Verkamaðurinn

Ataaseq assigiiaat ilaat

Verkamaðurinn - 18.07.1933, Qupperneq 2

Verkamaðurinn - 18.07.1933, Qupperneq 2
2 V E R K A M A Ð U RI N N Stéttarstríðið við ,Novu‘ og kosningarnar 16. júlí. Pegar saga freisisbaráftu verka- lyðsins á fslandi siðar meir verður rituð, mun Novu-deilan fá þar sér- stakt, næstum táknrænt giidi, sakir þess hve skarplega hún sýnir stéttaskiftinguna og hlutverk og afstððu hinna ýmsu aðila i deilunni. Pað sem verkalýður Akureyrar vann í þeirri deilu, voru"ekki aðeins eitirfarandi hagsmuna- atriði: að öll áhætla var tekin ai verkalýðnum um sölu tunnanna á markaðinum síð- armeir, að útborgun fékst undir- eins á einni kr. fyrír tímann, I stað pess að bæjarstjðrn- úi bauð fyrst aðeins 60 (= ca. 72 aurar á tímannj, að Verkamannafélag Akureyrar var viður- kent sem eini samningsaðili og taxti pess haldinn, heldur er enn meira um hitt vert, sem verka- Jýðurinn ððlaðist þessari deilu, reynsian um hverjir eru með honum og móti og trúin á baráttu- og sam- takamátt sjálfs sín. Yfirstéttin vígbjó sig næstum sem ætti hún tif sitt og vðld að verja. Bæjarstjórn, atvinnurek- endastéttin og yfirvðld staðarins, bjóða út 5 — 600 manna her. Rík- isstjórnin undirbýr það að senda >hvítaherinn« með varðskipi norður. Undirbúningur er gerð- ur til að flytja Jón Rafnsson og Pórodd burt af Akureyri nauðuga. Yfirstéttin grípur til siðasta varaliðs síns. Kratabroddarnir eru látnir gera sig bera að fjandskap við verkalýðinn. Erlingur eggjar slags- málaliðið til atlðgu, og S'gurður H. sker niður gúmmíslöngur niðri í Eimskipafé'agspakkhúsi til að vopna »herinn«. Ö I blöðin eru sett í gang. »ts- lendíngur< heimtar drepandi bann á kommúnista. Eina skyldan gagn- vart þeim sé »að hola þeim dauð- um niður í jörðina, ef þeir eigi ekki fyrir útfðrinni sjálfir*. Bryn- leifur æpir um »uppreist«. Og »AI- þýðumaðurinn« yfirbauð hitt íhalds- málgagnið með niði um þann verka- lýð sem í deilunni stóð. En samtakamáttur hinna fátæku og þjáðu í mannfélaginu, bræðra- bðndín, sem tengja þá undirokuðu saman, þrátt fyrir allar fjarlægðir, og satnúðin, sem fórnfús barátta og frelsishugsjón undirstéttanna vekja hjá miðstéttunum, ber þrátt fyrir alt þetta sigur úr bítum. Niður í Verklýðshúsi og niður á bryggju stóðu öreig- arnir — menn og kon- ur — vörð dag eftir dag og nótt eftir nótt. Prátt fyrir illa aðbúð, erfiðleika og veikindi— þvl jafnvel pestirnar gengu I lið með yfir- stéttinni þá — var hjá þeim engan bilbug að finna. Prátt fyrir mikinn sótthita stóðu Islenskar verklýðsbetjur vðrð um heill og velferð sinnar stéttar. Yfir höfðum þeirra vofði >boykot« og bann, framundan var atvinnuleysi, í kring um þá hrópuðu leigðir hræsnarar burgeisanna um siðspillingu og svívirðingar. Og þeir hðfðu lang- flestir engra persónulegra hags- muna að gæta i deilunni. Peir stofnuðu ðllu I bættu einungis fyrir hags- muni heildarinnar, fram- tið og sigur verklýðs- hreyfingarinnar. Pað, sem gaf þeim kraftinn til þessa, var sósialism- inn, þessi voldugasta frelsishugsjón veraldar- innar, ofin saman við stéttarvitund öreiganna á mölinni áAkureyri,— sósíalisminn — draura- sjónin og veruleikinn, sem þúsundir hafa lát- ið lífið fyrir og hundr- uð miljóna nú eru reiðu- búnir til að verja með llfinu og fórna öllu fyrir framkvæmd hans. Og verkalýður Akureyrar fékk Hka að vita hve voldugur sá kraft- ur er, jafnt innan Akureyrar sem utan.

x

Verkamaðurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.