Verkamaðurinn - 11.02.1949, Side 4
•iiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiimimiiiiimiiMifMiMiHMiimimiiiiimmiiiMiiiiiiiiimiiiiiiinmiMiiiiiiiiimiiiiiimimiiiiii
s
Scvétríkin viija skjóta
afvopnun
I Vesturveldin hafa þegar hafnað tillögunum
og vilja ekkert nema áframhaldandi
styrjaldarundirbúning
Sovétríkin hafa lagt fyrir Öryggisráðið nýjar tillögur
| um skjóta afvopnun stórveldanna. Á fundi ráðsins fyrir
[ nokkru lagði Malík, fulltrúi Sovétstjórnarinnar, fram
§ eftirfarandi tillögur:
1. Stórveldin finrm gefi tæmandi skýrslur um
hernaðarmátt sinn fyrir lok marzmánaðar
í næstkomandi.
2. Gengið verði frá sáttmála um alþjóðlegt
kjarnorkueftirlit og kjarnorkuvopn bönnuð
fyrir júnílok í surnar.
3. Stórveldin fimm fækki um þriðjung í her sín-
um, flugher og flota fyrir júnílok Í950.
Fulltrúi Bandaríkjastjórnar í Öryggisráðinu lagðist
i strax gegn afvopnunartillögum þessum.
öryggisráðið, eða meiri hluti þess, það er Vesturveld-
| in og fylgiríki þess, hafa hafnað þessum nýju tillögum.
• Nýjustu lýðræðisaðferðir
Símskák við Reykjavík
Tefld 22. janúar 1949.
Hvítt: Asgrímur Agústsson, T. R.
Svart: Hallgr. Benediktsson, S. A.
Vínarleikur.
1. e2—e4 e7—e5
2. Rbl—c3 Rg8—f6
3. Bfl—c4 Rf6xe4
4. c4xt7f Ke8xf7
5. Ddl—h5t Kf7—g8
6. Rc3xe4 Rb8—c6
7. Rgl—e2?
Betra hefði verið d2—d3.
7 g7—g6
8. Dh5—f3 d7—d5
Q
Slæmur leikur. Drottningarstaða
hvíts er mjög erfið, vofir yfir
manntap.
9. . e5—e4
10. Df3—g3 Rc6—b4
11. 0—0 Rb4xc2
12. Hal—bl Bc8—f5
13. Dg3—e5?
Vanhugsaður leikur. Svartur
leikur nú c7—c6, og er þá hvíta
drottningin í hættu.
13 c7—c6
14. De5—g3 Bf8—d6
15. f2—f4 d5—d4!
10. Rc3xe4 Bf5xe4
17. Dg3—b3t Be4—d5
Hér hugsar hvítur sér að vinna
mannin naftur, en hætta' vofir yfir
hvítum í hverjum leik.
18. Db3xc2 d4—d3!!
19. Dc2xd3 Bd6—c5t
20. Hf 1—f2 Dd8—b6
21. Dd3—g3 Hd8—e8
22. d2—d4 Bc5xd4
23. Re2xd4 He8—elt!
24. Hf2—fl Db6xd4t
25. Dg3—f2 Helxflt
26. Kglxfl Dd4—d3t
27. Df2—e2 Bd5—c4
Gefur.
Þessi skák var ein fjörugasta er
tefld var þessa nótt. Svart hefur
teflt hana örugglega og að mörgu
leyti vel. Hvítt tefldi hins vegar
veikt framanaf, en varðist vel und-
ir það síðasta.
Aahs. J. Ingimarsson.
Úrslit urðu þessi:
1. Júlíus Bogason A. %, Guðm.
S. Guðmundsson R. Vz- — 2. Jó-
hann Snorrason A. V2, Lárus
Johnsen R. %. — 3. Unnsteinn
Stefánsson A. 0, Eggert Gilfer R.
1. — 4. Jón Ingimarsson A. V2,
Aðalsteinn Halldórsson R. V2. —
5. Ottó Jónsson A. V2, Friðrik Ól-
afsson R. V2. — 6. Steinþór Helga-
son A. 1, Benóný Benediktsson R.
0. — 7. Hallgr. Benediktsson A. 1,
Ásgrímur Ágústsson R. 0. — 8.
Björn Halldórsson A. 0, Sveinn
Kristinsson R. 1. — 9. Margeir
Steingrímsson A., Árni Stefáns-
son R. (biðskák). — 10. Albert
Sigurðsson A. V2, Hjalti Elíasson
R. V2. — Akureyri 4J/2 vinning.
Reykjavík AV2 vinning
1 skák óútkljáð.
Kaupi velunna
Leista, Sokka og
Sjóvettlinga
o. fl. Prjónavörur.
Verzlun
Bjöms Grímssonar
Aðstoðarhafnarvörður
Bæjarráð samþykkti á fundi
sinum 13. f. m. að ráða aðstoðar-
hafnarvörð og að hafnarverðirnir
taki jafnframt að sér vatnsafhend-
ingu til skipa og innheimtu vatns-
gjalda.
Hafnarnefnd samþykkti þessa
tillögu fyrir sitt leyti og lagði jafn-
framt til að laun aðstoðarhafnar-
varðar yrðu að 2/3 greidd af
vatnsveitunni og *l/3 af höfninni.
Bæjarstjórn hefur svo samþykkt
þessar tillögur.
Enn seinkar Svalbak
Afhendingu Svalbaks frá smíða-
stöðinni hefur enn seinkað. Mun
hann sennilega ekki verða tilbú-
inn fyrr en í maí.
Upphaflega átti hann að vera
tilbúinn í október sl. ár, síðan var
því frestað þar til í maiz.
Mindszenty dæmdur
í æfilangt fangelsi
Alþýðudómstóllinn í Budapest
kvað sl. þriðjudag upp dóm í máli
Mindszentys kardinála og sex ann-
arra manna, sem höfðu verið
ákærðir fyrir landráðastarfsemi' og
fleira.
Mindszenty var dæmdur i æfi-
langt fangelsi fyrir þátttöku í sam-
særi gegn ungverska lýðræðinu,
landráð og gjaldeyrisbrask á svört-
um markaði.
Af þeirr, sem ákærðir voru með
kardinálanum, hlaut einn æfilangt
fangelsi, tveir voru dæmdir í
fimmtán ára fangelsi og þrír í tíu,
sex og þriggja ára fangelsi. Sak-
sóknari hins opinbera hafði krafist
dauðarefsingar handa Mindszenty,
en rétturinn féllst ekki á það og
leit þannig á að um mildandi
kringumstæður væri að ræða, þar
sem kardinálinn hefði játað sekt
sína og hefði verið undir sefjandi
áhrifum bandarískra stríðsæsinga.
Iíaldbakur veiddi
vel
Kaldbakur kom af veiðum frá
Vesturlandi sl. þriðjudag með nær
fullfermi. Hann fór samdægurs til
Englands. Hann er með góðan
markaðsfisk og má búast við góðri
sölu.
Gera má ráð fyrir að hann stöðv-
ist er heim kemur, verði kaupdeila
togarasjómanna ekki leyst þá.
ÞJÓÐVÖRN,
málgagn Þjóðvarnarmanna,
er selt hér á Akureyri í bóka-
verzl. Gunnl. Tr. Jónssonar og
bókaverzl. Axels Kristjánssonar
h.f. í ritnefnd þess eru: Friðrik A.
Brekkan, rithöfundur, Hallgrímur
Jónsson, kennari, Klemenz
Tryggvason, hagfræðingur, Krist-
ján Eldjárn, þjóðminjavörður, Jón
Hjaltason, stud. jur., Jón Jóhann-
esson, dr. phil dósent, Magnús
Finnbogason, menntaskólakennari,
Matthías Jónasson, dr. phil., Pálmi
Hannesson, rektor, Sigríður Ei-
ríksdóttir, hjúkrunarkona, sr. Sig-
urbjörn Einarsson, dósent.
Kona lærbrotnar og
liggur úti á þriðja
sólarhring
Sl. mánudag fór kona frá Kirkju-
bóli á Hvítársíðu og ætlaði til bæj-
ar skamma leið i burtu. Á leiðinni
varð hún fyrir því slysi að detta og
lærbrotna. Svo hörmulega tókst til
að konan lá úti á þriðja sólarhring,
áður en hún fannst.
Konan er 77 ára gömul.
Hersveitir kommúnista
rétt við Shanghai
Hersveitir kínverska alþýðu-
hersins eru nú komnar rétt að
Shanghai, stærstu borg Kína. Búist
er við að yfirvöld borgarinnar
semji sérfrið við kommúnista og að
þeir táki þannig borgina bardaga-
laust. — Hver höndin er upp á
móti annarri i stjórn Kuomintang-
flokksins.
(Framhald af 1. síðu).
þjóðina og sjálfstæði hennar. Sam-
bandsstjórn Æ. F. tók mál þetta
til umræðu á stjórnarfundi 29. des.
sl. og var þá meðal annars ákveð-
ið, að Æ. F. hæfi baráttu fyrir sitt
leyti með framkvæmd eftirfar-
andi atriða:
1. Æskulýðssíða Þjóðviljans
skyldi endurskipulögð með tilliti
til þess, að hún yrði sem sterkast
vopn i baráttunni gegn hernaðar-
bandalaginu.
2. Ákveðið var, að efnt skyldi til
fjölmenns fundar innan Æ. F. R.
um mál þetta.
3. Hafin skyldi könnun innan
ýmissa félaga um afstöðu þeirra í
máli þessu og síðan reynt að efna
til ráðstefnu með þeim, er tækju
afstöðu gegn hernaðarbandalaginu,
um sameiginlega baráttu gegn því.
Mætti t. d. nefna almennan borg-
arafund, er slík samtök efndu til.
Sambandsstjóri Æ. F. hlýtur að
fela deildum sínum framkvæmd
þessara atriða utan Reykjavíkur, þ.
Mikið atvinnuleysi
á Siglufirði
Undanfarið hefur farið fram
skráning atvinnulausra á Siglufirði.
Skráðir voru 134 atvinnulausir,
þar af 45 einstaklingar og 85 heim-
ilisfeður með 256 manns á fram-
fæir.
Margir Siglfirðingar hafa farið í
atvinnuleit suður á land með mis-
jöfnum árangri.
ÚR ÝMSUM
ÁTTUM
Útvarp gríska þjóðfrelsishersins
hefur tilkynnt að Markos hershöfð-
ingi hafi verið leystur frá störfum,
sökum lasleika sem hann hefur
þjáðst af mánuðum saman. Hefur
Ionnides, sem gegnt heíur embætti
innanríkisróðherra, verið skipaður
eftirmaður Markosar til bráða-
birgða, sem yfirmaður Lýðveldis-
hersins og forsætisráðherra stjórn-
ar Frjálsra Grikkja.
Kreppan í Bandaríkjunum er að
fæðast. Samtímis því sem vöru-
birgðirnar hlaðast upp, vex at-
vinnuleysið óðfluga. Tvo síðustu
mánuði sl. árs minnkaði eftirspurn-
in eftir vörum mjög verulega,
framleiðslan var skorin niður í
nokkrum iðnaðgrgreinum og verka-
fólki sagt upp vinnu eða vinnu-
tími þess styttur. Tala atvinnuleys-
ingja var 200.000 hærri ínóvember
en í október. Samkv. hagskýrslum
viðskipíamálaráðuneytisins hafði
tala þeirra, sem unnu við fram-
leiðsluna aðeins 15 til 34 klst. á
viku hækkað úr 7.200.000 upp í
10.400.000 á tímabilinu frá 9.
október til 13. desember. Nokkrar
verksmiðjur, sem framleiða raf-
magnstæki hafa sagt upp rúmlega
helmingi starfsfólks síns. I vefnað-
ariðnaðinum og skóiðnaðinum var
um 100 þús. verkamönnum sagt
upp tvo síðustu mánuði ársins.
Kolaframleiðslan hefur einnig ver-
ið minnkuð.
e. a. s. að halda fjölmenna félags-
fundi um málið, — og skal það
tekið fram, að engin ástæða er til
að amast við utanfélagsmönnum á
slíkum fundum. Þá er og brýn
nauðsyn þess, að reynt sé að efna
til samtaka með sem flestum öðr-
um félögum gegn máli þessu, og
gegnir þar vitanlega sama máli
hvort þau eru pólitísk eður ei.
Þá ber og málgögnum ungra sósí-
alista, hvar sem er, að taka þegar
upp harða baráttu.
I sambandi við félagsfundi um
mál þetta ber að leggja ríka
áherzlu á, að framsaga sé falin sem
hæfustum mönnum, og að þeir geri
sér far um að undirbúa sig sem
bezt.
Sambandsstjórn Æ. F. er nauð-
synlegt að geta fylgzt sem bezt
með gangi þessa máls á hverjum
stað, og væntir hún þess, að deild-
irnar hafi samband um það við
skrifstofuna í Reykjavík, ef ástæða
er til.
Að lokum skal lögð rík áherzla
á það, að baráttan sé tekin upp
sem fyrst, og þarf slíkt að sjálf-
sögðu engrar útskýringar.
F. h. sambandsstjórnar Æ. F.“.
(Undirskriftir).
FRÍMERKI
r Útlend frímerki ávallt í miklu \
1 úrvali, t. d. 100 mism. merki á |
i 5.00 og 500 stk. á 17.50. Sent I
1 burðargjaldsfritt. — Skrifið eftir \
\ lrekai i upplýsingum.
§ Jónsteinn Haraldsson, f
Gullteig 4, Reykjavík.
Raksápa,
Shampoo,
Þvottaduft,
Sólsápa,
Grænsápa,
PÖNTUNARFÉLAGIÐ
og útibú.
Til sölu:
BRAKKI, innréttaður til
íbúðar.
Upplýsingar í síma 544.
Nýkomið
Cornflakes
Hveiti í pk. og 1. vigt
Hafragrjón
í pk. og 1. vigt
Baunir í pk.
Hrísgrjón í pk.
Kartöflumjöl
Hrísmjöl.
Verzlun
Bjöms Grímssonar
Sími 256.