Suðurland - 02.10.1915, Síða 2

Suðurland - 02.10.1915, Síða 2
136 SUÐURLAND Venizelos. Svo er sagt, að Venizelos hinn gríski stjórnmálamaður, sje aftnr tekinn við völdum eðlt muni gera það innan skamms, og þykjast menn vita, að nokkuð muni af því leiða, því að hann er maður af- bragð's vél gefinn, svo að hann er af sumurn káílaður einn merkileg- asti maður samtíðarinnar. Pyrir tíu árum var hann höfðíngi fyrir smáílokkum er börðust á Krítoy, þar sem hann er fæddur og upp- runninn, gegn stjórninni sem þar vár þá, en fyrir henni var Georg, konungsson frá Grikklandi. Krítey var þá undir „vernd“ Tyrkja, og partur af Tyrkjaveldi, þó að sjerstjórn hefði, samkvæmt ábyrgð s^órveldanna, og með þejrra ráði var Geörg gerður þar land stjóri. * Því var það, að þegar Venizelos barðist gegn honuri), þá barðist hann gegn því sem stórveldiii vildu vei a • láta. Baráttan gekk honum f vil. Pi insinn reyndi að ráða einn öllu, álika og Fýzka^ lands keisari, en Venizelos kvað hann eiga að stjórna með vilja eýjarskeggja og hafði sitt fram Georg prins sagði af sjer. Eftir það varð þessi útlagafor- ingi helzti stjórnmálamaður eyjar- innar og rjeði einn öllu. l?ó að hann hefði verið foringi útlaganna, vár hánn sámt ekki útilegumanni líkur. Hann Var ýel lærður, af auðugfi ætt, lagamaður, laérðúr á háskólum Grikklands og Sviss- lands, ágætlega mentaður og prúð- ur í framgöngu. fegar hann tók við stjórn á Kritey, sýndi hann strax, að hann. gat ^erið leiðtogi fólksins og samt gengið í móti vilja þess. Kríteyá iiígar vildu strax ganga í samband við Gríkki, en hann vissi að stór- veídin mundu ekki leyfa það. Hann lagðist á móti þeirh samlöndum sínum, sem vildu berjast til sam- eihingar við móðurlandið, og fjekk af því hatur þeirra, en þar kom að þeim varð vel til hans, þó að ekki fengju þeir að ráða. Hann kann tökin á mönnum. Þegar hann var búinn að hafa það fram í Krítey, sem hann viíd, steig hann á skip og sigldi til Gtikklands. Eft.ir fáa mánuði komst hann þar á þitig, að fánrn mánuðnm liðnum þar á eftir varð hann æðsti ráðgjafi landsins og trúnaðarmaður konungs, þó aldrei nema hann hefði kúgað son hans til að fara úr ferítey. Pessuin manni hlýtur að vora það gefið, áð töfra monn, en það gefir hann með sínum ahdlegu hæfiieikúiri,' innræti sínu og viljá- þreki. Fað reyriist á Grikklandi eins og áður, að hann varð mestu ráð- andi með þvi að gan'ga f rnóti því sem fóik vildi í svipirin tíg fara siriu' frám’. Til dærriis ‘ vildu Grikkir svifta Búfgara öllu því svæði með sjó frairi, 'eí- Balkan þjóðirnár hófðu unnið af Tyrkj- um, en Venizelos setti þar þvert nei fyrir og sat við þann keip þó að nálega öll hin gríska þjóð yrði ókvæða við og kallaði hann svikara. Svo lauk að haun gaf Búlgurum höfn við Grikklaridshaf. Venizelos er sál’ Grikklands, göfugri en ástríður þjóðarinnar, sem yfir hana koma í svipinn, og trúr því, sem henni er fyrir bestu. Hann er víðkunnastur fyrir það, að hafa fært út landamæri Grikk- lands. Hann lagði Krítey við landið, þegar tími kom til, payt af Macedoniu og Epirus og enn kann svo að fara, ef svo verður, sem líklegt er, að honum takist að leggja nokkurn part af Litlu Asiu þar við. En hann hefir orkað því að gei a Grikkland ekki aðeins víðlendara, heldur þjóðina betri. Honum er það að þakka, að landinu er nú hvorki stjórnað af einvöldum kon ungi nje hóp glæfrainanna. Hann heflr komið á stöðugri, þingbund- inni og heiðarlegri stjórn í land- iriu, sem í raún og sannleika er vílja almennings háð, og það er hans mésta afrek. Hann hefir tekið við stjórn á ný, á inerkilegum tímamótum og er mikið undir því komið, hversu hamingjusamlega honum tekst, að ráða fram úr þeim vanda. (Lögbere). Lög ■" sainþykt á Alþingi 1915. 1. Lög um breyting á lögum 8. okt. 1883 um bæjarstjórn í ísafjarðarkaupstað. 2. Lög um ógilding viðskifta- brjefa og annara skjala með dómi. 3. Lög um mat a lóðum og löndum í Reykjavík. 4. Lög um ullarmat. 5. Lög um heimild fyrir ráð- herra íslands til að skipa nefnd til að ákveða verðlag á vörum. 6. Lög um sjerstaka dómþinghá í Öxuadals-, Arskógs-, Reykdæla ög Aðaldæla-hreppum. 7. Lög uin framlenging á gildi laga 3. ág. 1914 um ráðstafanir á gullforða íslandsbanka, innstæðufjo í bönkum og sparisjóðum og á póstávísunum. 8. Lög um bann á útílutningi frá íslandi á vörum innfiuttum fiá Bretlandseyjum. 9. Lög úm stofnun vjelstjóra skóla í Reykjavík. 10. Lög um heimildir fyrir Landsstjórnina til ýmsra íáðstafana út af Norðurálfuófriðnum. 11. Hafnarlög fyrir Akureyrar- kaupstað. 12. Lög um breyting á lögum nr. 55, lo. nóv. 1913 úm stofnun Landhblgissjóðs íslands. 13. Ijög um viðauka við lög nr. 26, 22. okt. 1912 um vatris' veitu í löggiltum verzlunarstöðum. 14. Lög um breyting á lögum nr. 22, 11. júlí 1911 um stýri- mannaskólanh í Reýkjavík. 15. Lög um framlengirig á gildi laga nr. 30, 22. okt. 1912 og y‘ • ‘á’4 v. laga nr. 44, 2. nóv. 1914 og laga nr. 45 s. d. 16. Lög um breyting á lögum um vegi nr. 57, 22. nóv. 1907. 17. Lög um breytiug á lögum nr. 29, 2. nóv. 1914 urn breyting á löguin um vegi, nr. 57, 22. nóv. 1907. 18. Lög um sparisjóði. 19. Lög um atvinnu við vjel- gæslu á gufuskipum. 20. Lög um vatusveitu í kaup- stöðum. 21. Lög um breyting á lögum nr. 57, 22. nóv. 1907 um vogi. 22. Lög um veitingu presta- kalla.. Frh. í’egnskylduvinnan, Tillaga til þingsályktunar um þegnskylduvinnu var lengi að flækjast „innan um“ þingið í sumar. Var málið sett í nefnd, en nefndin klofnaði. Vildi meiri hluti nefnd- arinnar eigi hafa tillöguna nje málið að neinu og lagði til að tillagan væri feld. Minnihlutinn Matthías Ólafsson og Sv. Björns- son voru aftur málinu fylgjandi, einkum sá fyrnefndi. Að lokum var samþykt svoh.ljóðandi tingsálylítunartlllaga: „Alþingi skorar á landsstjórnina að l&ta fara fram atkvœðagreiðslu allra kosnivgabœrra manna í land- inu um það, hoort löobjóða skuli skylduvinnu fyrir alla heilbrigða karlmenh við verk í þarfir hins opinbera, einhvern tíma á aldrinum 17—25 ára, alt að þriggja mánaða tíma í eitt skifti. Atkvæðagreiðsla þessi sje leynileg og fari fram samhliða nœstu al■ mennu kosningum“. Mál þetta kom fyrst upp á al þingi 1903, en hefir ekki verið þar til meðfeiðar síðan. Talsvert hefir það þó verið rætt rneð köfl— um og nú eru bestu hoifur á að um það verði háð snörp deila fyrir næstu kosningar. „Suðurl.“ mun reyna að leggja orð í belg í þvi máli. Minnisvarði Kristjáns koriungs liins IX. var afhjúpaður siðastliðinn sunnudag. Klemens Jónsson land ritari hjelt affijúpunarræðuna, on Geir Zoöga kaupmaður sviíti aí blæjunni. Varðimi stendur á stjórnarráðs- blettinum, og standa þeir þar þá báðir Jön Sigurðsson og Kristján IX. Ekki er það nema hjegómlog hótfyndní að finna að slíku, því jafnan var Kristján 9. lofsæll af íslendingum og mun lengi verða. Er varðinn því reistur mjög að verðugu. Jórunn F’orgilsdóttir Fœdd ÍO. okt. 1882. Dáin 17. sept. 1915. Mo tt o: „Elli, þú ert ekki þung, anda guði kærum. Fögur sál er ávalt ung uudir silfurhærum. Svona, Jóruun, sál þín var: saklaus, hrein og fögur, augun skýr, sem indælar Islendinga sögur. í þeim brosti ást og trú, yiur, þrék og festa, augun birtu alt sem þú áttir til hið besta. Hjartað var svo hreint sem mjöll, heitt og göfugt bæði; þú varst sann-nefnt trygða tröll, tállaus öll þín gæði. Langt og blessað. lífsstarf þú leystir vel af hendi, uppskeru þú öðlast nú eins og drottinn kendi. Sólargeisla fagurt flóð fylgdi þjer til grafar. Á minning þína, mæta fljóð, morgunroða stafar. Gamall góðkunningi. Vilhjálmur Stefáuss. Pað er nýlega spurt að Vilhjálm- ur Stefánsson sje kominn fram, eftir langa buitu veru. Hann lagði á stað á skipi sinu „Karluk“ fyrir tveim árum norður á bóginn í þeim erindum að kynnast bet.iir þjóðflokki þeim, er hann fann fyrir nokkium árum, í nyrstu löndum og hugði vera afkomendur nor- rænna manna fyrir vestan haf. Hann yfirgaf skip sitt við norður- strönd Alaska, og hjelt þaðan með 4 mörinum öðrum seint í marsmán- uði 1914. Hjelt hann áfram norð- ur um mánaðar tíma, en þá sendi hann frá sjer þrjá af fylgdarmönn- um sínum og ætlaði sjálfur að koma á eftir þeim nokkru síðar. Áttu Þeir að vera viðbúnir að leita hans ef hann kæmi eigi innan ákveðins tíma til Banks Land. En svo fór að hann kom eigi fram og spurðist eigi til hans uokkuð á annað ár. Voiu menn orðnir hræddir um hann í sumar, og margar ráðstafanir gerðar vestra til að hefja leit að honum. Alt fórst það þó fyrir, meðfram vegna ófriðarins. Var fast að því komið að gerð væru út skip og flugvjel- ar í leitarförina, því inargir vildu haía sig í hættu hans vegna. I

x

Suðurland

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Suðurland
https://timarit.is/publication/211

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.