Suðurland - 02.10.1915, Síða 1

Suðurland - 02.10.1915, Síða 1
SUÐURLAND Alþýðublað og atvinnumála Y. árg. Eyrarbakka 2. okt. 1915. Nr. 35. „SUÐURLAND" kemur út á laugardögum. Tekið við auglýsingum í prentsmiðjunni; þar er einnig afgreiðsla og inn- heimta. Auglýsingaverð: kr. 1,50 fyrir þumlunginn á fyrstu síðu, en kr. 1,25 á hinum. Smá auglýs- ingar borgist fyrirfram. Stór iðnaðarfyrir- tæki á íslandi. Saít — Kol — Olia — Járn. „Suðurland" heflr fyrir skömmu minst nokkuð á hin mjög svo nauðsynlegu hlúti salt, kol og steinolíu og leitast við að sýna í fáum orðum fram á hina ómetan- legu þýðingu sem það mundi hafa fyrir þióð vora, ef þeir yrðu fram- leiddir hjer á landi. Það heflr komið til orða, sem kunnugt er, að gera tilraun í þá átt, hversu sem takast kann. Þá er að telja fjórða hlutinn, sem nofndur er hjer í fyrirsöginni, en pað or jómið. Hefir komið til orða og það enda á alþingi, að reyna að framleiða járn hjer á landi í stórum stil. Nokkur von er um að það kunni • að takast, þegar óíriðnum er lokið. Eigi þarf langt mál um það að rtta, hver nauðsynjavara járnið er. * Telja menn það eitt hinna allra nauðsynlegustu hluta, næst salti og kolum. Heldur hafa störf mannanna verið ólík því sem nú gerist, með- an þeir þektu ekki málmana. Vopn og verkfæri úr steinum hafa fundist víða um heim og stafa frá tímum er menn þektu eigi annað „bitjárn" en steininn. Má nærri geta að á þeim tímum var örðugt að gera sjer jörðina undirgefna, eða að sinna smíðum. Steinöldin virðist þó að hafa ríkt lengi, og ríkir jafnvel enn í dag með hinum lægstu þjóðum. Hóti skár voru menn farnir er þeir fengu eirblendinginn eða bronsið, þó hvergi nærri væri það fullnægjandi. Eiröldin var líka löng hjá ýmsum þjóðum, og tekur járnöldin við af henni. Verður eiröldin þannig milliliður milli steinaldar og járnaldar. Það er auðskilið mál, að verkfæri úr málmi tæki langt fram verkfærum úr steini, og að sá varð sigur- sælli í orustu, er málmvopnin hafði, Og á sama hátt vorn járn- vopnin og verkfærin bitrari og betri en þau er úr eirblendingi voru gerð. Fer svo jafnan í heim- inum, að þær þjóðir halda velli er mest kapp leggja á að finna ný og betri ráð til að bjarga sjer. Mikill er munurinn á verkfær- um steinaldarmanna og menningar- þjóða nútímans. Þarf í því efni eigi annað en benda á venjulegan vasahnif og eggjaðan stein. Má nærri því geta að með eintómum steinum gátu menn ekki hugsað til að yrkja jörðina á neitt svip- aðan hátt og nú gerist. Þá gat heldur ekki verið um neina kvík- fjárrækt að ræða og því síður iðn- að. Menn voru að langmestu leyti bundnir við veiðar og herfarir, og má nærri geta að þá hefir manns líflð ekki verið metið hátt. Járnið varð mannkyninu Sesam- lykill að nægtabúri náttúrunnar, og þó það hafl mörgum góðum dreng vakið dreyra, þá heflr það ómótmælanlega framar flestum eða öllum, hlutum skorið mann- kyninu tignarklæðin. Járnið notum vjer nú í ótal hlúti. Er þar fyrst að telj't hníf- inn, eitt hið þarfasta áhald sem mannkynið á, eða þá naglana sem öllu halda saman. Þá var ólíkt hvað þeir flakuðu betur eem liOfðu öngla úr járni, en þeir sem bein- öngla höfðu, eftir þvi sem segir í sögu Parmesar loðinbjarnar. Minna má og á nálar og skæri, sem og ljái og plóga. Báta og sbip gerðu menn fram á síðustu mannsaldra eingöngu úr trje, en nú hefir járn- ið eicnig fengið þar yfirhöndina, þrátt fyrir það þó járnbúturinn sökkvi þar sem fjölín flýtur. Mest af öllu kveður þó að járn- inu í vjelunum, þessum galdra- verkfærum, sem gjörbreyttu vinn- unni og kjörum verkamanna á síðustu öld víða um heiminn. Gufuvjelin hefir verið drotning vjeianna fram á þessa öld, og haft starfsmagn sitt frá einni hinni mestu afllind, kolunum. En fram- farir hinna síðustu ára benda í þá áttina, að hún hafl þegar alið dætur sjer ágætari og hún muni bráðum „setjast í hornið". Járnið mun eigi fyrir það hverfa úr sög unni að sinni til. Það mun enn um langan aldur verða notað til að særa þjóðirnar holundarsáruro í hræðilegum styrjöldum, og einn ig til að tengja mannkynið saman við friðsamleg störf. Frh. ------<>*oo------ Kosnir I ncfnd til að dæma rit til verðlauna af Gjafasjóði Jóns Sigurðssonar: Jón Jónsson sagnfr, Björn M. Ólsen prófessor, Jón Þorkelsson skjalavörður. Ofriðurinn. Pað fór sem getið var til fyrir skemstu, að skamt mundi að bíða stórra tíðinda frá ófriðnum. Snemma í vikunni frjettist það að Hindenburg væri með her sinn fyrir austan Vilna og hamaðist þar, sem Ijón í lambaflokki. Degi síðar frjettist að Rússar hefðu tek- ið Luzk af Þjóðverjum aftur og nú er sagt að Austurríkismenn sæki fram á þeim slóðum. Lít- ur helst út fyrir að bardagar sjeu háðir daglega á austurstöðvunum. Vilja báðir ná öruggri fótfestu fyrir veturinn. Talið er að tjón Rússa stafl mest af því að Þjóð- verjum hafl tekist að sprengja í loft upp helstu skotfæraverksmiðju þeirra, hafl því kent aflsmunar í orustunum Óeyrðir eru sagðar í Rússlandi og kólera mannskæð, síðustu dag ana. Rússai- flytja nú sem óðast burt úr Petrograd austur tíl Moskva. Bendir það ótvírætt til þess að þeir búast við að mega þoka úr höfuðborginni fyrir Þjóðverjum. Mikið kapp heflr verið lagt á að draga Balkanríkin inn í ófriðinn en ekki heflr það tekist enn, svo frjett sje. Grikkir liafa þó kallað saman 350 þús. manna til vopna, og sjest á því að eigi er friðurinn tryggur þar suður frá. A vesturstöðvunum hafa Frakkar haflð ákafa 'sókn síðustu dagana, og orðið mikið ágengt, tekið yflr 20,000 fanga og mikið herfang. Bretar hafa hafið árás á Þjóðverja í Belgíu síðustu dagana. Er svo að sjá sem allir vilji nú láta til skarar skríða fyrir veturinn. Get- ur þá vel farið svo að eitthvað skipist á annan veg um ráð ófrið- arþjóðanna, og þá er meiri von um friðarhorfur. Um þetta verð- u: þó ekkert sagt að svo stöddu, g«tur verið að alt lendi við sama sieininn, sem hingað til: árangurs- litlai orustur. Japanar vinna nú af kappi að stotfæragerð fyrir Rússa, því Rúss- im er nú örðugt mjög um alla sðflutninga. Svíar og Danir eru sem milli tveggja elda. Hafa Svíar viðskifti úð Þjóðverja og láua þeim jafnvel fje. Danir fá nú engin kol í Eng- lrndi þessa dagana; grunar menn að það komi ekki af góðu. í Mexico logar enn alt í ófriði og ekkert útlit fyrir endir á þeirri óöld. Bandaríkin hafa þar vakandi' auga á öllu, og eru við öllu búin. cþingsins. Þingið í siimar hefir haft í mörg horn að lita. Frumvörpin urðu nser 100 að tölu og þingsályktunartillögur fleiri en nokkurn tíma áður. Kemur hjer stutt yfirlit yflr þing- störfin. Frumvörpin, sem stjórnin lagði fyrir þingið, voru 22 að tölu. Voru 20 þeirra samþykt, en tveim lokið með rökstuddri dagskrá. Þingmannafrum- vörp vovu 76 og var holmingur þeirra, 38, samþyktur, 27 voru feld, 6 tekin aftur og 6 óútrædd. Þíngsályktunartillögur voru 34, þar af 11 um að skipa nefndir, af hinum voru 14 samþyktar, 6 feldar, 2 teknar aftur og 1 óútrædd. Rökstuddar dag- skrár voru bornar upp 23, af þeim 13 samþyktar, en 10 feldar. Embætti. Eggert Briem, skrifstofustjóra er veitt annað yflrdómarembættið, frá 1. okt. Frá sama degi er Ouð- mundi Sveínbjörnssyni, veitt skrif- stofustjóraembættið á 1. skrif- stofu i stjórnaráðinu og Björn Þórðarson skipaður aðstoðarmaður á 1. skrif3tofu. ólafur Gunnarsson cand. med. & chir. er settur læknir í Miðfjarð- arhjeraði. Settur — ekki skipaður — er Ólafur Lárusson í prófessors- embættið við háskólann. Ellefu á vfgvelll. I þorpinu Cachary við Marne- fljót búa öldruð hjón, bóndinn 68 ára, konan 65. Þau hafa átt tólf syni og átta dætur, og er slík frjósemi fágæt á Frakklandi, sem alkunnugt er. Ellefu synir þeirra gengu á vígvöll og liggja sex af þeim í sárum, einnig fimm tengda- synir og einn sonarsonur þessara gömlu hjóna og er þetta frægt orðið á Frakklandi. (Lögberg). ■0*0*0-

x

Suðurland

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Suðurland
https://timarit.is/publication/211

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.