Verkamaðurinn - 21.01.1949, Side 4
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiaiiiKii■ 1111111111111111111111111141111 iiiiiiiiiiiiiuiiiimmiiiitnm11iiiiiiiii11111iiiii iiiiii 1111 ii 11
Akureyringar!
Þar sem vatnið úr fjallinu er farið að minnka,
eins og áður um þetta leyti árs, eruð þið alvar-
lega áminntir um að ifara sparlega með það, láta
ekki renna að óþörfu, hvorki nótt né dag.
Minnist þess, að það er slæmt að vera vatnslaus
meirihluta sólarhringsins, og óþolandi, þegar það
er fyrir hirðuleysi þeirra, sem vatnið hafa.
Vatnsveitan.
1111111 ■ 11 ■ 11 • ■ 111111 ■ ■ 1111111111 ■ i
11n■111-11 iiii 11
11111ii11n11■■ ii■ 111 i
itiiiiiiiiiiin.
Stjórn og trúnaðarrað
Iðju, fél. verksmiðjufólks á Akureyri, hefir sam-
þykkt að láta fara fram allsherjar atkvæðagreiðslu
um uppsögn á kaup- og kjarasamningi félagsins
við S.I.S. og K.E.A., og fer atkvæðagreiðslan fram
í Verkalýðshúsinu laugardaginn 22. janúar kl.
4—7 e. h. og sunnudaginn 23. janúar kl. 1—4 e. h.
Akureyri, 17. janúar 1949.
Stiómin.
.......í
Hús t'l sölu
%
Húseignin Hafnarstræti 41
hér í bæ er til sölu. — Tilboð
sendist fyrir lok þessa mánað-
ar undirrituðum, sem gefur
nánari upplýsingar.
Bæjarfógetinn á Akureyri,
14. jan. 1949.
F. Skarphéðinsson.
IILSÖLU
Vélar, tæki og efni ljós-
myndastofu db. Hallgríms
Einarssonar, Hafnarstræti 41,
er til sölu. — Tilboð sendist
fyrir lok þessa mánaðar undir-
rituðum, sem gefur nánari
upplýisingar.
Bæjarfógetinn á Akureyri,
14. jan. 1949.
F. Skarphéðinsson.
MENNTSKÆLINGUR
Nokkrir nemendur í M. A. hófu
x fyrra vetur útgáfu f jölritaðs blaðs
er þeir nefndu „Menntskæling“. I
vetur hafa þeir aukið þessa útgéfu-
starfsemi og gefa blaðið nú út
prentað og myndskreytt. 2. tbl.
þessa árgangs er nú nýkomið út og
hefur borizt blaðinu. Af efni þess
má nefna: Baldur Hólmgeirsson
ritar um Leikstarfsemi í M. A., er
þar rakin saga leikstarfsemi í
Menntaskólanum, en þann 20.
marz sl. voru 20 ár liðin frá því að
leikrit var fyrst sett á svið af nem-
endum í M. A. Glanni ritar trage-
diu í 10 þáttum er nefnist Skóhlíf-
arnar. Smásögur eru eftir J, Haust,
Sæmund Helgason, Frá einum stað
til annars og Hörð, Skip kemur og
fer. Kvæði eru eftir Hauk Oskar,
J, Jökul og Sæmund Helgason. —
Ýmislegt fleira efni er í þessu
blaði, sem er 32 síður, í átta blaða
broti. Ritstjórn skipa: Friðrik Þor-
valdsson, kennari, Guðfinnur
Magnússon, Halldór Þ. Jónsson og
Baldur Hólmgeirsson.
Maccaronur
Ediksýra
Norðurgötu-
Söluturninn
YERKAMAÐURINN
Saumaskapur
Tek að mér að sauma
barna- og unglingafatn-
að. — Upplýsingar í
Ránargötu 1, niðri, milli
kl. 3 og 5 e. h.
TILKYNNING
frá Skattstofu Akureyrar
Skattstofan verður opin frá kl. 10—12 f. h. og frá
kl. 1—10 e. li. frá og með mánudeginum 24. þ. m. til
mánaðarmóta.
Aðstoð er veitt við að útfylla skattaframtöl á fyrr-
greindum tíma. Þeirn, sem ekki ha-fa talið frarn fyrir 31.
þ, m, verður gerður skattur.
Atvinnurekendur eru áminntir um að skila vinnu-
skýrslum tafarlaust að viðlögðum dagsektum.
Þeir, sem óskilað eiga söluskattskýrslum fyrir síð-
asta ársfjórðuiíg 1948, eru minntir á að gera það tafar-
laust.
Skattstofa Akureyrar.
Auglýsing
Nr. 1/1949
frá skömmtunarstjóra
Skömmtunarreitirnir Skammtur nr. 4 og 5 á FYRSTA
SKÖMMTUNARSEÐLI 1949 gildir hvor um sig fyrir
V2 ^g- af skömmtuðu smjöri til 31. marz 1949, þó þannig
að skammturinn nr. 5 gengur ekki í gildi fyrr en 15.
febrúar n. k.
Þær verzlanir einar, sem gert hafa fullnaðarskil á
skömmtunarreitum fyrir snrjöri og skilað birgðaskýrslu,
geta fengið afgreiðslu á skömmtuðu smjöri.
Reykjavík, 7. jan. 1949.
Skömmtunarstjóri.
111 ■ 1 ■ 111111111 ■ 111111
111111111111111111'.
"iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiin111111111111111111111111111111111111111
Happdrættislán rikissjóðs
Þann 15. febrúar n. k. verður dregið í fyrsta sinn í B-flokki Ha ppdrættisláns ríkissjóðs. Dregið verður þá um 461 vinning, samtals
að upphæð 375 þúsund krónur, þar af 1 vinningur 75 þúsund krónur, 1 vinningur 40 þúsund krónur, 1 vinningur 15 þúsund krónur og
3 vinningar 10 þúsund krónur — allt skattfrjálst.
Samtals eru í B-flokki 13,830 vinningar, að heildarupphæð rúmar 11 millj, kr.
Hver sá, sem LÁNAR ríkissjóði í nokkur ár andvirði eins eða fleiri happdrættisskuldabréfa, fær tækifæri til þess að vinna einhverja
af þeim mörgu og stóru happdrættisvinningum, sem hér eru í boði. Vinningslíkur eru allverulegar, því að vinningur kennir á næstum
tíunda hvert númer. Hvert happdrættisskuldabréf jafngildir þeim 100 krónum, sem greiddar eru fyrir það, en
Verðgildi eins happdrættisbréfs getur þúsundfaldast.
\
Fé það, sem þér verjið til kaupa á happdrættisskuldabréfum ríkissjóðs, er því alltaf öruggur sparisjóður, en getur auk þess fært yður
háar fjárupphæðir, fyrirhafnar- og áhættulaust.
Athugið, að hér er aðeins um fjárframlög í eitt skipti fyrir öll að ræða, því bréfin gilda lyrir alla þrjátíu útdrætti happdrættisvinn-
inganna. Nauðsynlegt er því fyrir fólk að kaupa sér bréf nú þegar, svo að það geti verið með í happdrættinu öll skiptin.
Flappdrættislán ríkissjóðs býður yður óvenjulega hagstætt tækifæri til þess að safna ö r u g g u sparifé, freista að
vinna háar fjárupphæðir áhættulaust og stuðla um leið að mikilvægum framkvæmdum í þágu þjóðarheildarinnar.
Þetta þrennt getið þér sameinað með því að kaupa nú þegar
Happdræltisskuldabréf ríkissjóðs