Skeggi


Skeggi - 09.03.1918, Qupperneq 4

Skeggi - 09.03.1918, Qupperneq 4
SKEGGI ísafjarðarkaupstað . . Húnavatnssýslu . . . Skagafjarðarsýslu. . . Eyjafjarðarsýslu. . . . Suður þingeyjarsýslu Norður-þingeyjarsýslu Norður-Múlasýslu . . Suður-Múlasýslu. . . Seyðisfjarðarkaupstað 10 17 101 5 835 127 9 6 6 Eins og sjest á skýrslu- þess- ari, er geitfjeð flest í Skagafj.- og þingeyjarsýslum. þetta er akki fyrir það, að þessar sveitir hafi betri skilyrði tii að efla geita- ræktina, nema ef vera skyldi Suður-þingeyjarsýsla, heldur það að menn í þessum sýslum eru lengst á veg komnir með að sjá og, skilja hagnað þann er geita- ræktin gefur af sjer. það þurfa fleiri að læra. þannig endar hin fyrnefnda „Fram“-grein og er það hverju orði sannara, að það þurfa fleiri að læra. Haraldur Sigurðsson. Formanna- fundurinn. —o — í síðasta blaði var getið laus- lega um fund þann, sem formenn hjeldu með sjer 26. f. m. Kemur hjer stutt ágrip af fundargerðinni. Tildrög fundarins voru þau að nokkrir formenn á bátum, sem gerðir voru út með net, höfðu komið sjer saman um að kalla á fund alla formenn, sem ætla að nota þorskanet í vetur, til að ræða um sitthvað viðvíkjandi netlögum. Fyrir fundarboðinu gengust þeir útvegsmennirnir Magnús Guðmundsson, Gísli Magnússon, Stefán Guðlaugsson o. fl. Mættir voru 27 menn. Fundarstjóri var kosinn Joh. Sörensen bakari og útvegsmaður, skrifari Páll Bjarnason ritstj. Málshefjandi var Magnús Guð- mundsson útvegsbóndi. Taldi hann upp ýms atriði, sem snerta þorskveiðar með netum. Urðu umræður fjörugar og þó hóflegar. þetta voru helstu atriðin: Skemdir á veiðarfœrum, af mannavöldum. Kom mönnum saman um að sá ósómi hafi átt sjer stað og yrði eitthvað að gera til að varna því að slíkt kæmi fyrir framvegis. Var að síðustu samþykt að formenn, sem veiða með netum, skyldu leggja f'ram í fjelagi, alt að 1000 kr. til verðlauna handa þeim, sem geta sannað sakir á þá sem spilla netum manna að nauðsynjalausu. Verndun veiðarfœra. Nokkuð var rætt um hvernig mögulegt væri að afstýra því að net ræki úr lögnum og færi í hnúta. Fanst mönnum bera nauðsyn til að gæta allrar varúðar þegar net eru lögð, að leggja ekki of náið hver öðrum, nje heldur að leggja net í dimmu. Dálítill S ÓÞARFT er að taka það fram, því það er fyrir löngu alkunnugt, og það vita allir, að allar vörur til úigerðar, fá menn b e s t a r og ódýrastar í verslun Qtf' £. 3. SoSmse* n —e) «r'—^=7 Ísíélag Vest,m.eyja” verður að ganga ríkt eftir því, að síld sú, og geymslukaup, seni það hefir lánað út, eða hér eftir lánar, yerði borguð mánaðarlega, til þess að það geti fullnægt skuldbindingum þeim, er á því hvíla út af síldar- og kjötkaupum þess á næstliðnu hausti. Félagið telur sér því ekki fært að lána síld þeim útgerðar- félögum, sem ekki borga úttekt sína í lok hvers mánaðar. Vestmannaeyjum 22. janúar 1918. ,.3s5étagsvt\s“. Nýir kaupendur fá blaðið frá áramótum og árganginn út fyrir aðeins 4 krónur. ágreiningur var um það hvort betra væri að hafa „útfara“ frá netunum og hversu þungir stjórar þyrftu að vera, en ekkert sam- þykt um það. Friðun Álsins. Talað var um að æskilegt væri að friða Álinn fyrir botnvörpungum um þann tíma, sem net eru lögð, þar eð hann er talið besta miðið fyrir þorskanet hjer við eyjarnar. Voru kosnir 3 menn til að gera tilraun í þá átt. Kosnir voru: Gísli Magnússon, Magnús Guðmunds- son og Magnús Jónsson. Merking veiðarfœrg. Nokkrir fundarmenn ljetu í ljósi þá skoðun að nauðsynlegt væri að fiskimenn merktu veiðarfæri sín eins og bændur fje sitt, töldu enda rjett að slíkt væri lögboðið. Yrðu menn þá auðvitað að hafa ein- hverja reglu til að fara eftir, svo að ekki yrði sammerkt; sam- eiginleg „markaskrá* yrði að vera til fyrir þá, sem veiða á sömu miðum. Ekkert var samþykt um þetta, en óskað að fiskifjel.deildin „Ljettir" tæki þetta til meðferðar. Að síðustu var Magnúsi Guð- mundssyni falið að gera ráðstaf- anir til að ná saman verðlauna- fjenu, sem áður er nefnt, og kunngera mönnum með hvaða skilyrðum það verður veitt. Skipstrand. Nýlega strandaði danskt segl- skip á Meðallands-fjörum, með 7 mönnum; 2 af þeim druknuðu. Skipið var með pappírsfarm frá K höfn til Spánar. Litlu eða engu af farminum varð bjargað. Ólag á símanum enn. Undanfarnar vikur hefur verið afarörðugt að tala í símann til Reykjavíkur, aðgerðin virðist ekki hafa hepnast vel. Ösin er hin sama þegar fært er að tala. Veðurskeyti koma örsjaldan. það var því eigi um skör fram, er bent var á það hjer í blaðinu hver nauðsyn er á að fá einn þráð í viðbót. Má ekki lengur við þetta una, ef nokkur tök eru á að fá efnið. Eínstakir menn verða að fá að leggja þráðinn, ef stjórn landssímans fæst ekki til þess. Ljósið á hafnargarðinum. Sjómenn kvarta undan því, að ljósið á hafnargarðinum sje næsta óstöðugt. það þykir bráðnauð- synlegt við innsiglingu í dimm- viðri. því bagalegra er þegar það sloknar, mannskaðanóttina sloknaði það skömmu áður en síðasti báturinn lenti. þetta getur valdið slysum. Hafnarnefnd ætti að athuga þetta hið bráðasta, og gera á umbætur, ef mögulegt er. Væri ekki ráð, að hækka stöngina, sem ljósið er á, og fá öðruvísi ljósker? Ljósið er helst of dauft, þyrfti að vera töluvert sterkara og umbúnaður allur traustari. Tvö «ý blöð eru farin að koma út. Annað heitir „Verslunartiðindi“ gefið út af Verslunarráði íslands, ritstjórt Georg Ólafsson cand. polit. Hitt heitir „Dagur“ gefið út á Akureyri; ritstj. Ingimar Eydal. C Goos, fyrrum kenslumáia og dóms- málaráðherra Dana og íslands- ráðherra um hríð, er nýlega látinn. Ný fregn. Friður saminn á öllum austur- vígstöðvunum. Áköf stórskotahríð á vestur- vígstöðvunum. Bretar hrinda á- hlaupum. Barist í L i 11 u - A s í u. Útflutningsleyfi fyrir vörur í Gullfoss ófengið; Lagarfoss á þó að fara vestur. Bæjarfógetaembættið í Rvík veitt Jóh. Jóhannessyni bæjar- fógeta á Seyðisfirði. Lögreglustjóraembættið í Reykjavík veitt Jóni Hermanns- syni, skrifstofustjóra. Skrifstofustjóraembættið á 3. skrifstofu stjórnarráðsins er veitt Magnúsi Guðmundssyni sýslum. Skagafirðinga. Kartöflumjöl. S a g o, stór & smá. Sæt saft. S. 3* 3°^nsen. Nýkomið: lyiargar tegundir af ágætu Kaffibrauði. Sagógrjón SuHutau EpH Svínafeiti Gærpulver Brynj. Sigíússon. Prent'-m. Ve.stmannaeyja.

x

Skeggi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skeggi
https://timarit.is/publication/208

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.