Suðurland - 28.09.1914, Side 2
42
SUÐURLANL
í
V e r s 1 u n
ANDRGSAR JONSSONAR
Nýkomið: Sjðl mikið úrval. Milllpils m. teg. Kvenskyrtur.
Kvennbuxur. Náttfejólar. Dðmukiæði fl. teg. Alklœði. Svuntu-
silkl mjög fallegt. Slifsisborðar. Rciðfatasheviot. Stubhasirz einlit
og mislit. Prjðnagarn. Smokkar. Sængurdúkur fl. teg. og margs
konar YEFNABARYARA.
KARLMANNAFATNAÐIR
í miklu úrvali. Skinnjakkar. Skinnvesti. Stormjakkar. Stormfatatau.
Mollskinn fl. sortir. Enskar húfur miklu úr að velja.
Reyktókak. Vindlar. Cigarettur. Rjól. Rulla og Plötutóbak.
Handsápur fl teg. Sólskinssápa. Stangasápa. Kristalsápa.
Spil stór og smá. Kerti. Eldspíturnar góðu og ódýru.
Saumavélar. Saumavélaolía. Skilvinduolía mjög góð og ódýr.
Skóflur og skóflusköft.
Sœtsaft, best og údýrast I verslun
cHnórdsar <3onssonar. CyrarBaRRa.
xxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxx
Eftir þessu að dæma eru Englend-
ingar ekki á flæðiskeri staddir, þóttj
þtllm verði nokkuð langsótt í óf rið
þessum, þeir geta barist til þrautar,
enda þarf eigi að efast um að svo
verður gert. Og margt dregur nú
til þess þessa siðustu daga að gera
horfurnar ískyggilegri fjóðverja meg-
in.
Fyrrum og nú,
Því var spáð af ýmsum í byrjun
ófriðarins að skjótt mundi yflr Ijúka,
sú spá heflr ekki ræst og dregur
margt til þess ekki síst það hve
þessi ófriður grípur yflr mikið svæði,
ng hver feikna grúi er undir vopnum
beggja megin. Skipast þá eigi svo
skjótt um sem þá er nokkrar her-
deildir eigast. við á litlu svæði, og
fullnaðarúrslit er eingöngu við það
bundin hvernig sú viðureign lyktar.
í ófriðinum milli Frakka og Þjóð-
verja 1870 var allur her Frakka er
sótti austur að landamærum Þýska-
lands aðeins 260 þús. manns. Og á
móti þessu höfðu Þjóðverjar eitthvað
um 600 þús. Þetta þótti reyndar
/nikill liðsafli í þá daga, en ekki er
það nema eins og dropi í hafmu á
móti því ógrynni liðs sem nú er stefnt
snman í þennan ægilegasta hildarleik
í allri veraldarsögunni. Ófriði þess-
iim lauk á allskömmum tíma, enda
voru Þjóðverjar þá Frökkum ofurefli
þogar í fyrstu og Frakkar varbúnir
til ófriðarins. Þeir sögðu Þjóðverjum
stríð á hendur 19. júli. Fyrstu bar-
il.igar urðu í byrjun ágústmánaðnr en
i'nslitaorustan við Sedan var háð 1.
sept. 20. sept. voru Þjóðverjar kom-
nir alla leið til Parisar, og héldu
borginni í umsát þangað til 26. febr.
1871 að friður var saminn í Ver-
sölum. —
Það er haft fyrir satt að það hafl
oigi minnstu ráðið nú um Það að
Frakkar lögðu útí ófriðinn við Þjóð-
verja, að þeim hafl leikið hugur á að
hefna ófaranna við Sedan og afar-
kostanna í Versölum. Hinsvegar
munu Þjóðverjar hafa verið við þessu
búnír fyrir löngu, og líklegt þykir nú I
að þeir í fyrstu hafl þóst þess full- i
vissir að ráða niðurlögum Frakka á
enn skemmri tíma en síðast. Ennú
settu Englendingar stryk í þann reikn-
ing, og Belgir gerðu þeim einnig með
vörn sinni illan grikk.
í fregnskeytinu einu hér á dögun-
um var þess get.ið að Þjóðvei jar gerðu
alt sem þeir gætu til þess að eins
færi nú og við Sedan forðum, og
ekki þarf að efast um að þeir hafl
haft fullan hug á þessu. En nú var
við rammari reip að draga en 1870.
Ófriðurinn 1870—71 leiddi hinar
mestu hörmungar yfir Frakkland,
þótt þjóðinni tækist furðu fljótt að
rétta við aftur fyrír atorkú ýmsra á-
gætismanna sinna er þá voru uppi.
Nú mun mörgum þykja horfa svo að
Þjóðverjar eigi nú í vændum engu
betri búsifjar en þeir bjuggu Frökk-
um þá, og sé nú komið að skulda-
dögunum fyrir þeim.
Nýmæli.
Undir þessari fyrirsögn skrifar
Guðm. Hannesson hverja greinina á
fætur annari í ísafold, vítir hann
mjög ýmsar misfellur í stjórnarfarinu
hjá oss og ber fram ýmsar tillögur
til umbóta og þessar tillögur hans
eru það sem hann kallar nýmæli.
Um þessi skrif G. H. er það fyrst
að segja, að greinarnar eru skrifaðar
með einhverjum mikilmennskublæ,
líkast því sem höfundurinn þykist öll-
um fremri í hverskonar stjórnvisku.
Hann furðar sig mjög á fáviskunni
og flónskunni í allri okkar löggjöf og
stjórn, og má vera að sumar þær að-
flnnslur séu ekki um skör fram. Þess
mætti því vænta að tillögur þessa
manns til umbóta á stjórnarfarinu
stingju allmjög í stúf við alla fávisk-
una sem hér er orðin löghelguð, og
vernduð af venjunni. Og almenningi
hlyti því að finnast meira en lítið
nýjabragð að stjórnmálakenningum
G. H.
Vera má að sumum Þyki svo og
það finnst. höf. víst sjálfum, en ekki
heflr Suðurland enn komið auga á
neitt nýtt í tillögum G. H. annað en
það sem hann segir um aðferðina við
að breyta stjórnarskránni, það er ný-
mæli, sem tala má um, en hæpið
sýnist, það i fljótu bragði að minnst.a
kosti að aðferðin reynist vel. En t.il-
laga hans er sú að bieyta aldrei í
senn nema einu atriði i stjórnarskránni
og láta ekki þingrof ná nema til
nokkurs hluta þingsins. Þessi tillaga
er þó þess verð að hún sé rædd og
athuguð.
Þá talar höf. mikið um lekann í
landssjóðnum, alt það sem um þetta
er sagt er marg sagt áður, og ekki
verður séð að höf. leggist neitt sér
lega djúpt til að leita úrræðanna.
Þá talar höf. mikið um stjórnar-
ráðið, fylgir hann lesendum sínum á
erfiðri pílagrímsgöngu til þess mikla
musteris, og verður ærið skrafdrjúgt
þegar hann er að útlista fyrir þeim
það sem þar ber fyrir augun. Þetta
afarflókna og torskilda efni er útlistað
með svo mikilli nákvæmni, að líkast
er því að útlistunin sé gerð fyrir 1.
bekk í barnaskóia.
Stjórnarráðið er afkáralega skipað,
og altof einhæft, það er margsagt og
margsannað. En allar stjórnir og
allir stjórnmálaflokkar hafa í reynd-
inni orðið hjartanlega sammála um
að ala á vitleysunni og sleifarlaginu,
hafa aldrei viljað vita eða skilja að í
þessu væri þörf nokkurra umbóta,
nema ef þeir skyldu nú láta samfær-
ast við þetta „innlegg" prófessorsins,
og hver veit?
Annars er sitthvað í þessu sem G.
H. skrifar þess vert að það sé tekið
til umræðu Og athugunar, enda þótt
margt af því sé alls ekki nýtt, þó
prófessorinn álíti svo vera og láti all
drjúgt yfir, og veiti blöðunum og
stjórnmálamönnum hér þungar ávítur
fyrir að hafa ekkert fram að bera
annað en sama heimskustaglið „sem
hver jetur eftir öðium".
Þess mun sjálfsagt mega vænta að
G. H. beiti sér á þingi fyrir einhverj-
um þessum umbótum sem honum
verður svo skrafdrjúgr, um. Og mað-
ur sein talar af svo miklum mynd-
ugleika, og jafnframt lítilsvii ðingu um
alþingi og löggjafarstarf vort, hann
hlýt.ur að sýna það í verkinu að hann
geti eitthvað meira en gasprað í blöð-
unura um þessi mál.
G. H. hefir enn ekki setið nema
á einu þingi — aukaþingi — og
ranglátt væri að kveða upp fullnaðar-
dóm um þingmennsku hans eftir svo
stuttan tíma, og það skal heldur eigi
gert hér. En á þinginu í sumar varð
þess hvergi vart. að G. H. reyndi að
ryðja nýjar brautir. Harin kom þar
ekki frarn rneð neitt, nýthæli nema
héranefndarálitið. I því máli tók
hann upp nýjan sið, því þess munu
ekki dæmi fyr í þingsögu vorri, þrátt
fyrii alla fáviskuna sem prófessorinn
talar svo mikið um í ísafoldj að
þingnefnd, færi svo sterk rök fyrir
því að mál sem hún hefir haft til
meðferðar, eigi elcki að ganga fram,
en berjist þó með hnúum og hnefum
fyrir því að koma málinu í gegn.
Allar þær upylýsingar sem nefndin
hafði aflað sér, gengu í móti málinu
og samt vildi hún hafa, og hafði mál-
ið fram. Þetla var nýmœli á þingi,
og þess verl. að því sé á loft haldið.
— Þeir sem skrifa svo um þing vort
og löggjafarvald sem G. H. ’gerir í
ísafold, verða að gæta þess að þeim
er vandfarnara en öðrum sem minna
er heimtað af. Þeir mega ekki gera
sig seka í sömu eða enn verri vit-
leysum, en þeir eru að víta hjá öðr-
um, því annars er hætt við að al-
menningur leggi lítið upp lir orðurn
þeirra þó mörg séu og stói'.
Eldsvoði.
Nýbyggt íbúðarhús á Galtaleek á
Landi brennur á svipstundu.
Fólkið bjargast með naumindum
úr eldinum.
Aðfaranótt föstudagsins 18. þ. m.
vaknaði fólkið á Gnltalæk við það að
húsið var tekið að brenna. Hafði þá
eldurinn gripið svo um sig að fólkið
komst með naumindum hálf nakið út
úr húsinu. Húsið brann til kaldra
kola á svipstundu íneð ollu sem inni
var, matvælum fatnaði og innanstokks-
munum.
húsið var nýbygt og mjög stórt og
vandað. Er t.jónið afskaplega mikið
fyrir eigandann Finnboga bóndaKrist-
ófersson því rnælt er að alt hafi
verið óvátryggt bæði húsið og alt
það sem í því var.
----0*OC>-----
t Þorstcinn Erlingssoii skálder
látinn, dánarfregnin barst hingað nú
er blaðið var að fara í prgssuna.
Banameinið lungnabólga.
k
\
{
. tftnórdsar clónssonar, CyrarÉaMa. ^
^ Skófatnaður
S
á
s
af öllum gerðum, á yngri og eldri.
*ffaré og gœéi viéurRannf.
Enn eru miklar birgðir af öllum
Skóáburði
alt selt með sama lága verðinu og áður.
I*að er og verður best að skifta við vcrslun