Verkamaðurinn - 18.06.1938, Síða 1
Útgefandi: Verklýðssamband Norðurlands.
XXI. árg.
Akureyri, laugardaginn 18. júní 1938. j 31. tbl.
19. júní
Sjömennog smáutgerðarmenn
eiga að borga miljönaskuldir
Kveldulfsbraskaranna,
er kjörorð Ólafs Thors og Jónasar frá Hriflu.
BræðslusíIdavTerðið ákveðið kr. 4.50.
Sjómenn og smáútgerðarmenn verða að hefja sameiginlega
baráttu gegn þessu óheyrilega ranglæti.
Bræðslusildarverðið hefir nú
verið ákveðið kr. 4 50. Stefna
ólafs Thors og Hriflu-Jónasar
varð ofan á í Landsbankaráðinu
og stjórn Ríkisverksmiðjanna.
Ríkisverksmiðjnrnar, eign þjóðar-
innar, eru nú algjörlega undir
yfirráðum miljónasvindlara, undir
yfirráðum ólafs Thors og nán-
ustu samherja hans. Þremenn-
ingarnir Magnús Sigurðsson, ól-
afur Tbors og Hriflu-Jónas hika
ekki við að nota yfirráðin yfir
Ríkisverksmiðjunum til þess að
láta sjómenn og þá sildarútgerð-
armenn, sem ekki eiga bræðslur,
borga miljónaskuldir Kveldúlfs.
Landsbankaráðið, sem hefir það
ábyrgðarmikla starf með hönd-
um að gæta þess að braskarar
og óreiðumenn leiki ekki lausum
hala með sparifé þjóðarinnar,
með þjóðbankann, hefir algjör-
lega brugðist skyldu sinni í þessu
efni og er orðið handhægt tæki
í höndum miljónasvindlaranna,
sem t. d. s.l. sumar léku sér að
þvi að spila a. m. k. 700 — 800
þús. kr. úr höndum þjóðarinnar
með klaufalegri sölu aðeins
einnar vörutegundar (lýsissala
Kveldúlfs) — þegar aðrir lýsis-
salar stórgræddu. Eítirlitslögin
bans Jónasar reyndust, eins og
við var að búast, aðeins hand-
ónýtt pappfrsgagn.
Hægri foringjar Alþýðuflokks-
sins hafa gengið í samábyrgð ásamt
Jónasi, fyrir miljónaskuldum
Kveldúlfs þ. e. a. s. á þann háít
að láta sjómenn og þá síldarút-
gerðarmenn, sem ekki eiga
bræðslur, borga brúsann með
smánarlega lágu bræðslusfldar-
verði.
)3að stoðarekkert þóAIþýðubl.
og Alþýðumaðurinn og önnur
málgögn »Skjaldborgarinnar«blási
sig út og þykjist vera hneyksl-
uð yfir að tillaga Erl. Þorst.
um 5.00 króna verðið skyldi
hafa veiið feld.
Ef »Skjaldborgar« mönnum
hefði verið alvara, með að hindra
það að sjómenn yrðu látnir
borga skuldir Kveldúlfs, þá hefðu
þeir átt að taka tillit til þess
þegar þeir »gerðu samningana«
við Framsókn um stuðning —
en eins og állir vita mundu þessir
(Framh. á 2. síðu).
Verkakvennafél. »Einíng« hefir
valið þennan dag til fjársöfnun-
ar fyrir barnabeimilissjóð sinn.
Þegar sjóðurinn er orðinn nægi-
lega mikill hyggst »Eining« aö
bygRÍ3 si,t eigið barnaheimili, á
heppilegum stað i sveit, og fóstra
þar börn á sumrin, en uns þessu
marki er náð mun félagið árlega
verja dálitlu fé úr sjóðnum til
að styrkja fátæk, veikluð börn
til sumardvalar i sveit. T. d. hefir
það ákveðið að sjá nú 11 börnum
tyrir ókeypis sumardvöl i Brekkna
koti í Reykjahverfi í 2 mánuði.
F*ar sem hér er um byrjunar-
starf félagsins að ræða á þessu
sviði eru ekki tök á því að
styrkja fleiri börn til sumardvalar
að þessu sinni.
Til þess að standa straum af
þeim mikla kostnaði, sem þessi
starfsemi hefir í för með sér,
hefir »Eining« myndað hinn
svonefnda Barnaheimilissjóð af
sjúkrasjóði sinum, en auk þess
treystir félagið því að menn
styrkji hina lofsverðu viöleitni
þess og þá fyrst og fremst með
því að kaupa þau merki sem
seld verða í þessu skyni 19.
júní.
Það munu flestir vera sam-
mála um það, að knýjandi þörf
sé á því að koma börnunum úr
goturykinu, að minsta kosti yfir
sumarmánuðina, og gefa þeim
kost á að baða sig í sólinni og
teiga ilmþrungið, heilnæmt sveita-
loftið. Með merkjasölu sinni 19.
júni, gefur »Eining« bæjarbúum
kost á að leggja sinn skerf fram