Suðurland


Suðurland - 27.01.1912, Side 2

Suðurland - 27.01.1912, Side 2
136 SUÐURLAND. um það vib'sýslumann, en það varð árang- yrslaust. Eg'fór þá á fund sýslumanns. Samdist þá svo um, að hann "borgaði helminginn, kr. 14,60 a. móti því að hinu ' væri fslept. fessu lofaði eg, að þvi er eg gæti viðráð- ið, gaf því kvittun, en man ekki’f hvernig hún var orðuð, eins og eg gat ;um á íund- inum. Eg hefi því síðan haldið því fast fram að sleppa þessum kr. 14,60 a. eða borga þær sjálfur;að ftðrum kosti. Mín sannfæring er og'hefir verið, að þó dómsleiðin hefði verið valin, þá hefði sam- bandið ekki haft upp úr því annað en kostnað og ósóma. A tveimur aðalfundum hefir þetta verið þráttunarefni, og margir andstæðir tillögu minni jað sleppa umgetnum 14 kr. 60]aur. Telja þetta beina skuld hjá sýslumanni og að eg hafi gefið eftir af skuldinni, eins og fram hefir komið í bókuninni. En eg segi réttara, að eg hafi aðeinsjgert samning um ágreiningsatriði upp á væntanlegt samþykki aðalfundar. Sig. Guðmundsson. ---------------- Bréf úr Grafningnum. Eg var búinn að lofa „Suðurl." að senda því línu héðan, en það heíir dregist til þessa af þeirri orsök, hversu viðburðalít.ið hér er. Auðvitað hefði altaf mátt skrifa um tíðar- farið, en það mun svo líkt hér — eða hefir verið — sem snður á Eyrum, en alt fyrir það er fróðlegt að vita um það, því á því byggist svo margt í lífi mannanna. Sumarið var hér mjög gott og hagstætt, hey þornuðu jafnóðum, svo hrakningar urðu engir, fyr en hjá þeim er síðastir voru við slátt. — Um höfuðdaginn brá til rigninga, er héldust fram að réttum, en eftir það komu þurkar „Laufvindarnir" sem kallaðir eru Norðan- og Austanlands. Grasvöxtur var víðast hvar góður, nema í upp Grafningi, þar var tilfinnanlegur gras- brestur á vallendi — mýrar eru þar eng- ar, — það var kalið svo mjög víða. Af túnum varð allstaðar minni taða en í fyrra, svo sumstaðar nam helming og að 2/s móti því er var i hittifyrra (eða 1909). Þrátt. fyrir töðubrestinn hafa bændur ekki fækk- að kúm, heidur komið þeim í fóður, suður i Ölfus og Flóa. Yfiiieitt, þá litið er á heybyrgðir sveitarinnar, verður ekki annað sagt, en bændur séu allvel settir að heyj- um. Ekki hefir bráðafáiið gert vart við sig, að nemi, 1—3 kindur drepist á bæ, en á einum 9 eða 11. Hér láta flestir ef f'ekki allir bólusetja, og má telja það ugglausasta ráðið til varnar pestinni. íslendingar mega vera þakklátir prófessor 0. Jensen fyrir starf hans og rannsókn á pestarbakteríunni og voru þær 2000 kr. er þingið veitti hon- um fyrir þessa starfsemi sína fyrir íslenzka sauðfjárrækt eða til tryggingar henni, að- eins þakklætisvottur írá þjóðinni, því rann- sókn hans og tilraunir hér, hafa auðgað Jandið fjárhagslega um fleiri þúsund krón- ur á ári, vegna þess, hversu bólusetningin gegn fárinu hefir dregið úr því og að mestu útrýmt því á síðari árum. Á skitupest hefir orðið vart við í lömbum, en iíklega stafar hún af umskiftum frá beit til fóðurs en ekki-af bakteríu. Fjárheimtur hafa orðið allgóðar og væn- leiki fjár í meðallagi. Mjög mikil óánægja hefir verið hér yfir ágangi þeim er Flóafé hefir gert á afrétt og heimalönd, er Öifusingar hafa tekið og er víst, ef Ölfusingar halda áfram að taka það, verður það að misklíðarefni miili hreppanna, en vonandi er, að þeir sjái að sér, því afréttur þeirra er ekki meiri en fyrir þeirra eigin fénað, ef ekki á að verða ofsetinn, en Grafningsmenn munu aldrei taka upprekstursfé, austan yfir Hvítá — Ölfusá. í vor var gerð veiðisamþykkt fyrir veiði í Þingvallavatni, er gekk í gildi 15. sept. Hversu hagkvæm þessi samþykkt verður, sker tíminn úr, en víst er það, að hún hefir verið dauður bókstafur síðan hún gekk í gildi og til þessa tima, því ekki hefi eg né fleiri orðið var við noitt eftirlit á riðilstærð, né netalengd í haust, og hefði þess þó verið þörf ef samþykktin á að verða að nokkru gagni, en tilfellið er, að þeir eru víst engir til, er hafa eiga eftirlitið á hendi, — ekki voru þeir kosnir á Heiðar- bæjafundinum, og síðan hefir ekki verið boðað tii fundar. I’eir sem bezt börðust fyrir samþykktinni á íieiðarbæjarfundinum, geta víst gefið upplýsingar í þessu efni ? Lítið er hér um skemtanir, ein skemtun hefir verið haldin — víst sú fyrsta hér — á Bíldsfelli um daginn, en var fremur illa sótt, vantar ræðumenn, skáld og dansfólk. Fáar sveitir, er liggja jafn nærri höfuð- stað landsins, eru jafn afskornar frá um- heiminum, sem Grafningurinn, honum er svo ólánlega í sveit komið, ef svo mætti að orði komast, að undrun sætir. Eftir Grafningnum er engin umferð af ferðafólki og liggja þó sinn hvoru megin við hann afarfjölfarnir vegir — fingvallavegurinn og Hellisheiðarvegurinn, — og engir taka sér sumardvöl hér, er þó landið bæði „fagurt og frítt", dalir hálsar, fjöll, skógur, hverar, veiði og margt fleira, en alt er það einskis virði sem stendur, fyr en nýir tímar og nýir menn lífga þessa afbygð, sem er full náttúrufegurðar og að mörgu Jeyti víst einkennileg frá jarðfræðissjónarmiði, ef vel væri rannsökuð. Komi sú tíð, að járnbrautin verði lögð austur yfir heiði, þá er efasaint hvort hún ætti frekar liggja fyrir austan vatn en vest- an. Eg tel líklegt, að brautin yrði ekki dýrari vestan megin. Það hefir verið tek- ið til, hversu örðugt væri um Jórukleif, en þeii örðugleikar eru víst talsverðar grýlur. Eg get ekki skilið í öðru, en hægt væri að hleypa brautinni niður hjá Heiðarbæ, ofan að vatni og ofan i vatnið, eftir ílæð- armálinu, undir klyfinu fyrir norðan Svína- nesið og eins í flæðarmáli undir Sigríðar- klyfi, eftir það tekur hún sig upp, hægt og hægt, þar til hún hefir náð upp í dalinn fyrir ofan Ógöngur, eftir það getur hún haft halla eftir vild, yfir Jórugil neðarlega og eins Illagil, svo má fara hvort sem vill suður Botnadal eða í gegnum skarðið hjá Mosahnúk austast á Krummum og áfram suður. Komi brautin þessa leið, þá mun lifna yfir Grafningi. Eitt af þeim málum, sem vert er að hreyfa í sambandi við Grafninginn, er síma- sainband frá Kotströnd eða SeJfossi, upp á Þingvöll. Síminn ætti' að liggja eftir Grafningnum endilöngum inn' hjá Heiðarbæ á Bingvöll. Líklegt. er að/símalína er lægi þessaUeið, kæmi t.il að bera sig vel vegna ferðamannastraumsins um og á ” ÞingvöJl. Er ekki sjálfsagt að sýslunefndarmenn Grafningshrepps'og í’ingvallasveitar beittu sér fyrir þessu á næsta sýslufundi, að mál- iðj,væri rannsakað og kostnaðaráætlun feng- in, því þetta er mál, er mjög varðar þessi hreppsfélög í komandi framtíð. Eg er nú búinn að skrifa dálítið, sem eg vona að nægi um stund. En nokkuð var eftir. — Yeturinn hefir verið ágætur, sem af er, en nú er hann á norðati og bú inn^að klæða landið hvítum hjúpi. 13. jan. 1912 E. G. Norðdal. ------c^o-o----- Bændaförin. Því var áður lofað að geta þessarar bók- ar að einhverju, og skal það nú efnt. Raunar er „ekki nema eitt til að segja“ um þessa bók, því hún heflr kosti eina til að bera, að vorum dómi, og kunnum vér engum betri ráð að gefa, en kaupa hana og lesa. Eftir því mun enginn sjá. Glögglega sannast það á höf. að „glögt er gests augað", hafá þeir veitt öllu ná- kvæma eftirtekt, svo að undrum sætir, er tekið er tillit til þess, hve þeir voru á hraðri ferð. Hreinn og hressandi norðanblœr and- ar frá hverri blaðsíðu í bókinni. Það köll- um vér heilnæini, norðanmenn. — Jón Sigurðsson frá Ystafelli og Sigurður skáld Jónsson frá Arnarvatui hafa ritað bók þessa. Gægist skáldið all oft fram milli linanna. Rað teljum vér kost. Bók þessi mun, er stundir líða, verða talin merkisbók, er forvitnast skal um háttu og siðu á því herrans ári 1910, og þá er við bar í bœnda/örinni. — — - — Þær virðast óþarfar athugasemdirnar hjá Sigurði ráðunaut, í síðasta Frey, er hann ritar um Bændaförina. Honum þykir þeir gera lítið úr svip Flóans, og sömuleiðis það sem höf. minnist á sauðfé, suður hér, ekki nægilega á rökum stutt. Um svip Flóans er nú fátt að segja. Hann er enginn. Flatneskja getur aldrei orðið svipmikil. Rví aldrei verður hægt að reikna það Flóanum, þó fjallahringurinn sé víða fallegur. Hann er aðeins umgerð, og hún mikilfengleg. Ró Flóinn sé búsæld- ar sveit, og því neitar enginn, verða bæði Sigurður ráðunautur og aðrir Flóamenn að una því, þó oss Norðlingum þyki hann kollóttur. — Um sauðféð er það að segja, að kunnugt ætti það að vera ráðunautnum, að Þingeyingar geta djarft úr flokki talað um vænt fé. Óvíða á landi voru mun fallegra og vænna fé, en í Fingeyjarþingi, enda leggja Ringeyingar ólíkt meiri rækt við sauðfé sitt, heldur en bændur hér sunn- anlands.

x

Suðurland

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Suðurland
https://timarit.is/publication/211

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.