Verkamaðurinn - 05.12.1947, Blaðsíða 4
4
VERKAMAÐURINN
A íjórða hundrað þúsund mál síldar
hafa veiðst í haust
Ríkisverksmíðjurnar á Siglufirði hafa nú
brætt 100 þúsund mál
Bragi Sigurjónsson viður-
kennir, að atvinnuleysis-
skráningin hafi ekki
verið rétt
Á síðasta bæjarstjórnarfundi
gerðust {>au tíðindi, að Bragi
Sigurjónsson reis upp og sagði
að sósíalistar hafi gert margt tiil
þess að ekki kæmi fram rétt at-
vinnuleysisskráning! Aðspurður
hvað þetta marga væri, gat hann
engu svarað, sem von var til, því
að sósíalist'ar beittu sér fyrir því
að menn létu skrá sig.
Hinsvegar viðurkenndi Bragi
að skráningin hefði ekki gefið
svo rétta mynd af ástandinu sem
skyldi og hefur þar með staðfest
ummæli Verkam. um það efni.
Það virðist því liggja í augum
uppi að eitthvað þurfi að gera
til úrbóta og Hggur að sjálfsögðu
beinast við, að fela verkalýðsfé-
lögunum þetta. verk, eða hefur
Bragi eitthvað við það að at-
huga?
Óhemju síldveiði er stöðugt í
Hvalfirði. Undanfarið hafa öll skip
hlaðið sig á stuttum tíma. Hefur
staðið á flutningi síldarinna r, en
nú hafa mörg skip verið leigð til
síldarflutninga og fjölgar þeim
S'töðugt. Meðal þeirra skipa, sem nú
eru í flutningum, eru Súðin, Fjall-
foss, True Knot og mörg fleiri.
Alls munu nú hafa aflast yfir 300
þús. mál og er ekkert lát á veiði
ennþá. Ríkisverksmiðjurnar á
Siglufirði hafa nú brætt 100 þús.
mál af sunnai^ og vestansíld, en 15
þúsund eru í þróm og 65 þúsund
em á leiðinni að sunnan. Síldin er
brædd í SR46 og SRM. Vinnslan
hefur gengið sæmilega.
Árni Friðriksson telur að sú síld,
sem nú veiðist í Hvalfirði, sé af
öðrum stofni en Norðurlandssíldin.
Annars mun mest á huldu með
þessa síldargöngu, eins og raunar
flest í sambandi við þennan kenj-
ótta fisk. Hinn ágæti vísindamaður,
dr. Hermann Einarsson, vinnur nú
að rannsóknum á þessari síld.
★ KARLAKÓR AKlfREYRAR
heldur samsöng um aðra helgi,
sennilega kl. 5 á laugardag 13. des.
í sambandi við hann verður lusiu-
hátíð með svipuðu sniðrog í fyrra.
★ KONUR!
Miunið eftir bazar Kvenfélagsins
Framtíðin í Samkomuhúsinu í dag
klukkan 4.
Þingmál
Hermann Guðmundsson og Sig-
urður Guðnason flytja frv. um
breyt. á orlofslögunum, þannig, að
hlutasjómenn verði ekki rændir or-
lofsfé.
Áki Jakobsson og Hermann Guð-
mundsson flytja frv. til hagnýtingar
og markaðsöflunar fyrir Faxaflóa-
síld.
Hermann Guðmundsson flytur
till. til þingsályktunar Um ljóskast-
ara í skipum.
Katrín Thoroddsen o. fl. flytja
till. til þingsályktunar um uppeld-
isheimili.
Ásmundur Sigurðsson o. fl. flytja
frv. urn landshöfn í Höfn í Horna-
firði.
Hermann Guðmundsson flytur
frv. um öryggi verkamanna við
vinnu.
Öll þessi mál voru flutt á síðasta
þingi, en urðu þá ekki útrædd.
Þá flytur Hermann Guðmunds-
son frv. um byggingu verbúða og
eftirlit með þeim.
Almennur fundur um áfengismál
Breytingar á úthlutun innflutnings-
og gjaldeyrisleyfa
Bæjarstjórn samþykkir áskorun til Alþingis
Á bæjarstjórnarfundi sl. þriðju-
dag var rætt nokkuð um innflutn-
ingsmálin og hversu hafnir utan
Reykjavíkur hafa þar orðið af-
skiptar. Tillaga var samþykkt í
þessu efni og fer hún hér á eftir.
„Bæjarstjórn Akureyrar telur nú-
verandi tilhögun á veitingu inn-
flutningsleyfa og gjaldeyrisúthlut-
un óviðunandi fyrir allflest byggð-
arlög utan Reykjavíkur. — Með nú-
verandi fyrirkomulagi er bersýni-
lega að því stefnt, að flytja til
Reykjavíkur alla verzlun lands-
manna. Er þegar svo komið, að
fjöldi manna í öllum byggðarlögum
verður að leita til smásala í Reykja-
vík um kaup á margs konar nauð-
synjavörum sökum vöruskorts hjá
verzlunum á staðnum. Af þessum
ástæðum fer bæjarstjórn Akureyrar
þess á leit, að þegar verði tekin upp
sú regla, að skipta innflutningnum
milli verzlunarstaða í hlutfalli við
íbúatölu og þarfir hvers verzlunar-
staðar.
,,Þá átelur bæjarstjórn Akureyrar
það ástand, sem nú ríkir í siglinga-
málum, og skorar á Eimskipafélag
íslands að taka nú þegar upp beinar
samgöngur milli útlanda og aðal-
hafna á landinu eftir fastri áætlun.
Telur bæjarstjórnin að minnstu
kröfur í þessum efnum séu: a) Mán-
aðarlegar ferðir milli Norðurlanda
og Englands til austur- og norður-
lands. b) Mánaðarlegar ferðir frá
Ameríku vestur um land til Akur-
eyrar. Ákveður bæjarstjóm að fela
bæjarráði, eða einum manni til-
nefndum af hverjum flokki, að
vinna að þessum málum við fjár-
hagsráð og ríkisstjórn og Alþingi ef
þörf gerist."
Það er ánægjulegt, að þessi til-
laga skuli koma frá sjálfstæðis-
manni, sem stefnt er svo eindregið
gegn heildsölunum í Reykjavík,
mannanna, sem eiga Sjálfstæðis-
flokkinn.
• FYLGI KOMMÚNISTA
(Framhald af 1. síðu).
10/11 1946 okt. 1947
Kommúnistar 28.2% 30.64%
Sósíaldemokratar 17.9% 16.16%* *
Katólskir 26.0% 12.90%
Fylking de Gaulle 28.66%
Kommúnistarnir fengu m. a. hreinan
meiri hluta í 2/3 hlutum af öllum stærri
borgum landsins.
Við skiljum að þetta eru ákaflega leið-
inlegar fréttir fyrir ritstj. „ísl." og líði
honum ögn skár við að halda sér í blekk-
ingafrétt Ríkisútvarpsins, er sjálfsagt fyrir
hann að gera það, þó að það hafi aldrei
borið vott um gáfur að lemja höfðinu við
steininn eða stangast við staðreyndir.
*) Þessi tala hafði misprentast í 44. tbl.
„Verkam.".
Aukaskammtur af kaffi
og sykri
Skömmtunasrtjórnin hefir nú
gefið út auglýsingu nr. 24, þar sem
tilkynnt er, að fy.rir jólin verðigef-
inn aukaskammtur af kaffi, 250 gr.
(300 gr. óbrennt) og 500 gr. af
sykri.
Stofnauki nr. 15 gildir, sem inn-
kaupaheimild fyrir þessum auka-
skammti.
25. nóvember sl. var haldinn í
Samkoinuhúsinu almennur fundur
um áfengismál. Fundurinn sam-
þykkti margar tillögur. Hér fara á
eftir þær helztu:
„Fundurinn telur núverandi
ástand í áfengismálum, einkum
vaxandi áfengisnautn æskunnar,
svo geigvænlegt fyrir framtíð og
menningu þjóðarinnar, að brýn
nauðsyn beri til að breyta almenn-
ingsálitinu með þróttmikilli bind-
indisboðun, strangri löggæzlu og
markvissu starfi til að útrýma áfeng-
inu úr landinu með algjöru áfeng-
isbanni. Jafnframt minnir fundur-
inn á það, að núverandi drykkju
tízka er afleiðing af afnámi banp-
laganna, þótt andbanningar lofuðu
minnkandi áfengisnautn, ef farið
væri að ráðum þeirra.“
Þá samþ. íundurinn mótmæli
gegn ölfrumv. og áskorun til
Alþingis um að samþ. till. til þál.
um afnám vínveitinga á kostnað
ríkisins og afnám sérréttinda 1
áfengiskaupum.
„Fundurinn skorar á Alþ. að gera
þá breytingu á áfengislögunum, að
áfengisverzlanir megi ékki af-
henda sama manni nema takmark-
að magn áfengis gegn eiginhandar
kvittun. Þessi ráðstöfun ætti að geta
komið í veg fyrir leynivínsölu
sumra bifreiðastjóra og annarra,
sem nú veldur mikilli spillingu í
þjóðlífinu."
Samþ. voru tilL, þar sem skorað
var á Alþ. verja tekjum af áfengis-
sölu til byggingar sjúkrahúsa og
skólahúsa og einnig að láta áfengis-
ráðanaut fá föst laun, svo að hann
geti ferðast um landið.“
„P undurinn skorar á bæjarstjórn-
ir í öllum kaupstöðum landsins, að
láta ekki undir höfuð leggjast að
kjósa áfengisvarnanefndir, eins og
l(")g mæla fyrir, svo að þær geti
fylgst með því, að áfengisútsölur
brjóti ekki áfengislöggjöfina m. a.
með því, að selja unglingum innan
21 árs aldur áfengi.“
„Fundurinn skorar á bæjarstjóm
Akureyrar að veita ekki áfengi í
veizlum.þeim, er hún gengst fyrir.“
„Fundurinn átelur þá veitinga-
húsatízku að afgreiða vínneytendur
á undan bindindismönnum, og fyr-
ir að hafa ekki óáfenga drykki á
boðstólum, þar sem vínveitingar
eru.“
VERKAMENN!
Skiptið við þá, sem auglýsa
í blaði ykikar,
VERKAMANNINUM
★ ANNAÐ HEFTI
Landnemans komiií út. — Út er
komið annað tölublað „Landnem-
ans“, blaðs Æskulýðsfylkingarinn-
ar. Á forsíðu er mynd eftir Kjartan
Guðjónsson. Áki Jakobsson skrifar
grein um nýsköpun atvinnuveg-
anna, kvæði er eftir Hannes Sigfús-
son, og þýdd saga eftir Saroyan. Þá
er Rabb, Nikotinismi, skopmynda-
síða, Gettu nú o. fl. —■ Eins og fyrsta
heftið, er þetta hefti vandað í
fremsta máta, bæði að efni og frá-
gangi. Enginn æskumaður má vera
án þess aS Jesa Landnemann. Gerist
því áskrifendur hans. Hringið í
síma 516.
★ KAUPLAGS VÍSIT AL AN
í desember er 326 stig. Kaup í
alm.' verkamannavinnu hækkar því
úr kr. 9,10 í kr. 9,13. Taxta Verka-
mannafélagsins geta menn fengið í
skrifstofu verkalýðsfél., Strandgötu
7. Skrifstofan er opin daglega frá
kl. 3-7 e. h.
•*— -----------------— ------
Sócíalistafélag Akureyrar
Munið að greiða flokks-
gjöldin reglulega á skrifstof-
unni, Brekkutötu 1.
4.-----—- .. . . . ..------