Skeggi - 03.11.1917, Qupperneq 2
S K E G Gt
>>Skegci« kemur vertjulega út e i n u
sinni í viku, og oftar ef ástæður
leyfa. Verð: 5 kr. árg. (minst 50
blöð).
Auglýsingaver'ð: 50 aur. pr.
c.m ; 60 aur. á 1. bls.
Ú t g e f a n d i: Nokkrir eyjarskeggjar.
Ritstjóri og ábyrgðarm. Pá1!
Bjarnason.
Síðustu fregnir
af sókn
Miðríkjanna.
Reykjavík 2. nóv.
Miðríkin hafa nú gert
grimmiiega sókn að Iföi-
um, þau ha’a tekið horg-
irrsar Samono, C öríz, Civi-
dal og Udme, þsr sem
aðaiherbúðir Ifala voru.
Ennfremur huntíraö þús.
fanga og sex hundruð
fallbyssur.
Cadorna biður banda-
menn rð bregða. fijótt við
til hjálpar, Itaiir hafa nú
siöðvar hjá Tagliamentó.
Eúist er víð að þeir veiii
þar viðnám og ieggi .1i!
orusfu á bersvæði.
Aths, Tagliamentó er stór á bak
við aðalherstöðvar ítala. Þaðan má
vænta stértíðinda bráðum.
Aðrar frjetiir,
Leynibyrgðir vopna fundnar
í Frakklandi.
Michaelis ríkiskanslari þjóð-
verja farinn frá.
Herthing greifi, forsætisráð-
herra í Bayern, tekur líklega við.
Leiðrjettmg.
— o—
Úr síðasta blaði fjell, þar sem
sagt er frá viðtökum óeirðar-
seggjanna þýsku, að frásögnin
væri tekin eftir ensku blaði. í
sömu grein stendur að 5 menn
hafi verið skotnir, en í enska
blaðinu stóð 3 menn.
Eftir síðustu fregnum að dæma
hafa þessar óeirðir verið bældar
niður þegar í stað og ekki á þeim
bólað síðan.
Styrjöldin.
—o—
Hún er nú komin nokkuð
talsvert á fjórða árið þessi styrj-
öld, sem er hin lang-voðalegasta,
sem við hefur borið á þessari
jörð fyr og síðar. Mundu fáir
menn hafa trúað því í byrjun
hennar að hún gæti staðið svona
lengi og þó ekki verið meiri
Yerzl. Páis Oddgeirssonar
heíur meðal anuars eftirtaidar Yörur:
Léreft, 5 sortir, — Tvisttau, — Sængurveraefni, — Flonel, amerisk,
— Lasting — Shirting, — Fóðurstrigi, — Flauel, — Gardinutau, —
Upphlutsskyrtuefni svart, á 3,45. — Handklæðadregill
margar sortir, — ensk Vaðmál, — Sængurdúkar, margar sortir, —
Seglastrigi, — Voxdúkar, — Bláff Cheviot, 3 sortir, — Brusel-
teppi með hálfvirði.
Svuntuefni Silki, svart rósótt frá 14,50.
_ _ — slétt á . . 11,00.
— mislit — á . . 10,50.
— Hör og Sllki svart á . . 6,30,
Sparið peninga og kaupið Dömukamgarnið góða.
handa fermingarbörnum.
Regnkápur Kvenna og Karla. — Karlmannaföt frá 48,00
Nærföt allskoqar.
sElttar vörur, þarafleiðandi bezt verð«.
Páll Oddgeirsson.
Kjörið í föt
56,00.
horfur til friðar % eru enn þá. j
Menn mundu heidur ekki hafa
trúað þvi fyrirfram, að Norður- :
landaþjóðirnar slyppu við blóðs-
úthellingar og annan versta voða !
hernaðarins, eins og þær hafa :
gert hingað til. En einna síst I
mundu menn hafa trúað því að i
leikurinn gæti orðið svona seinn ,
til úrslita og árangurslítill eins j
og hann í rauninni hefur orðið, j
Margt hefur að vísu farið í traðk
við at hinna miklu stríðshesta,
en mest er þó komið undir því
sem eftir er. það er því síst
undarlegt að hugir manna hneigist
að þeim málum, er að hernaðinum
lúta og af honum ieiða. Af þeirri
ástæðu mun ,Skeggi“ framvegis
gera sjer far um að Hytja sem
áreiðanlegastar fregnir að föng
eru á um hernaðinn og það er
af honum kann að leiða, svo og
um þau lönd og þær þjóðir, er
harðast fá að kenna á honum.
Kemur hjer þá örstutt yfirlit
til bráðabyrgða.
Vesiur vígstöðvat nar:
þjóðverjar sitja enn í mest allri
Belgiu og hafa sneið af Norður-
Frakklandi. þar er saman komið
hið besta úr her bandaþjóðanna,
Belgar, Frakkar, Bretar, Ameríku-
menn og margt frá nýlendum
Breta, og hafa hin bestu hergögn
nútímans. En þjóðverjar hafa
setið fastir fyrir í meir en þrjú
ár og notað hin öruggustu varnar-
tæki, eitur sem antiað. Síðustu
mánuðina hefur bandamannaher-
inn unnið nokkuð á og tekið
marga fanga. Ekki alls fyrir
löngu eiga þjóðverjar að hafa
hótað að leggja lönd þessi í auðn
nema friður yrði saminn bráðum.
Austurvígstöðvarnar:
þar hefur leikurinn borist víða
þessi árin. Framan af og öðru
hverju sóttu Rússar vestur, en
fyrir meir en tveimur árum voru
þeir hraktir langt austur eftir og
tekin af þeim hver borgin af
annari. Stóð Hindenburg hers-
höfðingi þjóðverja mjög fyrir
þeirri sókn. Leiddu þessar ó-
farir Rússa að lokum til ógur-
legrar stjórnarbyltingar og helur
orðið úr henni nokkurskonar
borgarastyrjöld í Rússlandi og
ekki sjeð fyrir endann á þeim
málum. Síðustu fregnir segja
Rússa vera að hörfa úr bestu
borgum sínum við Eystrasalt,
Reval og Petrograd. Annars
hefur verið mikið rætt um frið
í sambandi við stjórnarbyltinguna.
Balkanskagi:
þar hefur á ýmsu gengið.
Miðveldin hafa hertekið Serbíu
og Montenegro og talsvert af
Rúmeníu. Grikkland er mjög
vant við komið og ekki glöggt
hverjum það veitir að málum.
Tyrkir og Búlgarar fylgja enn
Miðveldunum bæði í Evrópu og
Asíu. Hafa Tyrkir átt mjög í
brösum við hersveitir Rússa í
Kákasus og Persíu og hersveitir
Breta í Mesopotamíu. Af þeim
stöðum hafa engin stórtíðindi
komið lengi.
Við Feneyjaboin:
þar sækja ítalir og Austur-
ríkísmenn. Hafa þeir lengst
leikið við Insonzofljótið, en þok-
ast furðanlega lítið úr stað allan
þennan tíma.
Sjá þó skeytin í blaðinu í dag.
þetta eru nú hinar merkustu
vígstöðvar á landi, og þó eigi
allar.
Hernaður á" sjó.
Hann hefur lengst af verið
mestur um það að hefta siglingar
til ófriðarlandanna. Aldrei hefur
neitt þvílíkum skipafiota verið
telft frain til ófriðar en samt eru
sjóorustur mjög fáar. Mesta eftir-
tekt vekur kaf bátahernaður þjóð-
verja og þykir koma æði ómak-
lega niður á hlutlausum þjóðum.
Tjónið af honum er meira en
svo að tölum verði talið.
ViðskifUn.
það mæla menn nú orðið, að
að svo hart sem hernaðurinn sje
rekinn þá sverfi nú viðskifta-
kreppan enn meira að. Kemur
það fram í ýmsum myndum t. d.
skorti á mjög nauðsynlegum
hlutum, er sækja verður í önnur
lönd. Stafar skortur sá að talsverðu
leyti af þeim vandræðakvöðum,
sem ófriðarþjóðirnar leggja hver
á aðra og á hlutlausar þjóðir.
Af þeim kvöðum leiðir svo
margskonar óhlýðni og beita menn
ýmist rjettu og röngu, en alt
kemur í einn stað niður: voða-
leg siys og stórtjón. Vjer ís--
lendingar höfum þegar nokkuð
af því að segja, þó smátt sje hjá
þvi er aðrir mega hafa.
Vátrygging og farmgjöfd.
Alt þetta ótrygga skipuiag, sí-
vaxandi áhættan og þetta ógnar
hrun á skipunum, hefur leitt af
sjer hina gífurlegustu hækkun á
gjöldum fyrir flutning og trygg-
ingu, svo að aldrei hefur þekst
neitt þvílíkt. Afleiðingin er svo
skortur og dýrtíð uni al<an
mentaðan heim.
Friðarhorfur.
þegar í upphafi styrjaldarinnar
reyndu ymsir merkir menn að
koma á sáttum en alt fór það
út um þúfur, sem kunnugt er.
Síðan hafa það einkum verið
tveir menn er leitað hafa um
frið; það eru þeir forseti Banda-
ríkjanna og páfinn. Síðastliðið
sumar var mikil ráðstefna með
jafnaðarmöhnum haldin í Stokk-
hólmi og önnur í Petrógrad og
mikið rætt um friðinn. En þjóð-
irrtar berjast eítir sem áður, og
aldiei af meira kappi en einmitt
nú. það er því eigi fyrirsjáan-
legt að neitt verði af sættum í
bráð, nema svo fari að einhver
þjóðin fari að semja sjerfrið og
raska þannig jafrtvæginu.
það er eftirtektarvert að allar
þjóðirnar þrá friðinn af instu rót,
en samt finnast engin ráð til að
svala þeirri sameiginlegu þrá alls
mannkynsins.
Sparið tíma yðar og peninga
i
það gerið þjer hvorttveggja best að því að skoða vörurnar
og gera kaupin þar sem mest og best er úrvalið, og þar sem
mestar líkur eru til að þjer getið fengið það sem yður vanhagar um,
alt á sama stað, hvort það er til fatar eða matar, útgerðar eða
annars, en öll þessi mikilvægu skilyrði uppfyllir best verzlun
G. J. Johnsen.