Verkamaðurinn - 21.02.1922, Side 1
9 E R H 9 M ð 9IIRIN H
Ritstjóri; Halldór Friðjónsson.
V. árg.
Akureyri, Priðjudaginn 21. Febrúar 1922.
j 3. tbl.
I. O G. T.
Stúkan Brynja No. 99 heldur fund
á venjulegum stað, annað kvöld kl. 8.
Félagar mæti stundvíslega.
/Eðsti Templar.
Milli tveggja elda.
Síðan verðfallið á framleiðsluvör-
um vorum hófst og lömun atvinnu-
veganna fór að verða áberandi, hefir
veikalýður þessa lands verið staddur
milli tveggja elda.
Meðan verðhækkunin var samferða
á öllum sviðum og atvinnuleysið
gei ði ekki vart við sig, hækkaði kaup-
gjaldið mótstöðulaust, þó það væri
jafiian á eftir dýrtíðinnij Allar ástæð-
ur vóru með því, að hlutur verkalýðs-
ins þyrfti að vaxa, og hann óx eðli-
lega og hljóðalítið.
Lækkun kaupgjaldsins hefir reynst
meiri örðugleikum bundin, því á því
sviði hafa togastátvö öfl; öðru meg-
in þörf verkalýðsins, sem háð hefir
veiið dýrtíðinni, og hinu megin krafa
uni ódýrt vinnuafl frá þeim, er borið
hafa fjárhagslega ábyrgð á rekstri at-
vinnuveganna.
Orsökina til þessarar togsperru er
að sækja til þeirra staðreynda, sem
krept hafa skó þjóðarinnar s. 1. ár,
; þeirra, að afurðir lands og sjávar
féliu í verði áður en dýrtíðin, sem
skapast af verðlagi útlendra vara, hafð'
náð hámarki.
Kaupgjaldsmálið hefir verið sótt og
varið og ýmsum veitt betur, Á þeim
viðskiftum hefir verið glundroðasvip-
ur, eins og svo mörgu fleira hjá oss,
enda er hér að ræða um það atriði.
sem er meira vandamál en almenn-
ingur gerir sér ljóst.
Sú eina tilraun, sem gerð hefir
verið hér á landi, til að koma skipu-
lagi á kaupgjaldsmálin, eru samningar
ar verkalýðsfélaganna og vinnukaup-
enda í Reykjavík, þótt þeir samningar
hafi verið molakendir, og grundvöll-
urinn, sem þeir eru bygðir á, hálf-
gert kviksyndi, þá hafa þeir þó kom-
ið því til leiðar, að þeir, sem hlut
hafa átt að málum, hafa borið saman
ráð sín, og fengist til að hafa opin
augu fyrir hvers annars þörfum. Rar
sem svo er málum skipað, er ekki
hægt að segja að baráttan sé háð út
í loftið — án tillits til allra ástæðna.
Þó hafa samningsaðilarnir þar syðra
ekki síður en aðrir, rekið sig á það
skerið, sem gerir framkvæmd samn-
ingamálanna óhæga, og það er mis-
vægi verðfallsins og fjárhagsörðug-
leikarnir. Gagnvart því atriði standa
allir jafnir — allir jafn ráðþrota,
Samningsaðilarnir þar syðra hafa
miðað kauphæðina við verðlag nauð-
synjavara, eftir uppgjöf Hagstofunnar.
Með þessu er fengin viðurkenning
fyrir því, að verkalýðurinn þurfi að
sníða verðlag vinnunnar eftir verði
neytsluvaranna. Fái hann ekki kaup
í hlutfalli við dýrtíðina, sé hagur hans
í voða og þjóðarhætta á ferðum.
En þó þessi viðurkenning sé feng-
in, er eftir að leysa hina þrautina —
meta gjaldþol atvinnuveganna. Um
það atriði hefir deilan staðið og mun
standa, þar til jafnvægi kemst á verð-
lag aðfluttra og innflutra vara, en út-
litið spáir öllu öðru, en sú gullöld
sé í nánd.
Hér á eftir skal gerð lítilsháttar
tilraun til að draga fram þær línitr,
sem geti skýrt óstand þessara mála
nú, þótt ekki verði til annars en þess,
að fá almenning til að athuga þessi
deilumál frá sem flestuin hliðum.
Athugun verður altaf að ganga á
undan athöfnunum, ef vel á að fara.
Grundvöllurinn, er Hagstofan bygg-
ir athuganir sínar á, er sá að fyrir
stríðið — 1914 — hafi jafnvægi ver-
ið á verðlagi varanna, aðfluttra,
og útfluttra, og þá verður líka
að ganga út frá, að kaupgjald
hafi verið í samræmi við það, þó það
atriði hljóti altaf að verða álitamál.
Samkvæmt skýrslu hagstofunnar í
Janúar þetta ár, hafa þær 58 vöru-
tegundir, er skýrslan greinir, hækkað
að meðaltali um 218°/« síðan 1914,
eða er með líku verði nú og 1918,
rétt áður en ófriðnum lauk. Hafi því
samræmi verið á miili kaupgjalds og
vöruverðs fyrir stríðið, ætti það, kaup-
gjaldið, að vera 218°/o hærra nú, en
það var 1914. Þó er þess að gæta,
að í skýrslu Hagstofunnar er fatnaður
skótau, húsaleiga o. fl. sem eru þung-
ir útgjaldaliðir á kaupstaðarbúum,
ekki tekið með.
Pá er að líta á verðlag innlendra
afurða fyr og nú, og er þar farið
eftir þeim bestu heimildum, sem fyr-
ir hendi eru.
1. Sjávarafurðir
Saltfiskur Nr. 1 skipj
Síld tunnan
Lýsi kg.
2. Landb.afurðir:
Kjöt kg.
Ull —
Gærur —
Smjör —
Tólg -
Mör —
Mjólk líter
Skyr —
Lainbsslátur
Verðlagið á ofantöldum tegundum
er tekið eftir upplýsingum frá kaup-
Haustið Haustið
1914. 1921.
x 70 kr. 165 kr.
15 — 40 —
30 au. 50 au.
60 au. 130 au.
190 — 200 —
85 70 —
150 450 —
50 — 250 —
50 — 240
14 45 —
20 — 60
60 — 250 —
sýslumönnum hvað þær vörur snert-
ir, er fluttar eru út. Verðið á hinum
teg. er miðað við það, sem þær voru
seldar hér í bænum 1914 og 1921.
Má vera að eitthvað lítilsháttar skakki
með verðið, en það er aldrei mikið.
Á töflunni má sjá, að þær vörurnar
sem út eru fluttar, eru tiltölulega lægri
en þær, sem seldar eru í landinu, og
stafar þetta eðlilega af því, að aðkeypt-
ar vörur eru í svo háu verði. Eftir
því, sem erlendar vörur kosta meira,
þess meira virði eru þær vörur lands-
mönnum, sem framleiddar eru í land-
inu, að svo miklu leyti sem þær geta
komið í stað erlendra nauðsynjavara.
Kjötið, sem selt var innanlands s. I.
haust, var líka selt um 30 aurum
hærra kg. en erlenda verðið er. Líka
er óhætt að reikna þann hluta sjáv-
arafurðanna, sem notaður er í land-
inu, hærra verði, en erlenda verðið
bendir til. Annars er ilt að byggja á
grundvelli verðlags á útflutningsvör-
um, eins og þar er alt á hverfandi
hveli, og hlýtur því að verða notað-
ur slumpareikningur að miklu leyti.
En þegar þær frumlínur, sem sýndar
eru hér að framan; eru athugaðar,
getur hver einstaklingur myndað sér
nokkurn veginn sjálfstæða skoðun um
það, á hvaða punkti kaupgjald verka-
lýðs á nú að standa, ef taka á tillit
til dýrtíðar annars vegar og aðstöðu
atvinnuveganna hinu meginn. Verður
þó í næsta kafla greinar þessarar
leitast við að benda á niðurstöðuat-
riði , þegar ýms aukaatriði, sem áhrif
hafa á þetta mál, hafa verið athuguð.
(Framh.)
Það tilkynnist
hér með vinum og vandamönn-
um, að jarðarför Magnúsar sál.
Sigurðssonar frá Naustum,
fer fram frá kirkjunni Laugar-
daginn 25. þ. m. kl. 1. e. h.
Aðstandendur.
Ekkert markvert að frétta af
Alþingi. Likur taldar d að stjórn-
in sitji dfram. Búist við frum-
varpi frá henni um tilstökun við
Spánverja.
Tveir islenzkir togarar teknir
i landhelgi. Draupnir, sektaður
um 18 þús. kr., afli og veiðar-
fœri upptækt. Kári, sektaðar um
4 þús. krónur.
(Fréttar. V.m.)
Símfréttir.
Rvlk i gœr.
Mótmœlendur og kaþólskir
menn berjast i Irlandi. Valera
vex fylgi.
Stjórn Þýskalands varð að
samþykkja kröfur járnbrautar-
verkfallsmanna- Fékk hún traust-
yfirlýsingu hjá þinginu með 35
atkvœða meiri hluta, þótt búist
vœri við því gagnstœða.
Indlandsstjórn hefir skipað að
handtaka Oandi uppreistarfor-
ingja.
England vill afsala sér um-
ráðarétti yfir Egyftalandi.
Forvextir Englandsbanka eru
nú 4lh°lo.
Alþingi
var sett 15. þ. m. eins og lðg stóðu
til. Forseti sameinaðs þings var kosinn
Sig Eggerz, forsetri neðri deildar Bene-
dikt Sveinsson, forseti efri deildar Guðm.
Björnsson. Framsóknar- og Sjálfstæðis-
flokkarnir munu hafa haft samvinnu við
forsetakosningar. Einnig er talið að þeir
flokkar muni starfa í félagi að bjargráð-
um á verzlunarmálasviðinu. Mörgum
sögum fer um stjórnina áfram. Sumir
bjuggust við að hún mundi segja af sér
í þingbyrjun, aðrir, að koma myndi
fram vantraustsyfirlýsing á hana áður
langt liði, en skeytiti í gær gera ráð
fyrir að hún sitji áfram.
Kosningin
í Suðurþingeyjarsýslu hafði verið af-
arvel sótt. Kusu */* kjósenda í mörg-
um hreppum sýslunnar. Atkvæðatala fer
fram á Fimtudaginn
Póstarnir.
Austanpóstur á að koma í dag. Vest-
anpóstur fer á Laugardaginn.
Húsbruni.
Nýlega brann stórt hús á Norðfirði.
Um 30 manns urðu húsviltir. Fregnir
óljósar af brunanum.
»Goðafoss«
kom hingað á Fimtudagskvöldið var.
Fór aftur á Föstudagskvöld. Með skip-
inu var lík Péturs heitins atvinnumála-
ráðherra. Var það sett í land á Húsa-
vík. Jarðarförin fer fram að Skútustöð-
um á Fimtudaginn.
E. s. »Activ«
koni hingað rétt fyrir helgina. Tók
fisk. Fór héðan beina leið til Rvíkur.