Verkamaðurinn - 26.11.1938, Page 3
VERKAMAÐURINN
3
Fulltrúi bæjarfélagsins
kistuleggur gamla konu.
Að kvöldi s.I. sunnudags, and-
ist gömul kona Guðrún Oddsdótt-
ir í loftherbergiskytru í húsinu
Norðurgötu 9 hér í bæ. Þetta
myndarlega ibúðarhús er eign
höfuðstaðar Norðuriands, og
gamia kouan uinkomul'ausa hafði
orðið að neyðast til þess að ieita
í náðarfaðm bæjarstjórnarinnar,
í náíaðm framfærslufulltrúans
Sveins Bjarnasonar. Hún fékk
sinn sultarskamt, með eftirtölu n,
hún fékk hjúkrun síðustu dægr-
in, með ettirgangsmunum. En
þegar hún var dáin og gat ekki
lengur veilt viðnám túk látækraíull-
trúinn likið »á arma sina« bar pað út 00
kistulagði undir húsveggnum.
Fátækraíulltrúinn Sveinn Bjarna-
son, kom í vör«bifreið um kl.
4 e. h. s. 1. þriðjudag lil þess
að kisiuleggja Guðrúnu sál. og
flytja líkið upp í líkhús sjúkra-
hússins. I fylgd með honum var
aðeins bíistjórinn. Tók Sveinn
likið og bar niður stigann og út
‘og lagði í kistuna, er beið opin
við húsvegginn. Hirti hann ekki
einu sinni um, að hylja líkið að
öllu leyti kiæðum, svo minsta
kosti fætur voru naktir. Konur
komu þarna að í þessu, er Sveinn
hafði framkvæmt útburðinn og
vildu laga til um líkið í kistunni,
létu þær fyllilega á sér skilja, að
þessar aðfarir væru hinar sví-
virðilegustu, en fengu það svar,
að þær hefðu ekki verið kvadd-
ar til aðstoðar. Fengu þær með
naumindum að hagræða líkinu
lítið eitt betur í kistunni,
en svo rak Sveinn á eftir að
komist yrði aí stað, að konurnar
urðu að láta staðar numið við
starf sitt og kaupa sér bíl upp á
sjúkrahús til þcss að geta gengið
þar frá likinu i kistunni eins og
þær töldu sér skylt.
Fjöldi barna safnaðist utan um
Svein þar sem hann var að
kistuleggja gömlu konuna úti við
eina aðaigötu bæjarins. Mun börn-
unum verða svo minnistæðar þess-
ar aðfarir.aðforeldrar, barnakenn-
arar og aðrir, er láta sig niiklu
skifta, hverskonar áhrifum börn
verða fyrir, munu ekki óska
eftir þvi, að þan verði öðru sinni
áhorfandi að siíkum aðförum.
Bessar eindæma aðfarir Sveins
Bjarnasonar hafa vakið andstygð
og hryliingu almenuings. Og
það er óþarfi að taka það fram
að engar þær ástæður voru fyrir
hendi að þessi kistulagning gæti
ekki farið fram á þann veg sem
venja er til.
Enginn atburður nú um ianga
hrið mun hafa vakið jafn alment
umlal og jafn almennan viðbjóð
hér og þessi framkoma fátækrafull-
trúans í höfuðstað Norðurlands.
Menn af öllum flokkum eru þar
sammála. Allir fordæma þeir
þessar svívirðilegu tiltektir. Allir
skilja þeir að hér hefir verið
gengið svo langt að lengra verð-
ur ekki gengið í ániðslu á lítil-
magnanum en að níðast á hon-
um dánum Alment velsæmi og
siðgæði hefir verið svo þverbrot-
ið að aldrei verður úrbætt. Á
bæinn, annan aðal menningar-
brunn landsins, hefir fallið sá
blettur er aldrei verður afþveg-
inn. Öllum bæjarbúum er kunn hin
harðdræga og tilfinningarlausa
framkoma Sveins i garð fátækl-
inganna i lifanda lífi. Að hann
gæti ekki einu sinni látið staðar
numið við dauðans dyr, mun
flestum hafa komið á óvart. —
Öllum mönnum er ljóst að »mað-
urinn« Sveinn Bjarnason er þvi
gjörsamlega óhæfur til að gegna
hinu ábyrgðarmikla starfí sinu á-
fram. Níðingsverk hans er með
þeim endemum að jafnvel nafn
hans getur engin nefnt eftirleiðis
nema með fádæma viðbjóði. Eng-
inn heiðarlegur maður getur var-
ið afhæfi hans. Engar málsbæt-
ur fyrirfinnast.
Dómur almennings, dómur
allra heiðarlegra manna, hlýtur
þvi að verða á einn veg. SveÍflD,
>maðunnn<, sem lét sér ekki lyrir brjósti
brenna að níðast á gamalli konunni jatnvel
eiíir andiátið verður talarlaust að láta al binu
vandasama og ábyrgðarmikla starli sino.
Hver einasti heiðarlegur maður
krefst þessa. - Heiður bæjarlélaflsins
kreist pess. — Þetta er það eina
og óumflýjanlega sem hægt er og
verður að gera úr þvi sem kom-
ið er.
Þetta er krafa réttlætisins.
Krafa mannúðarinnar Krafa
siðmenningarinnar. Krafa allra
sannra, heiðarlegra íslendinga.
J. A.
Kistulagt
úti.
Trú yfir litlu, hennar lögmál þa5
var,
litlu hún sáði en minna uppskar,—
til hvíldar er þrá hennar kropin.
Að látin hún eignaðist likklæðin.
hrein
þá líknandi fórn veittu snjókornin
ein
þvi kistan beið úti opin.
Svo snauð úti við götu, en
höfðingi hár
kom hnarreistur út og i fangi hans
nár,
hann fleygði henni í kistuna kalda.
Hún féll ei, hún loðir við hendur
^ hans
sem helkaldur nár, fram í andlát
þess manns.
f*á skuld mun ei gleymast að
gjalda.
— b - C
Polyfoto
myndastofan er opin á
sunnudögum frákl.2—4.