Suðurland - 11.07.1914, Blaðsíða 2

Suðurland - 11.07.1914, Blaðsíða 2
10 SUÐURLAND • Verslun AND8ESA8 JONSSONAB - hefir nýlega fengið mikið úrval af margskonar vefnaðarvöra og fleira, svo sem'. Alklæði — Dömuklæði — Cheviott — Tvistar — Flúnel einl. og misl. — Kjólatau — Svuntutau —■ Léreft — Yergarn — Kastfatatau — Slitfatatau — Stubbasirz — Lastingsl ubba — Peisur af ölium stærðum — Nærfatnað karla og kvenna — Bobenett — Slifsisborðar Ijómandi fallegir — Frunsur af mörg- um litum — Smekk-Svuntur — Brjósthlífar — Höfuðsjöl — Herðasjöl — Vasaklútar margar teg. — Silkiklútar — Bróderingar — Leggingabönd — Hnappamót — Prjónagarn — fræðigarn — Hekiugarn — Tvinni og m. m. fl. llarmonikur fleiri sortir mjög ódýrar. Orgel Harmonium útveguð, mjög góð og ódýr frá 60 kr. Saumarélar með dobulhjóli og kassa ágætis gerð með lægsta verði. Skilyindur sem skilja 180 pt. á klukkustund mjög einfaldar og sterkar og seldar fyrir 65 kr. Skilvinduolía — Skóflur — Blikkfötur — Cacao — Kaffl — Export — Kandís — Melis — Strausykur — Púðursykur — Sveskjur — Rúsínur — Sæt- saft — Haframjöl ágætt — „Goldmedal" flórmjöl besta flórmjölið og m. m. fl. Hest Og ódýrast i Verslun ANDRÉSAR JÓNSSONAR. Þegar eg var að byggja flóðgáttina var heiðskírt og heitt, og kom tölu- verur vöxtur í vötnin. Þá fannst mór nauðsyn á að reyna að ganga úr skugga um hve hátt vatnið yfir- leitt gat stigið, og bentu menn mér á bóndann á Asum, sein best kunn- ugan því. Eftir beiðni kom hann þangað. Hann fullyrti að i Asakvísl arnar gæti komið mikið vatnsflóð, og sem verra var, hann benti mór líka á að sú kvísl, þar sem flóðgáttin liggur, gat á vorin stundum orðið þurr. fetta munar miklu, því nú er vatnshæðin í flóðgáttinni aðeins 20 sentimetrar þegar vatnið er með minnsta móti, en eg hafði gert ráð fyrir 30 sentim. samkvæmt þeirri frásögn sem menn gáfu mór 1909 viðvíkjandi vatnshæðinni á Tanga. En sjálfsagt ber óg ábyrgðina því við- víkjandi, því hér var þó maður til, sem gat skýrt mér rétt frá ef óg hefði snúið mór til hans fyrirfram. Mér var Ijóst að flóðgáttin mundi kunna að liggja fullhátt og eg gerði liana mjög breiða tvær gáttir á 31/5 meter. Yatnsmegnið á sekúndu er með vatnshæð 0,2 m. — 1,5 teningsm. -----0,3 m. = 2,7-------- -----0,5 m. = 5,6-------- Ég kom í fyrra til Meðallandb, að ttokkru leyti til þess að fullgera neð- stu stífluna í Hálsavatni en að nokk- ru til að rannsaka hvort nauðsyn væri á að breyta flóðgáttinni. Ég var þá samferða bóndanum á Lyng- nm í Meðallandi og riðum við um l sandinn. Sagði hann við mig að á-- veitan nú þegar hefði borið góðan á- rangur. Þá um vorið hafði verið rnikið austanrok, og fullyrti hann að það mundi hafa skemt mikið Iand ef áveitan hefði ekki verið, en þá var þó stíflan í Hálsavatni ekki fullgerð. Pegar eg sá á eftir hve mikið vatn- ið óx í Gráakvíavatni og Skurðslæk, þegar við vorum búnir að fullgera stífluna í Hálsavatni, þá gat eg ekki hugsað öðruvísi en að ekki væri nauð 1 syn á að breyta flóðgáttinni. (Niðurl. næst.) Vinnuleysi og vinnuþörf, Undir þessat.i yfirskrift birti Suð- urland i 35. tbl. f. á. groin frá mór, og jafnframt lýsti ritstjóri blaðsins því yfir að hann mundi gera ýmsar athugasemdir við það sem í grein minni stendur, og er eg honum og hverjum öðrum rojög þakklátur fyrir, sem ræðir þetta mál röksamlega, því að eg held að það só þess vert. Nú heflr Böðvar Magnússon hrepp- stjóri á Laugarvatni ritað um það, og með því telur ritstjóri tekið af sér ómakið, en það er gamalt máltæki: „að sjaldan fellur tréð við fyrsta högg“ og svo fer með mig, en sök- um þess að eg hef frá því fyrsta að eg hafði vit á að vinna séð það, að tíminn er peningar, verð eg að vera stuttorður og bíða heldur næsta vet- rar ef þá verður minna að gera, enda góðar horfur á að ekki þurfi að spara ljósin þá, úr þvi að nota má nú yflr- standandi tíma til að auka vatnsmagn handa Rafurmagnsvólinni. Ég veit ekki hvort viða á landinu heflr vórið eins mikið af smábýlum eins og hér í Landbrotinu t. d. var fjórbýli á Éykkvabæ þegar eg ólst þar upp, — sex hundruð hver partur, — áður fyr bjó þar á tveimur pört- um einn búandi að nafni Runólfur Sigurðsson, mesti góðgjörða maður og var talinn stórríkur, enda hafði hann fært túnið stórmikið út, og sjást merki þess glögt enn í dag. En þeg- ar jörðin varð aftur tvíbýli lagðist sá túnauki niður, og meira að segja illa ræktað mikið af aðaltúninu, sem var þó aitaf lítið enda er þetta skiljan- legt, því tiltölulega er minna brent af áburði á einu stóru heimili en tveimur smáum með jöfnum fólks- fjölda. A stóra heimilinu fellst oft til meira af smíða afhöggum, og þar er fremur aflað ýmislegs til brenslu, enda er það svo hér á srnábýlum að allur áburður undan sauðfó og kúm á vetrum, er þurkaður í eldinn, og það er síst að furða sig á því, þótt smábændur hafl hvorki efni né gripi til að sækja kol langar leiðir t. d. heflr hver hestburður af kolum kost- að hingað heimfluttur frá Vík í Mýr- dal í það minsta sjö krónur. Nú er aðeins tvíbýli á öllum Þykkva bænurn, hvor jörð er tólf hundruð og ég þori að fullyrða að ef Böðvar hreppstjóri Magnússon kæmi hingað htyti hann að sannfærast um, að hér væri litið búið að gera í samanburði við það sem er hefðu fjórir verið á jörðjnni. Eg gæti best trúað því, að ef hreppstjórinn gæti gefið sór tíma til að ferðast til mín, að eftir það sæi hann sér fært að láta þau fjögur býli, sem áður voru i landareign hans ræktast og bera f úlan arð, án þess að þar sóu stofnuð nýbýli; sórstaklega ef þar vestra er svo góður jarðvegur að rækta má tún með áburði, án þess að plægt só, og sé þó komið í fulla rækt eftir tvö til þrjú ár. Mér reynist alt annað hér í báðum tilfellunum, að undan skildri lagarfor og nátthögum, en eg býst ekki við að þeir samrýmist við dilkasölu smá bænda. Ég hef nú eigin reynslu fyr- ir því hver munur er að koma í fiam- kvæmd jarða umbótum sem nauðsyn- legar eru, einn útaf fyrir mig, og með einum sambýlismanni mínum, eða vera mundi ef hér væri fjórbýli eins^, og áður, og sé hve stór bót er að því, að við lentum aðeins tveir á Pykkvabænum, og sama er víðar, þar sein smákot hafa verið sameinuð og fyrir því barðist af alefli sóma- maðurinn Runólfur hreppstjóri Jóns- son á Holti á Siðu, og sama hljóð er í Birni syni hans, sem byrjaði búskap á einum þriðja þeirrar jarðar sem er þó talin stór jörð. Nú hefur hann jörðina alla og byggir því á eig in reynslu, er hreppstjóri eftir föður sinn og hefi eg því tvo hreppstjóra inóti einum, sem þegar heflr ritað móti grein minni. Prátt fyrir það þótt. margar smájarðir hér hafl verið sameinaðar, eru þær til enn svo litl ar að einn einyrki hefir ekki nóg að vinna allan sláttinn, og má nærri geta að þeir mundu allir fyrir hvern mun vilja fá viðbót við jörð sína og eg veit í flestum tilfellum hefir sam- stiiypa jarða verið til stórbóta. Það er einmitt ógæfan í byrjun búskapar að hafa of litla jörð, meðan að vinnu- þolið og áhuginn er mesiur. A smá býlum er ekki nóg að vinna um sláttinn hvað þá þar fyrir utan, og af þvi leiðir bæjaráp með fleiru, sem gerir menn lata og sljóa til vinnu en við því má engin þjóð. Vil eg í því sambandi minna á ritgerð Agústs Bjarnasonar: „Pjóðarhagur og þjóð armein" í Andvara árið 1905. Nú er fólki, sem betur fer, í sveit og víðar, borgað það sómasamlegt kaup alt árið, ef það heflr daglega vinnu, að því liggur ekkert á að fara að búa út af fyrir sig, fyr en það á nóg afni til að byrja búskap með, og það er ramvitlaus aðferð að byrja búskap með stórlánum; því fylgja svo marg- ir ókostir, sem Iiafa riðið rnörgum að fullu, en hór yrði oflangt mál að rökstyðja það til hlýtar. Hvað á að telja stórbýla-búskap og smábýla er athugavert og víst skiftar skoðanir urn það. Eg tel stór- býli þar sem búskapur fer vel fram með 12—20 manns og nógum fónaði til fæðis, klæðis, húsa og allra nauð synlegra útgjalda og ónauðsynlegra, sem lögboðin eru. Pað eru mismun- andi staðhættir hvað landið þarf stórt, en það mun víða hafa verið í fornöld að ein kýr var á hvern mann Nú gera þær víst betra gagn enn í fornöld, eftir því sem Páll heitinn Biiem hélt fram í Lögfræðingi. En þrátt fyrir það mundi líðan manna, sem einungis lifa af landbúskap ekki verða eins og hún þyrfti að vera ef peir hefðu tvo menn fyrir hverja kú, og vafasamt hvort smjörsala borgar sig í samanburði við að brúka alla þessa mjólk til manneldis og skepnu- fóðurs, og er þá að hugsa sér hvað milda sauðfjáreign þarf til þess að standast við að kaupa alt til fœðia auk mjólkur, klæðis húsa-umbóta, kaups hjúa eða daglauna manna. Ennfremur verkfærakaupa, rentu og afborganir af lánum sem síst er að efa, sömuleiðis öll opiuber útgjöld. Ég gæti trúað að rnörgum, sem hefir reynt búskap, virðist að sauð- fjáreignin verði að vera mikil til að borga þetta alt, án þess að stofninn minki og mega því slægjur og beiti- lönd alls ekki vera lítil, og vona ég því að Böðvar Magnússon og Hall- grímur Þorbergsson taki þetta mál til rækilegri yflrvegunar. Pað er margt í fyrirlestri Hallgrims, sem mætti svara, en tímans vegna verð eg að sleppa því í þetla sinn, en vildi óska þess að sem flostir læsu fyrir- lesturinn (Andvari 1913). í fyrirlestri þessum á bls. 93—’4 heldur hann því fram nð ef fólk stofnar til hjú- skapar, sem flytur sig ekki burt úr sveitinni þá só ekki um annan kost að velja en fara í vinnumennsku eða húsmensku. Nú só í rauninni hvor- ug þessi staða fýsileg fyrir nýgiftar persónur, og ekki heldur á boðstólum með fleiru. Honum þykir óhugsandi að hjón geti komið áfram fjölskyldu sinni i vinnumensku þegar ómegðin vex, eða þegar börnin eru orðin þrjú eða fleiri. Éessu er eg ósamdóma, það hafa mörg dæmi sannað það hór að ómagamenn, sem hafa verið rétt komnir á sveilina hafa komist af með því að bregða búi, konan oftast unnið fyrir einu barni og maðurinn getur ávalt, hafl hann heilsu, unnið fyrir tveimur. Og geti maðurinn haft efni á að byrja búskap má nterri

x

Suðurland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Suðurland
https://timarit.is/publication/211

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.