Verkamaðurinn - 20.08.1938, Síða 1
V /
Útgefandi: Verklýðssamband Norðurlands.
XXI. árg
Akureyri, laugardaginn 20. ágúst 1938.
40. tbl.
Fa$i§minn
i Sjálfita'ði^flukknum.
Lýðræði§«innarnir í flokknum
verða að losa §ig við yfirráð
heildsalaklíkunnar.
Um miðjan júlí 1936 boðaði
Quiroga forsætisráðherra Spánar
Yague ofursta á fund sinn.
Áttu þeir með sér eftirfarandi
samtal: — Yague ofursti! Eg
hefi kallað yður hingað til þess
að tilkynna yður að það gengur
orðrómur um það að þér séuð
að undirbúa uppreisn í Marokkó.
Eg trúi því ekki. Hvað segið þér
um það? — Það er tómt slúður,
var hið rökvísa svar ofurstans.
Hann neitaði að nokkuð væri
hæft í þessum sögusögnum um
hann og fullyrti að hann ynni af
heilum hug í þágu lýðræðisins
og ráðandi stjórnar. Quiroga
hristi þá hönd Yague og mælti:
— Verið nú hygginn karl og
segið vihum yðar, þegar þér
komið attur heim, að lýðveldið
sé mjög sterkt og að það væri
fásinna að rísa upp gegn því.
Aðfaranótt 18. júlí hófst svo
uppreistin í Marokkó undir
forustu sama Yague.
Hér á landi vinna erlendir
fasistar með aðstoð innlendra
. samherja, leynt og ljóst að því
að kollvarpa lýðræðinu og svifta
íslensku þjóðina sjálfstæði sínu.
Bandamenn erlendu fasistanna
eru m. a. ýmsir af leiðandi mönn-
um Sjálfstæðisflokksins. Ræða
Knúts Arngrímssonar, 2. ágúst, á
skemtisamkomu, sem Sjálfstæðis-
flokkurinn efndi til á Eiði (skemti-
staður Sjáifstæðismanna við Rvík),
hefir betur en nokkuð annað af-
hjúpað hversu mikil itök fasism-
inn á í Sjálfstæðisflokknum. Til
þess að reyna að blekkja hina
fjölmörgu unnendur lýðræðisins
innan og utan Sjálfstæðisflokks-
ins hefir þvi aöalmálgagn flokksins,
Morgunblaðið, streitst við að nota
sömu aðferð og spænski land-
ráðamaðurinn Yague.
Blaðið hefir neitað því að Sjálf-
stæðisflokkurinn hafi haldið fyr-
nefnda samkomu að Eiði, jafnvel
þó það væri auglýst með íeitu
letri á fremstu síðu í blaðinu að
Sjálfstæðisflokksfélögin í Rvík
efndu til samkomunnar. Blaðið
hefir svarið og sárt við lagt, að
Knútur væri nokkuð áhangandj
Sjálfstæðisflokknum eða hefði
talað fyrir munn hans, þó að
dagblaðið »Vísir«, annað aðalmál-
gagn flokksins, birti ræðu fasist-
ans orðrétta 4. ágúst — athuga-
semdalaust — og þó að Knútur
hafi lýst þvi yfir í sama blaði
að hann hafi talað fyrir munn
Sjálfstæðisflokksins. En íslenskir
lýðræðissinnar, allir sannir sjálf-
stæðismenn, munu ekki eins
auðtrúa á sakleysisyfirlýsingar
hinna íslensku fasista eins og
Quiroga var á sinum tíma and-
varalaus gagnvart moldvörpustarfi
spænsku fasistanna.
(Framh. á 2. síðu).
Lindberg í heim-
sókn hjá Stalin.
Lindberg hinn heimskunni
flugmaður, og ameríski sendi-
herrann í Moskva, voru í gær
viðstaddir hina árlegu flugsýn-
ingu í Moskva. Var Lindberg og
frú einnig í heimsókn hjá Stalin.
Lindberg hefir dvalið í Sovét-
ríkjunum undanfarið í þeim er-
indagerðum að vinna að sam-
starfi rússneskra og ameriskra
flugmanna í Norðurhöfum.
3 m ciiii drepnir i Berlín
i gærmorgnn.
í gærmorgun voru 3 menn
teknir af lifi í Berlin, voru þeir
sakaðir um njósnir. Engin opin-
ber réttarhöld höfðu farið íram
enda er slíkt ekkert nýtt fyrir-
bæri í »þriðja ríkinu*, því naz-
istar þora aldrei að leggja gögn
stn á borðið.
Blað enskra samvinnumanna
tekur afstödu með
Sovétlýdveldunum.
Aðalmálgagn ensku samvinnu-
félaganna, »ReynoIds News«
kemst m. a. svo að orði i sam-
bandi við árekstrana við landa-
mæri Mandsjuriu og Sovétríkj-
anna: »Kína hagnýtir sér þennan
árekstur og gerir stöðu japönsku
hersveitanna ennþá erfiðari.
Samt sem áður er ein staðreynd
sem er augljós: Pólitík Japana
hefir árum saman verið hernað-
arpólitik, pólitik Sovétríkjanna
stöðugt friðarpólitík. Pólitik
siðustu ára hefir sýnt, að
Sovétríkin hafa horfið inn á þá
einu leið, sem getur bjargað
heiminum frá striði: einbeitt
framkoma gagnvart alkunnum
árásarsegg.