Verkamaðurinn - 05.01.1946, Page 2
2
VERKAMAÐURINN
ÆSKU LYÐSSIÐAN
Er takmark Framsóknar
að forheimska menn?
Það bar til eitt sinn, að einn
áhrifamaður Framsóknarflokksins
ræddi við bónda um, hví annar
bóndi, sem hann nafngreindi, væri
ekki Framsóknarmaður. Svo var til
fetlast, að samtal þetta væri undir
fjögur augu. En „oft er í hölti heyr-
andi nær,“ segir máltækið, og svo
fór í þetta sinn, þau eyru heyrðu
samtalið, sem eigi sáu ástaeðu til að
láta það liggja í þagnargildi. •
Þessi áhrifamikli maður, sem var
úr miðstjórn flokksins, var ekki í
neinum vafa um, hveirs vegna bónd-
inn, sem þeir ræddu um, væri ekki
Framsóknarmaður, það var ofur
einfaldlega af þ>ví, að hann fylgdist
of vel með.
Þarna hafið þið það, hæstvirtu
borgarar, skilyrðin fyrir vexti og
viðgangi Framsóknarflokksins eru
þrjú: fáfræði, og aftur fáfræði, og
enn fáfræði.
Er hægt að hugsa sér aumlegri
grundvöll fyrir stjórnmálaflokk í
lýðfrjálsu landi?
En nú segið þið, lesendur góðir,
að miðstjórnarmaður Framsóknar
hafi hlotið að vera að gera að
gamni sínu, það sé Ómögulegt, að
honum hafi verið alvaira. Nei, vinir
mínir, hann vár ekki að gera að
gamni sínu, honum var fúlasta al-
vara. Og þið getið sannfært ykkur
um, að fáfræðin er grundvöllur
Framsóknar, með því að líta svolít-
ið í kringum ykkur. Athugið hvað
hefir gerst í þessu landi undanfarna
mánuði.
Hversvegna var Framsókn ekki
með, þegar núverandi stjórn var
mynduð? Kunnugir telja eina or-
sökina hafa verið, að þeir vildu
ekki verja þeim innstæðum er þjóð-
in hafði aflað sér erlendis, til káupa
á nýjúm og betri framleiðslutækj-
um. Þegar svo stjórnin samþykkir
að leggja 300 millj. kr. á sérstakan
ireikning, og megi einungis ráðstafa
þeim gjaldeyri til kaupa á ákveðn-
um framleiðslutækjum, kemur
Framsókn með tillögu um að upp-
hæð þessi verði HÆKKUÐ.
Getur nokkur nema sá, sem er
þessum málum ókunnugur, fylgt
flokki, sem rekur svona pólitík?
Tökum annað dæmi, héðan af
Akureyri. Við margar undanfar-
andi bæjarstjómarkosningair hefir
Framsókn lofað að nýtt sjúkrahús
yrði byggt. Hvar er það? Það hefir
enn ekki verið lagður hornsteinn
þess, svo að ég viti. Það eina, sem
gert hefir verið, er að gefa loforð,
loforð, sem ekki átti að efna. Ykk-
ur er kunnugt um það, að ekki
skorti fé til að byggja hér mikla
kirkju og ekki var skortur á bygg-
ingarefni til hennar eða „bænda-
hótels" KEA, en það skorti fé og
byggingarefni í sjúkrahús!
Þetta dæmi bendir til að Fram-
sókn reki ekki pólitík fyrir siðaða
og allsgáða menn, heldur fáfróðan
skríl.
Nú býst eg ekki við, að við Ak-
hreyringar kærum okkur um að
vera kallaður ómenntaður og fá-
fróður skríll, en þeir, sem greiða
Framsókn atkvæði, stimpla sig um
leið að vera það. Hér er enginn
meðalvegur til.
Þau tvö dæmi, sem hér hafa ver-
ið gripin af handahófi af mýmörg-
um, sem úr var að velja, sýna, að
miðstjórnarmanninum úr Fram-
sókn, sem minnst var á í upphafi,
hefir ekki aðeins verið bláköld al-
vara, heldur hefir hann einnig, að
öllum líkindum, getið alveg rétt.
Bóndinn, sem hann var að ræða
um hefir sem sér gert sig sekan um
þann höfuðglæp að gera tilraun til
að fylgjast með landsmálum í sínu
eigin landi, og hann hefir séð, að
pólitík Frámsóknar gekk brjálæði
næst (sbr. æðið sem greip þingmenn
fiokksins í fyrra, er stjórnin var
mynduð), og hefir engan veg og
vanda viljað hafa af þeim sjúkling-
um.
F.g hygg það sé ekki fjarri sanni
að líkja pólitík Framsóknar við
kenningu þá, er einn íslenskur
sveitaprestur boðaði úr prédikun-
arstól, Jrar sem hann sagði, og iagði
mjög ríka áherslu á, að menn ættu
að vera J)röngsýnir, sáluhjálp
manna væri undir því komin. Þess-
um sama klerki mun nú undanfar-
ið hafa verið falið ekki svo veigalít-
ið atriði í uppeldi prestsefna þjóð-
arinnar.
Það leynir sér ekki, að takmark
þessarar stefnu er hið sama: að gera
almenning heimskan, þröngsýnan
og hugsunarlausan um hagsmuna-
mál sín. Með afbrigðum viturleg
pólitík, finnst ykkur ekki!
Það er kannske ekki úr vegi að
athuga, í hverra hag slík stefna er
rekin. F.kki er hún rekin til liags-
bóta fyrir verkalýð bæjanna, því að
þá stétt óttast og hatar Framsókn
mest af öllu; ekki í þágu bænda,
því að fyrir þá læst Framsókn sífellt.
vera að berjast, en er raunar alveg
sama um þá, nema sem þæg þý við
kosningar, og hefir með sveitapóli-
tík sinni undanfarin ár, unnið
Jæim meira tjón en með tölum
verði talið; heldur í þágu stórat-
vinnurekenda, kaupmanna, brask-
ara og annars svipaðs lýðs.
Nei, nú trúið þið ekki. Framsókn
vinnur ekki að hagsmunum kaup-
manna heldur kaupfélaga, segið
þið.
Það vantar nú síst að Framsókn
telji sig berjast fyrir kaupfélögun-
um, enda hefir hún gert það með
svo miklum dugnaði, að henni hef-
I^KBKHKBKBKHKHKHKHKHKBKHKBKHKHKBKBKHKBKHKHKHKHKHKHKHKHKHK
Þegar húsfylli var hjá Framsókn
Hér í bæ er til svolítill F'ramsóknarflokkttr.
Það fylgja honum að vísu ekki margir lengur.
í eigu flokksins er kosninga-kontór nokkur,
Því kosningar þarf að undirbúa eins og gengur.
Það ríkir oftast á kontórnum kyrrð hins dána.
Hann kemur Jrángað lítið flokksmannaskarinn.
Við nöfn þeirra flestra, er skráð voru á fylgjendaskrána,
nú skrifast hin bitru og táknrænu orð: „Hann er farinn".
F.n háttur fólks breytist óvænt með einkennum nýjum,
þegar aðfangadagurinn birtist með dásemd sanna:
Menn rifu sig strax upp úr rúmunum mjúkum og hlýjum
og rigsuðu þráðbeint til skrifstofu framsóknarmanna.
Og áður en varði var fullstaðinn gólfsins flötur,
þó fæstir kæmust inn í þau salarkynni,
svo úti fyrir, um gangstéttir næstu og götur,
greindu menn fjölda líkt og á þjóðhátíðinni.
Það gefur að skilja, slíkt olli talsverðri truflun,
það tepptust á leið sinni allmargir vagnar og bílar.
I troðningnum fékk margur óvart hrinding og hruflun,
á hörund sumra komu rauðbláir dílar.
Hvað olli þessu? Það skírðist nú skömmu síðar,
þeim skilningstregu, sem undruðust háttsemi slíka.
Því Kea auglýsti kvöldið áður svo fríðar
og kjarngóðar appelsínur, fyrir snauða og ríka.
F.n hvaðanæfa koma nú spurningar tíðar:
Fir Kosningaskrifstofa Framsóknar matsala líka?
ÁRVAKUR.
Öllum ber að kjósa
Nú eru þrjár vikur til kosninga,
bæjarstjórnarkosninga hér á Akur-
eyri og í öðrum kaupstöðum þessa
lands. Það fer því að líða að þeim
tíma, að „háttvirtir kjósendur“
geri upp við sig hvern flokkanna
þeir kjósa að styðja til sigurs 27.
jan., hvort þeir kjósa áfram sama
afturhaldið og kyrstiiðuna í mál-
efnum bæjarins, eða hvort þeir
kjósa að styðja sósíalista, til að
koma í framkvæmd áformum sín-
um og tillögum til hagsbóta fyrir
alla bæjarbúa, til alhliða umbóta
og framfara í málefnum bæjarins. I
þessum málum getur enginn verið
hlutlaus. Það getur enginn afsakað
fyrir sjálfum sér né öðrum að taka
ekki ákveðna afstöðu til bæjarmál-
anna. Sá, sem segir: ég er hlutlaus
og skipti mér ekkert af þessari „hel-
vítis pólitík“ gæti ehrs vel sagt: mér
er sama um allt og alla, mér er
(Framhald á 4. síðu).
ir tekist að gera þau að flokksfyrir-
tækjum sínum langflest. Það heyr-
ist heldur ekki ósjaldan að engir
séu samvinnumenn nema Fram-
sóknarmenn. F.n hér sem fyrr vilja
orð þeirra stangast við staðreynd-
| irnar. Var f)að kannske ekki F’ram-
sókn, sem kom mestum bæxlagangi
|af stað í KRON í fyrra? og var það
ikannske ekki Framsókn, með hjálp
íhalds og Krata, sem olli öllum
gauraganginum í Kaupfélagi Sigl-
firðinga í sumar?
Þannig er „samvinnu“-stefna
Framsóknar, hún miðar að einu og
aðeins einu marki: gera öll kaup-
félög að flokksfyrirtækjum Fram-
sóknar.
Þið skuluð ekki halda, að það
séu kaupfélögin sem Framsóknar-
broddarnir unna, nei, ónei, það eru
ekki samvinnufélögin eða sam-
vinnustefnan, heldur peningarnir
sem kaupfélögin ráða yfir og hafa
í umferð, en það Iáta þeir auðvitað
aldrei uppi á opinber^m vettvangi,
svo skini skroppnir eru þeir ekki,
greyin.
Af því, sem að framan segir, held
ég að mönnum ætti að vera ljóst, að
Framsókn er ekki það sem hún sýn-
ist vera, heldur úlfur í sauðargæru,
flagð undir fögru skinni. Það er
mál til komið fyrir þá heiðursmenn
að fara nú að leggja niður falsnafn-
ið Framsóknarflokkur og taka upp
í þess stað heitið Afturhaldsflokkur
eða eitthvað því um hkt.
d + Þ