Verkamaðurinn


Verkamaðurinn - 13.06.1922, Side 2

Verkamaðurinn - 13.06.1922, Side 2
40 VERKAMAÐURINN 21. tbí. Verkamaðurinn kernur út á hvérj- um Priðjudegi. Aukabiöð þegar með þarf. Utgefendur: Verkamenn á Akur eyri. Árgangurinn kostar 5 krónur. Gjalddagi 15. Júní. Uppsögn bundin við áramót, sé komin til ritstjórans fyri 1. Nóvember. Ábyrgðar- afgreiðsiu- og innheiratu- maður: Halldór Friðjónsson. Sfmi 110. Spánartollsmálið og Bandaríkin í N.-A. Presbyterianar senda ivarp. Presbytériana-kirkjan (sem er aðallega starfandi meðal skosk-amerískra manna í Bandaríkjunum og meðal þeirra er Wilson fyrv. forseti og Bryan fyrv. ráð- herrajhefir sent sendiherra Spánverja í Washington eftirfarandi bref: Pittspurgh, 28, Jan. 1922. Hans hágöfgi Senor Juan Geyangos, Sendihsrra Spánar í Bandaríkjununt, Washington, D. C. Vér höfum fengið ábyggilegar fregnir um, að Spánverjar hóta að leggja svo háan toli á íslenskan fisk innfluttan til Spánar að sama og aðflutningsbann verði, ef ísland vill ekki breyta áfengis- löggjöf sinni, þannig, að leyfður verði innflutningur á spánskum vínum. Vér lítum svo á, að þetta sé árás á réttindi Islands og brot á sjálfsákvörð- unarréttinum. Kirkja presbyteriana í Bandaríkjunum sem hefir yfir 1700000 safnaðarmanna, 10000 kirkjur og presta í öllum ríkjum Sambandsins, lætur virðirigarfylst, en í fullri alvöru, þá von sína f Ijósi, að Spánverjar dragi úr kröfum sínum gegn fslandi. - Yfir 40 ára skeið hefir kirkja vor sýnt banninu fulla vináttu og vér höf- um ótal sinnum sýnt það opinberlega, að vér erum samherjar bannvina. Vér höfum iðulega samband við söfn- uði vora í Ameríkn og einnig víða í öðrum löndum. Vér höfum álitin það skyldu vora að hvetja skoðanabræður vora hérlendis til þess að kaupa ekki spánskar appelsfnur þangað til Spánverjar hafa hætt hótun- um sinum og árásum á þjóðernislegan rétt íalands. Pað mun hryggja oss, ef óhjákvæmilegt yrði að beita þessari ráðstöfun. Af því að vér styðjum bæði bindindi og sjálfstæði, getum vér ekki staðið aðgerðalausir hjá eða verið kæru- Iausir áheyrendur þess, að stærri þjóð fremji, að okkar áliti, megnt óréttlæti gagnvart lítilli, vinsamlega hugsandi þjóð. Yðar með virðingu. Chas. Scanlan, aðal-ritari. Bannflokkurinn segir Spáni álit sitt. Blað bannflokksins í Bandaríkjunum, »The National Advocata*, skorar á am- erísku þjóðina að hefjast handa gegn árás Spánar á fsland. Fyrst skýrir blaðið afstöðu ríkjanna (íslands og Spánar) hvors til annars og segir svo: Ef þessi árás á réttindí íslands verð- ur leyfð, ef þetta brot gegn sjálfsákvörð- unarrétti þjóðanna verður látið óátalið, mun það hindra framrás bindindishreyf- ingarinnar í Norðurálfunni, hún gugnar, en áfe: gisiðjan mun — af því að hún er bæði eigingjörn og tilfinnarlaus — bera sigur úr býtum. Bineindisfelögin hafa mótmælt aðferð Spánvcrja. Saga Spánar úir og grúir af hermdarverkum, þrælmensku og órétt- læti, og nú eigi að koma í veg fyrir að hann vinni nýtt ódæði. Ameríka frels- aði Kúba og við munum ekki láta það afskiftalaust er Spánn ætlar að kúga ís- land. Um fjarlægðir er ekki að ræða, þegar skyldan hrópar: »Hver er þinn náungi*. Hér á iandi álíta menn »útilokun« á vörum ekki heppilega, hvorki sem vörn né sókn, en þó getur verið nauðsynlegt að nota þær aðferðir, sem hafa best áhrif á mótstöðumanninn. Vlðtal við Mr. Dinwiddie. Mesti sægur amerískra blaða hefir átt tal við dr. Dinwiddie, sem er einn aðalforkólfur bindindis- og bannhreif- iagarinnar í Bandaríkjunum og var for- seti alþjóða-bindindisþingsins í Lausanne í Sviss síðastl, sumar um Spánarmálið og afstöðu íslands til þess. Dr. Dinwiddie skýrir frá því, sem op- inberlega hefir verið gert í Ameríku og Norðurálfunni til þess að styðja ísland í baráttu þess. Svo minnist hann á til- lögur Mr. Jones öldungardeildarþingm.: »Auðvitað var mér kunnugt um það, að tillðgurnar yrðu bornar upp. Hvort til- lögurnar skyldu bornar upp í þinginu. var rækilega yfirvegað af forkólfum allra bindindisfélaganna í Bandaríkjunum og við höfum einnig athugað það gaum- gæfilega, hvers konar ákvörðun Ameríka eigi að taka í þessu máli. Og eg get sagt það berlega, að það, sem öldnnga- deildarþingmaðurinu Jones stingur upp á í Iokatillögu sinni, segir fyrir um það, hvað verða muni uppi á teningnum hér í landi ef Spánverjar láta ekki af þving- unarpólitík sinni gagnvart íslandi. Pað sem þá skeður, mun verða árangurinn af tilfinningum þeim. er mikill meiri hluti amerísku þjóðarinnar ber í brjósti í þessu máii. (Templar). Rúgmjöl, Haframjöl, Bankabygg, Strausykur fyrirliggjandi. Kaffi nýkomið. Melís kemur með „Bo*"ga og Hveiti ?neð „Sirius". Miklar vörur á leiðinni með mótorskipi, sem væntanlegt er í þessum mánuði. Kaupfélag Verkamanna. E. s. „Borg“ kemur eftir nokkra daga. Með henni kemur mikið af allskonar Nauðsynjavörum Versl. BRATTAHLIÐ. Dánardægur. Nýlátin er hér á sjúkrahúsinu, úr berklaveiki, Klara Bjarnadóttir (skipa- smiðs) kona Jóns Halldórssonar skip- stjóra, ung kona og vel látin. Anna Björnsdóttir, kona Níelsar bónda á Hallandi, fanst dáin í bæjarlæknum á Fimtudagsmorguninn var. Veit enginn hvernig dauða hennar hefir að borið. Slys. Skömmu eftir að »Goðafoss« var lagstur að bryggju hér á Laugajdaginn, sfapp landgangurinn af borðstokknum og féll ofan á bryggjuna. Lenti hann á einum farþega, Kristjáni Gíslasyni kaup- manni á Sauðárkróki og brotnuðu í honum fjögur rif. Var hann mjög illa haldinn eftir áfallið, en hrestist þó svo að hann gat haldið áfram með skipinu- daginn eftir, rúmfastur þó. Af vangá var liindgangurinn ekki bundinn við skipið. »Gudrun*. aukaskip Bergenska gufuskipafélags- ins, er væntanleg hingað, austan um land, næstu daga. Flskafli er byrjaður hér úti fyrir. Hafa bátar af Siglufirði fengið góðan afla. Óvana- lega vænn fiskur hefir aflast hér inni á Pollinum síðustu daga. Púfnabaninn kom með Goðafossi. Er hann eign Búnaðarfélags íslands, en bærinn, sýsl- an og R. N. ábyrgjast greiðslu andvirð- is hans. Pýskur maður kom með hon- um til að kenna að tara með hann. Einnig Sigurður bóndi Egilsson á Laxa- mýri, sem mun eiga að vinna með þúfnabananum hér norðanlands. í dag er verkfæri þetta reynt á óræktuðum túnum hér uppi á brekkunni. Líklega tekur bærinn stórt land til ræktunar og er fengið 15 þúsuud króna lán í Rækt- unarsjóði til þessa. 17. Júní. Eins og að undanförnu heldur U. M. F. A. 17. Júní hátíðlegan. íþróttamót verður haldið hér þenna dag og margs- konar skemtun og viðhöfn á ferðinni. Munið að ágóðinn af 17. Júní há- tíðahaldinu rennur í Heilsuhælissjóð Norðurlands! Stefnuskrá Alþýðuflokksins á íslandi, endurskoð- uð og aukin af siðasta þingi alþýðufé- laganna, var send formanni Verkamanna- félagsins nú með »Villemoes.« Verka- menn sæki hana í Kaupfélag Verka- manna.^Stefnuskráin verður birt í næsta blaði. »Goðafoss« kom á Laugardaginn og fór aftur á Sunnudagsmorguninn. Mesti fjöldi far- þega var með skipinu og mátti það heita yfirfult er það fór héðan. Frá út- löndum komu Rögnvaldur Snorrason ög Sig. Bjarnason kaupm. Héðan fóru al- farin til Reykjavíkur Pálmi Jónsson frá Æsustöðum og kona hans, er lengi hafa búið hér i bænum. Gúmmfstígvél, með gráum botni, handa konum og körlum, koma naestu daga í versl. „Brattahlíð“. Röskur klárhestur, 6 vetra, af góðu kyni, er til sölu nú þegar. Ritstj. vísar á. Bleikur hestur, stór, aljárnaður, hefir tapast héð- an úr bænum. Ef einhver yrði var við hest þenna, er hann vinsamlega beðinn að gera að- vart í Tuliniusarverslun. Verkaður saltfiskur fæst í Kaupfélagi Verkamanna. «Austurland« blað Seyðfirðinga er hætt að koma út. »Sirius« er væntanlegur hingað í nótt. »Borg« er væntanleg frá Englandi næstu daga. I. O. G. T. Fundur í st. Isafold-Fjallkonan nr. 1 annað kvöld kl. 8. Ræddar tillögur til stórstúkuþings. Félagar, sækið vel fund- inn og mætið stundvíslega! »Rán« kom af veiðum í gærkvöldi. Hafði um 50 tonn fiskjar. Petta er í annað sinn, er »Rán« leggur hér upp afla sinn. Prentsmiðja Björns Jónssonar,

x

Verkamaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.