Suðurland


Suðurland - 12.10.1912, Page 2

Suðurland - 12.10.1912, Page 2
70 SUÐU'RLAND þessari dóttur „dönsku mömrau“, þyk- ir hún girnilegri en svo, að þeir setji það fyrir sig þó hún sé fjöllynd. Ættin ei góð og heimanmunduiinn líklega álitlegur, eru því allar horfur á að „frökenin" hafl þá alla „under Töffelen" þegar minst varir. — En aimenningur fær að borga festarölið. f*að sem hr. B. Kr. flnnur að því sem minst var á Landsbankann í Suðurlandi í greininni um steinolíu- málið, þarfnast ekki mikilla andsvai a. Ekkert vafamál að bankinn hefir nóg að gera með lánstraust sitt, það er honum er þarfara og tilgangi hans samkvæmara, en að taka fé að láni til að reka sjálfur steinolíverslun. Umkvartanir þær er Suðurland gat um, um að mörgum þætti örðugt að fá þar lán, eru ekki neitt nýmæli, þær hafa komið úr öllum áttum. Að það er hlutverk þings og stjórnar að gera bankann — þessa einu peninga- stofnun sem landið sjáift á — svo úr garði, að hann geti fullnægt betur þörfum landsmanna, er auðvitað rétt athugað,. en það er líka kunnugt, að almenningur álítur að stjórn og þing þurfl að sinna þessu hlutverki sínu sem fyrst, og rækilegast, því reynslan sem altaf or talin ólýgnust, heflr sýnt að bankinn er langt frá því að vera fullnægjandi. ------0*0+o--- Fyrirmyndarbóndi. Hver einstök mannvera, sem lifir á jörðinni, hefir sína hugsun, sitt ímyndunarafl útaf fyrir sig. Allir menn eru ekki steyptir í sama mót- ið, sömu líkamsstærð, sama útlit, sömu tilburði og með sömu siðum. Nei, allir eru auðþektir hver frá öðr- um í sjón og reynd. Og eins og all- ir eru aðgreinanlegir að ytra áliti, eins er með andann og hans hæfl- leika. Andi mannsins er misjöfnum hæflleikum búinn. Sumir menn eru svo lítt þroskaðir að skilningi, að þeir sjá tæplega nema það, sem skeð ur í þann og þann svipinn. Peir sjá að þetta verður, en skilja það þó ekki. Þessir menn vinna sín and- legu og líkamlegu verk af vana, en gera sér enga grein fyrir því, á hvaða grundvelli þau eru bygð. Þessum mönnum er æði hætt við að mis skilja þá menn, sem þroskaðri eru að hæfileikum, og sem iifa á víðtæk- ara verksviði anda og líkama. Aftur eru sumir sem sjá og skilja alt, löngu áður en það er framkvæmt. Sjá langt fram í tímann, bæði fyrir sig og aðra. Þessir menn eru oft af þekkingarminni vnönnum kallaðir „gruflarar" og „draumóramenn", og oft heyrist talað um að þá „vanti eitthvað", en hvað það er, vita menn ekki til fulls. f’essir menn eiga oft við örðugleika að stríða, því þekk- ingarleysi og sundrung, ósanngjarnir dómar og vantrú hinna gerir þeim erfltt fyrir. Allar þær nýjungar eða breytingar á gömlum venjum, sem þeir láta í ijósi, eru barðar niður með harðri hendi, jafnvei þó þeir sem það gera, sjái að þær miði til bóta. Við höfum mörg dæmi, bæði yngri og eldri, sem sanna þetta. Fiam- faramennirnir hafa oftast verið lítils metnir á meðan þeir hafa lifað — að nokkrum undanteknum — en þegar þeir eru fallnir frá, sést fyrst hið stóra, auða, skarð, þar sem þeir hafa staðið. Fá fyrst — eftir dauðann — eru verk þairia viðurkend góð og mannkyninu til heilla og framfara. En hvaða ánægju ætli sá dauði hafi af þeirri tilbreytingu ? bkyldi hann nokkurntíma t.aka sér ferð á hendur til að skoða t. d. myndastyttu sem gerð er í hans likingu, fáguð og glans andi, og sem hefir kostað þjóðina ærna peninga? Eða skyldi hann nokkurntíma lesa blöðin og rekast þar á dánarfregn sína með öllu því hrósi og fagurgala, sem þeim er vant að fylgja? — og oftast mest þeirn, er minst hafa til unnið. Eg held ekki. Auðvitað er eg enginn anda- trúarmaður, og get því ekki átt kost á að spyrja hinar framliðnu sálir um athafnir þeirra og ferðalög. Eg held samt að hinum framliðnu skörungum þjóðanna hefði verið meiri ánægja í því að þeir hefðu verið metnir að verðleikum á meðan þeir lifðu, og í lifanda lífl notið sanngirni og mann- úðar meðbræðra sinna. Eg ætla ekki í þessari grein að fara frekara út í þetta efni, þó um það mætti rita stóra bók, sem eg vona að mér færari menn geri á sínum tíma. Heldur ætla eg með þessum línum að minnast á einn mann per- sónulega, sem er og heflr verið alla tíð stórum misskilinn af æðri og lægri. Eg hefl viða séð í blöðum minst á verk ýmsra dugnaðarmanna, en aldrei á hans verk, og eru þau þó engu minni en þeirra, sem haldið er hátt á lofti. Maður þessi er Helgi Þórarinsson bóndi á Þykkvabæ í Vestur Skafta- fellssýslu. Hann heflr alla tíð verið fyrirmyndarbóndi í hverju sem er. Starfsþrek hans heflr verið óvenjulega mikið, enda ber jörð hans menjar þess. Jafnframt því sem þrek hans er mikið, heflr útsjón og hagsýni verið frábær í öllum hans gjörðum. Á jarðabótum byrjaði hann hér fyrstur manna, og voru ýmsir dómar um það fyrirtæki, eins og alt sem er óvanalegt. En af því heflr þó stafað, að hér er mikill áhugi vakn- aður með jarðrækt og árangur mikill. Hann hefir girt alt tún sitt, grætt upp marga nátthaga, sléttað öll börð og útskækla, sem í og utan með tún- inu voru, svo þar eru nú alstaðar stórir grasflákar, sem áður voru flög og graslaus börð. Engjar voru áður mestallar í hólmum austur í Skaft- árvötnum og voru það most bleytu flóð, ill yfliferðar bæði mönnum og skepnum, og þar að auki ekki gras- gefln. Yflr vötn varð að fara þangað svo ekki var hægt að flytja þaðan þurt hey, heldur alt í votabandi. Far með voru botnleysis kafhlaup í sarid bleytum, svo menn urðu að ganga af hestunum. í stað þess að þurfa að nota þess ar erflðu engjar, hefir hann gert karg þýfða óræktarmýri að íonnisléttum áveituerigjum, sem svo eru víðáttu- miklar, að þær eru næstum nægileg- ar hans fólki að vinna yflr sumarið. Hafa þeir unnið sameiginlega að engja- gerð þessavi, báðir ábúendur Þykkva- bæjar, Helgi Þórarinsson og Páll Sig- urðssori, sern einnig hefir jafnmiklar slægjur og er fyrirmyndarbóndi. Kostnaður við alt þetta hefir verið ærið mikili, því mikla vinnu og tíma heflr það kostað. íbúðarhús hefir Helgi bygt, sem bæði er stórt og vandað. Öll hús lrefir hann bygt, bæði fenaðar og geymsluhús og sömu- leiðis heyhlöður, og eru öll hús undir járni. Sveitaverslun heflr hann tölu- verða, og segja siimir að hann „snuði" fólk, en hvort það er eða ekki ætla eg ekki að dæma um, það eru nógu margir dómendurnir samt. En 9r það ekki óbrigðul regla flestra kaup- manna að hafa eirihvern ávinning af vörum sínum, og það þó þeir búi við hafnir og þurfi ekki að hafa kostnað af því að flytja vörurnar langar leiðir til sveita. Skógrækt heflr Helgi byrjað á, og mun sú byrjun hin vænlegasta. Hvert augnablik og hveija stund notar Helgi til þarfa, þyí hann skilur vel að tím- inn er peningar. Enda er maðurinn fjölhæfur og lipurmenni, frarnúrskar- andi til verka. Það yrði oflangt mál að minnast á alt sem Helgi hefir starfað, því það er bæði margt og mikið. Jafnframt því sem Helgi hefir stund- að hin likamlegu störf, hefir hann einnig starfað að þeim aridlegu. Öll rit og allar bækur, sem fróðleik hafa að geyma og hann kemst yfir, les hann með nákvæmri eftirtekt og fylgir hverri bendingu sem til fram- fara miðar. Stjórnmálum heflr hann mikinn áhuga á og les með athygli um alt sem á alþingum gerist. Mér varð oft á að hugsa að hann hefði lært heila kafla úr alþingistíðindunum, svo vel þekti hann alt utan að. Oddviti hefir hann verið nokkur ár og leysti það sómasamlega af hendi þar til hann sagði því starfi af sér. Sýslunefndarmaður heflr hann einnig verið. Mér er óhætt að segja það, að Helgi leysti dyggilega af hendi þau störf, sem honum voru á hendur falin, þó misjatnlega hafl þakkað ver- ið. Mér er vel kunnugt um það, þvi eg hefi kynst líelga og unnið með honum að ýmsum störfum. Eins og eg hefi áður sagt, heflr hann verið og er misskiiinn af mörgunr. Fram- farahugmyndir hans hafa verið mis- skildar og rangfærðar. Hæflleikar Helga eru miklir, bæði til líkama og sálar, þrekið og kjarkurinn óbilandi. Hann hefir reist sér verulegan minn- isvarða með vinnu sinni. Hann heflr lagt fram krafta sína, hugvit og vilja- þrek til hverskonar nytsemdarstarfa, þrátt fyrir mótspyrnu og örðugleika. Pað er margt nú af störfum Helga sem er orðið til stór framfara hér í sveitinni, en sem áður voru álitin einskisvirði og „brask“ meðan enginn hafði vit á þeim. Fegar Helgi fellur fiá, mun þykja stórt skarð höggið í bændaröðina og vandfenginn verður sá, er að öllu leyti fyllir upp það skarð, því ef nokkur er hér bænda- „fyrirmynd", þá er það Helgi í Þykkva- bæ. Væri óskandi að hans hkar væru margir. Kunnugur. Ferðaáætlun Guðm. Hjaltasonar. I’að inun gleðja alla hór austan- fjalls unga og gamla, að nú er bráð lega von á hinum góðkunna alþýðu fræðara Guðm. Hjaltasyni hingað austur í fyrirlestraferð. Og verða nú öll félögin að'reyna aðjrota t.æki- færið sem bezt. U tansam bandsfélög geta nú fengið fyrirlestra hjá G. H., ef þau vilja sjalf kosta þá og svo ferð hans hlut- failslega við sambandið. Guðmundur hefir hugsað sér, að Landvörn á Landi fengi þá fyrirlestra þ inn 17. nóvember og Eyrarbakkafé- lagið þann 5. nóvember, og Austur- Eyjafjallafélagið þann 24. nóvember, og Garðarshólmi þann 26. eða 27. nóvember. Hin utansambandsfélögin á heimleíð- inni eftir kringumstæðum. Plór fylgir áætlun G. H. eins og fjórðungsstjórnin heflr ákveðið hana. 2. nóv. U. M. F. í Ölfusi. 3. nóv. u. M. F. Stokkseyri. 3. — u. M. F. Samhygð. 7. — u. M. F. Grímsnes. 9. — u. M. F, Laugdæla. 11 — u. M. F. Biskupstungur. 13. — u. M. F. Hruna 15. — u. M. F. Gnúpverjahr. 19. — u. M. F. Hekla 21. — u. M. F. FJjótshlíð. 23. u. M. F. Drífandi. t Látinn er að heimili sínu á Seyðisfirði þ. 4. Þ. m. Jón Jónsson alþingismaður frá Múla. Heilsahans. var mjög tæp i sumar, þótt nokkra bót fengi lrann í bili t vor. Bjuggust margir við að til eins mundi draga fyrir honum, eins og nú er raun á Jón frá Múla var einhver hinn allra inikilhæfasti maður úr • alþýðustétt, er á alþingi hefir setið, var það viður- kent jafnt af andstæðingunr hans sem flokksbræðrum. Er að honum mann- skaði mikill, og er sæti hans á þingi vandfylt. cTZýjustu Jritíir. Montcnegro hefir sagt Tyrkjrrm stríð á hendur. Annars friður á Balkanskaga. Próf. Bcrlln skrifar í Politiken um íslandsmál; vill fá nýja sam- bandslaganofnd og varar Dani við að láta íslendinga teyma sig eins og siðast. Ætlast auðsjáanlega til að komast sjálfur í nefndina. Sýslumannshúsið áEskiflrði brann til kaldra kola nýlega; sýslubókum bjargað, en annars lit.lu eða engu. Ösannindum mótmælt. Brandur Þorvarðarson í urðinni — Hraunprýði kvað hann kalla býli sitt — heflr borið það upp á nágranna sína, þau gömlu hjónin Jón Jónsson og Guðbjörgu konu hans, að þau hafl flutt mér þá sögu að hann seldi á- fenga drykki. Þetta lýsi eg tilliæfu laus ósanililldi. Nefud hjón hafa hvorki sagt mór að hann gæfi eða seldi áfengi, og eg hefi heldur aldrei borið þau fyrir því. Skora eg á þokka- pilt þennan að leiða fram í dagsljós- ið sögumanninn, ella lýgur hann því frá rótum sjálfur. Eða, bítur sök sekan? Brandur! Eyrarbakka, 10. okt. 1912 Jón Helgason, prentaii.

x

Suðurland

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Suðurland
https://timarit.is/publication/211

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.