Verkamaðurinn


Verkamaðurinn - 04.03.1949, Qupperneq 2

Verkamaðurinn - 04.03.1949, Qupperneq 2
VERKAMAÐURINN 2 Föstudaginn 4. marz 1949 VERKAMAÐURINN Utgeíandí: Sósíalistaíélag Alcureyrar. Ritstjóri og óbyrgðarmaður: Þórir Daníelsson. Blaðstjórn: Ásgrímur Albertsson, Eyjólfur Ámason, Jakob Árnason. Ritstjóm og afgreiðsla á skrifstofu Sósíalistafélags Akureyrar, Brekku- götu 1 — sími S16. Áskriítargjald kr. 20 á ári. — Lausasöluverð 50 aura eintakið. Prentverk Odds Björnssonar h.f. Verkbann togaraeigenda er svik •\ 1 • F vio pjooina Verkbann togaraeigenda hefur nú staðið það lengi að þjóð- in hetur tapað á annan tug milijóna í erlendum gjaldeyri og eykst tapið um hálja milljón með hverjum degi, sem líður. Væri iiér um að ræða verkfall togaraliáseta, sem krefðust bættra kjara, vegna hinnar hraðvaxandi dýrtíðar og minnk- andi kaupmáttar launanna, þá væri sannarlega farið að syngja í öllum tálknum ríkisstjórnarliðsins. Þá væri hrópað hátt um „tilræði við atvinnuvegina", „skemmdarstarf að undirlagi Kominform ', „moldvörpustarfsemi kommúnista“, „glæpi“ og þar fram eftir götunum. Slík liróp hafa jafnan kveðið við í hvert skipti, sem launastéttirnar iiafa gert tilraunir til að bæta sinn skarða hlut. En þegar stórútgerðarauðvaldið, milljóna- mæringarnir meðal þjóðarinnar, ráðast á hinn níðingslega liátt á 1 ífskjcir þeirra manna, sem þörfustu störfin vinna í þjóð- félaginu og leggja sig í lífshættur og erfiði fjarri heimilum sínum, þá er allt í lagi þótt togararnir, mikilvirkustu fram- leiðslutæki þjóðarinnar og þau langsamlega inikilvægustu, séu bundnir við hafnargarðana. Ef auðmennirnir heimta meiri gróða, þá er engin fórn of stór fyrir þjóðina til þess að slíkt megi takast, en ef hinir starfandi menn, hinir raunverulegu framleiðendur verðmætanna, vilja skapa sér mannsæmandi lífskjör, þá er það svívirðilegt tilræði við atvinnuvegina og af- komu þjóðarinnar. Þessi togaradeila sýnir ákaflega vel eðli þess þjóðtélags, sem við búum við. Togaraeigendurnir hafa ekki getað fært fram hin minnstu rök fyrir því, að þeir stæðust ekki við að gera út togarana með þeim kjörum, sem verið hafa, enda á allra vit- orði, að þeir hafa stórgrætt. En rnikið vill alltaf meira og þess- um milljónamæringum nægir ekki sá gróði, sem þeir hafa haft og heimta meira. Og af því að þessa einstaklinga þyrstir í meiri peninga, þá er þeim leyfilegt að leiða tugmilljóna skaða yfir þjóðina. Þannig er í framkvæmd hið mjög dásam- aða efnahagslega lýðræði, sem við eigum við að búa. Gróða- löngun nokkurra einstaklinga getur vikið til hliðar auðsæjum hagsmunum þjóðarinnar í heild. Þessi deila sýnir einnig ljóslega öryggisleysið, sem vinnandi stéttirnar eiga við að búa. Hverjir voru það, sem mest lögðu að sér við sköpun þess gjaldeyris, sem togararnir eru keyptir fyrir? Hverjir voru það, sem fiskuðu fiskinn og fluttu hann á markað í stöðugri lífshættu fyrir kafbátum, tundurduflum og guldu sumir þann toll, sem þyngstur er, lífið sjálft? Voru þetta kannski útgerðarmennirnir, togaraeigendurnir, sem nú geta ráðið því hvort togararnir eru bundnir eða ekki? Nei, það eru sjómennirnir, einmitt sú stétt manna, sem nú á 'að svipta þriðjung launa sinna. Væri það nú eitthvert hneyksli þótt þessir menn, sem skapað hafa verðmætin, sem togararnir voru keyptir fyrir og nú vinna á togurunum og skapa mestan hluta þess gjaldeyris, sem þjóðin notar fyrir nauðsynjum sínum, fengju að ráða því, hvort togararnir færu á veiðar eða ekki? En það væri kallað „austrænt lýðræði“, „ófrelsi og kúgun“. Hið dásamlega(H) „vestræna lýðræði“ segir að svo skuli það vera, að mennirnir sem „eiga“ togarana, hafa ekkert lagt í hættu nema fjármuni, sem aðrir sköpuðu, en rakað saman óhemju gróða, þeir geta kastað sjómönnunum í land og bund- ið skipin við bryggjur, ef sjómennirnir ganga ekki að hvaða sultarkjörum sem er. Þá er sú lilið á þessum málum, sem áður hefur verið drepið á hér í blaðinu, að hér er um víðtæka hernaðaráætlun að ræða á hendur öllum launþegum í landinu. Takist togaraeigend- um að beygja sjómennina í þessu máli, þá munu allir aðrir at- vinnurekendur koma á eftir og hefja sams konar árásir á lífs- kjör annarra launþega. Hér er um að ræða árás auðmanna- stéttarinnar í heild á launþegastéttina í heild og ber því að haga sér gagnvart því sem slíku. Verkalýðssamtökin og öll önnur launþegasamtök verða að veita sjómönnunum allan þann stuðning sem þau mega, og verði þessum árásum mætt af sameinuðum samtökum hinna vinnandi stétta í landinu, þá er sigurinn vís. Fimmtugur verkalýðsforingi Grassléttan mikla | (The Sea of Grass) i Metro Goldwyn Mayer i É stórmynd, samin af Mar- 1 i guerite Roberts og Vincent i i I.awrence, eftir skáldsögu É Conrad Richter. = & z É Kvikmyndastjóri: Elia Kazan. i Aðalhlutverk: É Spencer Tracy Katharine Hephurn \ Ro'bert WALKER Melvyn Dauglas. I (Bönnuð yngri en 14 ára.) i í SKJALDBORGAR [ BÍ Ó i Aðalmynd vikunnar: I KENJAKONA | Aðalhlutverk HEDY LAMARR j GEORGESANDERS j j I.OUIS HAYWARD É Myndin er gerð eftir sam- é i nefndri siigu eftir Ben \ i Ames William, sem birtist i i í Morgunblaðinu nýlega. i i (Bönnuð yngri en 16 ára.) i Ólíkt hafast þeir að Samvinnuhreyfingin í Rúmeníu hefir fengið byr undir báða vængi síðan alþýðulýðveldið var stofnað. Þegar hinn fasistísku einræðis- stjórn var kollvarpað 23. ág. 1944 voru alls 6064 neytendafélög og önnur samvinnufél. í landinu með samtals 1.153.763 meðlimum. 1. september s. 1. haust hafði með- limatala samvinnufélaganna nærri því tjórfaldast, samvinnufélögin voru þá orðin 11.525 með 4.490. 303 meðlimum. Hér á landi eru hinsvegar Framsóknarmenn orðn- ir fjósakarlar hjá hjónunum Bjarna Ben. og Stefaníu og æ fleiri sam- vinnubúðir að verða hálftómar. Lifandi reikningsvél Gottfried Rtickle hét maður og var stærðfraéðingur og sérfræð- ingur í hugarreikningi. Hann var aðeins 12,6 sek. að margfalda töl- una 183902 með sjólfri sér, og þeg- ar hann var spurður: „Hvaða tölu á maður að margfalda með sjálfri sér þrisvar sinnum til þess að fá útkomuna 13.865.625?“ þá var hann aðeins 8 sek. að finna rétta svarið með hugarreikningi. Einn þrautreyndasti forystu- maður íslenzku verkalýðshreyfing- arinnar, Jón Rafnsson, á fimmtugs- afmæli næstk. sunnudag, 6. þ. m. Jón hefur á undanförnum áratug- um staðið í fylkingarbrjósti i vörn og sókn verkalýðsins í baráttu hans fyrir bættum kjörum og betra þjóð- skipulagi. Þeim, sem þessar línur ritar, eru ekki svo kunn æviatriði Jóns, að þau verði hér rakin, enda mun það verða rækilega gert af þeim, sem kunnugir eru. Jón Rafnsson hefur komið mikið við sögu verlcalýðsbaráttunnar hér á Akureyri. Hann hefur tekið virk- an þátt í ýmsum þeim hörðustu vinnudeilum, sem hér hafa verið háðar, svo sem Novudeilunni og Dettifossslagnum, og þar sem endranær reynst hinn traustasti og ötulasti til allra stórræða og ávallt verið sjálfkjörinn foringi. Lengst mun Jóns þó verða minnst af verkalýðnum á Akureyri fyrir það mikla og giftusama starf, sem hann lagði í að sameina verkamenn bæjarins i eitt félag, Verkamanna- félag Akureyrarkaupstaðar 1943. Með þeim mikla sigri, sem þá náð- ist, var starfsemi klofningsmann- anna veitt það högg, sem vonandi ríður þeim að fullu áður en langir tímar líða. Síðustu árin, allt til þessa að hin ólöglega stjórn Alþýðusam- bands Islands settist að völdum, var Jón framkvæmdastjóri þess, en hafði áður átt manna drýgstan þátt í að leysa samÍoancííB úr*víáj- um Alþýðuflokksins og gera það að óháðu fagsambandi verkalýðs- ins. A þeim" tíma, sem einingar- menn stjórnuðu Alþýðusamband- inu, hafa náðst fram meiri kjara- bætur verkalýðnum til handa, en nokkru sinni fyrr, og þær stórstígu framfarir sem nýsköpunarstjórnin hratt í framkvæmd má ýmist beint eða óbeint rekja til starfsemi verkalýðssamtakanna undir for- ystu einingarmanna. í öllum þessum verkefnum tók Jón manna mestan þátt. Sú stefna framfara og stórhugs, sem mörkuð var af fyrrverandi stjórn Alþýðú- sambandsins á ekki hvað sízt ræt- Faðir minn, 111111111111111 ur sinar að rekja til hans, sent ; framkvæmdastjóra sambandsins, enda mun nafn hans ofar flestuö í sögu íslenzku verkalýðssamtak- anna. Það ræður af líkum, að mikiU styrr hefur oft staðið um Jón, svo mjög sem hann hefur beitt sér í hinni pólitísku og stéttarlegu bar- áttu verkalýðsins. Andstæðingar hans hafa ekki svifist neins í bar- áttu sinni gegn honum. En svo hef- ur virzt, sem Jón bitu engin vopn, hann hertist við hverja raun. Virð- ing alþýðunnar og traust til hans hefur að sama skapi aukizt sern árásirnar voru hatramari. Jón hefur frá því fyrsta fyllt flokk róttækasta hluta verkalýðs- ins, fyrst í Kommúnistaflokki Is- lands og síðar í Sósíalistaflokkn- | um og ætíð verið í fremstu röð ; eins og áður segir. Hér hefur aðeins verið drepið á | örfá atriði af því mikla starfi, sem Jón Rafnsson hefur leyst af hönd- um, og vonandi á hann enn eftir að starfa í mörg ár fyrir alþýðu þessa lands. Verkamaðurinn sendir Jóni hug- heilar árnaðaróskir á fimmtugsaf- mælinu Mætti íslenzka alþýðan eiga sem flesta hans líka. Þ. D. Alþingismaðurinn Jóhann Havsteen faldi sig á kvenna- klósettinu! Jóhann Havsteen, alþingismað- ur, sem átti að stjórna öskurkór Heimdallar á æskulýðsfundinum í Austurbæjarbík sl. föstudag, en heyktist fljótlega þegar á fundinn leið, komst inn í húsið á dálítið sérkennilegan hátt. Hann keypti sig inn á sjösýningu, laumaðist inn á kvennaklósett og faldi sig þar meðan bíógestirnir voru reknir út — ásamt Sigbirni Ármann kaup- manni! Honum hefur víst fundizt hann of „virðulegur“ til að taka I þátt í stympingunum við dyrnar og því kosið að láta kvennaklósettið f vernda þingsóma sinn! VATNSVEITAN. JAKOB JAKOBSSON, skipstjóri, verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju laugardaginn 5. marz kl. 1.30 e, h. Fyrir hönd vandamanna. Indriði Jakobsson. | Akureyringar! Enn eruð þið alvarlega áminntir um að fara sparlega með vatnið og láta ekki renna að nóttu til. Grunur leikur á, að fólk láti renna á þvott, kjöt og fisk alla nóttina. Verður þetta athugað og tekið vatnið af þeim. sem þetta sannast á.

x

Verkamaðurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.