Verkamaðurinn - 28.05.1948, Blaðsíða 1
VERKAMAÐURINN
XXXI. árg. Akureyri, föstudaginn 28. maí 1948 21. töl.
Amerískt lýðræði:
Bandarískur þingmað-
ur handtekinn fyrir að
ætla að ganga inn um
sömu kirkjudyr og
svertingjar
1. maí var Glen Taylor, öld-1
ungardeildarþingmaður og vara-1
forsetaefni Henry Wallace, ;
handtekinn þegar hann ætlaði !
að ganga inn um sömu dyr og;
svertingjar eða aðaldymar á j
; svertingjakirkju í Birmingham,!
! höfuðborg Alabamaríkis, ætlaði
; Taylor að sitja þar æskulýðs-
! fund svertingja um réttinda-
baráttu þeirra. Taylor var
ákærður fyrir að hafa „truflað
opinbera ró og reglu“ og dæmd-
ur í 180 daga fangelsi, skilorðs-
bundið. Síðar voru 3 hvítir
menn og 1 svertingi handteknir
á umræddum fundi og ákærðir
fyrir að hafa brotið lagaákvæði,
sem banna hvítum mönnum og
svörtum að sitja saman! —
Taylor lét svo ummælt að hann
hefði í hyggju að skjóta máli
sínu til Hæstaréttar.
Henry Wallace sagði í ræðu
í Kansas City daginn eftir þessa
atburði, að það væri „hræsni að
nota milljarða af dollurum er-
; lendis í nafni frelsisins, á sama
tíma og frelsið væri fótum troð-
ið í Ameríku."
í ræðu sinni vék Wallace
einnig að Marshall-áætluninni
og sagði, að það væri áætlun
sem ætti að sjá um að varðveita
ágóða hinna stóru auðfélaga. —
„Fasisminn hér í landinu, en
ekki kommúnisminn, er hin
raunverulega hætta fyrir
Ameriku," sagði hann.
Verður nú halisl henda um
TorfursefsbrygQjunnar?
Reynt að fá innfiutningsleyli fyrir
brezkum steinkerum til slækkunar
b'ryggjunnar
Á föstudaginn í síðustu viku var haldinn aukabæjarstjórn-
arfundur og var þar til unrræðu fundargerð hafnarnefndar
frá 19. þ. m. Var þar einkum gert ráð fyrir að fá brezka inn-
rásarpramma og sökkva þeim framan við bryggjuna. Hafnar-
nefnd flaug svo til Reykjavíkur sl. þriðjudag til þess að reyna
að fá innflutningsleyfi fyrir þessunt steinkerum.
TILLÖGUR
VITAMÁLASTJÓRA.
Á þessum fundi hafnamefndar
mætti vitamálastjóri og lagði hann
fram 5 mismunandi tillögur um
viðgerð syðri Torfunefsbryggj-
unnar.
Tilhögun I: Bryggjan yrði 140
metra löng og 2 metra breið. Með
þessu móti yrði bryggjan jafnlöng
í norður og raninn er nú. Innkant-
ur hennar verði óbreyttur. Áætlað
verð 2.2 millj. kr.
Tilhögun II: Bryggjan verði 115
metra löng og 2 metra breið, eða
jafnlöng fram og hún er nú. Jám-
þil verði sett með innra kanti
hennar og þar dýpkað í 6 metra.
Áætlað verð 2 millj. kr.
Tilhögun III: Bryggjan verði
115 m. löng og 2 m. breið, og að
öðru leyti eins og í nr. II, nema að
innri kantur verði óviðgerður. -
Áætlað verð 1.6 millj. kr.
Tilhögun IV: Járnveggur verði
: gerður kringum núverandi bryggju
slækkun
Undirbúningsvinna við byggingu
dráttarbrautar verður hafin
innan skamms
StofnaS verður hlutafélag, sem lánar
bænum fé til íramkvæmda og til
starfrækslu brautarinnar
Eins og getið hefur verið áður hér í blaðinu, hefur verið unnið að
undirbúningi að byggingu dráttarbrautar nú undanfarið. Samningar náð-
ust ekki við Slippfélagið í Reykjavík um kaup á braut, sem það atti,
en nú hefur fengist loforð um jámbrautarteina frá Noregi, og er nú
unnið að því að fá útflutningsleyfi fyrir þeim.
Að því hefur verið vikið æði oft,
hver nauðsyn það er að koma upp
íullkominni dráttarbraut, en lítið
hefur verið aðhafst í því máli fyrr
en í vetur að útgerðarmönnum
þótti svo búið ekki mega lengur
standa. Hefur nú undanfárið ver-
ið unnið að fjárframlögum til þessa
fyrirtækis og munu fjárframlög
þau nú nema um 300 þús. kr. Var
haldinn fundur með þeim aðilum,
sem lofað höfðu fjárframlögum s.l.
laugardag og samþykkt að stofna
um þetta hlutafélag. Félagið láni
síðan bænum'fé til framkvæmd-
anna, en fái brautina síðan leigða.
Vitamálaskrifstofan hefur unn-
ið að undirbúningi þessa verks og
gert tvær áætlanir varðandi fram-
kvæmd þess.
Gerði hún tvær áætlanir og er
kostnaður samkvæmt þeirri, sem
samþykkt hefur verið áætlaður kr.
1.620 þús. í þeirri áætlun er gert
og verði stærð hennar þá 93x14
metrar. Dýpkað verði í 6 metra
innan við bryggjuna. — Áætlað
verð 1.25 millj. kr.
BREZK STEINKER.
í fimmtu tillögu vitamálastjóra
er svo gert ráð fyrir að fá tvö brezk
steinker og sökkva þeim framan
við bryggjuna. Með þessu móti
yrði lengd bryggjunnar um 124
metrar og breidd um 25 metrar.
Gert er ráð fyrir að fremra kerið
nái jafnlangt fram og raninn nær
nú. Áætlað verð er 1.89 millj. kr.
En hvert ker er áætlað kr. 500
þúsund.
BEZTA LAUSNIN.
Á þvi mun enginn vafi, að þessi
lausn er sú bezta, sem nú er um að
ræða á þessum málum, enda var
það samdóma álit hafnarnefndar
og bæjarstjórnar. Verður því ekki
að óreyndu trúað, að gjaldeyrisyf-
irvöldin torveldi þessa lausn með
því að neita um leyfi fyrir stein-
kerunum, en þau munu nú fáanleg
í Bretlandi.
Hafnarnefnd fór suður til
Reykjavíkur sl. þriðjudag flugleið-
is til þess að vinna að þessum mál-
um við gjaldéyrisyfirvöldin, en að
öðru leyti var vitamálaskrifstof-
unni falið að sjá um framkvæmdir
verksins og útvegun efnis. Vænta
bæjarbúar þess að hafnarnefndin
fari ekki erindisleysu, og að gjald-
eyrisýfirvöldin veiti leyfi til þess
að þess ker verð flutt til landsins.
+ SÖNGDEILD
kvennadeildar Slysavarnafélags-
ins syngur í Nýja-Bíó kl. 2 á
sunnudaginn. Ágóðinn rennur til
starfsemi Slysavarnafélagsins.
ráð fyrir að allar undirstöður verði
steyptar, en það er talið mjög
nauðsynlegt vegna tréátunnar.
Gert er ráð fyrir því að vinna
geti hafist á næstunni við undir-
búning brautarinnar, þar sem að-
eins mun eftir að ákveða brautinni
nákvæmlega stað, en það mun
verkfræðingur frá vitamálaskrif-
stofunni gera innan skamms.
Braut þess mun taka 4-500
tonna skip.
„Alþýðumaðurinn“
reynir að gera sannleik-
ann að blekkingu
Alþýðum., sem út kom sl.
þriðjudag, reynir enn að klóra í
bakkann vegna afstöðu bæjarfóget-
ans til bæjarútgerðar, í grein sem
ber nafnið: „Er sannleikurinn
blekking?
Blaðið gerir í þessari grein, sem
er ákaflega ómerkileg, tilraun til
þess að gera sannleikann að blekk-
ingu. Blaðið segir að „ekkert er-
indi fró Útgerðarfélagi Akureyr-
inga hafi verið tekið fyrir í bæj-
arráði síðan Steindór kom heim“
og að slíkt erindi hafi alls ekki
legið fyrir bæjarráði.
Ritstjóra Alþýðum. flökrar
sannast að segja ekki við lýginni,
því að í þessum tilfærðu ummæl-
um er öllu snúið öfugt. Erindið var
lagt fyrir bæjarráð, en afgreiðslu
þess frestað eftir beiðni Steindórs.
En þannig málflutning kallar
Bragi Sigurjónsson ekki að gera
sannleikann að blekkingu.
„Kaldbakur44 farinn
í aðra Þýzkalandsför
„Kaldbakur" nýsköpunartogari
Akureyrar lagði af stað í aðra
Þýzkalandsferð sína fyrra fimmtu-
dag, og hafði skipið þá verið 9
daga í veiðiferð og fengið full-
fermi.
Þar sem skipstjórinn, Sæmund-
ur Auðunsson, tók sér nokkurra
daga hvíld, sigldi Þorsteinn Auð-
unsson stýrimaður skipinu út.
+ SUNNUDAGINN
kemur verða seld merki til
ágóða fyrir starfsemi Mæðra-
styrksnefndar. Verða þau borin í
húsin og seld á götunum. Væntir
nefndin góðra undirtekta nú eins
og undanfarið. Bæjarbúar, styrkið
gott málefni og kaupið merki
Mæðradagsins.
Blómabúð KEA verður opin frá
kl. 9—12 á sunnudagsmorguninn
og geta þeir, sem gleðja vilja mæð-
umar, keypt sér blöm þar á þeim
tíma.
Stjórnarkreppunni
lokið í Finnlandi
Eino Kilpi utanríkisráð-
herra — Herta Kuusinen
fær sæti í stjórninni
Verkföllunum aflýst
Fyrir nokkrum dögum síð-
an hófst stjórnarkreppa í Finn-
landi og var orsök hennar sú,
að forsetinn vék kommúnist-
anum Leino úr embœtti inn-
anríkisráðherra.
Mótmælaverkföll voru þá hafin
og kröfðust verkamenn þess að
þetta embætti skipaði áfram full-
trúi frá Lýðræðisbandalaginu, en
það er samtök kommúnista og
annarra róttækra flokka. Héldu
verkföllin áfram að breiðast út
fram á síðustu stund. Hafnarverka-
menn í öllum hafnarborgum Finn-
lands, nema í Jakobstad og Kolku,
voru í verkfalli. í Lathi var alls-
herjarverkfall. í þungaiðnaðinum í
Helsingfors, Tammerfoss, Vasa,
Ábo, Kajana, Ulleáborg og víðar
voru verkföll og einnig í fjölda-
mörgum sögunarverksmiðjum í
sveitum Finnlands.
Eino Kilpi, samherji Leinos,
hefur nú tekið við embætti innan-
rikisráðherrans.
Kilpi var áður menntamálaráð-
herra, en við því embætti tekur
Lennart úr Bændaflokknum, en
hann var áður aðstoðarfélagsmála-
ráðherra, tekur sósíaldemokratinn
Kelkonen við því.
Herta Kuusinen, kona Leinos og
formaður þingflokks Lýðræðis-
bandalagsins, fær sæti í stjórninni
án sérstakrar stjórnardeildar. Tala
ráðherra hvers flokks í stjóminni
er óbreytt.
Þjóðfylkingin á Ítalíu
starfar áfram
I yfirlýsingu, sem flokkur
ítalskra jafnaðarmanna (Nennis)
hefur gefið, er m. a. komizt svo að
orði, að Þjóðfylkingin verði að
starfa áfram „af því að fána henn-
ar má ekki láta síga niður án þess
að skapa ringulreið meðal þeirra
afla, sem hafa barizt gegn aftur-
haldinu og sem standa andspænis
nýrri og harðri baráttu." Er þetta
hæfilegt svar til þeirra, sem hafa
látið í ljós þá von, að jafnaðar-
mennirnir mundu draga sig út úr
Þjóðfylkingunni.
Nýtt hefti af RÉTTI
I nýja heftinu af Rétti eru að vanda athyglisverðar greinar
og saga eftir Sigurð Róbertsson.
Brynjólfur Bjamason ritar um stjórnmálaþróunina innan-
lands á hessu ári. Jóhannes úr Kötlum á barna tvær greinar,
„Överland boðið til íslands“ og „Hvar stöndum vér“, og loks
er þýdd grein „Helgreipar einokunarauðvaldsins“, um hinn
alræmda Schröderbanka og sambönd hans.
Réttur fæst á afgreiðslu Verkamannsins, Brckkugötu 1.
Allir sósíalistar og áðrir frjálslyndir menn þurfa að vera á-
skrifendur að þessu ágæta tímaritL
iiiiuiiiiiiiiMimiiiiiii
IIMMMMIIIIIIMIIIItMIMMIIIIIIIIilltlMIIHIIMMMIIIMIIMMKMMlÍMIMMMMIIIIIIIItHtlllllHIIMA