Verkamaðurinn


Verkamaðurinn - 08.07.1920, Qupperneq 2

Verkamaðurinn - 08.07.1920, Qupperneq 2
62 VERKAMAÐURINN. I ■' • f Verkamaðurinn 52 blöð á ári. Kostar 5 krónur. % Gjalddagi 1. fúlí. Útgefendnr: J? Verkamenn á Akureyri. Afgreiðlu- og innheimtumaður: Garðar Arngrimsson, Lœkjargötu 6. 9 f O I Q^1' Q -í4!- @®-'-^-Q -!■$* Q -t^-Q-’^* íjc Lork, sem rnikið hefir látið ti! sni taka í Bandaríkjunum á síðustu tímum, hefir verið dæmdur í 10 ára hegningarhús- vist fyrir æsíngar og ofbeldisráð, og 20 ára görnul stúlka, Molty Steiner, var nokkru áður dæmd til 15 ára fanga- vistar í hegningarhúsinu í Jefferson City fyrir uppreistaital og óspektir. (<Heimskringla« 5. Maí. Álla Molar. Hroðalegt morðmál stendur nú fyrír dómstólunum í Los Angeles. Maður nokkur, James A Huert að nafni, er kærður um að hafa myrt 9 eiginkonur sínar og hjálpað öðrum fimm til þess að fremja siálfsmorð, Maður þeási er sakaður um að hafa átt 25 eiginkonur, sjálfur segist hann hafa átt 15, enerþó ekki viss í töiunr.i. Sumum þeirra stytti hann aldur, sumar yfirgaf hann eftir að hafa náð haldi á eignum þeirra. Átta ko/iur hafa mætt í réttihum, sem ailar segjast vera löglegar eiginkonur þessá manns, og ein þeirra hrósaði honum fyrir að vera undursamlegur í ástum. Flestar af konum þessa manns voru Bandaríkjastúlkur, þó er vissa fengin fyrir því, að tvær voru héðan úr Can- ada, önnur frá Vancouver og hin frá Winnipeg; sú sfðast nefnda er á lífi, en Vancouverstúlkan talin meðal hinna myrtu. Huert hefir játað á sig 4 morð og aðstoð við tvö sjálfsmorð. Læknar segja að maðurinu sé ekki vitskertur. — o — Tveir nafnkunnir vísindamenn, Dr. Frederick H. Millner og Dr. Harvey Qa- mer, gerðu nýlega tilraun í Omaha, Neb. til þess að ná samtali við Marz. Reir bjuggu út þráðlaus talfæri af meiri styrk- leik en áður hafði þekst. 21. Apríf er Marz var aðeins 36,000,090 mílur frá jörðinni, gerðu þeir tílraunir sínar. Eh annaðhvort eru þeir ekki nógu ment- aðir á Marz til að skiija þráðlaust tal- símasamband, eða þá að rafafl talfær- anna er ekki nógu kraftmikið. Eitt er víst, að ekkert svar kom frá Marzbúum, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir þessara tveggja jarðarbúa. En Dr. Millner er þó ekki vonlaus um að sér muni takast þetta seinna. Vísindin gefast aldrei upp. — o— Hattasali í Lundúnum hefir stefnt Maríu drotningu fyrir 4 dala skuld. Segir hann að það séu rúm tvö ár síðan að droíningin hafi fengið hjá sér hatt, en ekki borgað hann, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir sínar að fá skuldina greidda. Nú eiga dómstólarnir að sjá svo til að drotningin borgi hattinn. — 0 — Merkilegt hjónaskilnaðarmál var ný- lega fyrir rétti í Lundúnum. Col. And- rew Ringsmill, heimkominn hermaður fékk sér dæmdan skilnað, er hann lagði fram bréf í réttinum, sem konan hans hafði skrifað honum til vígvallarins. Hún bað hann fyrir alla muni að falla á vígveliinum, svo hún gæti gifst manni. sem hún elskaði. Herforinginn varð ekki við tiimælum konu sinnar, og er hann kom heim aftur úr stríðinu, sótti hann um skilnað frá henni, sem honum var veittur. —o — james Larkin, írskur anarkisti í New Fyrirlestur hélt Guðmundur á Sandi í samkomu- sainum s. I.“ Föstudagskvöld. Hét fyrir- lesturinn »Að verða úti«. Dvaldi fyrir- lesarinn mest við ýms stórmenni ver- aldarinnar, er ekki áttu samleið með fjöidanum, taldi mörg þeirra hafa orðið úti á einn eða annan hátt. Aðsókn var ekki mikil, tæp 200 manns. OIIu því sérstaklega miklar anniríbæn- um. i .Sigurður E. Birkis söngvari kom hingað til bæjarins með »Kóru«, Hann hefir dvalið við söng- nám í Kaupmannahöfn í hálft annað ár og þykir hinn efnilegasti söngmaður. í Reykjavík hefir hann hlotið einróma lof fyrir söng sinn, en þar söng hann þrívegis fyrir fullu húsi. Á Siglufirði hefir hann einnig sungið og ber »Fram« honum hið bezta söguna. Birkis hefir áformað að syrigja hér á Föstudags og Laugardagskvöldið kemur, og þarf ekki að eíast um, að bæjarbú- ar fjölmenni á svo sjaldgæfa og góða skemtun, sem þar cr á boðslólum. Aðalfundur Sambands íslenskra samvinnufélaga var haldinn hér á Akureyri 2. og 3. þ. m. Voru þar mættir fulltruar frá sam- vintiufélögum víðsvegar af landinu. Má heita að sarabandið hafi nú orðið land- ið alt í faðmi sínum. Inn í það gengu á þessum aðalfundi 6 kaupfélög, og á- líka mörg félög gengu í það í fyrra. Ein eftirtektaverðust framþróun í sam- vinnumálunum varð í Austur-Skaftafells- sýslu á síðastliðnum vetri. Kom þangað heim í átthaga sfna ungur maður, Sig- urður að nafni, sem dvalið hafði er- lendis og kynst þar samvinnufélögum. Fór hann herskildi um sýsluna og barði á einvéldi kaupmannsverslunarinnar, sem þar hafði ríkt undanfarnar aldir.. Hélt hann fundi með bændum og ræddi við þá samvinnumál. Árangurinn af þeim fundahöldum var sá, að kaupmaður, sem verið hafði einvaldur í Hornafirði, lét af kaupskap og seldi verslun sína og hús kaupfélagi, sem bændur stofn- uðu að ráðum þessa Sigurðar. »Niðaros« kom hingáð frá útlöndum á Mánu- daginn var. Með honum kom Böðvar J. Bjarkan og kona hans frú Kristín Bjarkan, Jón Helgason frá Rússlandi og Haraldur Guðnason verslunarmaður. Með skipinu kom einnig sænskur raf- -magnsfræðingur, sem ráðinn hefir vérið af bæjarstjórn Akureyrar til þess að gera mælingar hér við Glerá og víðar, og undirbúa til fullnustu raforku Akureyrar. Með Niðarós kom hingað snögga ferð Jón Heiga- son, bróðir Magnúsar H. Lyngdals kaup- manns hér í bæ. Hefir hann Dvalið í Rússlamji síðastl. 10 ár. Jón er kvænt- þá, sem eiga erindi við mig áhræðandi afgreiðslu skipa Hins sameinaða gufnskipafélags bið eg að snúa sér til herra kaupmanns Sig. Fanndals, Hafnarstræti nr. 47 sem í fjarveru minni hefir umboð til að afgjöra það. Akureyri 8. júlí 1920. Eggert Laxdal. ur Rússneskri konu og dvelur hún nú í Kaupmannahöfn. Er það ætlun þeirra hjótia að leita heim til Rússlands fljót- lega aftur. Jón hefir haft þar góða at- vinnu við bankasíörf ogleikfimi. Brugðu þau hjóniri sér að heiman seint í vetur til að lyfta sér upp og létta á fóðrun- um þar austurtrá, því þröngt var í búi í Pétursborg, þar sem þau eiga heima. Spurðum vér Jón, hvort hann hygði ekki á að flytja hingað heim til átthag- anna, en hann kvað nei við því. Stefnuskrá Alþýðuflokksins. (Eftir Alþýðublaðinu.) Pað vill oft við brenna hjá andstæð- ingum Alþýðuflokksins, að þeir ráðast á alt annað en það, sem er á stefnuskrá hans, serh þeir þó telja stefnuskrá hans. Einnig verður því eigi neitað, að mörg- um 'alþýðumanninum, bæði innan og utan Alþýðuflokksins, mun varla vera nægilega ljóst stefnumið flokksins. Oss þykir því hlýða að birta stefnuskrá flokks- ins, svo menn viti ny>ti hverju þeir berjast, þegar þeir berjast á móti ,fs- lenska Alþýðuflokknum. Stefnuskráin er skýi» og ljós, og eftir voru áliti besta pólitíska stefnuskráin hér á landi. Raun- ar verður eigi sagt, að beinir fjand- menn vorir (kaupmenn útgerðarmenn etc.) hafi neina pólitíska stefnuskrá, svo sam- anburður er ekki við þá gerandi. Stefnu- skrá Framsóknarflokksins svipar að vísu nokkuð til vorrar, en tekur eigi eins af skarið. Um stefnuskrá annara flokka og flokksleifa er mönnum eigi eins kunn- ugt, enda þeir pólitískt dauðir. /. Skattamál. Afnema skal alla tolla af aðfluttum vörum. Fyrst og fremst sykurtoll, kaffitoll og vörutoll, en til að standast útgjöld landsins séu lagðir beinir skattar, að svo miklu leyti sem arður af framleidslu og verslun, er rek- in sé fyrir hönd þjöðfélagsins, ekki hrekkur til gjalda landsins. Pessir beinu skattar séu : a. Hækkandi eigna- og tekjuskattur, þar sem hæfilegur framfærslueyrir fjöl- skyldumanns sé látinn vera undan- þeginn skatti, en síðan fari skatiur- inn smáhækkandi og sé hlutfallslega mestur á mestuni tekjum og verð-, mestu eignum. b. Verðhœkkunarskattur af öllum lóð- um og löndum að því leyti, sem verðhækkunin stafar af almennum framförum lattdsins eða aðgerðum þjóðfélagsins, Skattur þessi skiftist eftir ákveðnum hlutföllum milli lands- sjóðs og sveitar (eða bæjar-)sjóða. 2. Landsverslun og framleiðsla. Land- ið taki að sér einkasölu á ýmsum vöru- tegundum, fyrst og fremst: steinolíu, kolum, salti og lóbaki, taki þátt í at- vinnu- og franileiðslufyrirtækjum, svo sem skipaútgerð til fiskiveiða og flutn- inga, stóriðnaði, námugreftri og þess háttar. Þegar hvalaveiðar verða teknar upp aftur, skulu þær eingöngu reknar af landinu. 3. Bankamál. Landið hafi umráð yfir aðalpeningaverslun landsins; skal í því skyni auka og efla Landsbankann. Til að greiðu fyrir hritigrás pening- anna, skal með heppilegri löggjöf stutt að stofnun sparisjóða og lántökufélaga með samvinnusniði víðsvegar um landið. 4. Samvinnumál. Samvinnufélagshreif- inguna skal styðja í baráttunni við kaup- mannaváldið, bæði með hentugri lög- gjöf og ríflegum fjárveitingum til að útbreiða þekkingu á henni. Framh. Kartöflur, Baunir og Bankabygg nýkomið í Kaupfél. Verkamanna. Veggfóður fæst í Kaupfélagi Verkamanna. Alþýðublaðið er ódýrasta, fjölbreyttasta og besta dagblað landsins. Afgreiðsla á Akureyri er í Kaupfélagi Verkamanna. Gjalddagi Verkamannsins var 1. JÚlí. Prentsmiðja Björns Jónssonar,

x

Verkamaðurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.