Verkamaðurinn - 06.04.1938, Blaðsíða 1
Útgefandi: Verklýðssamband Norðurlands.
XXI. árg.
Akureyri, miðvikudaginn 6. apríl 1938.
20 tbl.
Eins og flestum hér í bæ mun
vera kunnugt var fiskur verkað-
ur hér i sumar sem leið af K.E.
A., og kaupgjald við þá vinnu
greitt með sama taxta og var
gildandi 1936, hafði formaður
Verklýðsfélags Ak. gert samninga
við K.E.A. um undanþágu frá
þeim taxta sem var nýsamþykt-
ur af félögunum og gekk í gildi
1. maí 1937. Var þar tímakaup
kvenna 90 aura við almenna
vinnu og var það kaup viður-
kent og greitt við aðra vinnu en
fiskinn.
Ný fyrir skömmu skrifar svo
K.E A. bæði Verkakvennafélaginu
»Eining« og Verklýðsfélagi Ak.
og fer fram á að félögin láti það
afskiftalaust þó ekki verði greitt
hærra kaup við fiskverkun í sum-
ar. Nú hafa bæði þessi félög
svarað og eru svör þeirra mjög
samhljóða i aðalatriðum og lofað
að láta slíkt afskiftalaust með
lítilsbáttar skilyrðum. Verklýðs-
félagið með þvi skilyrði að ekki
yrði minni vinna en i fyrra, en
»Eining« að félagsbundnar konur
í »Eining« og Verklýðsfélagi Ak.
sætu fyrir vinnunni. En svar for-
ráðamanns K.E.A. var á þá leið,
að engin fiskur yrði keyptur eða
verkaður hér og var það sérstak-
lega skilyrði Verklýðsfélagsins
sem hann tjáði sig ekki geta
gengið að.
Nú hefur þessi sami maður
sagt í bréfum til félaganna að té-
lagið mundi verka fisk aðeins til
09 K. E. A.
að bæta úr atvinnuléysinu i bæn-
um þrátt fyrir halla sem Ii E.A*
hefði baft af fiskverkun í fyrra.
En nú kemur það í Ijós að fái
þeir, sem stjórna þar, ekki öllu
einir að ráða, þá ógna þeir með
því að hafa engan fisk, er vitan-
legt að K.E.A. hvorki hefir haft
eða mun hafa fisk bara til
hagsbóta fyrir verkalýðinn hér í
bænum, heldur með það fyrir
augum að hafa ýmist beinan eða
óbeinan hag af því sjálft Er
naumast hægt að taka það alvar-
lega, að þeir hafi ætlað að hafa
fisk, ef það er látið stranda á
þessum skilyrðum, því það, mun
þess eigin hagur að hafa sem
mestan fisk ef þeir verka á
annað borð.
Hitt atriðið er gildandi í öllum
stærri bæjum á landinu, nema
hér, að félagsbundið fólk sitji
fyrir vinnu, enda mun það verða
tekið upp í taxta félaganna í vor
og þá viðurkent af K. E. A. og
er þá sú ástæða úr veginum. Er
það eðlilega krafa verkalýðs, sem
knúinn er af atvinnuleysi og vönt-
un, og því gefur undanþágu frá
lágmarkskaupi, að ekki sé verið
að leika með hann heldur sköffuð
sú atvinna, sem boðin er, ef
kaupið verði lækkað.
AÐALFUNDUR Pöntunarfélags Verka-
lýðsins var baldinn s. 1. sunnudag. Verð-
ur hans getið nánar í næsta blaði.
SKEMTIFUND heldur Ak.d. K. F. í. í
Verklýðshúsinu kl. 8,30 í kvöld. Félagar
mega bjóða 'með sér gestum.
Bílstjórafélag Akureyrar sam-
þykti 16. f. m. með öllum greidd-
um atkvæðum mótmæli gegn
frumvarpi Sigurjóns Á. Ól. 8t Co.,
sem félaginu hafði verið sent til
umsagnar, og lýsti sig jafnframt
andvigt því að nokkur vinnulög-
gjöf yrði sett er skerti að nokkru
raði athafnafrelsi og eðlilega fram-
þróun verklýðssamtakanna og
tjáði sig einróma mótfallið öllum
slíkum lagasetningum.
Vélstjórafélag Akureyrar f e 1 d i
á fundi sínum 19. f. m. með-
mælatillögu frá formanni, Jóni
Hinrikssyni, með vinnulöggjafar-
frumvarpi Sigurjóns Á. ÓI. & Co.
Voru 6 atkvæði með, 7 á móti
en 4 sátu hjá.
Verkakvennafélagið »Eining«
samþykti á fundi sínum 23. f.m.
einróma mótmæli gegn vinnulög-
gjafarfrumvörpum íhaldsflokksins
og Sigurjóns Á. ÓI. & Co.
Verkamannafélag Akureyrar
saraþykti einum rómi, á fundi
sínum 27. f. m., mótmæli gegn
báðum vinnulöggjafarfrumvörp-
unum, og skoraði á öll verklýðs-
félög að standa sem einn maður
gegn framkvæmd slikra laga, ef
þau verða sett, þrátt fyrir al-
menn mótmæli verkalýðsins. Af
verklýðsfélögunum hér á Akur-
eyri er það þá aðeins Verklýðs-
félag Akureyrar sem hefir lýst
fylgi sinu við kröfu íhalds-
ins.