Skeggi


Skeggi - 08.12.1917, Blaðsíða 1

Skeggi - 08.12.1917, Blaðsíða 1
1. árg. Vestmannaayjum, Laugardaginn 8. desember 1917. 7. tbl. Til áheita er ertgin stofnun betrl, en „Ekknasjóðurinn', á næstkomandi vetri. Friðarhorfur. það er fyrst núna síðustu vik- urnar að farið er að tala um frið í fullri alvöru. Bandalögin hafa verið svo öflug á báðar hliðar til þessa, að um sjerfrið hjá ein- stökum þjóðum hefur ekki verið að ræða. Menn höfðu lengi þá trú, að friðurinn væri mikið kominn undir því hvernig Rúss- um gengi í ófriðnum. Nú er svo komið að þeir mega heita alveg yfirunnir og þeir hafa þegar byrjað á friðarumleitunum. það eru mestar líkur til að þeim takist að ná friði víð miðveldin, og það bráðlega. Aftur á móti er óvíst hvernig baridaþjóðirnar taka því að þeir fari að semja sjer- frið. Víst er um það, að ekki urðu þær við kröfum þeirra um að breyta friðarkröfum sínum og semja alsherjar frið. þær þykjast ekki hafa náð því marki, sem þær hafa sett sjer. En Rússar vilja ekki bíða lengur og er það vorkunn, eins og alt er nú komið í óefni hjá þeim. Flokkurinn sem heimtar friðinn, er orðinn öflugasti flokkurinn í landinu og ætlar sýnilega að nota fyrsta tækifæri til að semja friðinn. En sá hængur er á með þann flokk að aðrar þjóðir hafa, til þessa, ekki fengist til að viður- kenna yfirráð hans í landinu. Kemur það mest af því, að flokkar þeir, sem upp hafa komiö í Rússlandi siðan byltingin hófst, hafa allir reynst ófærir til að fara með völdin. þessi flokkur (maximalistar) er þeirra sterkastur og hefur friðarkröfuna fyrir aðal- kröfu, þess vegna er líklegt að hann hafi tryggari stuðning hjá þjóðinni heldur'tn aðrir flokkar. þjóðin mun þegar hafa fengið nóg af ófriðnum. Næstir Rússum standa R ú m- e n a r. þeir hafa einnig farið hinar mestu ófarir og geta vitan- lega ekki barist gegn miðveld- unum nema með hjálp Rússa, svo að þeir hljóta að verða þeim j áhangandi við friðarsamningana. í Öðru máli er að gegna um Serba. Land þeirra var hertekið fyrir tveimur árum, en leifum hersins og konungi var bjargað í hendur bandamanna. Síðan hefur her miðveldanna setið sem fastast í í iandinu og farið með það sem hernumið land. Um Serbíu verður því ekki samið fyr en alsherjar- friður verður saminn. Sama er að segja um Montenegro. í t a 1 i r hafa farið hinar mestu hrakfarir upp á síðkastið. Telst mönnum svo til að þeir muni hafa mist um 250 þús. manna fallinna, særðra og hertekinna í síðustu sókninni. þar með hafaþeir lika mist hinar bestu vígstöðvar sínar, mikil her- gögn og ágæt hjeruð. Er því lítil von til að þeir berjist til gagns í bráð. Að vísu hafa Frakkar og Bretar sent þeim lið, en það nægir þeim ekki, til þess sem þarf. það hefur því verið giskað á að ítalir mundu semja frið bráðlega, en líklega bíða þeir þó eftir Bretum og Frökkum, því örðugt mundi þeim um samningagerð við miðveldin eftir það sem á undan er gengið. Bretar og Frakkar segj- ! ast ekki munu seinja fyr en • þjóðverjar sjeu reknir úr Frakk- ! landi og Belgíu. Látast þeir nú ‘ vera komnir vel á veg með það. j Bretakonungur kvað hafa boðað j hátíðahald 6. jan. næstk. Mun ! þá standa talsvert til fyrir banda- j mönnum. það er haft eftir mál§- * metandi mönnum aö bandaþjóð- j irnar ætli að láta til skarar skríða , seinni partinn í vetur, eftir því ætti að mega vænta friðarins snemma á nœsta sumri. Ofanrituð grein átti að koma , í síðasta blaði. Síðan hafa komið | ýmsar fregnir af ófriðnum, sem j breyta útlitinu nokkuð. (Sjá j skeytin í blaðinu í dag). Hvernig væri nú að minnast dálítið á verkamannafjelagið hjer Eyju, í „Skeggja“. Jeg held það væri ekki svo vitlaust. Veit jeg það að vísu, að fjölda- mörgum lesendum „Skeggja* er kunnugt um það; en hitt veit jeg og, að þeir eru fjöldamargir líka, er eigi hafa hugmynd um í hvaða tilgangi það er stofnað, eða hvað því er ætlað að starfa. Margir munu þe>r vera, er ætla það eingöngu stofnað til þess, að hækka dag og tímakaup verkamanna svo gífurlega, að hvorki kaupmenn eða aðrir vinnu- veitendur geti undir risið og muni kannske þ’á og þegar fara á höfuðið vegna þess. En slíkt er fjarstæða, og ekki nema grunn- hyggnra manna, að ætla slíkt. Sumir telja verkmannafjelags- hreyfinguna hjer með öllu óþarfa, því hjer sjeu allir vinnuveitendur og enginn þurfi að þiggja vinnu. En slíkt er líka fjarstæða; og sýna það best þessi tvö eða hátt á þriðja hundrað manns, sem í verkamannafjelagið hafa gengið, að þeir þykjast ekki allir miklir vinnuveitendur. Jeg vildi því með línum þess- um, skýra fyrir þeim, sem rangan skiining hafa á stofnun verka- mannafjelagsins, tilgang þess, og hvað því er ætlað að starfa. Saga fjelagsins er ekki löng. það var í fyrra vetur, að nokkrir menn bjuggu út skjöl, og gengu með þau á miili manna, og ljetu þá skrifa nöfn sín á, sem væntan- lega þátttakendur í fjelaginu. Skrifaði fjöldi manna nöfn sín á skjöl þessi; jafnt bændur og búa- lið fyrir ofan hraun, og austur á Kirkjubæjum, einsog við tómthús- menn hjer við sjávarsíðuna. Svo var haldinn stofnfundur, og lög búin til, og þá var það auðvitað fyrst fyrir að ákveða kaup verkamanna, og ætti engum vinnuveitanda að vera það þyrnir í augum þótt verkamaður ákveði hvaða kaup hann vill vinna lægst fyrir. þetta gjöra kaupmenn. þeir ákveða verð á vöru sína. Já, og væru hafðir að athlæji ef þeir hefðu dagprísa. Og á hverj- um vetri sjáum vjer auglýsingar festar upp á götunum, með nöfn- um kaupmanna og lifrarbræðslu- manna undir, og hljóða eitthvað á þessa leið: „Frá því í dag gefum við ekki meira fyrir lifur en þetta“ o. s. frv. þarna mynda þeir allir fjelagsskap til þess að ákveða vist verð, og heyrist aldrei að riokkur maður fetti fingur að því. En gjöri vinnulýður fjelag með sjer til þess að ákveða verð á starfskröftum sínum, þykir það óhæfa hin mesta og margir sem ota öllum öngum á móti slíkri hreyfingu; og mundu stanga með . hornum væru þau á höfðum þeirra. — Annar aðaltilgangur verka- mannafjelagsins er sá, að safna sjer fje í sjóð, sem vera skal til hjálpar fátækum verkamönnum ef slys ber að höndum og nefnist sjúkrasjóður, og ganga 2/s partar allra ársgjalda í þann sjóð. Get jeg ekki ímyndað mjerað nokkur heilbrygt hugsandi maður álíti það óhæfu eða óþarfa þó sjúkrasamlag sje stofnað í sýslunni. Er í sannleika sorglegt til þess að vita, að margir þeirra sem í fyrstu skrifuðu sig á listana skuli ekki ennþá vera farnir að inna af hendi þessar 3 eða 4 krónur, vitandi það þó, tll hvers þær | eiga að ganga. Hugsum okkur að einhver bláfátækur fjölskyldumaður slas- ' ist eitthvað, beinbrotni eða eitt- hvað þvílíkt, svo hann sje frá vinnu. Ef hann er í verkamanna- fjelaginu er hugmyndin, að veita honum læknishjálp og jafnvel samskonar daglaun og hann hafði, úr sjúkrasjóðnum. Sje hann ekki í fjelaginu getur hann. ekki snúið sjer til annara en hrepps- nefndar, og geta allir gjört sjer í hugarlund úr hvorum staðnum muni vera ánægjulegra fyrir mann- inn að þyggja hjálpina. Má það merkilegt heita að sumir hrepps- nefndarmennirnir skuli veitast á móti verkamannafjelaginu, sem einmitt er til þess, ef sjúkrasjóður- inn er nógu öflugur, að ljetta á herðum þeirra. Nema það sje fyrir þá sök, að þeir kvíði fyrir að fara á mis við þetta fína orð- bragð sem sumir sveitastyrks- þyggjendur láta þeim í tje. — þegar menn athuga nú tilgang verkamannafjeiagsins einsog hann er, og einsog jeg hefi reynt að 1 útskýra, skil jeg ekki í að nokkur þurfi að skammast sín fyrir að vera í því, hvort sem það eru fátækir daglaunaaienn hjer í kaup- staönum eða efnaðir bændur fyrir ofan hraun eða austur á Kirkju- bæjunum, og jeg skil heldur ekki í því, að menn þeir, sem skrif- uðu sig á fyrstu listana, láti sig muna um þessar 4 krónur, enda þótt þeir færu aldrei í daglauna- vinnu og kæmu aldrei á fundi fjelagsins. En hvað vil jeg fátækur verka- Yefnaðarvörur, sm ekklegastar, mest úrval, ódýrastar. S. 3. Sofvnjen.

x

Skeggi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skeggi
https://timarit.is/publication/208

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.