Suðurland - 20.04.1912, Qupperneq 2
186
SUÐURLAND.
cyiýfiomié tneó ss Jlustra til
Verzl. Jóns Jónassonar, Stokkseyri:
GLERVÖRUR og ÁLNAVÖRUR fjöibreyttar, ÍSENKRAM, KAFFI,
SYKUR og margt lielra.
Með Suðurlandsskipi 3. maí er von á:
allskonar KRAMVÖRU og flestuni nauðsynjavörum, sem hvert heimili þarfnaat.
i
SUÐURLAND
kemur út vikulega (minst 52 blöð á ári). Verð
£ kr., er borgist fyrir 1. nóv. Uppsögn skrifleg
fyrir 1. nóv. og því aðeins gild, að kaupandi sé
skuldlaus við blaðið.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður Jón Jónatans*
son alþm. á Asgautsstöðum, en séra Gísli Skúla-
son á Stóra-Hrauni annast blaðið í fjærveru hans.
Allar greinar, sem í blaðið eiga að koma, send-
ist öðrum hvorum þeirra.
Gjaldkeri, Guðm. Jónsscn verziunarmaður
í Heklu á Eyrarbakka tekur á móti öllum hlað-
gjöldum.
Auglýsingar sendist í prcutsmiðjuna. Borg-
uu fyrir smáauglýsingar og þakkarávörp — 3
aurar fyrir orðið — verður að fylgja.
Afgrciðsla blaðsíns er í prentsmiðjunni
Utanáskrift: Afgreiðsla Suðurlands, Eyr-
arbakka. Þangað scndist allar umkvartanir
um vanskil á blaðinu og blaðpantanir og aunað
það, er afgreiðslunni viðkemur.
sókn verði að skólanum úr hinum fámenn
ari héruðum og ef til vill einnig úr þeim
er fjær liggja skólasetrinu og verður þá hið
hreyfanlega tillag þeirrar sýslu þeim mun
minna, sem hún sendir færri nemendur,
en það virðist rétt, að sýslufélögin borgi
að nokkru tillög sín til skólans eftir þeim
notum, sem þau hvert fyrir sig hafa hans.
En færi nú svo, að aðsóknin að skólanum
yrði svo mikil, að hann rúmaði ekki alla
þá, er inntöku beiddust, þá ganga nemend-
ur af skólasvæðinu að sjálfsögðu fyrir þeim,
er utan þess sfæðis búa. En umsækjend-
ur úr sýslunum á skólasvæðinu skal, ef of-
margir beiðast inngöngu, taka inn í skól-
ann eftir réttri tiltölu fasta tillagsins.
En að því er hið þriðja skilyrði sýsiu-
nefndar V. Skf.s. snertir, þá virðist svo eft
ir fundarsamþykt í þessu máli á nýafsföðn-
um sýslufundi, að hún sé nú horfin frá
þessu skilyrði.
Framh.
-----o*c->o-. - —
Sýslufundur Árnessýslu.
Sýslufundur Árnessýslu, sem getið var
i 47. tölubl. „Suðurlands", stóð yflr frá 9.
til 13. þ. m. Gjörðir fundarins munu verða
prentaðar sérstakar. En hér skal samt til
bráðabirgða getið nokkurra fundarmála.
I. Samgóngumál.
Þar ber viðhald flutningabrauta „höfuð
og herðar“ yfir önnur mál. Það kostar
2770 kr. Sýsluvegum var ætlað 1880 kr.
En svo var líka lagt fé til hreppsvega þar,
sem nauðsyn bar til og gengu til þess 380
kr. Yegurinn milli Tungufljótsbrúar og
Hvítárbrúar var styrktur á þann hátt. Kvart-
að heflr verið yflr að ofaníburður væri víða
slæmur, einkum í Flóaveginum. Til er þó
á fleirum enn einum stað góður ofaníburð-
ur. Voru nú 3 menn kosnir til að skoða
þá staði og gjóra ráðstafanir um notkun
þeirra. Fé, sem í fyrra var ætiað til að
brúa Stórós, haíði ekki verið notað. Var
nú ákveðið að brúa Grafarós í Laugardal
fyrir það fé. Ákveðið var, að sýsluvegur
liggi gegnum Stokkseyrarkauptún, þar eð
hann liggur að því báðum megin. Óseyr-
arnesferju var neitað um styrk: því, væri
hann veittur, kæmi allar lögferjur sýslunn-
ar á sýslusjóð, þar eð þær bera sig ekki
og hvíla þvi á tilheyrandi jörðum. Tai-
símanum frá Hraungerði til Grímsness voru
veittar 500 kr. Og um leið var tekið fram,
að allir hreppar sýslunnar ætti að njóta
jafnréttis, hvað símlagningakostnað snertir.
Éeðið var um, að sú ákvörðun, sem bann-
ar 3ja flokks símstöðvum að opna viðtal
nema 2 tíma á dag, yrði feld úr gildi, þar
eð hún gæti oft orðið að stórlegu meini.
Beðið var og um, að aukapóstur milli Kot-
strandar og Þingvalla gjörði sér krók til
Ölfusárbrúar í hverri ferð. Það greiddi
svo mjög fyrir Grímsnessbréfum o. fl. —
Verslunarleyfismeðmæli fókk Einar Eyjólfs ■
son á Sléttabóli.
II. Búnaðarmál.
Eigi vildi sýslunefndin að svo stöddu
ganga í Búnaðarsamband Suðurlands, en
veitti því 150 kr. fyrir þ. á. og kaus, eftir
bendingu þess, Pál Zóphóníasson og Gísla
Scheving til að skoða jarðabætur búnaðar
félaga, Páll á um leið að leiðbeina bænd-
um. Til Búnaðarþings var kosið; fengu
þeir, er nú fóru frá, flest atkvæði. Bún-
aðarfélag íslands bauð fram 400 kr. styrk
til kynbótahrossasýningar við fjórsárbrú í
sumar móti 200 kr. styrk frá Árness- og
Rangárvallasýslum til samans. í*áði sýslu-
nefndin það Árnesssýslu vegna. f*rír menn
voru kosnir til yfirumsjónar með eyðing
refa á afréttum Árnessýslu og óskað sam-
vinnu Ásahrepps í Rangárvallasýslu, — því
refar fara yflr Þjórsá, bæði austur og vest-
ur. Hreppsnefndum var bent á, ,að telja
grenjaleitir með í refaveiðareikningum eít-
irleiðis. Lýst var yflr, að hvorki væri foss
nó skógur á kirkjueignum þeim, er falaðar
voru til kaups, af 4 ábúendum. Mælt var
með Jónasi í Björk, er sótti um Kristjáns
9. verðlaun, og með 8 bændum, er sóttu
um ræktunasjóðsverðlaun. Leyft var 8
hreppum að ábyrgjast lán fyrir bændur
hjá sér. Og auk þess var tekin ábyrgð á
viðlagasjóðslánum lábænda. Ogennfengu
Skeiða- og Flóahreppar leyfl til sarnábyrgð-
ar á láni til girðingar fyrir afrétt þeirra. —
Og flest voru lánin ætluð til girðinga. Tveir
fengu vagnkaupastyrk úr Melsteðssjóði; öðr-
um tveim umsækjendum synjað og réð þar
hlutkesti. Sýslunefndin tilkynti ábyrgðar-
mönnum Sparisjóðs Árnessýslu, að hún
væri fús til að taka við ábyrgðinni fyrir
sýslunnar hönd, og hækka hana þá fimm-
falt, — eí ábyrgðarmenn vildu sleppa henni.
Bréf kom fiá skógræktarstjóra um afgirt
skógarsvæði og umsjón þeirra. Og líka
lagði skógvörður (Einar E. Sæmundsen)
fyrir fundinn frumvarp til skógsamþyktar.
Því var dálítið breytt og síðan samþykt.
Nú eiga þeir hreppar, sem samþyktin nær
yfir, að halda sameiginlegan fund um mál-
ið að Minni Borg. Skal Böðvar hreppstjóri
á Laugarvatni boða til fundarins og stjórna
honum. Að sumu leyti var bréf skóg-
ræktarstjóra þannig, að svarið þurfti að
bíða þessa fundar.
III. Mentamál.
Um nokkur undanfarin ár hafa lestrar-
félagi Þorlákshafnar verið veittar 20 kr.
Það var gjört enn. Hitt var meira vert,
að nú félst sýslunefndin á að stofna lýðhá-
skóla fyrir Árness- og Rangárvallasýslur og
Skaftafellssýslu líka, ef hún hikar ekki. í
framkvæmdarstjórn kýs hver sýsla 1 mann.
Hér var kosinn sr. Gísli Skúlason. Verði
þeir aðeins tveir, fá þeir sór oddamann.
Þeir eiga að útvega skólastjóra bújörð] og
annað er þarf. Og þann einn skólastjóra
mega þeir taka, sem liklegur er til að hafa
góð áhrif á hugsunarhátt nemenda. Gert
er ráð fyrir, að bóndi búi á bújörðinni, en
skólinn á að vera „i koti“ hjá honum. t*ví
þarf jörðin að vera góð og bóudinn „góður
bóndi“ í þess orðs besta skilningi.
IV. Heilbrigdismál.
Heilbrigðisroglugjörð fyrir Stokkseyrar-
kauptún var samþykt.
V. Sveitamál.
Eiríkur á SyðriBrú heldur Mjóanes í
Þingvallasveic þetta ár. f’ar var honuih
gjört útsvar, er hann kærði, og var það
lækkað. Á hreppsnefndir var skorað að
láta innheimtu útistandandi hreppsfjár eigi
dragast óþarllega. — Niðurjöfnun á sýsl-
una er nú 2500 kr.
Mörgu smavegis er slept; en það kemur
í fundargjörðunum.
Hvert horfir?
Bráðum kemur Br....jón
beint til Þorlákshafnar.
En það er verst, ef feðrafrón
í frönsku gulli kafnar.
Frakka banki byrgur er
af björtum Rinareldi,
og vill stofna ólmur hér
annað Frakkaveldi.