir staðið svo lengi, nema þegar konurnar fara frá mönnum sínum (oftast með sam- þykki þeirra) og gerast konur hvítra manna. Það er fátítt, að konur séu lánaðar, nema þeir sem eiga tvær eða Vilhjálmnr Stefánsson. fleiri, sem þó er afar sjaldgæft nú orðið. Enn þá tíðkast það, að menn hafi skifti á konum, en það gera ekki nema vild- ustu vinir. Ekki er mér ljóst, segir Vilhjálmur, hvernig karlar og konur skifta verkum með sér. Þau róa bæði til fiskjar og veiða dýr. Þegar lítið er að gera, elda konur matinn og sauma föt, en sé í einhverju að snúast, gera karl- menn það lika. Vilhjálmur kveðst aldrei hafa. orðið var við, að hjónum kæmi illa saman. Frá eynni Herchel skrifar Vilhjálmur skömmu eftir að hann kom norður, og lýsir háttum Eskimóa þar í kring, Hann segir, að þeir lækni sjúkdóma þar með tvennu móti, annað hvort méð því að taka mönnum blóð eða með særingum. Þegar þeir láta taka sér blóð, er gerður eins eða tveggja þuml- unga skurður í hörundið yfir þeim stað, sem þeir halda, að veikin sé. Þetta gerir annaðhvort sjúklingurinn sjálfur eða einhver annar viðstaddur. Læknar, svokallaðir, lækna menn með því, að þyljá yfir þeim þulur eða hoppa og dansa í kringum hinn veika mann og með handayfirleggingum. Hvorki sjúk-

x

Reykjavík

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjavík
https://timarit.is/publication/206

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.