Verkamaðurinn - 27.04.1940, Side 4
6
VERKAMAÐURINN
Söngur
æskulýðsfylkinearinRar.
Æskulýður áfram gakktu,
ótrauður þín frelsisspor.
Stæltu viljann, völdin taktu,
verma láttu sól og vor.
Yfir heiðri íslands vaktu,
efldu dáð og treystu þor.
Æskulýðsins upp með merki,
öll í fylking göngum við.
Sýnum hug og hjarta í verki
heilagri skoðun bjóðum lið.
Málstaðurinn stóri sterki
stendur brátt við sigurhlið.
Sósíalismans sigurganga
senn mun íslands taka völd,
inn til heiða, út við dranga
auðvalds nálgast hinsta kvöld.
Skipulag þess rífum ranga,
rennur þá upp frelsisöld.
Ríki fólksins rís af grunni
röðull sveipar loftið blátt.
Inn til dala, út við Unni
er nú horft í sólarátt.
Öll við hrópum einum munni,
upp með sigurmerkið hátt.
J. E. K.
íslenskir ræðismenn
viðurkendir í Bretlandi
og Bandaríkjunum
Bretska utanríkismálaráðuneyt-
ið hefir viðurkent Pétur Bene-
diktsson sem ræðismann íslands í
Englandi. Hefir hann undanfarið
starfað við dönsku sendisveitina í
London. Stjórn Bandaríkjanna
hefir viðurkent Vilhjálm Þór sem
aðalkonsúl íslands i Bandaríkjun-
um. Bandarískur ræðismaður mun
verða sendur til Reykjavíkur á
næstunni.
í Bandaríkjunum og Englandi
er blöðum mjög tíðrætt um hern-
aðarlegt gildi íslands. Vonandi
verðum við svo hamingjusöm að
sú ógæfa heimsæki okkur ekki að
ísland verði orustuvöllur stór-
veldanna.
Fréttastofan Central News
Agentur skýrir frá því, að mann-
tjón Japana eftir 30 mánaða styrj-
öld í Kína nemi 1.400.000 manns.
Hlutfallið milli dauðra og særðra
er 1 á móti 4. í þessum tölum er
ekki innifalið manntjón Japana í
bardögunum við smáskæruhópana.
Skráning atvinnuleysingja fer fram i
Vinnumiðlunarskrifstofunni n. k. föstu-
dag, laugardag og mánudag kl. 3—6 e.
h. Atvinnulaust fólk setti að leggja á-
herslu á að mæta til skráningar til þess
að hægt sé að fá sem glegst yfirlit yfir
atvinnuleysið, þó hinsvegar að núverandi
bæjarstjórn hér og »þjóðstjórnin« muni
þrátt fyrir það engar ráðstafanir gera
tii þess að ráða bót á atvinnuleysinu,
nema því aðeins að samtök atvinnuleys-
ingjanna verði svo öflug að valdhafarnir
neyðist til að láta undan.
Svo
aumur
t
í fyrra sóttu örfáar hræður 1.
maí samkomu „Alþýðuflokksins“ i
Samkomuhúsi bæjarins. Nú hafa
flokksleyfarnar tekið það til
bragðs að auglýsa ókeypis(M)
samkomu af ótta við að enginn
vilji gefa svo mikið sem 5 aura
fyrir að hlýða á Halldór Friðjóns-
son og aðra þá verklýðssvikara er
hafa kjark til að koma opinber-
lega fram eftir að hafa margsvik-
ið alþýðusamtökin. Hvílíkur
„flokkur“! Hvílíkur málstaður
sem ekki er 5 aura virði!
Almenn atvinnuleysisskráning fyrir Akureyrarkaupstað,
hin önnur á þessu ári, fer fram á Vinnumiðlunarskrif-
stofunni í Lundargötu 5, dagana 3., 4. og 6. Maí
næstkomandi, kl, 3—6 síðdegis.
Allir atvinnulausir verkamenn, verkakonur, sjómenn,
iðnaðarmenn og aðrir daglaunamenn eiga að mæta
til skráningar og gefa upplýsingar um atvinnu sína 3
s, I. mánuði, ómagafjölda og annað það, sem krafist
er við skráningu.
Sniðuot svar.
Akureyri 25. Apríl 1940.
Bæjarstjórinn.
Blaðið „New York Post“ skýrir
frá því, að „Finnlands“-nefnd
Hoovers hafi snúið sér til rithöf-
undarins Steinbeck (höfundur
sögunnar „Kátir voru karlar“) og
farið fram a það að hann styddi
starfsemi nefndarinnar.
Steinbeck neitaði og sendi eftir-
farandi svar til Hoover-nefndar-
innar:
„Eg hefi ekki fengið neitt sím-
skeyti frá yður með beiðni um
hjálp handa Spáni og Abessiníu“.
fyrir karla og konur, börn
og unglinga er dreiðanlega
hagkvœmast að kaupa i
Prjónasfofunnt
Framar öllu
skuluð þér muna eftir
að enduruýja.
Hap pdrætli
H á skól ans
getur orðið yður sú hjálp-
arhella, á þessum siðustu
og verstu timum, að þér
getið ktofið hverja þraut.
Og þér:
sem enga miða eigið enn,
athugið nú, hvort ekki sé
þess vert að gera tilraun
Rúid >'r ad draga:
450 vinninga
á kr. 83.200.00
Eftir er að draga:
4550 vinninffa
a kr.066.800.00
Kaupið nýja miða nú fyrir
3 drátt. Freistið gœfunnar.
Skiftið við þá, sem auglýsa í
„ VERKAMANNINUM“.
\ rússneska keisaradæminu voru alls
19.800 læknar. í Sovétríkjunum eru
117.000 læknar. Tala fæðinga er
hvergi jafnhá og í Sovétríkjunum.
Síðastliðin 13 ár hefir raunveruleg
fólksfjölgun í Sovétríkjunum verið
16°/o en 8°/o í auðvaldsríkjunum.
1. maí merbl sem seld eru að til-
hlutun 1. maínefnda Verkamannafélags
Akureyrar, Verkakvennafelagsini >Elning<,
Sjómannafélags Akureyrar, Sósfalistafélags
Akureyrar og Æskulýðsfylkingarinnar eru
rauð og græn slaufa og græn silkiborða-
merkl með ranðri áletrun: 1. mai 1040
Qlpyða Akuieyrar krefst
pess að rafmagnsstöðin
við Laxá verði stækkuð
strax í sumar!
„D r íIu“
Æskulýður Sovétríkjanna.
I auðvaldsheiminum ríkir vaxandi eymd og
1200—1300 miljónum manna hefir verið steypt
út í styrjöfd. Hér á Islandi vex atvinnuleysið
hröðum skrefum og vöruveróið hækkar næs<um
því daglega. Framundan er ægilegra ástand í
atvinnu- og fjármálum en nokkur getur gert
sér grein fyrir. Iðnaðar- og verslunarfyrirtæki
neyðast til að segja upp fjölda manns. Hand-
verksmenn missa atvinnu sína vegna efnisskorts.
Aðeins ein lausn er varanle^.
Sósíalisminn er iausnin •