Verkamaðurinn - 24.04.1926, Page 1
VERKflMflSURIHH
Útgefandí: á Verklýðssamband - JMorðurlands.
IX. árg. |
Akureyrl Laugardaginn 24. Apríl 1926.
| 29. tbl.
Ur bæ og bygð.
Messað verður ( Akureyrarkirkju kl. 5
síðdegis á Sunnudaginn. Séra Gunnar Bene
diktsson messar.
Fjölbreytt skemtun verður haldin i Gagn-
fræðaskólanum í kvöld. Ræðuhöld, leikfimi
og margt fleira til fagnaðar.
Nýja Bió sýnir i kvöld hina sprenghlægi-
legu mynd, Hann, Hún og Hamlet, sem
fólkið hefir sóst svo eftir undanfarið, að
húsíð hefir ekki hrokkið til. Annað kvöld
verður sýnd 6 þátta Metrokvikmynd, Hefndin,
með tveggja þátta gamanleik, sem auka-
mynd. í aðalmyndinni fer Berbera La Marr
með aðalhlutverkið.
Nýit blað er farið að koma út á No’ð
firði. Heitir það »Jafnaðarmaðurinn< og
kemur út einu sinni ( mánuði. Það er I
sama broti og „Verkamaðurinn" en er átta
slður. Hvert blað kostar 35 aura. Ritstjóri
er jónas kennari Guðmundssonn á Norð-
firði. Fyrsta blaðið er komið hingað og er
það hið eigulegasta. Mun blaðið ætla sér
aðallega að flytja fróðleik um jafnaöarstefn-
una.
Á Sumardagin fyrsta opinberuðu trúlof-
un sina ungfrú Hrefna Pétursdóttir Bald-
urshaga og Halldór Jónsson Krossanesi, og
ungfrú Rósa Davíðsdóttir Kroppi og Gisli
Arnason bilstjóri.
Stúkan Norðurljós nr. 207 íheldur fund
Þriðjudaginn 27. þ, m. kl. 8, Umræður um
stúkumál. Hagnefndin skemtir.
Barnastúkan Sakleysið nr. 3 heldur fund
á morgun kl. lVa. Kosning embættismanna.
kvikmyndir (nýjung) o. fl.
Bæjarstjórn ísafjarðar hefir felt að veita
fé úr bæjarsjóði til konungsmóttöku ( sum
ar.
Ritstjóri Verkatu. kom heim með >Botn(u<.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Halldór Friðjónsson.
NYJA B í ó. ^mmmmmmmm
Laugardagskvöld kl. 8'/a:
HANN, HÚN og HAMLET.
Gamanleikur ( 5 þáttum.
Aðílhlt tve'kin leik*: Vítinn ojr Hlioarvagninn
Fyrtaarnet og Bivognen.
Myndin er sprenghlæileg, eins og aðrar myndir sem Vitinn og Hliðarvagn-
inn leika í, enda eru þeir löngu orðnir heimsfrægir skopleikarar. Ennfremur 2
þátta aukamynd, sem kemur mönnum Hka til að brosa.
Sunnudagskvöld kl 8V2
H E F N D 1 N,
Metro-kvikmynd í 6 þáttum. Aðalhlutverkið leikur: BARBARA LA MARR.
AUKAMYND. Gamanleikur í 2 þáttum.
A tvinna.
Fimm menn vanir vegavinnu geta fengiö atvinnu við vegagerð vestur
f Húnavatnssýslu frá 20. Mal til 15. Okh f haust. Þeir menn sem þessu
vilja sinna finni mig fyrir 29. þ. m.
Akureyri 24. Apríl 1926
Erlingur Friðjónsson.
BLÁ/t BANDIÐ
er betri
Fermingarföt,
jakkaföt og matrósaföt MANSÉTTSKYRTUR og H^LSLÍN á fermingar*
drengi og EFNI í FERMINOARKJÓLA nýkomiö f
Frentsmiðja Qdds Björnssonar.
Kaupfélag Verkamanna\