Verkamaðurinn - 07.06.1927, Qupperneq 3
VEKKAMAÐURINN
3
Verkamenn!
Verkamannafélag Siglufjarðar óskar þess eindregið að engir
komi til Siglufjarðar í atvinnuleit í sumar óráðnir og þeir sem
kynnu að koma ráðnir eru bróðurlega beðnir að ráða sig ekki
fyrir minna kaup en greitt er hér á staðnum til 15. Júlí og er
það þetta: 1 króna um tímann í alm. dagvinnu, 1 króna og 20
aurar um tímann í alm. eftirvinnu og 54 til 60 krónur um viku,
þegar um mánaðarvinnnu eða lengri tíma er að ræða. Eftir 15.
Júlí gyldir annar kauptaxti, sem verður auglýstur um miðjan Júní.
Siglufirði 31. Maí 1927.
Kauptaxtanefnd félagsins.
náð erlendis, að einhverstaðar ætti
að mega koma auga á hinn »æðandi
skríl«, ef hann væri tákn henriar.
Hér á landi hafa jafnaðarmenn þeg-
ar fengið meirihluta í stjórnum
sumra bæja. Hvar er hinn »æðandi
skríll« þar?
Ef menn vilja leita »æðandi skríls«
þá er hann að finna þar, sem íhalds-
stjórnir studdar af »miðflokkunuin«
hafa sigað þjóðunum saman i blóð-
ugar styrjaldir, sem ýmist hefir ver-
ið stofnað til þess að svala heimsku-
legum þjóðarrembingi, eða eiíraðri
eiginhagsnruna pólitík. »Viðlei rni
manna er óstöðvandi«, stgir Dagur.
En ef hinir tveir ofurkappsfullu
flokkar (ca. fhalds- og JafnaðaN-
menn), fá að halda áfranr öfgum
sínum telur hann það muni valda
niðurbroti alls skipulags. Viðleitni
Jafnaðarmanna er sú, að bæta úr
skipulagsleysi því, er Dagur marg-
uft hefir viðurkent að sé höfuðmein
hinnar ríkjandi samkepnisstefnu.
Þeir vilja fá framleiðslutækin og
verslunina í hendur ríkisins, til þess
að koma skipulagi á þjóðarbúskap-
inn í stað alls glundroðans er nú
ríkir á þeim sviðum. Dagur vill fella
þessa viðleitni í skorður hófseminn-
ar. Hann vill lækna mein þjóðskipu-
lagsins með hómópataskömtum úr
mörgum glösum, en Janaðarmenn
djarflega stinga á kýlinu. Bn engin
»skrílsháttur«er einkenni slíkrar við-
leitni. Hún er borin fram af mönn-
um, sem hafa galopin augun fyrir
gölluni hins drotnandi skipulags. Að
kalla þá menn »æöandi skríl«, er
magnlaust vopn gegn stefnu þeirra.
En í »skrílsnafninu« gægist fram sú
lítilsvirðing, er sífelt bólar á hjá
mið- og yfirstéttunum í garð alþýð-
unnar.
Við kjörborðin ættu alþýðumenn
og konur að minnast þess, hverjir
oftast hampa »skríls«-heitinu.
/ . Z.
------0------
Úr bœ og bygð.
í gær andaðist hér í bænum Marja
Austmar, 16 ára að aldri, dóttir þeirra
hjónanna Sigurðar H. Austmar og
Svanfríðar Austmar. Mun banamein
hennar hafa verið heilabólga. Marja sál.
var mjög vel gefin stúlka og augasteinn
foreldranna, er því mikill harmur að
þeim kveðinn við fráfall hennar í blóma
lífsins.
E.s. Goðafoss kom í gær frá útlöndum
á leið vestur um. Hefir hann álmikið af
vörum til bæjarins frá Þýskalandi. Hafa
hinar beinu ferðir Eimskipafélagsins
þangað orðið til þess, að talsvert meira
mun flytjast til landsins en áður var af
þýskum vörum, ódýrari en áður, meðan
þær voru fengnar gegn um heildsala í
Kaupmannahöfn.
Fiskafli hefir reynst ágætur nú í
byrjun vorvertíðarinnar. Hafa mótor-
bátar fengið í róðri frá 5 til 7 skippund.
Munu nú allir mótorbátar, sem veiðar
ætla að stunda að þessu sinni frá Eyja-
firði og Siglufirði, vera komnir til veiða.
Áður höfðu sumir þeirra stundað veiðar
bæði hér úti í fjarðarmynninu og frami
við Grímsey og haft ágætt upp úr þeirri
veiði. Má því segja að vertíðin hafi
byrjað hér um slóðir alt að því mán-
uði fyrr en venja er til, þegar Maímán-
aðarveiðin er talin með, því hér hefir
það ekki þekst áður að fiskur hafi kom-
ið fyrr en í byrjun Júní.
Uppmokstursskipið, esm hér hefir
unnið að undanfömu að dýpkun hafn-
arkvíarinnar, liggur nú aðgerðarlaust í
lamasessi. Fyrst framan af gekk því
stirðlega uppmoksturinn, en í síðusta
viku var þó sá sbriður kominn á vinnn
þess að það var farið að skila á land
6—800 Cb.m. af sandi og möl á 12—14
klt. í sólarhring, sem unnið var. Nú hef-
ir komið frám einhver bilun í verkfaaiv
um þess, sem ekki er séð fyrir hvenær
muni nást lagfæring á. Getur það haft
mjög alvarleg áhrif á byggingu fyrir-
hugaðra hafnarmannvirkja ef skipið
þyrfti að hætta uppmokstrinum nú, en
því miður hefir litið út fyrir frá byrj-
un, að að því myndi koma fyrr eða síð-
ar, því tælci þess reyndust vera of veik
til að vinna á hafnarbotninum hér.
------0------
Fulltrúaráð
verklýðsfélaganna í Árnessýslu.
1 síðustu viku var stofnað á Eyrar-
bakka að tilhlutun Alþýðusambands ís-
lands fulltrúaráð meðal jafnaðarmanna
í Árnessýslu.
Verklýðsfélögin »Báran« á Eyrar-
bakka og »Bjarmi« á Stokkseyri eru
þátttakendur í fulltrúaráðinu, og eiga
sæti í því stjórnir beggja félaganna.
1 stjórn fulltrúaráðsins voru kosnir;
Ingimar Jónsson, prestur að Mosfelli f
Grímsnesi, Bjarni Eggertsson búfræð-
ingur, Eyrarbakka, Guðmundur Einars-
son verkamaður, Stokkseyri, Bergsteinn