Verkamaðurinn - 15.09.1945, Page 1
XXVIII. árg. Laugardaginn 15. september 1945. 34. tbl.
Stórmerkar tillögur um atvinnuframkvæmdir
Almennur sjómannafundur, sem haldinn var hér í bænum1
að tilhlutun Skipstjórafélags Norðlendinga, Vélstjórafélags
Akureyrar og Sjómannafélags Akureyrar, skorar á bæjar-
stjórn að athuga um kaup á Krosanesverksmiðjunni og jörð-
inrii Syðra-Krossanes. — Einnig að bæjarstjórnin reyni að fá
því til leiðar komið, að ríkið láti reisa hér niðursuðuverk-
smiðju á vetrar-, vor- og sumarveiddri síld.
að hrinda máli þessu í framkvæmd
hið hráðasta."
Þá skoraði fundurinn einnig á
bæjarstjórn að tryggja það, að tveir
togarar yrðu keyptir til bæjarins og
gerðir héðan út. (Sjá grein á 3.
síðu blaðsins í dag).
Allar þessar tillögur sjómanna
eru mjög merkar og gæti það gjiir-
breytt atvinnulífinu í bænum, ef
þær yrðu framkvæmdar. Bæjarbúar
munu fylgjast vel nreð hvaða und-
irtektir þær fá hjá bæjarstjórninni.
Tillögurnar verða nánar ræddar
hér í blaðinu innan skamrns.
Utanför
Einars Olgeirssonar
Út af blaðaummælum í sambandi
við yfirstandi utanför herra alþm.
Einars Olgeirssonar, vill utanríkis-
ráðuneytið taka það fram, að það
var samkvæmt eindregnúm óskum
utanríkisráðherra, að herra Einar
Olgeirsson fór utan í þeirn erindum
að aðstoða sendiherra íslands í
Moskva, herra Pétur Benediktsson,
við markaðseftirgrenslan, samn-
ingaundirbúning o. fl., i ýmsum
löndum Evrópu, en það var téður
j sendiherra, sem upphaflega mæltist
til þessa við utanríkisráðherra.
Kirkjutónleikar
„Almennur sjómannafundur hald-
inn á Akureyri 9. þ. m., að tilhlut-
un Skipstjórafélags Norðlendinga,
Vélstjórafélags Akureyrar og Sjó-
mannafélags Akureyrar, skorar á
háttvirta bæjarstjórn Akureyrar, að
hún kynni sér verð og önnur skil-
yrði fyrir kaupum og rekstri
Krossanesverksmiðjunnar, og ef
skilyrði verða með nokkru móti að-
gengileg, þá verði ráðist í kaup á
verksmiðjunni’ ásamt meðfylgjandi
landareign.
Líkur standa nú til, að Krossanes-
verksmiðjan og jörðin Syðra-Krossa-
nes muni vera til sölu og jafnframt
kunnugt, að einstaklingar hafa gert
tilboð í þessar eignir, en hinsvegar
ófært að umrædd landareign, sem
liggur að sjó á stórri strandlengju,
sem er rétt við höfnina, falli í eigu
einstaklinga og ennfremur að trygg-
ur rekstur Krossanesverksmiðjunn-
ar muni hafa afgerandi þýðingu fyr-
ir það, að Akureyri geti aftur orðið
eins og á árunum 1911—1930 einn
af stærstu hluttakendum í síldar-
verkun, hvort heldur væri í salt eða
til niðursuðu í stærri stíl.“
„Almennur fundur sjómanna,
haldinn á Akureyri 9. sept., að til-
hlutun stjórna Skipstjórafélags
Norðlendinga, Vélstjórafélags Ak-
ureyrar og Sjómannafélags Akur-
eyrar, skorar á heiðraða bæjarstjórn
Akureyrar, að hún fái því til leiðar
komið, ef unt er, að ríkið láti
byggja og reka niðursuðuverk-
smiðju hér á Akureyri ásamt frysti-
húsi.
Tillögu þessari viljum vér láta
fylgja eftirfarandi skýringar:
Undanfarið hefir verið fram-
kvæmt af serfróðum mönnum rann-
sókn, fyrir tilstilli hins opinbera,
um skilyrði fyrir rekstri niðursuðu-
» verksmiðju á Norðurlandi, þar sem
aðallega yrði unnið úr ferskri síld.
Hefir þessi rannsókn verið miðuð
við að reist yrði stór verksmiðja á
Siglufirði, en starfstími slíkrar verk-
smiðju þar myndi algerlega tak-
markast 'af hinu skamma veiðitíma-
bili hafsíldarinnar. Hinsvegar er
hér í Eyjafirði árlega síld af öllitm
stærðum, frá því snemma á vorinu
og kunnugt er að flesta vetur eru
möguleikar fyrir síldveiði hér í
firðinum, en Eyjafjarðarsíldin er
mjög ákjósanleg til niðursuðu. —
Mundu því þessi skilyrði fyrir vetr-
ar- og vorveiði hér í Eyjafltði gera
árlegan reksturstíma niðursuðu-
vcrksmiðju lengri, og framleiðslu-
viirur fjölbreyttari, sem gefa ætti
meiri tryggingu fyrir góðri afkomu.
Þar sem í ráði er, að á vegum hins
opinbera verði reist, að lík-indum á
næsta ári, niðursuðuverksmiðja á
Norðurlandi til niðursuð usíldar í
stórunr stíl, en þar sem hinsvegar
hefir en nekki verið tekin ákvörðun
um, hvar sú verksmiðja verði reist,
teljum vér sjálfsagt að framan-
greindar upplýsingar urn síldveiði-
skilyrði í Eyjafirði verði nú fram
færðar og teknar til greina við stað-
setningu væntanlegrar verksmiðju.
Þá má einnig leiða athygli að því,
að verði umrædd verksmiðja reist á
Siglufirði, yrði að sjálfsögðu að fá
nær allt verkafólk, sem verksmiðjan
þyrfti á að halda, aðflutt, eða jafn-
gildi þess til annara starfa þar á
staðnum, þar sem starfstími verk-
smiðjunnar færi alveg saman við
starfstíma síldarbræðslanna og sölt-
unarstöðvanna. En hinsvegar er á
Akureyri nægur vinnukraftur, án
þess að til aðflutnings verkafólks
þyrfti að korna-
Álítum vér að framangreind skil-
yrði mæli svo mikið með, að síldar-
niðursuðuverksmiðja verði bygð á
hér á Akureyri, frekar en á nokkr-
um öðrum stað á Norðurlandi.
Að öllu þessu athuguðu, og þar
sem hér yrði um mjögstórtat-
vinnufyrirtæki að ræða, viljum vér
leggja áherslu á, að bæajrstjórn geri
allt sem í hennar valdi stendur til
Jóliann ]V!íagnús Bjarnason
látinn.
Vestur-íslenzki rithöfundurinn,
Jóhan nMagnús Bjarnason, andað-
ist 8. þ. m. í Kanada. Útförin fór
fram frá Elfros í Sakatchewan á
miðvikudaginn.
Birgir Hallórsson,
söngvarinn vestur-íslenski, sem
sungið hefir við góðan orðstír í
Reykjavík, er væntanlegur til Ak-
ureyrar og ætlar að syngja hér
næstkomandi miðvikudagskvöld. í
för með söngvaranum verður dr.
Victor Urbantschitsch, og mun
hann annast undirleik með
söngvaranum.
Vafalaust má vænta góðrar skemt-
unar hjá þcssum góðu gestum.
Þriðjudaginn 11. þ. m. hélt
JAKOB TRYGGVASON ORG-
ANLEIKARI kveðjuhljómleika í
Akureyrarkirkju. Lék hann ýms
tónverk á orgelið, en söngkór
kirkjunnar söng fimm lög. Enn-
fremur sungu þeir einsöngva, Krist-
inn Þorsteinsson og Guðmundur
Gunnarsson. Áskell Jónsson annað-
ist undirleik við kórsönginn.
Jakob Trvggvason hefir verið
organleikari við Akureyrarkirkju
um fjögurra ára skeið og áunnið
sér hvers manns virðingu og traust,
enda er hann rnjög vel að sér í sinni
mennt. Enn fremur hefir hann æft
og^ stjórnað Lúðrasveit Akureyrar
með þéim árangri, að Akureyringar
og fleiri hafa notið fjölmargra á-
nægjustunda við að hlýða á leik
hennar. En nú hefir Jakob tekið þá
ákvörðun að brjótast áfram til auk-
innar tónlistarmenntunar. Hefir
hann fengið pláss sem nemandi í
Hinum konunglega tónlistarskóla
í London og ætlar að stunda þar
framhaldsnám í tvö ár. Leggur
hann af stað einhvern næstu daga,
°g fylgja honum árnaðaróskir allra,
sem unna hljómlist og kunna að
meta vel unnið starf í þágu hennar.
Þessir hljómleikar fóru mjög vel
fram. Jakob lék fyrst þrjú orgellög
og byrjaði á Interlude eftir Björg-
vin Guðmundsson. Það er mjög
geðþekkt lag og fallega byggt. Hin
lögin voru: Ave Maria eftir Arca-
delt-Liszt og Kóralforleikur eftir
Max Drischner.
Annar kafli hljómleikanna var
einsöngur Kristins Þorsteinssonar
með undirleik Jakobs Tryggvason-
ar. Söng hann þrjú lög. Kristinn
hefir kraftmikla baritonrödd og
syngur hreint, en hættir nokkuð til
að syngja of sterkt, og verður það
til þess, að sú hlýja, sem mér virð-
ist hann áreiðanlega búa yfir, fær
ekki að njóta sín, og röddin verður
harðari en þyrfti að vera, einkum
háir tónar. Annars flutti hann lögin
með talsverðum myndarbrag.
Þriðji kafli hljómleikanna var
söngur Kirkjukórsins. Hófst hann
á Anthem eftir Sveinbj. Svein-
björnsson. Síðan komu lögin: Eg
krýp og faðma fótskör þína eftir
Bortniansky og Það aldin út er
sprungið eftir Prátorius. Voru öll
þessi lög vel flutt. Þá kom það lag-
ið, sem bezt tókst, en það var Cant-
ate Domino eftir V. d'Indy.
Síðast söng kórinn hinn dásam-
lega lokakór úr Kantötu nr. 140 eft-
ir J. S. Bach. Sú kantata er eitt hið
dýrðlegasta listaverk, sem nokk-
urn tíma hefir verið samið. Það er
varla hægt, að búast við, að hægt sé
að flytja slíkt verk svo með þeim
kröftum, sem hér er um að ræða,
að það njóti sín að fullu, en þó
hygg ég, að flestum, er á hlýddu
hafi fundist þessi kór all-svipmikill.
Fjórði þátturinn var einsöngur
(Framhald á 4. síðu).
Búnaðarráðið kemur saman
Hið 25 manna Búnaðarráð er
landbúnaðarráðherra skipaði fyrir
skömmu, kom saman til fyrsta fund-
ar í Reykjavík í sl. viku. Aðalum-
ræðuefnið var verðlagning land-
bú;naðarafurða. Kosin var verðlags-
nefnd landbúnaðarafurða og eiga
þessir menn sæti í henni: Stefán
Stefánsson í Fagraskógi, Sveinn
Jónsson Egilsstöðum, Ólafur í
Brautarholti og Bjarni Sigurðsson
frá Vigur. En Guðm. Jónsson,
Hvanneyri, form. Búnaðarráðs, er
einnig formaður nefndarinnar. —
Nefndin ákvað lækkun á kjöti frá
sumarslátruninni. Lækkar kjötið úr
kr. 12.70 í heildsölu í kr. 11.06 og í
smásölu úr kr. 14.35 í kr. 12.50. —
Eftir 15. þ. m. mun nefndin aug-
lýsa hvað haustverð verður á kjöt-
inu.
„Tíminn“ hefir þegar veitst að
Búnaðarráði fyrir þessa lækkun á
kjötinu. Er ekki að sjá að þeir séu
auralausir setuliðsmenn Framsókn-
ar í Reýkjavík, þótt þeir séu í
stjórnarandstöðu, ef þeim finnst
kjötverðið o£ lágt fyrir sig.