Verkamaðurinn

Issue

Verkamaðurinn - 07.06.1927, Page 2

Verkamaðurinn - 07.06.1927, Page 2
2 VERKAMAÐURINN ♦ ♦ ♦ • # eins dreift um landið og raun er á. Á móti snerust ýmsir menn, sem ekki höfðu þá fastmótað pólitískt sam- band sín á milli. Bardaginn stóð þá, að heita mátti eingöngu með eða móti innflutningshöftum og ríkis- verslun. Niðurstaðan varð, eins og kunn- ugt er sú, að innflutningshaftastefn- an varð undir. Þegar á þing kom skipuðu andstæðingar hennar sjer saman í tvo flokka, íhaldsflokkinn, sem taldi tæpan helming þingmanna og Sjálfstæðisflokkinn, sem taldi þá 6 menn. Með tilstyrk nokkurra manna úr sjálfstæðisflokknum gat í- haldið myndað stjórn. Nú kom það í ljós, að fhalds- stjórnin taldi það hlutverk sitt, að leggja alla áherslu á að ná tekjum í ríkissjóðinn og greiða skuldir hans. Aðrir flokkar þingsins lögðu og lið sitt til að leggja á nýja skattstofna og herða á þeim sem fyrir voru. Um annað var ekki að gera. Skuldirnar urðu að borgast. ForSjónin greip í taumana, gaf góðæri, og skuldir rík- isins greiddust vonum fremur. En hvernig búskapur þjóðarinnar hefir gengið verður vikið að síðar. Megin- stefnumunurinn virðist því hafa ver- ið þessi, við síðustu kosningar. Ann- arsvegar, dregið úr eyðslunni, til þess að hagur landsbúa geti batn- að, fje ríkisins sparað og skattaá- lögur miðaðar við varanlegt gjald- þol þegnanna. Hinsvegar, engar hömlur á viðskifti manna, til þess að skerða ekki tekjur ríkissjóðsins. Gjaldþol einstaklinganna, þarf eða má fjármálastjórn ríkisins ekki setja fyrir sig. Ör viðskiftavelta skapar tekjur, takmörkuð verslun minkar tolla og aðrar greiðslur til ríkisins, og ríkisverslun dregur úr framtaki einstaklingsins. Síðari stefnan var tekin og eftir henni stýrt. Verður sú sigling stutt- iega rakin í næstu blöðum og að endingu reynt að átta sig á því, hvernig nú er umhorfs, þegar þjóð- in gengur að því, að manna skútuna á ný. Stþ. G. Ásko ru n til verkamanna og verkakvenna, sem hugsa tll síldarvinnu á sjó eða landi i sumar Kaup við síldarvinnu á sjó og landi hefir undanfarið verið allmjög misjafnt á hinum ýmsu stöðum, og oftast gengið treglega að fá atvinnu- rekendur til að ganga að viðunandi samningum. Þar sem samningar hafa náðst, hefir oftast verið samið fyrir hvern stað ,fyrir sig, en oft hafa samningar eigi tekist og atvinnurek- endur því getað ráðið fólk hver eftir sínum geðþótta. Þetta ástand teljum við með öllu óviðunandi. — Nú er svo komið, að nokkrar líkur eru til þess, að unt sje að ná samningum í einu lagi fyrir sjóm^nn og síldarstúlkur af Suður- og Norðurlandi við síldarvinnu og veiðar Norðanlands í sumar. Hafa útgerðarmenn sunnan- og norðanlands kosið tvær nefndir, aðra til að semja við sjómenn á mó- torskipum og línugufubátum, sem herpinótaveiði stunda í sumar, og eru í henni: Óskar HalldÓrsson, Reykjavík. Geir Sigurðsson, Reykjavík. Seindör Hjalalín, Akureyri. Og til vara: Beinteinn Bjarnason, Hafnarfirði. Hinni nefndinni er ætlað að semja við síldarstúlkur og eru í henni: Kjartan Thors, Reykjavík. Ólafur Guðmundsson, Reykjavík. Óskar Halldórsson, Reykjavík. FuIItrúi frá verklýðsfélögunum norðanlands kemur hingað til Rvík- ur með Botníu 6. þ. m., til þess að semja við nefndir þessar, ásamt með fulltrúum Sjómannafélagsins hér og í Hafnarfirði og verkakvennafélags- ins hér og í Hafnarfirði. Gera má ráð fyrir að nefndir þessar leiti einnig samninga við verkamannafélagið Dagsbrún og fulltrúa þá, er hér kunna að mæta frá öðrum verkamannafélögum. Fari svo að samningar náist milli allra þessara aðila, má telja víst, að kaupgjald vestanlands við sömu vinnu verði í samræmi við þá sarnn- inga. Fyrir því er hér með skorað á all- an verkalýð, sem til síldarvinnu hugsar á sjó eða landi nú í sumar, að fresta öllum samningum um verkakaup við síldarvinnu, þar til séð verður, hver niðurstaðan verður af framangreindum samningaumleit- unutn. Jafnframt er skorað á öll verk- lýðsfélög að brýna fyrir meðlimum sínum að bregðast vel við þessari á- skorun og tilkynna þeim jafnharðan alt, sem gerist í málinu. Öflug samtök alls verkalýðsins geta ein komið máli þessu í viðun- andi horf. Þau ntá enginn rjúfa. Reykj avík 1. Júní 1927. f framkvæmdarnefnd verklýðsmála Alþýðusambands íslands Pétur G. Guðmundsson. Sigurjón A. Ölafsson. Haraldur Guðmundsson. -----o------ »Æðandi skríll*. í síðasta tölubl. Dags, ritar rit- stjórinn um »vígi’ gegn byltingum«. Um jafnaðarmenn og íhaldsmenn kemst hann þannig að orði »að aðr- ir ■ vilja kyrstöðu, hinir gerbreyt- ingu,« og »að annaðhvort vecða í- haldsmenn að halda hinum óánægðu og byltingasinnuðu stéttum undir járnhæl fjárvalds og Iagarangsleitni, eða verða sjálfir troðnir undir fót- um æðandi skríls«. Það er næstum hlægilegt, að sjá veifað jafn inargdeyfðu og egglaasu vopni, sem þessu slagorði um »æð- andi skríl«. Það er broslegt að sjá það notað sem vopn, en aumkvunar- vert að sjá það notað sem röksemd. Hvar sjá íhalds- og Framsóknar- menn hinn »æðandi skríl«. Svo mik- illi útbreiðslu hefir jafnaðarstefnan

x

Verkamaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.