Verkamaðurinn - 02.07.1938, Blaðsíða 1
Útgefandi: Verklýðssamband Norðurlands.
XXI. árg.
Akureyri, laugardaginn 2. júlí 1938.
I 33. tbl.
För ípróttamanna bæjarins
til Vestmannaeyja.
Á fundi sínum s. 1. laugardag
ákvað bæjarstjórn Akureyrar að
senda samdægurs út eftirfarandi
ávarp til bæjarbúa:
„Það er ljóst hverju mannsbarni
í bænum, hversu brýn nauðsyn er
nýrrar rafveitu fyrir bæjarbúa.
Undanfarið hefir verið unnið að
lántöku til rafveitunnar í Kaup-
mannahöfn, samkvæmt samhljóða
ályktun bæjarstjómar, og enn
dvelur bæjarstjóri þar í þessum
erindum.
Nú er málinu það komið áleiðis,
að miklar líkur eru til, að danskt
lán fáist, að upphæð kr. 1.650.000.-
00, og er þegar fengin ríkisábyrgð
fyrir því. Ennfremur má gera
ráð fyrir ríkisábyrgð fyrir inn-
lendu skuldabréfaláni til viðbót-
ar. — Hefir bæjarstjórnin á fundi
sínum í dag samþykt að bjóða nú
þegar út skuldabréfalán, allt að
kr. 300.000.00. Lánið verði til 23
ára, afborgunarlaust fyrstu 3 árin,
en síðan árlegar afborganir, eftir
útdrætti bréfanna, er bæjarfógeti
framkvæmi. Útdráttur fari fram í
janúar, og greiðsla afborgana 1.
júlí sama ár. Bréfin ávaxtast með
6%, og greiðist vextir 31. des.
ár hvert. Bréfin verða handhafa-
bréf, gefin út í þremur flokkum,
100 kr., 500 kr. og 1000 kr.
Dönsku lánveitendurnir eru
tregir til fullnaðarsamninga, með-
an sala skuldabréfanna er ekki
trygg, og getur því svo farið, að
málið strandi, ef bæjarstjóminni
tekst ekki nú þegar að selja
skuldabréfin. Það skal upplýst, að
þegar eru fengin loforð um kaup
á skuldabréfum, hér í bænum, fyr-
ir allt að 150 þús. kr., en betur
má, ef duga skal.
Fyrir því leyfir bæjarstjómin
sér að heita á bæjarbúa, að bregð-
ast skjótt og vel við um stuðning
við málið, með því að lofa kaup-
um á skuldabréfum, eftir því sem
hver og einn hefir efni og ástæð-
ur til. „Margt smátt gerir eitt
stórt“.
Ef bæjarbúar hika nú og draga
sig í hlé um framlög til skulda-
bréfakaupa, verður það líklega
málinu að falli, en með góðum
vilja og sameinuðum kröftum á
að vera fært að koma málinu í ör-
ugga höfn.
Akureyri, 25. júní 1938.
Bæjarstjórn Akureyrar.
(Undirskriftir)“.
Þegar ávarpið var sent út var
þegar búið að fá loforð fyrir
kaupum á helming skuldabréf-
anna. Síðan hefir verið unnið að
því að selja skuldabréfin og má
telja örugt að sala þeirra takist á
stuttum tíma, enda er vissa fyrir
því (sbr. skattskýrslur) að meira
(Framh. á 2. síðu).
Efnilegur hópur sundmanna
lagði af stað héðan af Akureyri
s.l. sunnudag til Vestmannaeyja.
Var flokknum boðið af íþróttafé-
lögunum „Þór“ og Týr í Eyjum
til keppni í sundi og knattspyrnu.
Frá sundfélaginu „Gretti“ voru:
Björn Bjarman, Jóhannes Snorra-
son, Jónas Einarsson, Snæbjörn
Jónasson. Frá íþróttafélaginu
„Þór“: Baldur Arngrímsson, Bald-
ur Sveinsson, Baldvin Ásgeirsson,
Bragi Brynjólfsson, Brynjólíur
Kristinsson, Hjalti Svanlaugsson,
Jóhann Guðmundsson, Jóhann
Kristinsson, Jón Egilsson, Jón
Kristinsson, Kári Sigurjónsson,
Magnús Guðmundsson, Ragnar
Sigurðsson, Snorri Sigfússon, Ste-
fán Stefánsson, Þór Sigþórsson,
Þorvaldur Stefánsson. Fararstjóri
flokksins er Tryggvi Þorsteinsson,
íþróttakennari.
S. 1. þriðjudag keppti flokkur-
inn í knattspyrnu við „Þór“. Vann
„Þór“ með 2 gegn 1. Á miðviku-
dagskvöldið fór fram sundkepni.
í 50 m. sundi, frjáls aðferð, átti
Akureyri 2. og 3. mann, í 100 m.
bringusundi 1. og 3. mann, í 40
m. baksundi 2. mann og í boð-
sundi 4x40 m. vann A-sveit Akur-
eyrar.
Flokkurinn lagði af stað heim-
leiðis í morgun.
Kennaraþingið var sett í Reykjavík s.
1. þriðjudagskvöld.