Suðurland

Ataaseq assigiiaat ilaat

Suðurland - 12.01.1911, Qupperneq 3

Suðurland - 12.01.1911, Qupperneq 3
SUÐURLAND. 123 því fram, að stóru útsýni, fjarðamyndum og háfjallamyndum, væri ekki hægt að ná á málverki, af því að það væri einkum stærðin, sem áhrifln gerði, en þau áhrif hefði sér fundist hljóta að verða að engu, er myndin færðist yfir á léreft, sem ekki væri stæna en 70X80 cm. En nú segist hann verða að fylgja þeirri kenningu til grafar, því Ásgr. Jónsson hafl náð bæði stærð og vídd inn i þetta málverk. Áhorf- andinn „flnnur, að hann er sjálfur lítill frammi fyrir því“, segir Krogh, og það eru þau áhrif, sem hann segir, að sér hafi áður fundist eigi vera hægt að ná á málverki. Eins segir haun að Ásgrímur hafl náð þessu, stærð og vídd, inn í lítið vatnslita- málverk, sem hangi við hlið Heklumyndar- innar, en nefnir ekki, hvað það sé, sem þar er sýnt. Honum virðist Ásgrími sér- staklega sýnt um að mála með vatnslitum. Um Þórarinn Þorláksson segir Krogh, að hann sé blíðari og danskari en fólagi hans. Hann muni hafa lært á listaskólan- um í Charlottenborg, því hann máli alveg eins og þeir Kröyer og Henningsen, er þeir hafl, eftir skólavistina, komið úr kenslu hjá Verrnehren. Tilgátan er alveg rétt; Þórarinn hefir verið á listaskólanum í Chavlottenboig og siðan hjá Vermehien. „Verdens Gang" frá 30. f. m. segir, að í „Áning“ Þórarins, er blaðið kallar „Aften stemning", og í andlitsmynd, sem hann hefir málað af sjálfum sér, sé „fin og al- varleg list“. Bæði í því blaði og vlðar er það fundið að myndum beggja, að þar vanti sterka Og fjölbreytta liti, og þykir „Verdens Gang“ það þó eiga enn meir við um Þórarinn en Ásgrím. í „Dagblaðinu" frá 24. f. m. er talað um þetta sama. Sá, sem þar skrifar, segir: „Þeir verða að fara út í hina stóru, skín- andi Evrópu, ekki til kongsins Kaupmanna- hafnar, því þar liggur enn gömul þoka yfir málaralistinni, heldur eitthvað annað, gjarn an hingað til okkar, því þar munu þeir fljótt sjá, hvernig geislar geta staðið af málverki". Norðmanninum, sem þetta skrifar, skjátl- ast dálítið, því annar maðurinn, Ásgrímur Jónsson, hefir faríð víða um lönd, meðal annars dvalið svo missirum skiftir í Ítalíu". Sjónleikar. —0— Síðastliðið sunnudagskvöld, sýndi leikfé- lag Stokkseyrar hér 2 sjónleika, þá er þeir hafa áður leikið heima i vetui og getið var um í síðasta tbl. Sl. Pólitisk blindni og Fagra malarakonan. Fyrri leikurinn er allgóður og leikend- urnir leysa hlutverk sín vel af hendi, en hættir þó sumum við að lesa of mjög, og óprýðir það framburðinn. Annars er leik- ur þessi svo mjög styttur úr því sem hann er hjá höfundi að aðeins er svipur hjá sjón, og er það ekki sagt leikendum til lasts, ofvaxinn leiksviði og öllum út- búnaði hér, sem er í aumasta lagi, og mann furðar á að nokkuð skuli vera hægt að skemta á slíku leiksviði. Síðari leikur- inn Fagra malarakonan, skemti áhorfendum sérlega vel, þar leikið betur, og sumir léku þar svo vel, að unun var á að sjá, sórstak- lega malararkonan, hún er óefað ágætis leikkonuefni, sérstaklega í ástarhlutverkum, sem hún leikur sórlega vel. Frændi henn ar er og vel leikinn, svo mörgum varð kátt af, þó virtist sumum hann sýna helzt til mikla léttúð. — Húsfyllir var þetta kvöld og var það vel farið, því mikið verða leikendur að leggja á sig og eiga því skilið að vel séu sóttir leikarnir, enda ekki samboðið íslenzkri gestrisni annað en taka vel á móti gestum sinum sem að koma, og sýna þeim kurt- eysi. — fökk sé þeim fyrir hingaðkomu sína og góða skemtun. Ahorfandi. Góð mjólkurær. — 0— Úr á einni hér fengust í sumar 227 pund mjólkur. Ærin er mórauð að lit, meðalstór, og líklega um átta ára gömul. Petta er þess fremur athugavert, sem síðastliðið vor var óvenjulega hart hér vestanlands. Sauðgróður kom svo seint að fé grentist mikið og náði sér eigi fyr en undir júlímánaðarlok. Ekki set eg þessa tölu hér af því, að eg álíti að þetta sé framúrskarandi góð ær, því eg þykist viss um, að margar ær finn- ast jafngóðar og betri, ef vel væri leitað hér um sveitir, heldur set eg það atallega til þess, að menn fari betur að taka eftir, hvað hver einstök ær þeirra mjólkar. Það er svo afarmikilsvert að geta fengið glögga hugmynd um hver ærin er i raun og veru bezt. Þá fyrst er hægt að byija á úrvals- kynbótum, sem eru mjög þýðingai miklar, einkum á mjólkurfé, þvi þar inun mis- munurinn vera einna mestur á meðaltali og einstökum kindum. Einnig væri fróð- legt að vita nokkurnveginn hve margra króna virði sú mjólk er, sem dilkarnir drekka yfir sumaríð. Setjum svo að Móra hefði gengið með dilk í sumar, þá mætti verðleggja það á 13 krónur 62 aura, sem hann heflr fengið úr henni fram yfi.i hag- færinginn, eða á 6 aura hvert mjólkurpund, og slíkt er alls ekki of hátt hér. Hann hefði þá í hæsta lagi borgað helming af þessu aukafóðri, en hinn helmingurinn al- gerlega tapast. Eg vona að sjá það innan skamms að Móra eigi sér fullkomna jafningja. forfinnsstöðum 9. október 1910. Jón A. Guðmundsson. [Freyr]. Fjær og- nær. Skrið segja nú R.v.blöðin, sé að koma á hafnarmálið þar. Bæjarstjórnin hefir haft málið til með- ferðar og einnig hafnarnefnd. Hafnarstj. Á------------------------------- }51úðar|iakí?ir fil „.Söngfélagains" fýrir fíina fögru qjöf. ©uðm. IZielseiþ, í Noregi Gabríel Smith heflr gert, 2 áætl- anir um hafnargerð, og hefir hafnarnefndin ráðið til að fylgt væri áætlun hans, er nú í raði að málið verði undirbúið og afgreittt til þingins. Sextán hundruð þúsund krónur á höfnin að kosta, segir ísafold. Sundið á nýjársdag var þreytt, eins og til stóð, og varð Stefán Ólafsson hlutskarp- astur, sem fyr, hefir hann nú 2 unnið Grettisbikarinn og vinni Stefán í 3 sinn, verður bikarinn eign hans. Kalt var í sjóinn á nýjársdag, aðeins 2 stiga hiti. Mauntalið. Til þess að vinna að því hafa verið ráðnir Georg Ólafsson cand. pol. og Jóhann Kristjánsson ættfræðingur. Búist er við að fleiri muni þurfa að ráða til þessa starfa, áður lýkur. Kinnarhvolssystur er nú verið að leika í Reykjavík um þessar mundir. Höf. leiksins er danska skáldið C. Hauch. Ind- riði Einarsson þýddi. Mikið er af leik þess- um látið, eru þó gallar á ýmsu enn hjá leikfélagi Rvíkur að því er blöðin segja, en mjög hefir því farið fram nú á síðari árum, bagar þó mjög óhentugt húsnæði o. fl. — Fánaillálið er nú risið upp aftur, hafa bæði ungmennafélög og landvarnaifélagið komið með ákveðnar tillögur um það. U. M. F. Akureyrar, hefir t. d. samþykt svohljóðandi till.: „Til að hrinda fánamál- inu áleiðis álítur félagið heppilegt, að lög- leiddur verði sérstakur staðarfáni og ákveð- ur því að beita sér fyrir því að skorað verði á næsta alþing að samþykkja lög þess efnis og telur æskilegt að lögin geti öðlast gildi fyrir 17 júni 1911.“ U. M. F. R. hefir samþ. svohljóðandi tillögu: „Félagið vill vinna fyrir fánann sem fullkomið sjálfstæðismerki þjóðarinnar. Félagið er algerlega andvigt staðarfána. Félagið telur það heppilegustu leiðina fán- anum til stuðnings að vekja áhuga þjóðar- innar á honum og fá menn til að nota hann, en snúa sér ekki til þingmanna né þingmálafunda að svo stöddu." Skúli fógeti. Næsta vetur, 12. des., eru liðin 200 ár frá því er Skúli Magnús- son landfógeti fæddist. Ráðagerðir eru um það, bæði í Reykja- vík og Akureyri að gera eitthvað til minn- ingar og heiðurs því mikilmenni. Gullift í Miðdai. Fjallk. segir að enn á ný hafi verið tekin sýnishorn úr námunni i Miðdal og send til Englands til rann- sóknar. Er nú búist- við, að ekki líði á löngu áður vist verður, hvort tiltækilegt þykir að reka þar gullgröft eða ekki. Silfurbergsnámuiia á Ökrum á Mýrum hafa Frakkar nýlega keypt fyrir 5000 kr,

x

Suðurland

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Suðurland
https://timarit.is/publication/211

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.