Verkamaðurinn


Verkamaðurinn - 12.06.1943, Qupperneq 1

Verkamaðurinn - 12.06.1943, Qupperneq 1
r Urskurður Hæstaréttar: Þjóðstjórnarflokkarnirbrutu stjórnarskrána r Utgefendur Hrafnkötlu sýknir saka < S. 1. miðvikudag kvað Hæstiréttur upp dóm í liinu svokallaða „Hrafn- kötlumáli“. Sýknaði Hæstiréttur algjörlega útgefendur Hrafnkötlu, þá Halldór Kiljan Laxness, Ragnar Jónsson og Stefán Ögmundsson. Einnig er því slegið föstu með þessum dómi, að lögin um útgáfu fornrita — hin svokölluðu „næturlög",' sem Hriflu-Jónas narraði meiri- hluta Alþingis til að samþykkja, séu brot á stjóarnarskránni. ísleifur Árnason, prófessor tók sæti í dóminum í stað Einars Arnórs- sonar. Gissur Bergsteinsson hafði sérstöðu í málinu. Dómur Hæstaréttar verður birtur í næsta blaði. Pantellaria á valdi Bandamanna Hersveitir Bandamanna tóku ítölsku eyjuna Pantellaria herskildi í gær. Flugher Bandamanna hefir liald- ið nppi látlausum árásum á Pantellaria síðan Afríkustyjiildinni lauk. Snemma í gærmorgun dró setulið eyjarinnar upp hvítan fána til merkis um, að það gæfist upp. Um hádegi í gær stigu svo hersveit- Hátíðahöld sjómanna á Akureyri Sjómannadagurinn, 6. júní, var að þessu sinni hátíðlega haldinn í fleiri bæjum og kauptúnum en nokkru sinni áður. Hér á Akureyri liófust hátíða- ! höldin með hópgöngu sjómanna kl. 10.30 f. h. Tóku þátt í göngunni meðlimir stéttarfélaga sjómanna ltér í bænum og gengu undir fán- um félaga sinna og íslenska fánan- um, en auk þess var borinn fáni í göngunni, sem ekki liafði sést hér áður við slík tækifæri. Var það fáni Færeyinga og fylktu sér undir merki hans um 20 færeyskir sjó- menn. Að lokinni hópgöngunni hlýddu sjómenn á messu. Eftir hádegið fór fram kappróð- ur á ,,Pollinum“. Tóku 6 róðrar- sveitir þátt í honum. Bar A-sveit Sjómannafélags Akureyrar sigur úr býtum. Reri hún vegalengdina, sem var 1000 metrar, á 4 mín 58,8 sek. Næst var sveit Vélstjórafél. Ak. 4 mín 59,3 sek. Að loknum kapp- róðrinum var keppt í stakkasundi í sundlaug bæjarins. Hlutskarpast- ur var Hilmir Ásgrímsson. Synt var 50 m. vegalengd og synti hann hana á 1 mín. 10,1 sek. Loks fór fram knattspyrna og reiptog á íþróttavellinum. Kepptu aðeins tvö félaög í knattspyrnunni, Sjómannafél. Ak. og Vélstjórafélag- (Frartihald á 4. sfðu). ir Bandamanna á land. Urðu lítils- háttar vopnaviðskifti á allmörgum stöðum, og er talið, að það hafi stafað af því, að yfirforingi setu- liðsins liafi ekki verið búinn að koma skilaboðum til allra eininga setuliðsins. Öll mótspyrna var brot- in á bak aftur eftir 20 mínútur. — Má segja, að þetta eyvirki hafi ein- göngu verið unnið úr lofti og er það einstæður viðburður í hernað- arsögunni. Pantellaria er aðeins um 110 fer- kílómetrar að stærð. En eyjan er engu að síður talin mjög mikilvæg frá hernaðarlegu sjónarmiði. Það er ein höfn og flugvöllur og neðan- jarðarflugskýli. Mun þetta koma Bandamönnum að góðum notum, ef þeir hefja inn- rás á Sikiley, en Pantellaria liggur á milli Bon-höfða í Afríku og Sikil- eyjar, um 70—80 km. frá ströndum Afríku. í fyrradag voru 3 ár liðin frá því að Ítalía sagði Bretlandi stríð á hendur. Hélt Mussolini enga ræðu í tilefni af þessu afmæli. Sáttrtiála Rússa og Banda- ríkjamanna minst í gær var liðið eitt ár frá því, að Sovétríkin og Bandaríkin gerðu með sér sáttmála um gagnkvæma aðstoð í baráttunni gegn nazisman- um. í tilefni af þessu skiftust þeir á skeytum Kalinin og Roosevelt og Molotoff og Cordell Hull. Molo- toff hafði boð inni og voru sendi- herrar Bandaríkjanna og Bretlands meðal gestanna. í grein í ,,Pravda“ var skýrt frá hinni miklu hjálp, sem Bandaríkin hafa látið Sovétríkjun- um í té og segir þar, að íbúar Sovét- ríkjanna viti gjörla um þessa að- stoð, sem sé táknræn fyrir góða samvinnu í baráttunni gegn fas- ismanum. HRIFLU-JÓNAS HÆTTIR AÐ SKRIFA í TÍMANN! HANN SKRIFAR HÉÐAN AF í DAG, SEM VERÐUR MÁLGAGN AFTURHALDSINS í FRAMSÓKN. Jónas frá Hriflu sendi nýlega hirðisbréf til fylgismanna sinna. í hirðisbréfi sínu segir Jónas m. a. eftirfarandi um fyrirhugaðar skriftir sínar: • „Eina ráðabreytni ætla eg þó að gera a. m. k. í bili. Eg hef, eins og áður er sagt, skrifað allmikið í Tímann undangengin 26 ár. En við öll verk verður maður að taka við af manni, kynslóð eftir kyn- slóð, sá dagur hlýtur að korna, að eg verð ekki sjálfboðaliði við Tímann. Eg hef þessvegna nú með sumarkomunni hætt að senda Tímanum greinar. Mér finnst sennilegt að sumum semherjum mínum hafi þótt undanfarin 26 ár vera farin að. nálgast heila mannsæfi og þyki betur farið að nýir menn komi þar til skjalanna. Nú vill svo vel til að flokkurinn á völ á mörgum vel ritfærum v mönnum í höfuðstaðnum, sem hafa gott af að reyna krafta sína. Eg var líka riðinn við stofnun Dags á Akureyri eins og Trmans í Reykjavík. Nú eru útgefendur Dags að færa út kvíarnar og hafa fengið marga menn til að vinna við blaðið og gert það mjög fjöl- breytt, eftir því sem stærð leyfir. Aðstandendur blaðsins hafa óskað eftir, að eg yrði um stund sjálfboðaliði þar og ætla eg að taka því boði. Með þeim hætti vil eg, þótt í litlu sé, jafna metin, að því er vinnu mína snertir, milli þessara blaða“. Menn skilja fyr en skellur í tönnum. Jónas ætlar að gera Dag að málgagni afturhaldsklíkunnar f Framsókn og vonast til þess að beygja „vinstri mennina“ með því móti. Það reynir nú á þá „vinstri“ menn, hvort þeir ætla að halda áfram því einkennilega formi fyrir „vinstri stefnu“ og „baráttu gegn afturhaldi" að beygja sig fyrir Jónasi og skrifa í hans anda, í stað þess að þora að standa fast á róttæku starfi verkalýðs og sveitaalþýðu og gera þá upp sak- irnar við Þá afturhaldsklíku, sem vill kljúfa sveitaalþýðuna frá verkalýðnum, svo auðmenn og afturhald geti deilt og drottnað. Hversvegna vildi Framsókn ekki róttæka umbótastjórn? Bæklingur Brynjólfs Bjarnason- ar: „Samningarnir um vinstri stjórn. Hversvegna vildi Framsókn ekki róttæka umbótastjórn?“ er nú kominn og verður seldur á götun- um. Einnig fæst hann í Fornsöl- unni, hjá Jóhanni Jónssyni, skó- smið, á afgreiðslu „Verkamanns- ins“, Verklýðshúsinu, hjá Stein- grími Aðalsteinssyni, Þingvalla- stræti 14 og Jóhannesi Jósefssyni, Aðalstræti 54. Hjórtaband: Ungfrú Fanney Guð- mundsdóttir, símamær og Friðrik Magn- ússon, lögfræðingur. Andlát. 3. þ ,m. létst að heiimli sínu hér í bænum, Strandg. 39, Guðný Bjarnadóttir, ráðskona. Þá er nýlátinn hér í bænum, Gunnar Benediktsson, Hafnarstræti 86. Sumardvalamefnd hefir merkjasölu á 2. hvítasunnudag, til ágóða fyrir sumar- starfið. Jón ívarsson tekur ekki sæti í Viðskiptaráði Jón ívarsson, kaupfélagsstjóri, skrifaði nýlega Viðskiftamálaráðu- neytinu og tjáði því að hann mundi ekki taka sæti í Viðskifta- ráði. Hefði hann tekið þessa ákvörðun án tillits til þess, hver úrslit mál hans fengi í Hæstarétti. Ráðuneytið hefir tekið úrsögn hans til greina. 4% Samkvæmt bráðabirgðaákvæði reglugerðar um orlof, eiga verka- menn og • aðrir launþegar að fá greidd hjá kaupgreiðendum 4% á vinnuláun sín frá -þeim tíma, er lögin gengu í gildi — 24. maí s.l. — uns orlofsmerkin og orlofsbækurn- ar verða til sölu í póstafgreiðslum. Sýni atvinnurekendur tregðu á að greiða þetta fé, ættu launþegar tafarlaust að snúa sér til stjórnar stéttarfélags síns og fá þar aðstoð til að ná rétti sínum.

x

Verkamaðurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.