Reykjavík

Ataaseq assigiiaat ilaat

Reykjavík - 31.08.1912, Qupperneq 4

Reykjavík - 31.08.1912, Qupperneq 4
140 REYKJAVIK Odýr kol. Nokkrir menn hafa myndað félagsskap með sér til að komast að hagkvæmum Kolukaupum í haust og í því skyni samið um kaup á heilum gufuskipsfarmi af kol- um. Peir sem óska að njóta góðs af þessum félagsskap eru beðnir að snúa sér sem fyrst til h/f P. J. Thorsteinson & Co., sem hefir lofað að selja félagsmönnum kolin, og fá þar allar nánari upplýsingar. Samtakendur. gV frá og með 15. ágúst 1912 er verðií á ölium tegunðum aj steinoliu haekkað um 5 kr. pr. tunnu. Hid danska ^teinolíuhlutaíélag, íslands—deildl. [—3 s. Jarlers Antilcvariat. Leverandor til Biblioteliet i Isafjord. Stort Lager af brugte Boger. - Kataloger sendes gratis. Udenbyes Ordre ekspederes med storste Omhu. 61. Xongevej 134. Xobenhavn V. öíii o<»’ nýjung’ar. Slys. Fyrra Laugardag (17. þessa mán.) drukknaði Þorsteinn Jónsson, elzti sonur Jóns Þorsteinssonar bðnda á Kala- stöðum á Hvalfjarðarströnd. Hann fór einn á bát, 8Íðari hluta dags, frá Hálsi í Kjós og setlaði norður yfir fjörðinn að heimsækja foreldra sína. Stormur var á norðan. Bát- urinn fanst vestur undir Galt.arvík og var stefníð brotið, en segl uppi. Er talið líkleg- ast, að hann hafi lent á skeri nálægt Kata- nesi, því dimt hafði verið orðið. Þorsteinn heitinn var mesti efnis- og dugnaðarmaður. Veðrið. Með höfuðdeginum brá til rign- inga og hefur rignt stöðugt síðan. Trúlofuð eru í Kaupmannahöfn Jón Guðhrandsson verzlunarm. og Frida Ottesen dóttir fyrv. verksmiðjueiganda S. Ottesen. Oddur Hermannsson cand. jur. er orðinn aðstoðarmaður í Stjórnarráðinu í stað Magnúsar sýslumanns Guðmundssonar Setudómarinn i gjaldkeramálinu, Magnús sýslumaður Guðmundsson í Skagafirði, hefir sótt um lausn frá því starfi sakir embættis- anna. Fró Spáni. Heim eru komnir aftur þaðan þeir Geir stúdent Einarsson og Haukur Jensen stud. art. ,,Ceres“ kom frá útlöndum þ. 26. þ. m. og með henni Ólafur G. Eyjólfsson skóla- stjóri, Bjarni Þorkelsson skipasmiður, Guðm. Jónsson oand. theol. (ísaf.), Einar Jónsson afgreiðslumaður (ísaf.), norskur verkfræð- ingur að gera boð í höfnina, norskur stú- dent og kona hans. Hann ætlar að nema íslenzku hér við Háskólann. Mun honum víst bregða í hrún, er hann fréttir, að ekki er hægt að taka próf í þeírri grein á íslandi. Ásigling. Eyrir nokkrum dögum sigldi enskur botnvörpungur á fiskiskipið „Ragnar“ frá Patreksfirði, eign Péturs A. Olafssonar konsúls. Skipverjar gátu borgið sér upp á botnvörpunginn og fór hann með þá inn á Patreksfjörð og hafa þar verið haldin próf í málinu. Silfurbrúðkaup áttu þau Árni banka- ritai-i Jóhannsson og kona hans Anna Jóns- dóttir á fimtudaginn. Veizla haldin á „Hótel Reykjavík“. Austurstræti er nú verið að endur- bæta, borið ofan í það með þeirri aðferð, sem kend er við McAdam. Hefir til þessa verks verið fenginn vegbrjótur, gufubákn mikið. Er ekki laust við, að talsverður stórbæjahragur sé að því verkfæri. Holrsesið um Lækinn er nú langt komið, steypan komin suður á móts við Bókhlöðu- stíg og farið að fylla oían á hana norður frá. Þetta er sagt að muni kosta um 40 þús. krónur. Þingmenn eru nú flestir farnir heim til sín, þeir er heíma eiga utan hæjar. Hafa farið með „Austra“, „Ingólfi" í Borgarnet og snmir landveg. Valtýr Guðmundsson fór til Englands með botnvörpung á fimtudag- inn, með sama skipi fór Valtýr Stefánsson stúdent. Itflagni heítir nýtt blað, sem Bjöm Jóns- son f. ráðherra er byrjaður að gefa út og er ritstjóri að. Það er í sama broti og Vísir var áður en hann stækkaði og „birtist þá er brýnasta nauðsyn ber til og mælir máli lands og lýðs ntan bæjar og innan“. Eintakið kostar 5 aura. „Austri“ fór í hringferð á mánudaginn. Farþegar: Séra Björn Þorláksson, séra Einar Jónsson, Gautlandabræðurnir Steingrímur og Pétur, Stefán skólameistari Stefánsson, Guðl. bæjarfógeti Guðmundsson, Geir bisk- up Sæmundsson og frú, séra Halldór Bjam- arson frá Prestbólum, Sigurður skáld Jó- hannesson, H. Sohiötb og frú, læknisfrú Olga .Ten9son, OJafur Thorlaoius, Stefán bóndi í Möðrudal o. fl. o. fl. Rangárbrúna á að vígja í dag. Það gerir Hannes Hafstein ráðherra. Eóru ráð- herrahjónin austur síðari hluta vikunnar. Margir hafa farið héðan úr bænum, til þess að vera við vígsluna og hafa víst hreþt versta veður. A miðvikudag var alt pláss pantað á Kolviðarhól yfir föstudagsnóttina. „Fálkinn“ hefur handsamað enskan botn- vörpung fyrir vestan, og fór með hann til Patreksfjarðar. Séra Rögnvaldur Pétursson, úni- taraprestur, messaði i Eríkirkjunni á sunnu- daginn var og þótti mælast vel. í ráði, að aæðan verði gefin út innan skamms. Sambandsflokkurinn. í stjórn hans voru kosnir á fundi síðastl. sunnud. alþingis- mennirnir: Aug. Flygenring, séra Jens Páls- son, Jón Magnússon og Jón Óiafsson, en utan alþingis: Guðm. Björnsson landlæknir, Sig. Hjörleifsson ritstjóri og Þorst. Gíslason ritstj. Heimastjórnarflokkurinn. í stjórn hans voru kosnir nú i þinglokin: Aug. Plygenring, Eggert Claessen, Guðm. Björns- son, Jón Magnússon, Jón Ólafsson, Jón Þorláksson, Þorsteinn Gíslason. Einkasala á steinolíu. Þess var getið til í síðasta blaði, að einkasölu-heimildar frv. þeirra J. Ól., E. P. og B. J. frá Vogi, mundi ekki ná fram að ganga. Þetta reyndist ekki svo, þótt nærri lægi um eitt skeið, enda breytingar gerðar á frv. í e. d. sem lítt þykja til bóta. Frv. var til I. umr. í e. d. á laug- ardag kl. 5 síðd. og var samþ. að það gengi til 2. umr. Bjuggust deildar- menn við, að fundur yrði haldinn aft- ur um kvöldið, en forseti ákvab næsta fund kl. 103/* á mánudag. Var þá útséð um það, að frv. næði fram að ganga, því þinginu átti að slíta kl. IIV2 sama dag. Skoraði séra Jens Pálsson og fleiri deildarmenn á forseta (Júl. H.) að halda fund um kvöldið. Var ekki við það komandi hjá forseta. Kvaðst hann ekki skyldur til að halda fundi nema þegar sér þóknaðist, hefði nú haldið 3 fundi þann dag. Sleit svo fundinum. Gramdist mörgum deildar- manna, að forseti skyldi beita valdi sínu svo. Þegar þetta spurðist um bæinn, urðu bæjarmenn ekki síður hryggir og reiðir, var á orði haft, að stofna til borgarafundar. Ekki varð þó úr því, enda skrifuðu margir efri- deildarmenn forseta bréf á sunnudaginn og skoruðu á hann að flytja mánu- dagsfundinn fram, til kl. 9. Geröi hann það, og var frv. samþ. í deild- inni á tveim fundum á mánudags- morgun. Breytingar voru á því gerð- ar, felt úr að binda gildi laganna við árslok 1913 og 3. gr. frv. látinhljóða svo: Stjórninni er heimilt að fela ein- stökum mönnum eða hlutafjelögum innlendum að standa fyrir kaupum og sölu á olíunni, og hún má einnig fram- selja í þeirra hendur heimild sína og einkarétt til olíuinnflutnings eftir lög- um þessum, með þeim skilyrðum, er hún telur hyggileg og nauðsynleg, þó ekki lengur en 5 ár. Þá var eftir að ræða frv. svo breytt í n. d.; var skotið á fundi kl. 1®. Reyndust nú þeir þingmenn .sumir. sem með því voru áður, snúnir á móti því, en þeir sem móti voru með því. Lauk svo að frumv. var samþ. eins og það kom frá e. d. með 13 atkv. regn 9. Með því: E. P., E. J., Guðl., Jóh., Jón M., M. Ól., Ól. Br., P. J., Sig. Sig., St. St., T. B. Móti: Jón sagnfr., B. Sv., Bj. Vogi, B. Kr., H. St., Kr. J., L. H. B., Sk. Th. og Yaltýr, Jón Ól. og ráðh. greiddu ekki atkvæði og voru taldir með meiri hlutanum. Skriíiö eftir!!! creme, alullar fermingar Caschemir 0,75— 1,00. — Príma grátt Kjóla-vergarn 0,50. Röndótt Kjóla-vergarn 0,50-0,63.—Blátt, haldgott. Kjóla-oheviot 0,70. — Eallegt og vandað heima-ofið Kjólaklæði af öllum lit- um 0,75. — Fallegt, röndótt vetrarkjólaefni 0,80. — Ekta blátt Kamgarns-cheviot 1,00. Svörtogmisl. Kjólatau afýmsum tegundum 0.85—1,00—1,15—1,35. 2 álna breið Karlmannsfataefni 2,00— 2,35—3,00. — Níðsterkt drengjatau 1,00. Skólafataefni grátt 1,35.—Ektablátt sterkt drengja-cheviot l,15.-Hið alþektaórabelgja cheviot, fínt 2,00 —stórgert 2,35 -bezt 2,65. Ektablátt neðri-hluta cheviot 1,15. — Svart fallegt klæði 2,00. — Ekta blátt Kamgarns- sergesí alklæðnaði frá2,00.—Grá- og græn- röndótt efni í hversdags niðurhluta 1,00— 1,15.—Þykk kápu- og frakkaefni 2,00—2,35 —2,75. — Kápu-plyds svart og allavega litt. Okkar alþektu ektahláu józku „Jachtklub- serger“, í karlmannsföt og kvenklæðnaði 3,15—4,00—5,00.—Ágæthestateppi4,00— 5,00. — Falleg ferðateppi 5,00—6,50. ■— Hlý ullar-rúmteppi 3,50—4,00—5,00. Yörurnar sendast burðargialdsfrítt. Hreinar prjóna- tuskur eru teknar í skiftum fyrir vörur á 6* aura kílóið. Ull er borguð með 1,00—1,50 hvert kíló. iydsk Kjoleklædehus. Kpbmagergade 46. Kpbenhavn K. Tvö litil íbúðarhús fást keypt. Afarlágt verð, ef samið er strax. Grísli Porbjarnarson. brúkuð lslcnsU, alls- konar borgar enginn betur en Hel{ji Helgason (hjá Zimsen) Reykjavík. Hvaða mótor er ódýrastur, beztur og mest notaðnr Gideon-mótorinn. Einkasali Thor E. Tuiinius & Co. Kaupmannahöfn. Símnefni: Yerzlnn. Verzlun Jóns Zoiiga selur ódýrast neftóbak, munntóbak, reyktóbak, vindla, cigarettur o. m. fl. Talsími 128. Bankastræti 14. Hvar á að kaupa öl og vín? En í Thomsens M a g a s í n. Prentsm. Gutenberg

x

Reykjavík

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjavík
https://timarit.is/publication/206

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.