Suðurland


Suðurland - 31.08.1916, Blaðsíða 2

Suðurland - 31.08.1916, Blaðsíða 2
102 komist sórnasamiega af. Hér er enn eitt, sem nefndin heflr látið ósvarað, en þar sem hún segist ætlast, til þess, að ernbættismenn geti lifað slíku lífl, og hinsvegar stungið upp á embættismanna launum, má vænta þess, að þau laun nægi að hennar áliti til sóma- samlegs lífsframfæris. Nefndin aðhyllist ekki þá skoðun, að þjóð- in eigi að borga embættismönnurn sínum það sem félög eða prívat- menn borga hæst, og er það vorkunn, því að tekjur landsins mundu hrökkva skamt, ef launa skyldi mörgum embættismönnum eins og „trollarakapteinum". Bn þegar nefndin fer (bls. 180) að fjalla um samanburð á launum embættismanna og manna i öðrT um stöðum, lendir ait fyrir henni í rausi og handaskolum. Nefnd- inni hefði ekki átt að vera það ofvaxið, að afla sér upplýsinga um tekjur þeirra manna, sem * eru í sambærilegum stöðum við embætt- ismenn, svo sem t. d. verzlunar- stjóra, bankastarfsmanna, góðra sjálfseignarbænda og annara svip- aðra atvinnurekenda, svo sem út- gerðarmanna og kaupmanna, því að eftir þeim undirbúningi, sem siðað þjóðfélag heimtar af embætt- ismönnum sinum, má ekki búast við, eða á ekki að mega búast við að finna í þeim hóp þá menn, sem ekki hafi fylsta sanngirnisrétt, miðað við dug og starfshæfileika, til að heimta þau lifskjör af þjóð> félaginu, sem svari til lífskjörum þeirra manna, sem hér eru taldir. Maður verður að vera svo hrein- skilinn að segja, að þjóðfólagið hafi ekki efni á að halda þeim embætt- um uppi, sem það ekki hefir efni á að launa sómasamlega. Og eft- ir því sem að framan er sagt, verður það embætti ekki talið sómasamlega launað, sem hefir minna enn 3000 kr. byrjunarlaun, hækkandi upp í 4000 kr. og sé þó hvorki tekið tillit til peninga- ábyrgðar né risnu, né heldur til þess vanda og trúnaðar, sem fylg- ir hæztu embættunum. Vitanlega er með þessu átt við, að efnbætt- ið taki allan starfskraft embættis- mannsins, og sé það ekki, á betur við að kalla stöðuna „launað starf“ en „embætti*. Maður verður að gera sér það Ijóst, að þó engin hætta sé á, að ekki fáist menn í eifibættin með lægri laurium, þá er þess ekki að vænfa, að þjóðin fái íyrir minna kaup menn með þeim krafti, sem nauðsynlegur er til þess að embættin séu vel setin. Það er að vísu satt, að lands- sjóður borgar háar upphæðir til embættismanna. En kröfur hvers eínstaks embættismanns verða ekki minni fyrir það. Úr þoim vanda verður að bæta með hentugri embættaskipun, en að reyna að reyna að pína laun ernbættismanna niður úr góðu hófi, sem svarar til annara stétta, sem í betra lagi eru settar í mannfélagicu, það er ein- ungis siðspilling og vitleysa, og leiðir til siðspillingar og vitleysu. Þess vegna þarf víst ekki mikirn spámann til þess að segja það fyrir, að nefndarstarf það sem hér er um að ræða, verður til einkis nýtt, ekki einu sinni til þess að mynda þann grundvöll, sem seinni vinna i þessa átt geti bygst á, og ekki verður heldur séð að á þeim 287 bls. sem nefndarálitið nær yfir í eftirlaunai og launamálinu (fylgiskjölin ekki talin með), sé nokkrum þeim gögnum safnað, sem að nokkuru liði geti komið fyrir stjórn eða þing eða nýja nefnd. Væri það því meirá en furða, ef st.jórnin vildi leggja fyrir þing nokkurn hlut af þessum nefndargetnaði. Það myndi hafa verið góðra gjalda vert, ef nefndin hefði treyst sér til að stinga upp á hagkvæm- ari embættaskipun, svo embættis- laun hefðu sparast að því leyti sem embættum hefði fækkað. í þessu efni liggur þó lítið eftir nefndina. Hún vill sameina lands> bókavarðari og landsskjalavarðar- embættin, sameina Dala- og Strandasýslur og leggja niður 5 fámennustu læknishéruðin. Svo vill hún og leggja niður læknis- embættið við holdsveikraspítalann og fela héraðslækni Reykjavíkur þau störf á hendur. Aftur vill hún stofna yfirfjárráðandaembætti með 3500 kr. launum, jafnvel — að því er séð verður — þótt ekki verði af aðskilnaði umboðsvalds og dómsvalds. Lauri þau er nefndin ætlar embættismönnum eru yflrleitt hækkandi eftir embættisaldri. Af launakjörum eftir núgildandi lög- um vill hún sérstaklega bæta laun yfirdómara og kennara við menta- skólann t’au laun eru Ékveðin 1889. Sé nú gert ráð fyrir að 33 % dýrara sé að lifa nú en 1889, sem nefndin helst virðist hallast að, og er þó vitanlega of lágt áætlað, ættu laun háyfirdóm- ara nú að vera 6400 kr. en laun hinna dómaranna 4667 kr. — til þess að vera sömu launin, þ. e. a. s. hafa sama kaupmagn og þegai þau voru ákveðin. Eftir lögunum frá 1889 hefir sem sé háyfirdómi arinn 4800 kr. en meðdómendurn- ir 3500 kr. hvor, en eftir tillögum nefndarinnar hefir háyfirdómarinn 5000 kr. byrjunarlaun, hækkandi upp í 6000 kr., en meðdómend- urnir hvor um sig 4000 kr. hækk- andi upp í 5000 kr. Hér frá dregst svo lifeyrisgjald, sem þess- ir menn áður voru lausir við. ]?vi skal engan veginn haldið fram, að þessum mönnum sé ekki nægii lega launað með því sem nefrdin stingUr upp á, en miðað við þann tíma, sem launin voru ákveðin, er hér ekki um neina launahækki un að ræða, heldur fremur lækk- un. Er þetta aðeins nefnt sem dæmi þess, hvernig nefndin í til- lögum sínum „siglir undir fölsku flaggi". Af embættismönnum eru það helst skrifstofustjórar Stjórnarráðs1 ins, sem nefndin hefir tekið á3t- fóstri við, og eru þó laun þeirra tiltölulega nýlega ákveðin, En þar með er ekki sagt, að launin séu oi há, heldur að eins sæmileg. Verri útreið fá sýslumennirnir, sem byrja flestir með 3000 kr. og enda i 3600 kr. — auk skvifst.ofu kostnaðar, sem nefndin hefir sett alveg af handahófi — og eiga þeir þó að hafa peningaábyigð. Aljiingi 1889 ákvað sýslumannalaun 3000 —3500 kr. ílestöll og er þá vanda- lítið að sjá að nefndin hefir fæit þau niður, og tekið þó burt eftin launaréttinn. Sýslumenn hafa og engar aukatekjur eftir frumvaipi nefndarinnar eða sama sem engar. Kennarar við mentaskólann byrja með 2200 kr. og komast upp í 3600 kr. En þar sem þeir þurfa 21 ár til þess að ná þeim launum og er áætlaður 26 ára embættisaldur, ætlast nefndin ekki til að „Adam verði lengi í Para- dís“. Pó að nefndin tali um að hún vilji bæta kjör þessara embætti ismanna, sem að flestra áliti gegna einna þýðingarmesta starfinu í þjóðfélaginu, verður þó niðurstað- an yfirleitt lækkun í samanburði við 1889, þegar launin voru ákveði in, jafnvel þótt ekki sé tekið tillit til afnáms eftirlauna. Ennþá minni réttingu mála sinna fá þó rektor og yfirkennari, og ættu þeir þó að hafa laun á við prófessora í elsta launaflokki, eftir venju flestra þjóða. Læknar, — að undanteknum héraðslækni Reykjavíkur, sem er ætla3t til að hafi sérstakt staif — fá 120Qi—1800 kr. í laun, eftir tih lögum nefndarinnar. Hæstu laun háfa læknar í fámennustu héruð- unum, en lægst i þeirn fjölmenn- ustu, gert ráð þar fyrir meiri auka> tekjum. En þar sem reynsian hefir sýnt og mun vafalaust fram- vegis sýna, að í fjölmennustu lækn ishéruðin setjist helzt „praktiser- andi“ læknar, og búast má við þar af leiðandi mikilli, ef til vill stórkostslegri rýrnun í tekjum hér- aðslæknis, þá virðist þessi frádrátt- ur af launum lækna í fjölmennari héruðum, vera bygður á minna viti, en vænta mætti af verum, sem þó tilheyra dýraríkinu. Þá hefði verið skárra að skömminni til að hafa enga héraðslækna í fjölinenn- ustu héruðunum, sem œtla mætti að praktiserandi læknar myndi setjast að i, heldur fela einhverjum lækninum að gefa opinberar lækn- isskýrslur fyrir einhverja sérstaka þóknun. En vitanlega hefði þá læknirinn ekki verið bundinn við taxta, og hefði það getað sviðið til héraðsbúa, þeirra sem lengst þurfa að vitja læknis. Annars eru sérstaklega laun lækna óhæfilega lág, þegar tekið er tillit til van- haldahættu þeirra og eftirlaunai leysis, og kennir ekki hvað sízt þar frámunalega lélegra nefndaii starfa, að ekki sé tekið harðara til orða. Ekki fer nefndin betur með lág- launaða starfsmenn en embættis- menn. Að vísu er ekki gert rái' fyrir því, að þessir menn þurfi ai kosta nokkru verulegu til undit búnings undir stari sitt. En ú því nefndin æ last til að t. d. að stoðarmenn i\ pcsthúsinu byrji með 720 kr. og endi með 1440 kr. hefði henni ekki veitt nf um loið. að gera einhverjar ráðstafan- ir til þess, að þessir menn yrðu ekki heimilisteður eða ómagamenn, því að á því kaupi getur fjölskyldu- maður vissulega ekki lifað í Reykja- vik, þegar hann á að verja öllum tíma sínum tii staifsins — eins og póstmenn víst. verða að gera. Annars hefði þurft að taka fram, hvað langan tíma láglaunaðir starfsmenn ættu að vinna daglega fyrir kaupi sínu, því að kósti starf- ið allan þeirra tíma, eru launin svo óhæfilega lág, að þess er ekki að vænta, að nokkir menn fáist í þau, sízt til lengdar, en hafi mað- urinn tíma til að vinna annað eins starf eða meira snnarsstaðar, má vera að launin séu sæmileg. En að byrja með 720 kr. í laun, og hækka á hverjum tveimur árum um 120 kr. upp í 1440 kr. og sitja við það til gamalsaldurs og eiga að kosta sig að öllu af þeim launum — það er víst staða, sem fáir foreldrar myndu vilja kjósa syni sínum til handa, enda væri það léleg virmumannsstaða, sem fkki væri arðvænlegri. Rúmið leyfir ekki að rekja frek- ara en hér er gert, tillögur nefnd' arinnar í launamálinu. Séu laun- in ákveðin of há nú, þá er sjálf- sagt, að breyta þeim. En hitt má ekki eiga sér stað, að þyTtjast hœkka laun, sem í sjálfu sér eru lœkkuð, strá ryki í augu aímenn- ings með krónutali, en taka ekki tillit til þótt kaupmagn peninga sé gjöibreytt frá því er launin voru ákveðin, né heldur að reikna með, þótt launum þeim sem upp á er stungið fylgi útgjaldaauki og rétt- indatap. Nefndin á að vera viss um, hvað er hækkun eg hva<^ er lækkun, það er minsta krafan, sem gerð verður til hennar, og þó hefir hún ekki einu sinni getað geitsvo lítið, þó sagt sé, að störf hennar hafi kostað landið um 20 þús. kr. Og nefridin veiðui að vita, að þótt alþýða manna vilji fegin spara fé, þá vill hún þó ekki fyrir þann sparpað kaupa ónýta, siðspilta og bitlingaleitaiidi embættismannastótt sem reynzlan sýnir að skapast í þeim löndum, þar sem embættisi laun eru mjög lág, eins og t. d. á Rússlandi. Monn vita það, að það er ekki af tómu tilhaldi eða ofmiklu auðsatni, að menningar- þjóðir Norðurálfu launa embættis- menn sína vel, heldur er orsökin sú, að heilbrigð embættismanna- stétt er skilyrði fyrir heilbrigðu þjóðlifi, og hinsvegar að spilling og rotnun hjá embætjtismöpnurn leiðir af sér spilling og rotnun \ þjóðfélagslíkarnanum yfirleitt, Þess vegna vilja ríkin stuðla að því, bæði með skólamentun, launalög- gjöí og eftirliti, að embætlismanna- stéttin geti komið að gagni, orðið lyftistörig fyrir þjóðlífið. Retta skilur og nú orðið alþýða manna hér á landi — og frá hennar hálfu getur því ekki milliþinganefndin vænst þakklætis — né kjörfylgis fyiir 3tarf sitt nefndin veríiur ;.ð vita ]iað, að h ín „heiir sín lai n úttekið", og iað í líkum mæ i, með því sem hún lieíir kosti.ð landssjóð. Frh. Þorfi, 'inur Kristjinsson.

x

Suðurland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Suðurland
https://timarit.is/publication/211

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.