Verkamaðurinn


Verkamaðurinn - 06.08.1921, Blaðsíða 2

Verkamaðurinn - 06.08.1921, Blaðsíða 2
90 VERKAMAÐUfclNN Borg kom í fyrrakvöld. Meðal farþega voru Erlingur Friðjónsson kaupfélagssljóri, er kom frá Rvík og séra Rögnvaldur Pétursson með fjölskyldu, frá Ameríku, Trúlofun sína opinberuðu í Reykjavík 26 f. m. ungfrú Ingibjörg Steinsdóttir og Ingólf- ur Jónsson (Friðfinnssonar) stúd. júr. Frá Rússlandi. Verslunarsamnlngar Bolsivika. Altaf heyrast raddir um það að alt gangi enn á tréfótum í Rússlandi hung- ur og kuldi strádrepi fólkið og alt logi í innanríkisstyrjöldum. , En þeir menn, sem þetta segja nú, eru hrapalega á eftir tímanum. Borgarastyrjöldum er nú lokið fyrir ári síðan; þótt Bandamenn sendu hvern herinn á fætur öðrum tókst Bolsivikum að sigra þá alla. Af erlendum þjóðum berjast Rússar nú sem stendur opinberlega að eins við Japana (leynilega auðvitað á móti öllum auð- mannastjórnum). Úr neyðinni hefir af- skaplega mikið verið bætt með aukinni framleiðslu, svo sem sjá má af skýrsl- um stjórnarinnar (sbr. »Ástandið í Rúss- landi< f síðasta blaði). Og eitthvað er til í Rússlandi, því ensk skip ganga nú milli Rússlands og Englands fullfermd báðar leiðir, og rfkin gera nú hvert á fætur öðru verslunarsamninga við Rússa. í Englandi voru pantaðar vörur fyrir 5 milj. sterlingspunda, í Pýskalandi fyrir 3000 milj. marka, í Svíþjóð fyrir 50 milj. króna og í Bandarfkjunum fyrir 10 milj. dollara. Árás hefir komið fram á ensku stjórnina fyrir samningana, sem þykja Rússum í hag. Er þar spurt, hvort Bolsivisminn sé að múta auð- valdinu til að eyðileggja sjálft sig. Kveð- ur þar við annan tón en í auðvalds- blöðunum hér, sem segja, að Lenin sé að »kasta sér í fangið á Kapitalism- anum«. Sovjet-stjórnfn í Moskwa hefir nú gefið út tilskip- anir um, að húsaleiga skuli afnumin og að bókum og blöðum skuli útbýtt ó- keypis meðal alþýðu. Endurbótum hjá þeim fjölgar nú sífelt, og þeim virðist ætla að ganga betur að reisa við sitt lýðveldi en auðvaldsinnunum í stórveld- unum. Alþjóðasamband Kommunista — 3. Internationale — vex sífelt. Norðmenn gengu flest allir f það í vetur, eins og menn vita. Kom- munista flokkurinn í Bæheimi, sem telur minst 450,000 meðlimi, samþykti á fundi í Prag, að ganga í sambandið. Voru 562 með, en 7 móti. Jafnaðar- menn í Rúmeníu samþyktu nú á sam- bandsþingi sfnu að ganga f 3. Inter- nationale, með 432 atkv. gegn 111. í verkalýðsfélðgum, þeim sem tilheyra 3. Internationale, eru 23 milj. Krapotkin, frægi rithöfundurinn rússneski, erný- Iega dáinn, svo sem kunnugt er. Ráð- stjórnin í Moskwa ákvað að heiðra minningu hans á ýmsan hátt. Ætla þeir að stofna bókasafn, er beri hans nafn, hús hans er ættingjum hans gefið til minningar nm hann, gata ein fjölfar- in er kölluð eftir honum, en svo hafa Bolsivikar og ákveðið, að gefa út ðll rit hans á rússnesku. Hin frægustu þeirra eru: »Endurminningar anarkist- ans«, »Baráttan fyrir brauðinu*, »Vinna handarinnar og heilans* og »Samhjálp«. Auk þess skildi hann eftir stórt rit um siðfræði, sem hann hefir ritað síðustu ár æfinnar. Hálft býlið Lundeyri í Glerárþorpi fæst til kaups nú þegar. Lysthafendur semji við Gísla R. Magnússon. Ráðstjórnarlýðveldin (Sovjet-lýðveldin) eru nú 12 að tölu og eru í sambandi sín á milli. Pað eru: Rússland Bolsivikama, Hvíta Rúss- latid, Síbería, Karelía, Ukraine, Kirgisia, Buchara, Khiva, Tataria, Aserbeidschan, Turkestan og Bascþkirsia. Stærð þeirra er til samans 18 milj. ferkílómetrar, helmingi stærri en Evrópa. íbúatalan er 120 miljónir. Austur-Síbería (Sovjet-ríkið) hefir nú afnumið eign- arrétt einstakra manna á jörð. Notk- unarrétt geta einstakir menn og sam- vinnufélög fengið hjá ríkinu. Kommunistar í Persíu styðja núverandi stjórn þar í því, að losa sig við yfirráð Englands. Hallast nú Persar að því, að leita stuðnings hjá Sovjet-Rússlandi. Stóreignamenn persneskir eru teknir höndum hópum saman og eignir þeirra hátt skattlagðar. Ríkið hefir tekið að sér margar stór- eignir og komíð upp ríkisbanka með aðstoð Rússastjórnar. Frú Margrét Rist, kona Lárusar Rist kennara, dó úr in- fluensu þ. 5. Ágúst. Hún dó frá 7 börnum, öllum í ómegð, svo missirinn er hinum eftirlifandi ákaflega sár. Dáin: Ekkjufrú Puríður Kjartansdóttir and- aðist 1. f. m. að heimili tengdasonar síns, Stefáns Sigurðssonar kaupmanns hér í bæ, 90 ár að aldri. Hún var ekkja Jóns próf. Jónssonar, er síðast þjónaði að Hofi í Vopnafirði. Skonrok, Kringlur, Hveiti, Smjörlíki, p tegundir,) Mælikvarðar, •* (Tommustokkar,) Smellur <■«Vasaklútar, Steinolía, Kristalsápa, Stanga- sápa, margar tegundir o. fi. nýkomið. Kaupfélag Verkamanna Mikil verðlækkun! í Sápubúðinni á Oddeyri. * Strandgata 5 Sími 82. Ágæt krystalsápa V2 kg. 0,60 Sódi - - 0,14 Marseillesápa — — 0,52 Sápuspænir — — 1,65 Do. í kössum 0,90 A. B. C. sápa, stykkið 0,62 Jurtasápa stór stykki 0,40 Standarðsápa stór stykki 0,40 Skúringaburstar ágætir frá 0,55 Gólfskrúbbar ágætir frá 0,95 »Lessive Ludpulver« 0,50 Pvottaduft »Bedste« x/t pk. 0,48 Do. — 1/2 - 0,30 Do. Sodanok V1 — 0>46 Do. - V2 - 0,27 Skúringaduft 0,27 Salernispappír stk. 0,70 Fægiefnið »Gull« frá 0,40 Marseille úrgangssápa V2 kg. 0,52 Mikið úrval af handsápum. 800 kg. hvít blautasápa seld nú á 0,39 V2 kg- 1000 kg. úrgangs handsápa á 1,00 72 kg. Mikið úrval af allskonar burstum og sóþum og hár- greiðum og hár- og fataburstum. Krydd í mat og kökur. Mikið úrval af svömpum. fóhann Frtðfinnsson frá Árgerði í Eyjafirði andaðist á Landakotsspítala 30 Júní s. I. eftir langa legu, ungur efnismaður ókvæmtur. Garðar Jónsson (bónda í Möðrufelli í Eyjafirði), er og nýlátinn, unglings- maður efnilegur. Sigurbjörg Lindroth, kona H. Lind- roth spunameistara við klæðaverksmiðj- nna á Álafossi er nýdáin. Hún var dótt- ir Helga sál. Benidiktskonar skipstjóra, alin upp hér á Akureyri og nýlega flutt suður. Sigurlaug Jakobsdóttir (Jakobssonar skipstjóra) dó hér á sjúkrahúsinu 8. f. m. Unglings stúlka innan við tvítugs- aldur. Filipla Pálsdóttir kona Einars Björs- sonar ökumanns hér á Oddeyri, dáin20. f. m. úr inflúensu. Hafði lengi verið far- in að heilsu. Eyvör Tímoteusardóttir húsfreyja á Hörmulegt slys vildi til hér aðfaranótt Sunnudagsins 24 Júli. Magnús Franklín kaupmaður hafði verið á sjó um nóttina, en um morguninn fanst bátur hans mannlaus á reki. Álíta menn að slysið hafi viljað til um kl. 5 um morguninn. Líkið hef- ir ekki fundist enn þá. Magnús sálugi var dugnaðarmaður og vel látinn. Hann lætur eftir sig ekkju og ungbarn. Sigurgeir Jónsson söngkennarl varð fyrir því slysi 25 f. m. að lalla niður af loftpalli á húsi, sem hann var að vinna við. Meiddist hann mjög mik- ið, lærbrotnaði og skaðaðist í hendi og mun því miður líða langt áður hanu nær sér aftur. Arthur Gook trúboði er kominn heim úr sutnarferðalagi sínu. — Samkomur hefjast á Sjónarhæð annað kvöld kl. 5. Wienerbrauð eins og þau eiga að vera verða fyrst um sinn til í brauð- búðum mínum á sunnudaginn kl. 12 á hád. A. Schiöth. Giftingar. Sunnudaginn 17 f, m. voru gefin saman á Sauðárkrók Júlíana Friðriks- dóttir hjúkrunarkona og Haraldur Björns- son verzlunarmaður. — Sunnudaginn 24 f. m. voru gefin saman í Saurbæ í Eyjafirði ungfrú K. Christensen og Jón S. Espholín. — 26 f. m. voru gefin saman í borgaralegt hjónaband hér í bænum Pórleif Pétursdóttir Jónssonar ráðherra) og Jón Norland læknir frá Haramsö, Ranmdalsfirði í Noregi. Fóru hjónin út með »Sírius.« Brimnesi er og nýlátin úr inflúensunni, -----------—........................ Ung kona og gerfileg. Prentsmiðja Björns Jónssonar,

x

Verkamaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.