Verkamaðurinn

Eksemplar

Verkamaðurinn - 07.04.1933, Side 1

Verkamaðurinn - 07.04.1933, Side 1
VERHBMOBUBlHn Útgefandi: Verklýðssamband Norðurlands. XVI. árg. : Akureyri, föstudaginn 7. apríl 1933. • 17. tbl. Barútta gegn sókn auðvaidsins og fasisma! Til alls verkalýðs! Samfylking verkalýðsins hefir fram að þessu verið hin brýnasta þörf, en nú er hún orðin lífsnauðsyn — og verður að skapast alstaðar þar sem verkalýður vinnur og hrærist. Samfylking verkalýðsins á Akureyri hefir sýnt mátt sinn til að hrinda af sér sókn auðvaldsins og klofningi þjóna þess. En baráttan á Akur- eyri hefir einnig sýnt hvernicr launaárásir auðvaldsins og fasismi þess haidast f hendur. „ríerútboðið“, tilraunin að senda „Ægir“ norð- ur hlaðinn hvitliðum, fyrirœtlunin með að flytja Jón Rafnsson og Þórodd Guðm. nauðuga burt með „Deitifoss", endurtaka þar med Keflavíkurotbeldið, — alt eru þetta Ijós dæmi vsxandi fasisma. En hinsvegar sýna hin ágætu samtök verkalýðsins á Akureyri, neitun skips- hafnarinnar á Dettifoss og óánægja miðstéttarmannanna, sem etja átti f stéttastríðið, að kraftarnir móti fasismanum eru nógu sterkir til að kœfa hann i fæðingunni. Sorgleikurinn f Pýskalandi er hin ægilega viðvðrun til alls verkalýðs, um að skapa nú þegar samfylkingu í baráttunni. A rjúkandi rústum verklýðshúsanna þýsku, á limlestum likum þýskra verklýðssinna ætlar nú þýska audvaldið að byggja »briðja ríki« sitt, þegar ^'ýðveldið*, sem drifið var blóði Liebknechts og Luxemburg er hrunið í rústir. Ríki Hit- lers þýðir siaukna dýrtíð, lækkandi laun og hraðvaxandi atvinnuleysi — og til þess að halda þessu eymdarástandi við, er verkalýðurinn sviftur öllu fundafrelsi og prentfrelsi, — þar að auki pintaður og foringjar hans myrtir. Verkalýður á Islandi! Lát auðvaldinu aldrei takast hér að leika sama hildarleikinn og í Pýskalandi! Ný sókn auðvaldsins er i undirbúningi. Flokkar atvinnurekendastéttar- innar ætla að hleypa norska auðvaldinu inn í landið og auka pannig á neyð sjómannastéttarinnar, koma kaupi hennar niður í ekki neitt með verðlækkun á síldinni — og auk þess ætla þeir sér að draga úr út- gerðinni, - auka atvinnuieysið. Auðvaldið undirbýr árds á síldar- taxta verklýðsfélaganna. Hin fullkomnasta samfylking verkamanna, verkakvenna og sjómanna er knýjandi nauðsyn I Hver einasti verklýðssinni þarf að koma með inn f þá samfylkingu, hvaða stjórnmálaflokki sem hann tilheyrir! Myndið á hverjum einasta vinnustað samfylkingarnefndir til baráttu gegn sókn auðvaldsins og fasismanum og komið á samfylkingarliðum ! Haidið samfylkingarfundi f öllum bæjarhlutum, sem verkalýður býr f, og kjósið þar baráttunefndir! Fylkið ykkur um taxta verklýðsfélaganna! Hindrið með samfylkingu undir forustu V. S. N. alla launalækkun, sem auðvaldið undirbýr! Undirbuið samfylkingarráðstefnu verkalýðsins á Norðurlandi, sem haldin verður i maí! Kjósið fulltrúa frá öllum verklýðs- félögum og vinnustöðvum norðanlands. Með samfylkingu i stéttabaráttunni er verkalýðnum sigurinn vfs! 5. þing Verklýðssambands Norðurlands. Réttarofsóknir. Jón Rafnsson handtekinn. Prátt fyrir að eitt af samn- ingsatriðunum milli bæjarstjórnar- innar og verklýðsfélaganna hljóðaði um, að allar sakir i tilefni af kaup- deilunni nýafstöðnu skyldu falla niður, braust hefndarþorsti bur- geisaklikunnar út i þvi að ota bæj- arfógetanum hér til þess að hefja réttarrannsókn út af deilunni, réttar- rannsókn, sem hefði ent f stéttar- dómum og verið bein ofsókn á hendur verkalýðnum. Pann 4. þ. m. var kallaður fyrir rétt Steingr. Aðalsteinsson, for- maður Verkamannafélags Akureyrar og af honum krafist skýrslu um kaupdeiluna. Varð hann við þeirri kröfu. Síðar um daginn var Jón Rafnsson einnig kallaður fyrir rétt, en hann neitaði að svara spurning- um dómarans, á þeim grundvelli, að hér væri um stéttardómstól að ræða og rannsókn þessi væri árás á verkalýðinn og stéttarsamtök hans. Var hann þá úrskurðaður í varð- hald. Er fréttin um handtöku hans barst, sat þing V. S. N. að stðrfum. Var kosin þar nefnd til þess að rannsaka þetta og tala við bæjarf. og fundi var frestað. Á skömm- um tima safnaðist fjöldi mikill af verkalýð, körlum og konum, i Verk- lýðshúsið, sem mótmælti þessu gerræði valdhafanna. Stjórn V.S. N. sendi bæjarfógetanum mótmælabréf og krafðist þess að jón yrði látinn laus. Kl. 4V2 var Póroddur Ouð- mundsson kallaður fyrir réttinn og neitaði hann einnig að svara, en var slept. Um kl, 6 fór mannfjöldinn úr Verklýðshúsinu mótmælagöngu að

x

Verkamaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.