Reykjavík - 21.09.1912, Side 4
152
REYKJAVÍK
Kcétttra'
—- — i*msamrnBmmmm^mmm*mm.^mmmm*mm
(^aj) bragðgoft nœringQrgoft endingargott
SÆCxtrahH
Slys og meinabót.
Fyrir all-löngu henti það slys landa
vorn, Sigtrygg Jóhannesson hér í bænum,
i sumar, að hann fótbrotnaði, og hefir legið
rúmfastur siðan. Slysið vildi þannig til, að
hann tók hesta sína og vagn, sem hann er
vanur að keyra, og lagði aí stað frá „steibl-
unni“, en tók þá strax eftir því, að stöngin
var laus í vagninum. Hestarnir tóku þegar
á rás, er út kom, norður Smith-street og
yfir Portage Ave. Þá var umferðin þar sem
mest af vögnum og fólki, og var mikil mildi,
að enginn skyldi verða fyrir hestunum. Þeir
sem horfðu á, þakka það Sigtryggi, með þvi
að hann lét sér ekki bylt við verða, heldur
hélt taumhaldinu og vék til hestunum, þó
hart færu. Þegar kom norður að Ellice Ave,
vildi hann stöðva þá með þvi að víkja þeim
inn i það stræti, og tókst það vonum betur.
Hestamir tóku skarpan bug inn í strætið,
en vagninn hélt þeirri steínu, sem hann hafði,
er stöngin var laus, urðu með skjótri svipan
þeir atburðir að annar hesturinn féll og lá
sem dauður, en vagninn rann á símastaur
og molbrotnaði. Sigtryggur vissi ekki af
sér fyr en hann lá á götustéttinni með ann-
an fótinn í vagninum, og gat ekki hreyft
hann. Var nú næsta iæknis vitjað, sem var
Dr. Hutchinson: lét hann færa hinn meidda
til spítala og fylgdi honum sjálfur og bjó
um meiðslin. Var maðurinn lærbrotinn, en
hafði engan annan áverka. Hann lá svo
sex vikur á spitalanum í umbúðum, var að
því búnu fluttur heim. Kom þá í ljós að sá
leggurinn var styttri, sem brotinn var, og
mjög máttlítill; hafði beinið gróið skakt
saman, en fóturinn var manninum ónýtur.
Læknirinn sótti þá Dr. Brandson til umráða.
Skar hann inn á brotið, braut legginn á ný
og meitlaði af þá bólgu, sem á beininu var,
setti saman brotin í réttar steliingar, og
skeytti saman með stálspöng, er hann skrúf-
aði á beinið. Er svo sagt, að spöngin geri
ekkert til þegar frá líður, en er nauðsynleg
til að halda brotunum 1 skorðum. Tryggvi
er hinn hressasti, og því fegnastur að hafa
heilan fót, þó spengdur sé.
Þess mun vera getið allviða í sögum, að
bein hafi gróið skakt saman og verið brotin
upp, en frægast er það, er Loptur biskups-
son lét „brjóta upp“ fót sinn, er skakt hafði
gróið, og sagði sjálfur fyrir hvemig setja
skyldi saman, varð síðan „óhaltur at kalla“.
Tryggvi stóð það betur að vígi, en Loptur,
að hann þurfti ekki að segja sjálfur til um
meðferðina á beinbrotinu, enda verður hann
alheill að lokum. [„Lögberg“J.
jjzjarsimiun.
Fyrir meira en ári bað maður hér
í bænum um talsíma lieim til sín, en
var þá sagt, að skiftiborð vantaði, svo
hann gæti ekki fengið símann, en að
það kæmi með næsta skipi. Nú hefir
maðurinn komið við og við að spyrja
um borðið síðan, en alt af fengið sama
svarið, að það kæmi með næsta skipi.
En skipið er ekki komið enn.
Hvenær kemur það ?
Afgreiðslan á lestrarsal
Landsbóhasafnsins.
Kvartað er yfir því, að ekki sé hægt
að fá lánaðai fram á lestrarsaiinn
í Landsbókasafninu ýmsar íslenzkar
bækur, þótt ekki séu nema fárra ára
gamiar. Bókavörður segir þær ekki
til. Má það þó undarlegt virðast, þar
sem bókasafnið fær alt af 2 eintök af
hverri bók og pésa sem út kemur hér
á landi. Hverju er hér um að kenna?
Jjefir nokkur hingað til boðið
Kvenstígvél fyrir..............Kr. 4.65
—„— betri fyrir...........5.35
Karlm.stígvél fyrir.............— 5.65
—„— betri fyrir...............— 5.90
Alt vaiuliió Chevreaux.
Kallegt útlit. — Derby-siiió.
Lakkskinn á tám.
Hermannadiælar,
Sterkir telpuskór úr llov, allar stærðir, á -t krónur.
Sent burðargjaldsfrítt, ef borgun fylgir pöntun.
Sendið mál eða mót af fætinum — Engir milliliðir.
Skoiö i re t „Direkte“
Gothersgade 03. Köbenhavn K.
Jarlers Antikvariat.
Leverandor til Biblioteket i Isaíjord.
Stort Lager af brugte Boger. - Kataloger sendes gratis.
Udenbyes Ordre ekspederes med storste Omhu.
61. Xongevej 134. Xobenhavn V.
Netjagarn flmmþætt,
með jöfnum gildleik og fjórþætt, eftir áliti vanra sjó-
manna mjög fallegt, er nýkomið
í Austurstræti 1.
ÁSG. G. GUNNLAUGSSON & Co.
^I
Umhverfis ísland.
Hamri í Hatnarlirði. Oddur M. Bjarnason skrifar þaðan: Jeg er
74 ára að aldri, hefi í mörg ár þjáðst af magaveiki, slæmri meltingu og nýrnaveiki,
og reynt, marga lækna árangurslaust. En eftir að jeg hefi notað 5 flöskur af hinum
heimsfræga Kína-lífs-elixír, er jeg mikið betri. Jeg flyt verksmiðjueigandanum bjer
með innilegt þakklæti mitt.
I*j órsArholti. Sigríður Jónsdóttir, Þjórsárholti, sem nú hefir flutt sig til
Reykjavíkur, skrifar: Eftir að jeg hafði frá barnæsku þjáðst af langvinnu hægða-
leysi og andþrengslum, reyndi jeg að lokum hinn alkunna Kína-lífs-elixir, og varð
jeg þá betri til heilsu, en jeg hafði nokkumtíma áður verið á minni 60 ára löngu æfi.
Kcykjavík. Guðbjörg Hansdóttir, Kárastíg 8, skrifar: Jeg hefi í tvö ár
verið mjög lasin af brjóstveiki og taukaveiklun, en eftir að hafa notað 4 flöskur af
Kína-lífs-elixír, líður mjer mikíð betur, og jeg vil þess vegna ekki án þessa góða
bitters vera.
IVjíílsstödiiMi, Húnavatnssýsln. Steingrimur Jónatansson skrif-
ar: Jeg var í tvö ár mjög slæmur af illkynjaðri magaveiki, og gat mjer aldrei batnað
til fulls; jeg reyndi þá nokkrar flöskur af hinum alkunna Kína-lífs-elixír, og batnaði
þá æ betur og betur. Jeg vil nú ekki án hans vera, og gef öllum, sem þjást af
líkum sjúkleika, það ráð, að reyna þennan ágæta bitter.
Simbakoti, Eyrarbakka. Jóhanna Steinsdóttir skrifar: Jeg er
43 ára, og hefi í 14 ár þjáðst af nýrnatæringu og þar af leiðandi veiklun, en af
öllum þeim læknislyfjum, sem jeg hefi notað, hefir ekkert styrkt mig og fjörgað eins
vel, og hinn frægi Kína-lífs-elixír.
Reykj a,-víl£. Halldór Jónsson, Hliðarhúsum, skrifar: í fimmtán ár hefijeg
notað hinn heimsfræga Kína-lífs-elixír við lystarleysi og magakvefi, og mjer hefir ætíð
fundist jeg verða að nýjum manni, er jeg hefi neytt elixírsins.
ílinn eini ósvikni Ivírux-líí ss-elixír- koslar að
eins 2 l<r-. flaskan, og fæst alstaðar á íslandi, en ósvils:-
inn er hann að eins búinn til af Waldemar I »et,er-
sen, Frederikshavn, Köbenhavn.
Hjálpræðisherinn.
Þar er tekinn við stjóm í stað Booth
sáluga, sonur hans, Bramwell Booth að
nafni.
Jarðarför Booth „generals" fór fram
í Lundúnum 29. f. m., og var gjör með
mikilli viðhöfn.
Skrifið eftir* III
creme, alullar fermingar Caschemir 0,75—
1,00. — Príma grátt Kjóla-vergarn 0,50.
Röndótt Kjóla-vergarn 0,50-0,63.—Blátt,
haldgott Kjóla-cheviot 0,70. — Eallegt og
vandað heima-ofið Kjólaklæði af öllum lit-
um 0,75. — Fallegt, röndótt vetrarkjólaefni
0,80. — Ekta blátt Kamgarns-cheviot 1,00.
Svörtogmisl. Kjólatau afýmsum tegundum
0,85—1,00—1,15—1,35.
2 álna breið Karlmannsfataefni 2,00—
2,35—3,00. — Níðslerkt drengjatau 1,00.
Skólafataefui grátt 1,35.—Ekta blátt sterkt
drengja-cheviot l,15.-Hiðalþektaórabelgja
cheviot, fínt 2,00—stórgert 2,36-bezt 2,65.
Ekta blátt neðri-hluta cheviot 1,15. — Svart
fallegt klæði 2,00. — Ekta blátt Kamgarns-
serges í alklæðnaði frá 2,00.—Grá- og græn-
röndótt efni í hversdags niðurhluta 1,00—
1,16.—Þykk kápu- og frakkaefni 2,00—2,35
—2,75.—Kápu-plyds svart og allavega litt.
Okkar alþéktu ekta bláu józku „ Jachtklub-
serger“, í karlmannsföt og kvenklæðnaði
3,15—4,00—5,00. —Ágæt hestateppi4,00—
5,00. — Falleg ferðateppi 5,00—6,50. — Hlý
ullar-rúmteppi3,50—4,00—5,00. Vörurnar
sendast burðargjaldsfrítt. Hreinar prjóna-
tuskur eru teknar í skiftum iyrir vörur á 60
aura kílóið. XJll er borguð með 1,00—1,50
hvert kiló.
Jydsk Kjoleklæd e,h u s.
Kdbmagergade 46. Kpbenliavn K.
fioJlir-lioliiijar,
sem og alls konar
Zóbak oe Szlgzti,
selur enginn hér á landi
jajn-oðýrt,
hvort heldur í stór- eða smákaup-
um, eins og vér.
Laugaveg 5.
Qarl jSdrusson.
€ggert Claessen,
yfirréttarmálafintijingsmaður.
PÓKthússtr. 17. Talsiíml 16.
Venjulega heima kl. 10—11 og 4—5.
Sveinn Björnsson
yfirdómslögmaður.
er fluttur í Haíuarstræti 33.
Skrifstofntími 9—2 og 4—6.
Hittist venjnlega sjálfnr 11—12 og 4—5.
ýRvinnuskrijstoja
íslauds
útvegar körlum og konum atvinnu,
og útgerðarmönnum, bændum og
búendum vinnukraft. — Ómissandi
milliliður sem allir ættu að nota.
Skrásetningargjald 2 krónur.
Skrifstofutími kl. 5—7 siðd. — Grettisgötu 38.
Sig. Björnsson.
_________________________[—ali. bl.
Yerzlun Jóns Zoega
selur ódýrast neftóbak, munntóbak,
reyktóbak, vindla, cigarettur o. m. fl.
Talsimi 128. Banknstræti 14.
Hvar á að kaupa
öl og vín?
En í Thomsens
M a g a s í n.
Prentsm. Gutenberg.