Suðurland


Suðurland - 12.04.1913, Page 2

Suðurland - 12.04.1913, Page 2
168 SUÐTJRLAND eigi get eg séð að líkur séu til þess að það muni hafa þau áhrif, að þrosk- aðir nemendur hafi eigi söm not skól- ans fyrir því. Nei — þvert á móti er það ætlun mín, að skóiinn muni koma þeim sveitum að mestum og bestum notum, er hyggja vel að undirstöðumentun, hinum siður er vanrækja hana. Mér virðist þeir eigi meira á hættu er vantar undirbúning. Pori eg að ieggja það undir dóm allra þeirra er í skóla hafa gengið. Eg ríít svo á, að þær Sveitir, er hafa mest lagt í sölurnar fyrir barnafræðslu og unglingafræðslu, ættu að leggja mest kapp á að komið yrði upp góðum lýðháskóla. En svo er og þess að gæta, að þessi samvinnufleygur er að aokkru leyti viðbára ein, því sumar sveitir Árnes og Rangárvallasýslu hafa komið fræðslumálum sínum í þaíði horf, að hér mun eigi betur vera. ’íí Firhta ástæðan var sú, að þetta væri að taka fram fyrir hendurnar á landsjóði, hann ætti að koma upp lýðhá3kóla á Suðuilandsundirlendinu. Sjálfsagt mundi margur þyggja það. Qg hver veit nema honum þóknist það. En færi nú svo, að hann yrði svo „hlálegur" að segja: nei, takk! ^vo serp, einn mannsaldur enn, þá má búast við að kynslóðinni sem nú er að vaxa upp yrðu lítil höpp að — hún fengi aðeins að eta vonir sínar ym skólann. Og svo virðist mér annars að gæta í þessu efni. Ætti landsjóður að leggja fram stofnféð, og þar að auki að sjálfsögðu að styrkja skólann áilega, ef til vill að sjá fyrir öllum hans peningaþörfum, þá býst eg við að böggull kynni að fylgja skammrifi. Einstaklingunum þykir jafnan hart að hafa skyldurnar einar en fara á mis við réttindin, og eg býst við að landsjóði mundi sárna það Hka. Mér virðist að við höfum fremur lítið yflr þeim skólum að segja er landsjóður kostar að öllu. Peir eru reyndar í orði kveðnu eign okkar allra, en rétt- indi hvers einstaks verða nauðalítil þar, þegar búið er að skifta þeim í 83000 parta. Á líkan hátt býst eg við að réttindi okkar mundu verða við hinn fyrirhugaða lýðháskóla, ef við legðum þar eigi meira til en hlut- fafíslega við alt þjóðfélagið. Alt fyr- ifkomulag og tilhögun öll yrði þá í iiöndum landstjórnarinnar, og það er engin vantraustsyfirlýsing til hennar þótt eg efist um að oss rnundi líka öll afskifti hennar af stofnuninni. Hún mundi að sjálfsögðu veita kennara- embættin, og þó að eg efist ekki um það að hún mundi geta ráðið í það hvað oss mætti vera fyrir bestu í þeim sökum, þá hefir hún í mörg horn að líta, en óvíst hvort Suður landsundiriendið yrði það hornið er henni væri kærast. Gæti meira að segja svo farið, að hún sendi oss ein- hvern þann bókabéus, er vór teldum best kominn í einhverju hrútshorninu okkar. Og loks er enn annars að gæta. Þó að stjórnin liti i náð sinni til skólans og sendi honum ágætismann, þá hefðum vér alls enga tryggingu fyrir því að hafa hans not nema því aðeins að skólinn væri svo stór að hann rúmaði alla frá austri, vestri, norðri og suðri þessa lands, er vildu nota hann. Nei — vér viljum að sjálfsögðu tryggja oss rétt þann, að mega ráða sem mestu um fyrirkomu- lag slíks skóla, ef vér viljum eða ætium oss að nota hann, ráða kenn- ara í hann, þá er vér gætum fengið besta að voru áliti og eiga það nokk- urnveginn víst að fá þar nægilega mörg nemendasæti. En — mér virðist sanngjarnt að ætlast til þess að iandsjóður legði fram nokkurl fó, án þess að skerða æskilegan rótt undirlendisbúa í þessu máli. Viiðist meira að segja að það væri sanngjörn krafa að hann legði fram þriðjung stofnkostnaðar. Til móts við það mætti svo ætla að sýsl- an er skólinn væri settur í — á þann stað er henni líkaði — legði til ann- an þriðjunginn, og loks yrði einum partinum skift niður á hinn hluta samvinnusvæðisins, eftir þeim hlut- föllum er um semdi og sanngjarnt þætti. Inn í samvinnusvæðið gætu Vestmannaeyjar gjarnan komist. Eað hljóta allir að skilja, að sú sýslan er fær skólann á góðum stað hjá sér verður fyrir mestu happi, nýtur hagnaðar og réttinda best. Það virðist því fyllilega sanngjarnt að ætla henni mest af byrðinni. Rrátt fyrir það má henni vera hugleikið að njóta samvinnu vegna allrar aðstöðu við starfrækslu skólans. Og nágranna sýslurnar hljóta að æskja eftir að leggja fram nokkurn skerf sökum róttindanna. Um sjötta atriðið get eg verið fá- orður, er þar alveg á sama máli. Vildi feginn að skólinn yrði settur sem allra næst og eg býst við að þannig só íleirum farið. En því er svo varið 1 þessu efni, að minsta kosti, að litlar líkur eru til að allir fái sínar óskir uppfyltar án þess að hliðra til hver fyrir öðrum. Loks er að minnast á nemenda- gjaldið. Á það tít eg sömu augum. Pað er óbærilega hátt á áætlun nefndarinnar. En eg treysti því að þar mætti um þoka. Sýslurnar, hrepparnir og ungmennafélögin verða að greiða úr þeirri þraut. Þá hefi eg í sem fæstum orðum leitast við að sýna fram á hvernig þetta mál vakir fyrir mér og hverj um augum eg lit á mótbárur þær er eg hefi hitt fyrir gegn samvinnu í því við nágrannasýslurnar. Pað er sannfæring mín að V.-Skafta- feilssýsla eigi — sín vegna — ekki að skerast úr leik i þessu máli. Hún hefir um nokkr.rra ára skeið sint barna- og unglingafræðslu munbetur en nágrannasýslurnar. Ef sú undir stöðumentun er sæmileg, þá hlýtur hún að vekja námfýsi. Margir ung lingar, drengir og stúlkur munu því á næstu árum leita sór frekari ment- unar fyrir ut.an takmörk sýslu vorr- ar, og það er í alla staði heilbrigð hvöt og æskileg. Dað er að visu nægilegt. til af skóh um í landinu til þess að taka á móti nemendum frá oss, en fæstir þeirra skóla eru í beinu framhaldi á barna- og unglingaskólum, sem þó væri æski- Jegt fyrir marga, og engir eru þeir skólar í landi hór, er vér getum sagt að hafi það fyrir aðalmarkmið að þroska nemendur sína, vekja öfl and- ans og koma þeim til að starfa. í fæstum skólunum fáum vér því „lífs- ins brauð“, en í flestum „dauðans steina". Úr þessu á góður lýðháskóli að bæta. Og svo er þetta athugavert: Mörg ungmenni sýslu vorrar hafa bundist samtökum, komið sér saman uin að vinna að því í tómstundum sínum að stæla og herða líkamsþrótt sinn með íþróttaiðkunum — uppala sjálfa sig líkamlega. Að þessu ætla þau sér að vinna í því trausti, að það megi þeim að góðu verða síðar og þjóðfélaginu þarft verk á komandi tíð. Dau hafa einnig ásett sér að geia andanum aömu skil. En þar eiga þau mjög undir högg að sækja. Þau vanta andlega íþróttakenslu til móts við líkamlegar íþróttir. Rá kenslu geta þau, eins og nú standa sakir, alls eigi veitt sér sjálf, og vildu þó gjarnan mikið í sölurnar leggja til þess að eiga kost á henni. Mór dylst það eigi að hér gæti góður lýðháskóli fengið þýðingarmik- ið starf. Þar ætlumst vór til að strengir andans yrðu stæltir og stiltir svo að úr þeim mætti fá fagra og frjálsa tóna í fullu samræmi við þrótt og fegurð hins Hkamlega íþróttamanns. Eg treysti því, að þetta sameigin- lega veiferðarmál æskunnar á Suður- landsundirlendinu strandi ekki á sam- vinnustirfni og skammsýni vorri. Eg tel það víst að þeir er mest hafa verið við sögu þess riðnir líti svo á, að það eitt só geit er allir megi Vel við una. En það er víst að þeir eru nokkrir — hve margir veit eg ekki — sem eru mjög óánægðir með úrslitin ef þau verða slík sem nú er tii stofn að og t.elja þau fjandsamleg komandi kynslóð, og eg er einn meðal þeirra, lít þannig á alla samvinnufleiga í þessu máli. Og eg treysti því, að málið eigi eftir að verða fyrir áhrifum allra ung- mennafélaga Suðurlandsundirlendisins. Æskunni kemur þetta mál mest við. lyýðháskólastofnunin er hugsjón sem hún hlýtur að vilja vinna fyrir. Frh. ------o-*oo---- Til Suðurlands. Kæra Suðurland! Eg dróst á það að segja þér ögn af mælingaleiðangri mínum um upp Árnessýslu síðastliðið sumar. Ætlaði því að vera búinn að því fyrir langa löngu, en veikindi mín í haust og vetur eru orsök þess að það fyrst er nú sem eg skrifa þér. Eg vil þá fyrst biðja þig að færa öllum þeim 230 bændum er eg mældi hjá þakkir fyrir allan greiða mór til handa og svo ætla eg þá að segja þeim fréttir. Eg bjóst við því að allir bændur í Árnessýslu mundu vera í búnaðarfé lagi og vinna eitthvað jörðunum til góða. En þegar eg aðgætti það í landhagsskýrslunum, sá eg fljótt að svo var ekki. Og þegar eg svo mældi í sumar, urðu 230 bændur í félögum en 324 búendur voru á svæðinu sem eg fór um, og gátu þeir náttúrlega allir verið í félögunum. Hér við er þó það að athuga, að nokkrir töldu sig í félögunum þó þeir höfðu ekkert gert, og eru því í rauninni fleiri en 230 í þeim, en það eru 230 innan félaganna sem hafa unnið eitthvað að jarðabótum. Eg spyr oft sjálfan mig hver sé orsök þess að þessir mentr eru ekki í félögunum. Og eg finn þeim enga vörn. Yæri jarðirnar þeirra þannig, að ekki þyrfti þær endurbóta við, þá væri þeir afsakaðir. En þegar megn- ið af túninu er þýft, þegar megnið af haugsafanum rennur burt, þegar enginn er nátthagi, en þó fært frá, þegar engin er girðing um tún og engi, og þegar græni bletturínn um bæinn þeirra er lítill og auðgert að stækka hann til muna, þá finn eg enga vörn. Og eg hefi ekki enn komið á nokkurn bæ hér á landi, þar sem ekki er mikið að gera fyrir mannshöndina til þess að bæta og prýða jörðina og gera með því eftir- komendunum hægaia og þægilegra lífið. En finna menn ekki-þetta? Eða þykjast þeir vera svo fátækir að þeir þessvegna geti ekkert gert? Ef svo er, þá er sú fátækt hnynduð. Enginn sem getur búið á annað borð, hefir efni á því að láta vera að leggja út krónuna til þess að fá aftur tvær. En inargar jarðabætur, eg segi ekki allar, borga tvær krónur fyrir hverja eina sem til þeirra er kostað. Mætti nefna dæmi því til sönnunar ef vildi. Eg vona að það verði hlutfallslega fleiri sem mælingamaðurinn þarf að koma til í sumar. Og við skulum sjá hvort það verður tálvon. Var mikið gert? munu margir spyrja. Já, það var inikið gert, og eg vil segja mjög mikið. Ef við tökum þessa 230 bændur sem eg mældi hjá, þá voru 100 af þeim sjálfseignarbændur en 130 leiguliðar. Eg hefi að gamni mínu reiknað út hversu mikið hvorir um sig hafi gert til jafnaðar. Og af því þær tölur eru lærdómsiíkar og þær fyrstu tölur sem til eru yfir stærra svæði því viðvíkjandi, þá set eg þær hér. Sjálfseignarbændurnir gerðu til jafn- aðar 64,5 dagsverk, en leiguliðarnir 62,4 dagsverk. Mismunurinn er því 2,1 dagsverk. Eg er viss um það, að margir hafa haldið að þessi munur vœri meiri en raun varð hér á. Og þess er vert að geta til að fyrirbyggja misskilning, að hér er ekki tekið tillit til þess sem gert er af mörgum í félagi, og því vafasamt hverjum ber að reiknast t. d. samgirðingar. Mér var sönn ánægja að sjá þessar tölur, þær sýna mér svo litla eigin- girni og svo göfugan hugsunarhátt, sem sé þann, að vinna af hvöt til að starfa fyrir þjóð sína og land, vinna af trú á sigur þess góða og trausti á landi og þjóð, on ekki bara til þess eins að auðga sjálfan sig. Og eg vildi að þessu væri Hkt varið víðar. En auk þessara meðaltala, sem geta gefið nokkra hugmynd um hvað mikið var unnið, þá var unnið að samgirðingum um afréttina, og eru þær mikið verk og vonandi að þær hepnist og uppfylli vonir manna. Var vel unnið? spyrja ýmsir. Sum- staðar, en hvergi nærri alstaðar. Sumstaðar sá -eg blessaða úreltu háu beðahryggina, sem gera okkur og niðjum okkar ómögulegt að nota verk- færi við hey vinsluna. Sem gera rnýr- lsndi í lautunum og slæma töðu. Eg vildi að sá er mælir jarðabæturn- ar í sumar er kemur sæi þær hvergi. Ef það er votlent þá bæta beðin ekk- ert, þá þarf að loftræsa eigi sléttur

x

Suðurland

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Suðurland
https://timarit.is/publication/211

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.