Verkamaðurinn - 11.11.1939, Síða 1
Burt með þrælaákvæði geng
Ogurleg sprenging í
Burgerbráukeller.
7 eða 8 háttsettir nazistar biðu bana
en uni 70 særðust
islaganna!
Pingmenn Sósíalista-
flokksins hafa borið
fram frumvarp um af-
nám kauphœkkunar-
bannsins úr gengis-
lögunum.
Hvert verklýðsfélagið á fætur
öðru hefir krafist þess að ákvæð-
ið í gengislögunum um bann við
kauphækkun verði afnumið. Þing-
menn Sósíalistaflokksins hafa nú
borið fram frumvarp á Alþingi
þar sem m. a. er lagt til að verk-
lýðsfélögin fái sjálf að ráða kaup-
gjaldinu og berjast fyrir því ef
nauðsyn krefur. Samkvæmt frum-
varpinu er ætlast til að kosin
verði 5 manna nefnd til að reikna
út verðvísitölu 1. hvers mánaðar
og hækki síðan kaupgjaldið í fullu
samræmi við hana. Kaupgjald það
sem gilti hér síðasta mars þ. á.
skal lagt til grundvallar, en breyt-
ist síðan í hlutfalli við dýrtíðina.
Verði verkamenn eða atvinnu-
rekendur ekki ánægðir með þann
grundvöll, þá sé þeim heimilt að
segja upp samningum með mán-
aðarfyrirvara miðað við næstu
áramót og semja um kaup og kjör
Pýskír nazistar vilja ráða
pvi hvaða bækur eru seidar
á íslandi.
Þýski ræðismaðurinn í Reykja-
vík hefir krafist þess af ríkis-
stjórninni, að hún stöðvi sölu á
bókinni „í fangabúðum“, eftir
þýska leikarann Wolfgang Lang-
hoff. Er bókin lýsing á dvöl höf-
undarins í fangabúðum nazista.
Bókin hefir verið til sölu hér á
landi síðan 1935 undir nafninu
„Ár í helvíti“.
Ríkisstjórnin hefir þegar stöðvað
sölu bókarinnar, í bili að minsta
kosti, og er nú að íhuga kröfu
Hitlers. Verður fróðlegt að vita
hver niðurstaða stjórnarinnar
verður, hvort hún lítur svo á, að
þýskir nazistar eða íslendingar
eigi að ráða því hvaða bækur eru
gefnar út og seldar hér á landi.
eins og var áður en þrælaákvæði
gengislaganna voru lögfest.
í frumvarpinu er einnig gert
ráð fyrir afnámi á banni á verð-
hækkun landbúnaðarvara. Enn-
fremur að slysa- og dánarbætur,
ellilaun og örorkubætur sam-
kvæmt lögum um alþýðutrygg-
ingar skuli hækka í hlutfalli við
dýrtíðina og að stjórninni sé
heimilt að hækka, í hlutfalli við
dýrtíðina, meðalmeðlög af hálfu
barnsfeðra með óskilgetnum börn-
um.
Öll alþýða manna mun fylgjast
af athygli með gangi þessa máls í
þingsölunum.
aukna atvinnu og hœkkaðan
styrk handa styrkþegunum.
Sósíalistafélag Akureyrar boð-
aði til almenns umræðufundar, í
Samkomuhúsi bæjarins s.l. mið-
vikudagskvöld, um rafmagnsverð-
ið og atvinnu- og kaupgjaldsmál.
Frá afgreiðslu rafmagnsmálsins
er skýrt annarstaðar í blaðinu, en
í atvinnu- og kaupgjaldsmálunum
voru gerðar eftirfarandi sam-
þyktir:
' „Almennur umræðufundur,
haldinn í Samkomuhúsi Akureyr-
ar 8. nóv. 1939, að tilhlutun Sósí-
alistafélags Akureyrar, lítur svo á,
að ákvæði þau í gengislögunum,
frá 4. apríl þ. á., sem hefta samn-
ingafrelsi og réttindi verklýðsfé-
laganna og banna kauphækkun,
séu beinlínis skaðleg fyrir af-
komu allrar alþýðu í landinu, þar
sem þau leiða óhjákvæmilega til
megnustu örbyrgðar, sökum geig-
vænlega aukinnar dýrtíðar.
Fundurinn skorar því fastlega á
Alþingi það, er nú situr, að nema
þegar úr gildi nefnd ákvæði, svo
verklýðsfélögin fái frjálsar hend-
ur um kaupgjaldssamninga“.
„Almennur umræðufundur,
haldinn að tilhlutun Sósíalistafé-
lags Akureyrar, 8. nóv. 1939, í
Samkomuhúsi bæjarins, ályktar,
að brýnni þörf sé nú, en verið hef-
ir um margra ára skeið, á stórauk-
inni atvinnu fyrir verkalýð bæjar-
ins nú á komandi vetri, þar sem
verðlag á fjölda nauðsynjavara
hefir heekkað gífurlega, og fram-
Morðtilraun við Hitl»
er eða annar ríki§>
þingbúsbrunl?
Síðastliðið miðvikudagskvöld, 8.
þ. m., varð gífurleg sprenging í
Búrgerbráukeller í Múnchen, 10—
llmín. eftir að Hitler hafði haldið
þar ræðu. Hefir hann undanfarið
undan er sýnilega ennþá meiri
dýrtíð, sökum yfirstandandi
styrjaldar.
Fundurinn treystir á skilning
allrar alþýðu, um þá brýnu þörf,
að þoka sér þéttar saman til sam-
eiginlegra átaka í sókn fyrir
vinnu og brauði, á slíkum örlaga-
tímum, og skorar því á öll verk-
lýðsfélög baéjarins, að skipuleggja
og hefja sameiginlega baráttu fyr-
ir aukinni atvinnu".
„Almennur umræðufundur,
haldinn í Samkomuhúsinu 8. nóv.
1939, að tilhlutun Sósíalistafélags
Akureyrar, lítur svo á, að þar sem
dýrtíð hefir nú aukist stórlega, þá
sé það skylda bæjarstjórnarinnar,
að hækka nú þegar peningafram-
lag til þess fólks, er verður að fá
(Framhald á 4. síðu)
Kolin
hækka
gífnrlega
„Snæfell“ kom nú í vikunni með
kolafarm til K. E. A. Verðlags-
nefnd hefir ákveðið að kolaverðið
hjá K. E. A. skuli fyrst um sinn
vera kr. 81.00 tonnið. Er það bæri-
leg hækkun ofan á stórhækkað
verð á ýmsum öðrum nauðsynja-
vörum. Nemur hækkunin 50% þar
sem kolaverðið var áður 54 kr.
tonnið. Það eina, sem ekki má
hækka, segir „þjóðstjórnin“, er
kaup verkamanna,
haldið þar ræður árlega þennan
dag, sem er sögulegur dagur naz-
istahreyfingarinnar, en í þetta
skifti byrjaði hann ræðu sína
hálftíma fyr en vanalega. 7 eða 8
manns, stofnendur nazistaflokks-
ins, biðu þegar bana af völdum
sprengingarinnar en um 70 særð-
ust og margir af þeim mjög
hættulega. Bjórstofan, þar sem
Hitler hafði haldið ræðuna var
öll í rústum eftir sprengingu vít-
isvélarinnar, sem hafði verið kom-
ið fyrir í ofni í herbergi beint yf-
ir bjórstofunni.
Ástæðan fyrir því, að æðstu
menn nazistaflokksins safnast
saman í þessari bjórstofu 8. nóv.,
er eins og hér segir:
8.—9. nóv. 1923 gerði nazista-
flokkurinn í Múnchen tilraun til
að brjótast til valda. Hitler réðist
ásamt fylgismönnum sínum inn á
fund í Búrgerbráukeller, stærstu
ölstofunni í Múnchen, þar sem
hinn afturhaldssami stjórnmála-
maður Gustav von Kahr, forsætis-
ráðherra í Bayern, var að halda
ræðu. Lýsti Hitler því yfir, að
stjórn Bayerns og Þýskalands
væru settar af og neyddi, með
skammbyssu á lofti, von Kahr til
að ganga í lið með uppreistar-
mönnum, en stjórnin í Bayern,
sem var á fundinum, var hand-
tekin. Uppreistartilraunin var
bæld niður af lögreglu og ríkis-
varnarliðinu, en um 16 nazistar
biðu bana. Hitler var fangelsaður
og dæmdur í 5 ára fangelsi, en
íhaldið lét hann lausan eftir
nokkra mánuði.
Sprengingin í Búrgerbráukeller
hefir vakið geysiathygli. Sumir
telja, að þetta hafi verið tilraun
til að myrða Hitler og aðra æðstu
(Framhald á 4. síðu)
Almennur fundur
boðaður af Sósíalista-
félagi A'kureyrar
heimtar frelsi handa verklýðsfélögunum —