Verkamaðurinn


Verkamaðurinn - 03.04.1919, Side 3

Verkamaðurinn - 03.04.1919, Side 3
VERKAMAÐimiNN. 23 Jifc Kauptaxti Kvenfélagsins />Eining«. Samþyktur á fundi 24. Marts 1919. Frá 1. Maí er lágmarkskaup félagskvenna sem hér segir: í stundavinnu séu teknir 50 aurar fyrir hverja klukkustund, sem unnið er að degi til, hvort sem unnið er frá kl. 6 eða 7 að morgni, til sama tíma að kveldi. Fyrir nætur- og Sunnudagavinnu sje tekin 1,00 kr. Næturvinna sé talin frá kl. 9 að kveldi til kl. 6 að morgni. Lágmarkskaup við fiskþvott er: Sé þveginn veg- inn fiskur, 60 aurar fyrir hver 50 kg., sé fiskurinn talinn, þá kr. 1,30 fyrir hverja 100 fiska, upp og of- an. Frá 12. Júlí til sfðasta September, 75 aurar fyrir að þvo 50. kg. og kr. 1,60 fyrir 100 fiska. Lágmarkskaup við síldarvinnu: Kr. 1,00 fyrir hverja tunnu síldar að kverka og salta, sé um venjul. hlunnindi að ræða. Án hlunninda kr. 1,10. Stundavinna frá 12, Júlí til síðasta September 75 aurar á hverja kl.st. Lágmark við innivinnu, þvotta á húsum og fatn- aði sé 60 surar á klukkust. án fæðis. Kauptaxti þessi sé í gildi frá 1. Maí 1919 til þess er annar er gefinn út. Með þessum taxta er úr gildi numinn fyrri taxti félagsins. Allar konur ættu að hafa það hugfast, að tryggja sér skaðabætur, ef síldarvinna bregst tilfinnanlega. Skoríur á nauðsynjavörum. Hér á Akureyri er orðinn hörgull á tveimur nauð- synjavörum, nefnilega: molasykri og steinolíu. Hvers vegna þessi skortur hefir orðið er eigi unt að segja í fljótu bragði. Leitt að vita til þeSs, að Lanas- verslunin skyldi láta verða skort á molasykri einmitt nú þegar hver stundin er að verða síðust sem hún fer með sykurverslunina og eins vegna þess, að hún stöðugt hefir haft nægar sykurbyrgðir hér á staðnum. En úr þessum skorti tná máske bæta þar eð einn útgerðarmaður hér á talsverðar byrgðir af molasykri. Enda væri sjálfsagt að reyna að bæta þennan skort með að fá sykur þessa útgerðarmanns, því óhugs- andi er að sykur ekki verði kominn áður en útgerð hefst í sumar. Tilfinnanlegur er skorturinn á steinolíunni og sér- staklega kemur það hart niður á þeim fátækari, sem tiltölulega nota mikla olíu og ekki hefir haft ráð á að byrgja sig upp til lengri tíma. — Nú nýlega hefir Landsverslunin hætt steinolíuverslun og við tekið hið alræmda danska steinolíufélag. Hjá Lands- versluninni skorti aldrei hér olíu, en strax og stein- olíufélagið er tekið að »spekulera« með hana skortir þessa vörutegund um leið. Skömm í hattinn á stein- olíufélagið sannarlega skilið að fá fyrir frammistöð- una. Hvernig á nú að bæta þenna skort, svo hann ekki valdi neinum óþæginda? Því er vafalaust ekki auð- svarað, eu ef útgerðarmenn og einhverjir aðrir hér eiga steinolíu svo um munar, er alveg sjálfsagt að taka hana nú þegar éignarnámi til úthlutunar þeim, sem hana skortir. Einnig má vel vera að hægt væri að fá hana frá Siglufirði eða Húsavík. Væri ekki ómaksins vert að grenslast uin það og senda einhverja fleytu af stað? Líklega mætti trúa bjargráðanefnd kaupstaðarins til að gera það sem henni ber að gera. í sambandi hér við skal eg geta þess, hve mis- munandi verð hefir verið á steinolíu á sama tíma hér í bænum, tökum t. d. 1 þriggja pela flösku. Olía á hana kostaði á þessum stöðum: ónsstada Akureyrarkaupstaðar (í innbænum) verður veitt frá 1. Júlí næstk. Fyrir misserið frá 1. Júlí til 31. Des. næstkomandi verða greiddar 1200 kr. í laun, en frá 1. Jan. 1920 eru árslaunin 1500 kr. Umsóknir um stöðu þessa sendist bæjarfógeta fyrir lokAprílm. Bæjarfógetinn á Akureyri, 3. Apríl 1919. Páll Einarsson. 25 Stúlkur ræð eg til síldarvinnu á Hjalteyri á|komandi sumri. Hæstu kjör sem boðin verða. Vanaleg hlunnindi. Ágœtt söltunarpláss. Halldór Friðjónsson. Hjá St. Sigurðssyni.............55 aura. — Hinum sam. ísl. verslunum . 52 — — Orundarverslun..............45 — — Láfusi Thorarensen .... 41 — Pessi dæmi nægja. Beri maður verðið saman þar sem það hefir verið hæðst bg lægst kemur í ljós 14 au. mismunur á 3 pelum og virðist mér það æði mikið. Hverju skyldi þá muna á heilu fati af steinolíu? Hverju þetta er að kenna skal eg láta ósagt, en annaðhvort munu búðarvigtirnar mæla skakt eða þá búðarfólkið ekki reikna hárrétt. Líklegt er að olían eigi þó að seljast með sama verði alstaðar í bænum. Hvað segir bæjarfógetinn um það? 31. Marts 1919. G. J. Landsverslunin mun hafa hönd í bagga með út- hlutun steinolíunnar. Annars mun bráðlega bætast úr olíuvandræðunum hér. Mun kútter vera á leið- inni frá Reykjavík með olíu hingað. Ritstj. Samtíningur. Bæjarstjórnarfundur á FViðjudaginn var sam- þykti að skipaður skildi annar lögregluþjónn fyrir bæinn. Kaupfélag stofnuðu bændur í Fljótum í vetur. Eru um 70 manns í félaginu. Formaður þess er Guðmundur Ólafsson bóndi í Stórholti. Fijótamenn höfðu kaupfélagsskap fyrir nokkrum árum síðan, en sá íélagsskapur valt um koll. Vonandi að þessi verði langlífari. Norðmenn munu hafa hug á að reka síldveiðina af krafti í sumar. Ábyggilegar fregnir eru fengnar um það, að flestir hinir stærri útgerðarmenn, sem hér hafa dvalið áður, muni koma aftur; jafnvel von á sumum þeirra til Siglufjarðar í næsta mánuði. Einnig er útlit fyrir að ný síld verði borguð vel. Fékk einn útgerðarm. hér í bæ tilboð í nýja síld fyrir 35 kr. málið, fyrir nokkrum dögum. Rarlmannsföt dökk, úr ágætu efni, fru til sölu fyrir lágt verð. Ritstjóri vísar á. Almanak 1919. Dto handa ísl. fiskimönnum. Verslunarskýrslur 1915. Isl. söngvasafn. I samræmi við eilífðina. Viðbætir við Sálmabókina. Passíusálmar. Nýjajtestamenti. Sumarkort. — Fermingarkort. fæst í Bókaverslun Kr. Guðmundssonar. „FRAM“, fróðleiks og fréttablað, gefið út á Siglufirði, stærstu síld- veiðastöð landsins, kemur út 52 til 60 sinnum á ári, og kostar þó aðeins FJÓRAR KRÓNUR ÁRG. Nýir kaupendur geta fengið blaðið frá l.Marts þ. á til ársloka fyrir einar 2 krónur og 50 aura. ÚTSÖLUMENN: Akureyri: Finnur Nlelsson, Hafnarstrœti 97. — H. Ó. Magnússon, Kaupfél. Eyf. Hjalteyri: Sigtryggur Benediktsson. Hrísey:' J óhannes Davlðsson. Olafsfirði: Stefán Yialdvinsson. Auk þess er blaðið sent beint þeim er þess óska. Póst og síma utanáskrift til blaðsíns er: „Fram“ Siglufirði.

x

Verkamaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.