Verkamaðurinn - 13.01.1940, Page 4
4
VERKAMAÐURINN
Verklýðsfélögin . . .
(Framhald af 1. síðu).
ir áður bent á — þýðingarmikið
atriði, að kauphækkunin kemur
altaf löngu á eftir verðhækkun
lífsnauðsynjanna. — Þannig hefir
verkafólkið engar bætur fengið,
og fær ekki, fyrir þá dýrtíð, sem
það hefir búið við megin hluta
s.l. árs. — Og sú kauphækkun,
sem því er skömmtuð fyrir janúar
—marz þetta ár, er miðuð við
verðlagið í nóvember—desember
s.l. þó augljóst sé, að verðlag á
þessu tímabili verði miklu hærra,
en var í nóv.-des. — meðal ann-
ars vegna þess, að verðlag inn-
lendu frarqjeiðslunnar mun nú
hækka mikið, þegar verðhækkun-
arbanninu, sem áður var á þeim,
er létt af — og framleiðendunum
þannig enn gert hærra undir
höfði en verkafólkinu.
Sú raunverulega kauphækkun
verkafólksins er því alls ekki %
verðhækkunarinnar á hverjum
tíma, heldur miklu minni.
Það er líka gefið mál, að af
afturhaldsklíku burgeisanna á
Alþingi var ekki að vænta að-
gerða, sem trygðu hagsmuni
verkalýðsins, í þessu efni, frem-
ur en öðrum.
Það er aðeins verkalýðurinn
sjálfur, sem með samtökum sín-
um getur verndað hagsmuni sína,
og sótt sinn þjóðfélagslega rétt.
Þessvegna má verkalýðurinn
ekki una við, að af samtökum
hans sé tekinn undirstöðuréttur
þeirra — eins og nú er gert með
svokölluðum landslögum.
Fyrir hverju berf-
asl norrænu sfáilf-
boðaliðar í Finn-
landi ?
Mörg þúsund sænskir sjálfboða-
liðar eru komnir til Finnlands til
að berjast þar með Mannerheim-
hernum. Maðurinn, sem sMpu-
leggur þessar sveitir, er sænskur
majór Winge að nafni. Winge
þessi lét nýlega eftirfarandi orð
falla í viðtali við blaðamann frá
norska blaðinu „Tidens Tegn“:
„Það, sem fyrst og fremst vant-
ar, sko, eru peningar. Sjálfboða-
liðssveitirnar verða að hafa fyrsta
flokks útbúnað og vopn. Þetta eiga
að verða úrvalssveitir. En það
kostar skilding, það kemur til
með að kosta miljónir. En eg ef-
ast ekki um að peningar koma.
þeir streyma inn, jafnt og þétt.
Eg er sannfærður um að miljóner-
unum á Norðurlöndum verður
það ljóst fyr eða síðar, að auðnist
oss ekki að afstýra þessari ógnun
gegn frelsi Norðurlanda, þá er sá
tími nálægur að engir miljónerar
verða til“.
Barðargfðld prstsendinga hækk-
u^u mikið nú um áramótin. Burdarcjald
einfaldra bréfa (aJlt að 200 gn) innan-
lands og til Norðurlanda eru nú 25 aurar
í sfað 20 aura áður. Burðargiöld almennra
bréfa til annara landa en Norðurlanda er
45 aurar f stað 35 aur. áður, að 20 gr.
Burðargjald böggla hefir hækkað hlutfalls-
lega meira vegna hækkunar á farmgjöldum.
í södiu sporuiD a
vesturvígstöðvuium.
Fregnir f rái Fiunlands-
styrjöldinni fullar af
mótsögnum.
Styrjöld Breta og Frakka gegn
nazismanum gengur hægt síðustu
daga eins og áður, hvað sem því
veldur. Berast helst fregnir þaðan
um ljósmyndatökur úr lofti.
Samkvæmt fregnum íslenska
útvarpsins hafa Finnar sótt stöð-
ugt fram undanfarið og eru sagðir
komnir yfir rússnesku landamær-
in á mörgum stöðum. í rússnesk-
um fregnum er hinsvegar ekki
minst á þessa sigursælu sókn
Finna, telja • Rússar að lítið hafi
verið um hernaðaraðgerðir um
hálfsmánaðar skeið, vegna fann-
komu og frosta, var líka frá því
skýrt í íslenska útvarpinu í gær-
kvöldi, samkvæmt finskum heim-
ildum, að aðalhindrunin á vegi
Rússa væri óhagstætt landslag,
snjór og frost en ekki vörn finsku
hermannanna. í fyrradag skýrði
íslenska útvarpið frá því, sam-
kvæmt heimildum frá finskum
liðsforingja í her Ryti-stjórnar-
innar, að mannfall Rússa væri alls
40 þús. Áður var útvarpið búið að
drepa yfir 100 þús. Rússa, í stað-
festum fregnum!
Flutningagjöldin hækka
enn stórkostlega.
Skipafélögin hafa tilkynt að
flutningagjöldin innanlands hækki
um 20% í viðbót við það sem þau
höfðu hækkað áður vegna stríðs-
ins. Afleiðingin af þessu verður
vitanlega sú, að vörurnar hækka
í verði sem þessu nemur. Neyt-
endurnir borga. Það er svo sem
velgjörningur við almenning að
„mentamenn“ bæjarins safna pen-
ingum, ásamt ítölsku fasistunum
frá Abessiníu og Chamberlain, til
að lengja styrjaldarbrask ensku
og frönsku auðfélaganna.
Aðalfundur íþróttafélagsins »Þór*
verður haldinn sunnud. 14. jan. n. k.
kl. 8 e. h. að Hótel Gullfoss.
Hliómleikar verða haldnir í
Nýja Bió á sunnudaginn kemur kl.
3. Vafalaust mun mörgum bæjarbú-
um forvitni á að hlýða á þá, því þá
syngur ungfrú Sigríður Guðmunds-
dóttir Irá Lómatjörn einsöng með
undirleik Róberts Abrahams. Ung-
frúin hefir aðeins einu sinni áðui
sungið einsöng á hljómleikum Sam-
kórs Róberts Abrahams á síðastliðnu
vori við ágætan oröstír. í vetur
hefir Abraham æft með ungfrú Sig-
ríði íslenzk og klassísk en alþýðleg
lög, sem eflaust munu vekja hrifn-
tngu. Á hljómleikunum mun Abra-
ham einnig leika einleik á píanó.
Málfandahópar Æ.F.A. fundur
á mánudagskvöld kl. 8.3o.
Skjaldliorgin íær ca. 30
pús. kr. írá Svíum og
Dönum.
Fréttastofan NORDISK PRESS-
BUREAU flytur þá fregn að ís-
lenski Alþýðuflokkurinn hafi
fengið 10 þús. kr. styrk frá sænska
Verklýðssambandinu, 5 þús. kr.
frá sænska Sósíaldemokrata-
flokknum og 5 þús. kr. frá danska
Verklýðssambandinu og Sósíal-
demokrataflokknum til samans,
eða alls 20 þús. kr. í sænskum og
dönskum peningum, en þetta er
um 30 þús. í íslenskum peningum.
Hermir fregnin að Alþýðuflokkur-
inn hafi farið fram á þennan styrk
til þess að taka upp baráttuna
gegn „kommúnistum“. Eins og
kunnugt er var Skjaldborgin búin
að fá, fyrir nokkrum mánuðum,
250 þús. kr. að láni í Svíþjóð til
þess að halda flokksbrotinu lif-
andi. Altalað er að framkoma Ste-
fáns Jóhanns í sambandsmálinu
eigi rót sína að rekja til þessara
erlendu peninga.
Erlendar fregnir.
Hinn kunni jafnaðarmaður og
meðlimur enska þingsins, Stafford
Cripps, hefir í blaðinu „Tribune“
birt grein í tilefni af æsingum
finsku Rity-stjórnarinnar gegn
Sovétlýðveldunum. Cripps skrifar:
„Framkoma Rússlands er fullkom-
lega rökræn og skiljanleg. Megin-
þátturinn í pólitík þeirra hefir
ætíð verið hin skilyrðislausa
nauðsyn á því að vernda Sovét-
lýðveldin sem hið eina land, þar
sem verkalýðurinn hefir virkilega
tekið völdin.... Eg er sannfærð-
ur um, að þegar alt er grandskoð-
að, hefir tilvera voldugs Rússlands
hina langmestu þýðingu fyrir
verklýðsstéttina um allan heim.
Eg sé alls enga ástæðu til að for-
dæma Rússland fyrir ráðstafanir
sem það gerir til að tryggja sig
sjálft — auðvaldsstjórnir í öllum
heimi neyði það til að gera það“.
í héraðinu Tarnopol í Vestur-
Ukraina hafa fátækustu bændurn-
ir fengið 8627 kýr, 3672 svín og yf-
ir 10.000 hesta, sem auðmennirnir
áttu áður, ennfremur hafa þeir
fengið 213.000 hektara af landi. í
öllum borgum hafa verið settar
á laggirnar lækningastofur, sem
veita fólki ókeypis læknishjálp.
Ný sjúkrahús hafa verið opnuð og
hressingarhæli. Atvinnuleysingj-
um fækkar daglega og fyrir sex
vikum var þegar orðinn skort-
ur á byggingaverkamönnum,
kennurum og vélritunarstúlkum.
Námskeið eru byrjuð fyrir ólæst
og óskrifandi fólk.
í hinni miklu iðnaðarborg
Bialystok í Vestur-Hvíta-Rúss-
landi hefir verið ákveðið að
starfrækja 44 vefstofur í hinum
þjóðnýttu verksmiðjum. Verk-
smiðjan sem tilheyrði áður Herz
& Katz hefir aukið dagsfram-
leiðslu sína úr 22.000 metrum af
dúk upp í 33.000 metra. Áætlun
hefir þegar verið gerð um stækk-
un og endurbætur á verksmiðjun-
um. Nýjar vélar frá Sovétríkjun-
um eru settar niður f stað gömlu
vélanna. í Bialystok hafa 73 vefn-
aðarverksmiðjur, 10 leðurverk-
smiðjur, 4 málmiðnaðarverksmiðj-
ur, 3 leirkeraverksmiðjur, 3 trjá-
iðnaðarverksmiðjur, 1 efnaverk-
smiðja, 1 olíumylla, 1 bruggunar-
verksmiðja og 1 stór gufumylla
verið þjóðnýttar.
Reimleikar í Mentaskólanum. Um þess-
ar mundir er mikið talað um það í bsen-
um að mikilla reimleika verði vart i
Mentaskólanum. Ekki er blaðinu kunn-
ugt um hvernig afturgöngurnar haga
sér, en líklegt má telja að þœr standi I
einhverju sambandi við taugaóstyrk
skólameistara og örlygs sonar hans út
af Finnlandsstríðinu.
Innbrot. Aðfaranótt miðviku-
dagsins var brotist inn í matvöru-
verzlun Kaupfélags Verkamanna hér
bæ. Voru sprengdar upp tvær
hurðir á bakhlið hússins og farið
þar inn. Stolið var einhverju smá-
vegis, svo sem skiptimynt úr skúffu.
Málið er í rannsókn.
Landsk|á|ftakippir fundust hér
i bænum i gærmorgun. Voru hræringar
bessar svo litlar að tiltölulega fáir urðu
varir við þær. Á Húsavík voru hinsvegar
mun meiri brögð að þeim. Voru þeir svo
narpir, sérstaklega einn, að leirtau hrundi
úr skápura og myndir féllu um koll i
hillum. Nokkrum dögum áður hafði orðið
vart við lítilfjörlegar jarðhræringar {
Kúsavík,
húseignir
i innbænum til
sölu.
Bjðro MÉm
málaflutningsmaður.
Hafnarstræti 86 A. Akureyri.
Hillupappir
fæst í
íbúðarhúsið
Breiðablik Hrísey er ti!
sölu, og laust til íbúðar
14. rnaí n. k., semja ber
við
/ónatan Quðmundsson
Strandgötu 49 Akureyri,