Verkamaðurinn - 26.01.1926, Page 1
JERHflMflDURINH
Útgefandl: Verklýðssamband J^iorðurlands.
IX. áfg. ^ Akureyrl Priðjudaglnn 26. Janúar 1926. • 5. tbl.
I hálfum hljóðum
Pað eru til mil, sem aðstandend
ur vilja ekki iáta tala um nema »f
hálfum hljóðumn. Ymist þykja þau
of persónuieg til að þau séu gerð
að alþjóðarmálum, eða að þau kasta
þeim skugga á þá, sem við þau
eru riðin að hámæli er haldiðaftur,
sem framast er unt.
Eitt þessara mála hefir verið að
Isðast um landið undanfarið. Reynt
hefir verið að halda tungu þjóðar-
Innar niðri, en það heflr ekki tekist,
og blöðin eru nú, hvert af öðru að
taka málið til meðferðar.
í haust sendi rikisstjórnin Arna
Jónsson frá Múla til Bandarikjanna
til að semja við Bandarikin um
lækkun á ullartolli. Öll islensku
blöðin sögðu frá þessu sem merk-
um viðburði, og sum þeirra, þau
er næst standa stjórninni, létu þess
getið um leið, að vænst væri hins
besta árangurs af förinni fyrir fs-
lenska bændur.
En Árni fór aldrei til Bmdarikj-
anna Hann s!ó sér niður i Kaup-
mannahöfn og lagðist þar i ofdrykkju
og kom heim aftur nokkru fyrir
áramót. Er hér um einsdæma slysni
að ræða, bæði sendimanns og ríkis-
stjórnar, slysni sem bakað hefir
þjóðinni óvirðingu i augum útlend-
inga; slysni, sem sker hvern einasta
heiðarlegan íúending inn i bein.
Sómakend þjóðarinnar krefst þess,
að maðurinn, sem hneyksiinu olii,
hverfi tafarlaust frá íslensku stjórn-
málastarfi. Hún krefst þess einnig,
að flokkurinn, sem elur rikisstjórnina
á atkvæði Arna i þinginu, gefi
honum lausn. i náð. Mælt er að
Arni vilji það sjálfur, þvi hann er
drengur hinn besti og ærukær, þótt
hann hafi þann ágalla, er varð hon-
um i þetta sinn að falli.
En íhaldsflokknum er illa við að
talað sé upphátt um þetta mái. Til
þess að reyna að breiða yfir yfirsjón
rikisstjórnarinnar, að senda mann f
áðurnefnda för, sem ekki gat stýrt
hjá skipsbroti almenns velsæmis, er
reynt að nota velvild almennings
og brjóstgæðt gagnvart hinum óham-
ingjusama sendimanni. Tilgangurinn
dylst varla. Metnaðarkend og sóma-
tilfinningu þjóðarinnar á að kæfa i
vatnsgrautarmiskunsemi gagnvart
einstökum manni, svo sijórnin fái
að rikja i ró og næði.
A þingmálafundinum á Fimtudag-
inn var, bar einn fundarmaður þá
spurningu upp fyrir þingmanninn,
hvaða afstöðu hann myndi taka til
þessa máls. Þingm. svaraði fáu, en
gat þess þó að hann myndi skipa
sér frekar breyskleika megin.
Lifvörður þingmannsins samþykti
að láta ekki þessarar fyrirspurnar
getið í fundargerðinni, eftir að bæjar-
fógeti hér hafði reynt að villa
fundinum sýn f málinu, með þvi að
skjóta eigin persónu Arna fram fyrir
stjórnina. Með þvi mun flokkurinn
bafa viljað sýna að hann legði sam-
þykki sitt til þess, að stjórnin liföi
á Arna framvegis, þrátt fyrir ait og
alt. En þá ályktun mátti ekki kveða
upp nema f hálfum hljóðum.
Þess er óþarfi að gets, að hefði
slikt hneyksli sem þetta komið fyrir
bjá einhverri nágrannaþjóð, vorri,
hefði málið aðeins fengið einn enda.
Hinn brotlegi hefði orðið að hverfa
frá stjórnmálastarfsemi. Nú reynir á
þroska fulltrúa þjóðarinnar á Alþingi,
og þó mest á íhaldsflokkinn. Setji
hann við völd áfram, á kostnað Arna,
eins og ekkert hafi i skorist, sýnir
hann með þvi að hann telur heiður
þjóðarinnar út á við minna virði,
en vö!d sérstaks stjórnmálaflokks i
þinginu. Og öll veðrabrigði virðast
benda til að íhaldsflokkurinn muni
taka þetta ráð, þvi annars myndi
hann ekki taka það eins sárt, að
upphátt sé talað um málið.
Og eitt er Verkamaðurinn viss
um, að hefði Héðinn Valdiraarsson,
Hallbjörn Halldórsson, Ólaf Friðriks-
son, eða einhvern annan af fremri
mönnum Alþýðufiokksins hent sama
slys og Arna frá Múla, mundu
fhaldsblöðin og ihaldsmennirnir ekki
hafa talað um það i hálfum hljóðum.
Þá myndi vandlætingavöndurinn
hafa verið á iofti.
Símfregnir.
BejarBtjórnarkosningaT fóru fram f
Rvfk á Lingardaginn var, koanir voru
5 folltrúar, 2 listar komn fram. A-
listi frá Atþýðnflokktium, B liati frá
broddum. A listinn hlaut 2516 atkv.,
B liatinn 3 8 20 atkv. Kosnir voru af
A lista: Ólafur Friðriksson, með 2516
atkv. og Hsraldur Guðmundssoo með
1258. Af B-lista: Pátur Halldórsssn
með 3820 atkv. Jón Ásbjarnarson með
tgio atkv. og Hallgrímur Benedikts-
son með 1273 atkv. Við bæjiratjórnár-
kosningar ncst á undan fékk Atþýðu-
Uokkurinn 1729 atkv., hann hefir þvf
vsxið um hérumbil 800 atkv. á afð-
ustu 3 árum. Bsejarstjórnarkosningar
eiga að fara fram ( Vestmannaeyjum
á Fðstudaginn kemur.
Gutlfoss liggur i Rvlk og er búið
að afskrá skípshöfnina og leggja akip-
inu inn f Sund. Útgerðin vildi fá I20/o
kauplækkun hjá hásetum eg kyndur-
um, en þeir vildu ekki ganga að meiri
lækkun en 6°/o. Málið er komið fyrir
sáttasemjara og búist við að því Ijúki
ekki á nsstunni.