Verkamaðurinn - 10.12.1938, Blaðsíða 1
X ■
Útgefandi: Verklýðssamband Norðurlands.
XXI. árg.
Akureyri, þriðjudaginn 10. desember 1938.
j 57. tbi.
Sögulegnr
bæjarstjórnai’fiindur
MáEi Sveins frestað
Kröfur Verkamannafél.
Ak. um kaupið í
tunnuverksmiðjunni
samþyktar.
Bæjarstjórnarfundur s. 1. þriðju-
dag var að ýmsu leyti all-söguleg-
ur. Enda lágu fyrir honum mál,
sem almenningur í bænum lætur
sig miklu skifta hvernig með er
farið.
Þegar í fundarbyrjun var svo
mikil aðsókn að fundinum, að
flytja varð hann niður í stóra sal
Samkomuhússins, og þó fundurinn
stæði í nær 8 klst., var salurinn
þéttskipaður fólki, bæði uppi og
niðri, til fundarloka.
Fyrir fundinum lá — til fyrri
umræðu — frumvarp til fjárhags-
áætlunar bæjarins fyrir næsta ár.
Urðu litlar umræður um frum-
varpið, að svo komnu. Hinsvegar
spunnust langar umræður um
tunnusmíði bæjarins — út frá til-
lögu fjárhagsnefndar um vinnu-
laun við tunnusmíðið í vetur.
Bæjarstjóri reið á vaðið og brá
Verkamannafélagi Akureyrar um
„skort á skilningi" í kröfum sínum
um kaup við tunnusmíðið. Greip
þá Erlingur tækifærið, en hann
bjóst við góðum stuðningi frá í-
haldinu, og helti sér yfir Verka-
mannafélag Akureyrar fyrir
„heimtufrekju“ þess í kaupgjalds-
málum. Taldi hann, að „kommarn-
ir“ í Verkamannafél. Ak. ynnu
með ráðnum hug að því að koma
tunnugerð bæjarins í þá fjárhags-
örðugleika, að tunnusmíðinni yrði
hætt með öllu. Gerði hann ítrek-
aðar en árangurslausar tilraunir
til að fá bæjarstjóra til að játa því,
að tunnusmíðinu yrði hætt, ef aft-
ur yrði halli á því í vetur. Kvaðst
hann sjálfur vera samþykkur því,
að svo yrði gert — enda hefði
hann hlerað það, að til slíks væri
ætlast af „íhaldsömum öflum“ í
bænum.
Steingr. Aðalsteinsson talaði
máli Verkamannafélagsins. Sýndi
hann fram á það, að tap tunnu-
gerðarinnar s.l. vetur stafaði af
alveg sérstökum ástæðum (verð-
falli á erlendum tunnum, eftir að
efni tunnugerðarinnar hér var
keypt inn) og væri því alls ekki
nokkur almennur mælikvarði á
rekstursmöguleika tunnugerðar-
innar — enda hefði næsta ár áður
orðið verulegur hagnaður á
tunnugerðinni. Ennfremur, að
jafnvel þó reikningslegur halli
yrði á tunnusmíðinu, þá væri samt
hagur að því fyrir bæjarsjóð,
vegna þess, að eins og það er rek-
ið, sparar það aðra útgjaldaliði
bæjarsjóðsins (frmfærslukostnað-
inn).
Þá vísaði hann á bug ummælum
bæjarstjóra um skilningsskort V.
A. í kaupkröfum sínum, og afsann-
aði þau með — auk áðurnefndra
raka um rekstur tunnusmíðisins
— ummælum, sem bæjarstjórinn
sjálfur hafði látið falla í ræðu
sinni. — Lét bæjarstjóri sér það
að kenningu verða, og ræddi eigi
frekar um kaupkröfuna.
Þá þjarmaði Steingrímur all-
fast að Erlingi fyrir afstöðu hana
til kaupgjaldsmálanna — sýndi
fram á það, hvernig ræða hans
hefði verið INNILEG ÓSK um, að
árangri Verkam.fél. Ak. í þessu
kaupgjaldsmáli yrði svarað með
því að leggja tunnusmíðið niður,
og hvernig hann hefði lýst yfir
samþykki sínu til þess. Lauk
Steingr. máli sínu með því að láta
í ljós von um, að rekstur tunnu-
smíðisins gengi svo vel, að Erling-
ur — ásamt öðrum„íháldssömum
öflum“ bæjarins — fengi enga
átyllu fyrir kröfu um að hætta
því.
Fékk nú Erlingur eitt af sínum
þektu geðveikisköstum, og srarð
mjög til athlægis fundarmönnum
Sósíalistaflokkurinn eflist stöð-
ugt. Auk þeirra flokksdeilda, sem
blaðið hefir áður getið um, hafa
sósíalistafélög verið stofnuð á eft-
irfarandi stöðum: Á Seyðisfirði
með 85 meðlimum, á Eyrarbakka
með 29 meðlimum, á ísafirði með
30 meðlimum, í Húsavík með 46,
í Djúpavogi með 9, á Sauðárkróki
með 40, í Vestmannaeyjum með
181.
Meðlimir Sósíalistafélags Siglu-
fjarðar eru nú orðnir 193.