Suðurland


Suðurland - 27.01.1912, Síða 3

Suðurland - 27.01.1912, Síða 3
SUÐURL AND 137 Rétt þykir að leiðrétta þann misskilning, sem slæðst hefir inn í einstök blöð, er minst hafa á hók þessa. Þykir þeim kenna fordildar hjá Norðlingum, er þeir nefndu grundina á Jt’ingvöllum, þar sem þeir vöktu lengi nætur við söng og ræðuhöld, „Norð- lingaflöt'1. Rað voru ekki Norðliugar, sem fundu upp á því. Heldur var það Halldór bóndi Einarsson á Kárastöðum, sem stakk upp á því, að flötin skyldi þannig kallast, og mun enginn finna honum það til foráttu, þó hann vildi að Þingvöllur mintist þess, að jafn göfugur skari hefði hann heimsótt- an. Pað er langt siðan að jafnmargir Norð- lingar hafi komið í eirium hóp að heilsa upp á forna þingstaðinn. Nú er hún Snorrabúð stekkur, og lyngið á Lögbergi helga blánar af berjum hvert ár börnum og hröfnum að leik. Einu sinni voru Norðlingar • þar kunnir, og gott þótti þeim mönnum, suður hér, er Norðlingar vildu að málum veita. Er því vel til fallið, að i 'hinni nýju sögu fing- valla verði Norðlinga getið, og mun kvæði Sigurðar á Arnarvatni stuðla að því að svo megi verða. Aðalútsala á bókinni hér austan fjalls er hjá Þórði Jónssyni, bóksala á Stokkseyri. Verð kr. 1,50. Spói og Pröstur. -------<xx>------ Sjónleikar. Aftan við grein mína með fyrirsögninni Sjónleikir, 33. tbl. Suðurlands, er athuga- semd, og eftir því sem mér skilst, er þar verið að eigna leikendunum á Stokkseyri þessa grein, þá læt eg lesendur Suðurlands vita að eg er hvorki leikandi né þýðandi, og rita ekki þessar línur að tilhlutun leik- fólagsins heldur af því eg áleit að það mætti unna Stokkseyringum sannmælis alveg eins og öðrum. Að öðru leyti ætla eg ekki að svara þess- ari athugasemd að þessu sinni. Ahorfandi. cijcer og nœr. Stokkseyrí 24. jau. 1912. Að tilhlutun ungmennafélagsins hér, hélt sóra Gísli Skúlason fyrirlestur sögulegs efn- is í Goodtemplarahúsinu 18. þ. m. fyrir fullu húsi, og var vel fluttur og hkaði á- gætlega. — Jón Sturlaugsson hafnsögu- maður ætlar að fara á mótorbát sínum til Vestmannaeyja, er færi gefst, og róa það- an, þar til að fer að fiskast hór. Mörgum líkaði miður grein sú, er var í síðasta Suðurlandi um leikfólagið hór, þótti meir gjört sór far um að sverta leikfóiag- ið, en iíta hlutdrægnislaust á sjócleik þeirra, og með tilliti til þess, að það borgar sig ekki að verja miklu fé né fyrirhöfn i,il þeirra hér austanfjalls, enda oítast sýndir stuttir gamanleikir, — er eigi rétt að gjörð- ar séu listakröfur til þeirra, enda fáir hér, sem geta þann veg dæmt þá, svo vit sé í. En þó er það verra við grein þessa, að hún stuðlar að því að auka ósamkomulag milli þorpanna, með því að ófrægja plássið í heild sinni, og er slíkt höf. til lítillar frægð- ar, og væri honum sæmra að nota sínar góðu gáfur til annars þarfara, og Suðurl. mun hafa verið ætlað þarfara verk, er það hóf göngu sína, en að koma slíku til leið- ar, og er vonandi að það geti haft nyt- samara að færa lesendum sínum. i\ y. * * * * * * * * * „Mikils þótti þeim viðþurfa", sannast á vinum vorum Stokkseyringum, því ekki minna en 5 ritsmíðar hafa borist Suðurl. um þessar mundir, sumar að tilhlutun „leikendanna" á Stokkseyri, og allar eiga þær það sameiginlegt að ráðast að Suður- landi með hálfgerðum ónotum, fyrir „kulda- legar aðdróttanir" og „ósanngjarnar ásak- anir“ og fleira. Stærsta glappaskotið frá vorri hlið, mundi helst hafa verið það, að leyfa Áhorfanda rúm í blaðinu, þá hefð- um vér losast við frekari umsvif og óþarf- ar deiiur. Öllum aðdróttunum um að gjöra tilraunir til að spilla á milli þorpanna, vís- um vér frá oss sem ósönnum, látum vór réttsýna lesendur blaðsins vera æðsta dóm- ara í því máli. Þar sem ýmsar óþverragreinar hafa bor- ist blaðinu frá báðum stöðum, hefir ritnefnd blaðsins komið sér saman um að skera þegar niður frekari umræður um þetta mál og vonar að það verði báðum málspörtum fyrir beztu. Ríg þann er virðist vera hér á milli þorp- anna, í svo ríkum mæli, þyrfti að kveða niður. Honum þyrfti að taka ærlegt tak. Má vera að Suðurland segi eitthvað um það mál áður lýkur, væntum vér styrks góðra manna til að kveða þann draug nið- ur, þótt búast megi við að ekki verði allir ánægðir, en enginn gjörir svo öilum líki, og erum vér engin undantekning frá þeirri reglu. Af Suðurnesjum 17. jan. 1912. Af suðurnesjum er fátt að frótta. Afla- laust: í vetur, nema í Höfnum reytingur af stútung og þyrkslingi. Heilsufar alrnent gott. Útvegsbændur í óðaönn að búa sig undir vertíðina. Mótorbátur, er Njarðvík- ingar áttu von á að vestan, kom að sönnu, en strandaði í ferðalokin og brotnaði í spón, varð það skaði seljanda, því kaupunum var ekki lokið. Frá Keílavík munu ganga, að minsta kosti þrír mótorbátar, næstu vertíð, (einn þeirra af Akranesi) og 1 mótorbátur úr Njarðvíkum. — Tíð ágæt til lands, sauðfó gengur sjálfala. Bráðapest í sauðfé að mun í Höfnum, eigi slík síðan 1880, að sagt er. I Keflavík var leikinn „Skuggasveinn". Leikfimiskensla meðal skólabarna, um 50 kariar og konur, fullorðið, tekur þátt í leik- firni. í unglingaskóla njóta kenslu milli 10—20. Kefivikingur. Glímuflokkur U. M. P. Stokkseyrar hélt glímuskemtun siðastliðið sunnudagskvöld. Sótti þangað margt manna, svo húsið var troðfult. Fyrst talaði hr. kennari Páli Bjarnason nokkur orð um iþróttir. Þá kennari Sæ- mundur Friðriksson. Sagði hann sögu glímu- flokksins á Stokkseyri, er þar eins og víðar margs að minnast, og örðugleikarnir marg- ir, samt hefir glimuflokk þessum tekist að sigra allar hindranir, og er nú kominn það áleiðis, að dómi þenra er þekkingu hafa á slíku, að enginn ghmuílokkur, utan Reykja- víkur, mun betur æfður, né sýna fegurri glímu en þessi. Mun þar eiga einna best- an og mestan þátt í kennari Sæmundur Friðriksson, enda hefir hann mikið lagt í sölur fyrir það málefni. — Fyrst sýndu tveir menn af flokknum sókn og vörn í flestum brögðum, og útskýrði Sæmundur þau um leið. £*á fór fram venju- leg glíma, glímdu 11 ungir menn og var unun á að horfa, enda ótæpt þakkað með lófaklappi áhorfenaa. Að því loknu þreyttu 10 unglingar grísk-rómverska glímu, og fórst þeim einkar liðlega, en ilt var að sjá til- burði þeirra, þar sem gólf leiksviðsins er alt of lágt. Að glímunum afloknum útbýtti hr. alþm. Jón Jónatansson meðal allra glímu- garpanna heiðurskjölum skrautprentuðum, er kennari þeirra Sæm. Friðriksson hafði gjöra látið á sinn kostnað. Síðan var dans- að fram eftir nóttinni. Fór skemtun þessi fram hið besta. Tiðarfarið hið besta undanfarandi, frem- ur sumar en vetrartíð. Jörð oftast þíð, svo sumstaðar hefir verið unnið að túnasléttum og byggingum. Gamlir menn segjast naum- ast muna eftir jafngóðum vetri sem þess- um, það sem af er. Fiskvart hefir orðið á Stokkseyri í síð- astliðinni viku, er róið var. Kvef allþungt hetir gengið undanfarinn tíina, en mun nú í rénun. Brauðgerðarhússfélagið er nú stofnað hér á Bakkanum, er það hlutafólag. Byrjað er að draga að efni til byggingar, skal húsið standa á lóð kaupfélagsins „Hekla“. Slys hefir legið við að yrði hér á götun- um. Yeidur því myrkrið. Fyrir nokkru var riðið hér ofan á gangandi mann í myrk- rinu, meiddist hann talsvert og hefir ekki verið verkfær síðan. Konur tvær voru á gangi á götunni eitt kvöld, mættu þeim tveir menn á ha 'ða hiaupi og ruddu um koll annari konunni svo hún hentist niður á götuna og meiddist nokkuð, minna þó en von var á. ------0-»0>'v*-- Svar til glímuflokks U. M. F. Stokkseyrar hefir borist blaðinu, er þannig málum varið, að nægjaþykirað geta þess, aðungmennafélagar hér sjá sór ekki fært. að taka áskorun Stokkseyringa um kappglímu að þessu sinni, vegna ástæða er þeim höfðu áður verið tilkyntar. Athygli vildum vér vekja á auglýsing- unum í Suðulandi um atvinuu fyrir kven- fólk. Pær sem vilja gefa sig fram, verða að hafa gjört það fyrir 1. febrúar næst komandi. Margar ritgerðir bíða næsta blaðs sök- um rúmleysis. -------o»o*o------

x

Suðurland

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Suðurland
https://timarit.is/publication/211

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.