Verkamaðurinn - 21.12.1938, Blaðsíða 1
Útgefandi: Verklýðssamband Norðurlands.
XXI. árg. | Akureyri, miðvikudaginn 21. desember 1938. j 59. tbl.
Verklýðsfélögin i
D st 1 w i b, H fi* fi s y
mótmæla núverandi kúgunarlöguin Alþýðusam*
bandsins og samþykkja því aÖ beita sér fyrir
lýðræðisskipulagi á sambandi verklýðsfélaganna.
Verklýðsfélag Dalvíkur hélt
fund s.l. sunnudag og Verklýðsfé-
lag Hríseyjar í fyrrakvöld. A
fundunum voru m. a. mættir
Guðm. Ó. Guðmundsson frá Dags-
brún í Reykjavík og Jón Jóhanns-
son frá Þrótti á Siglufirði.
Verklýðsfélag Dalvíkur sam-
þykti eftirfarandi tillÖgu með 31
atkv. gegn 9:
„Verklýðsfélag Dalvíkur lítur
svo á, að því aðeins geti friðsam-
leg samvinna orðið um hin marg-
þættu hagsmunamál innan verk-
lýðsfélaganna, að öllum sé þar
trygður sami réttur án tillits til
pólitískra skoðana og heldur félag-
ið því fast við fyrri ályktun sína
að beita sér fyrir því að svo megi
verða sem allra fyrst. Félagið lýs-
ir sig mótfallið hinum nýju Al-
þýðusambandslögum og það því
fremur sem þau takmarka svo
mjög sjálfsákvörðunarrétt félag-
anna um sín innri mál“.
Á fundi Verklýðsfélags Hríseyj-
ar var svohljóðandi tillaga sam-
þykt með 17 atkv. gegn 3:
„Verklýðsfélag Hríseyjar telur
það höfuðnauðsyn að verklýðsfé-
lögin verði losuð úr þeim póli-
tísku viðjum, sem þau nú eru í og
leggur áherslu á að hið eina rétta
skipulag á sambandi þeirra sé að
það verði óháð öllum stjórnmála-
flokkum. Félagið mótmælir því
hinum nýju Alþýðusambandslög-
um og telur útilokað að verkalýðs-
félög, sem í eru menn úr hinum
ýmsu pólitísku flokkum geti
starfað samkvæmt þeim.
Félagið vill beita sér fyrir að
samband verkalýðsfélaganna verði
Framfærslufulltrúinn Sveinn
Bjarnason hefir nú í annað sinn
gert tilraun til þess, með skrifum
í „Isl.“, að verja athæfi sitt við
kistulagningu Guðrúnar sál. Odds-
dóttur. Þó vörn hans væri með
endemum haldlaus í fyrri grein
hans, keyrir þó um þverbak hjá
honum eftir þessa síðari grein
hans.
í skrifi sínu í „ísl.“ 16. þ. m. við-
urkennir hann nú loksins — þegar
búið er að reka ósannindi hans of-
an í hann, — aö hann hafi farið
rangt með aðalatriði málsins, sem
sé það að hann hefði með engu
móti getað kistulagt inni í húsinu
Norðurg. 9.
Það eina atriði, sem Sv. Bj.
reynir enn að hanga á, er vottorð
frá manneskju sem vottar það m.
a., að hún hafi ekki hugmýnd um
undir hvað hún skrifi nafn sitt.
Þessa manneskju lætur Sv. Bj. m.
a. votta það, að hún hafi verið hjá
Guðrúnu Oddsd. til kl. 3 aðfara-
skipulagslega óháð öllum stjóm-
málaflokkum, þar sem fult lýð-
ræði ríki og allir meðlimir verka-
lýðsfélaganna hafi jafnán rétt
hvaða stjórnmálaflokki, sem þeir
fylgja, og samþykkir því að gerast
aðili að samningi þeim, er fyrir
fundinum liggur og Verkamanna-
félagið Dagsbrún, Þróttur á Siglu-
firði og fleiri félög eru aðilar að.
Samþykkir fundurinn að kjósa
einn mann til þess að starfa að
framkvæmd samningsins í sam-
ráði við fulltrúa frá öðrum stétt-
nótt 16 f. m. Það heíir áður verið
vottað af íbúum hússins Norðurg.
9, að Guðrún sál. var alein í íbúð
sinni umrædda nótt. Hinsvegar
var Jóh. H. Jónsdóttir, vottorðs-
kona Sveins, hjá Guðr. til kl. ca. 3
aðfaranótt 15. f. m. (og Fanney
Albertsd. 4 síðustu næturnar), um
það var „Verkam.“ vel kunnugt
áður eins og fleira.
Þegar Sv. Bj., fulltrúi höfuð-
staðar Norðurlands, er svo búinn
að játa að hann hafi farið rangt
með aðalatriði málsins og búinn
að fá konu, sem er upp á hann
kominn, til að undirrita vottorð
um að hún viti ékki hvað hún
undirriti, leggur hann alveg árar
í bát og lýsir því yfir að hin
hneykslanlega framkoma sín hafi
verið „algert óviljaverk“ eða „ó-
sjálfráðar ástæður“ valdið henni.
M. ö. o. hann sér sér enga leið
lengur færa til að reyna að
hnekkja frásögn „Verkam.“ af
framkomu hans, en* afsakar sig
arfélögum“.
Sveinsmálið,
L