Verkamaðurinn

Ataaseq assigiiaat ilaat

Verkamaðurinn - 29.10.1932, Qupperneq 2

Verkamaðurinn - 29.10.1932, Qupperneq 2
2 VERKAMAÐURINN Meöferö heimilda. í Alþýðumanninum frá 18. þ. m., er fcin árásargrein til á A. S. V., álíka full af blekkingum og lygum og annað sem það blað hefir flutt um A. S. V. Mætti æra óstöðugan, ef ætti að reyna að hrekja það alt. En f þessu tilfelli er ekki hægt að láta staðhæfingum blaðsins ómót- mælt, þar sem blaðið segir að það hafi f höndum »skyrs!u yfir starf- semi íslandsdeilda A. S. V. frá stofndegi, 31. júnf 1930 til 31. des. 1931 og reikninga deildarinnar yfir aama tfma<. Ennfremur segir blaðið: >4 þessu tímabili hefir deildin safnað kr. 2.078.05 handa bág- stöddum verkalýð innanlands og utan. Af þvf hefir ekki verið út- hlutað nema kr. 1.028.16. Kostnað- urinn við að afla þessara peninga og að úthluta þeim, nemur kr. 995.78«. Pað vill svo vel til að fleiri hafa f höndum skýrslu A. S. V og til þess að sýna hversu vandlega er farið með heimildinar, verður söfn- unar-reikningurinn birtur hér: Reikningur ylir safnanir, er flSV hefir staðið fyrir frá stofnun til 3,/u 1931. A. Tekjur. I. Safnað tii Krossanessverkfallsins kr. 689.15 'II. — — sænska vefnaðarverkfallsins - 223 57 III. — — ísafjarðarverkfalisins - 962.83 IV. — — bágstaddra í Kfna - 62.25 V. — I »allsherjarsöfnun< - 140.25 . Ojðld, Samtals kr. 2 078 05 Úihlutað: I. til Krossanessverkfallsmanna 409.53 II. sent til ASV Svlþjóð 111.63 III. til verkfallsmanna á ísafirði 507,00 kr. 1.028.16 Kostnaður skv. fylgisk.: Krossaness. 2.75 Sænska söfn. 10.00 kr. 12.75 Til ASV upp f kostnað: Krossanessöfn, 66.16 ísafjarðarsöfn. 73.14 »AIIsherjarsöfn.< 14.00 kr; 153.30 Til styrktar barnadeginum 1931 — 200.00 í sjóði (i »allsherjarsðfn.«) við lok ársins - 68384 Samtals kr. 2.078.05 Blaðið segir fullum fetum að •kostnaðurinn við að afla þessara peninga< (þ. e. kr, 2.078.05) »og úthluta þeim nemi kr. 995.78« í stað þess að reikningurinn, sem blaðið hefir f höndum, segir kostn- aðinn vera kr. 153.30 4- 12.75 = kr. 166.05, sem er ekki einu- sinni sú upphæð, sem heimilast f lögum félagsins, að sé tekin frá, til greiðslu kostnaðar við skrifstofu- hald o. s. frv. Jakob Qislason, aðalgjaldk. ASV. Heimildafölsun blaðsins er þvf hverjum, sem reikningana Ifcs, auðsæ. Rekstursreikningur íslandsdeildar A.S.V,, kemur söfnunarfénu ekkett við, Til þess að standast þau út- gjöld, sem deildin hefir við starf- semi sfna, koma félagsgjöldin (skatt- ur deildanna), ágóði af skemtunum, af útgáfustarfsemi, af merkjasölu o. s. frv. Að blanda þessu tvennu saraan, eins og Alþýðumaðurinn gerir, er að falsa heimildir, aðeins heldur fund á raorgun kl. 3 'h e.b. Skemtinefndin starfar. Nánar á götuauglýsingum. Stjórnin. gert til þess að fá útkomuna nægí- lega sláandi, svo að hann geti með sinni alkunnu vandlætingu I sagt, að kostnaðurinn við úthlutun styrks sé »svo langt fram úr öliu sem pekt er, að par kemst ekkert tilj samjafnaðar, nema svikastarfsemi kommúnista f A. S. V. erlendis<, eins og blaðið kemst að orði. Aðrar lygar og rangfærslur blaðs- ins verða látnar eiga sig, þvf ólfk- legt er, að fólk, sem les hinar stöðugu lyga- og óhróðurgreinar Alþýðumannsins, sé ekki farið að fá opin augun fyrir þvf, að fátt eitt af þvf sem blaðið flytur er sann- leikanum samkvæmt. Enda ekki að furða, því að iilur málstaður skap- ar óheiðarleg vopn f baráttunni og að málstaður kratabrúddanna, þvf þeir standa að öllum óhróðrinum um A. S. V. og forgðngumenn binnar róttæku verkiýðshreyfingar, sé illur, efast enginn, sem það skoðar ofan f kjðlinn. Að endingu má geta um álit endurskoðenda þeirra, er endur- skoðuðu reikninga A. S, V. í„ er hljóðar þannig: »Við undirrituð, sem kosin vorum til að endurskoða reikninga ASV fyrir árið 1931, höfum yfirfarið þá, borið saman við fylgiskjðl og bæk- ur og ekkert fundið athugavert við reikningsfærsluna, enn fremur talið upp sjóðinn og reyndist hann rétt- ur. Leggjum við þvf til að þeir verði samþyktir eins og þeir liggja fyrir. Pað skal sérsteklega tekið fram, að reikningsfærsla öll og frá- gangur á bókhaldi er í alla staði hinn prýðilegasti, Rvík, 17. apríl 1932. Filippus ísmundsson. Steinpúra Einarsdóttir. Lðrus Halldórsson.«

x

Verkamaðurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.