Verkamaðurinn - 03.10.1952, Side 4
Útgefandi: Sósíalistafélag Akureyrar.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Ásgrímur Albertsson.
Blaðstjóm: Jakob Ámason, Sigurður Róbertss., Þórir Daníelss.
Föstudaginn 3. október 1932
Prentverk Odds Bjömssonar h. f.
Afgreiðsla í skrifstofu Sósíalistafél. Akureyrar, Hafnarstr. 88.
Opin kl. 4—7 alla virka daga nema laugardaga. — Sími 1516.
Áskriftarverð 30 kr. árgangurinn. Lausasöluverð 75 au. eintakið.
Syeinn Bjarman
aðalbókari *
Fæddur 5. júní 1890. Dáinn 22. september 1952
„Skjótt hefir sól brugðið
sumri," flaug mér í hug, er ég
heyrði dánarfregn þessa listfenga,
gáfaða og góða drengs. Mér var
reyndar kunnugt um, að hann
hafði átt við vanheilsu að stríða
um margra ára skeið, en eigi að
síður kom þessi harmafregn mér
á óvart.
Sveinn Bjarman fæddist að
Nautabúi í Skagafirði hinn 5. júní
1890. Foreldrar hans voru Ámi
Eiríksson og Steinunn Jónsdóttir,
er þar bjuggu þá, en síðar að
Reykjum í Timgusveit, þar til
er þau fluttust til Akureyrar
skömmu eftir síðustu aldamót, en
þá gerðist Árni bankagjaldkeri,
svo sem kunnugt er. Ámi Eiríks-
son var af góðum skagfirzkum
ættum og hinn mesti merkismað-
ur. Hann var mjög söngelskur og
lék prýðilega á orgel. Steinunn
kona Áma var dóttir séra Jóns
að Mælifelli, hins ágæta söng-
manns, Sveinssonar læknis, Páls-
sonar. Sveinn Pálsson var víð-
frægur vísindamaður og eigi síð-
ur kunnur fyrir dugnað og dreng-
skap. — Móðir Steinunnar var
Hólmfríður, dóttir séra Jóns Þor-
steinssonar í Reykjahlíð. Var
Steinunn orðlögð mannkosta- og
myndarkona, og var heimili
þeirra hjóna mjög rómað fyrir
menningarbrag. Gat ekki hjá því
farið, að börnin, sem ólust upp
á slíku heimili, þar sem vinna,
bækur og sönglist voru að jöfnu
í hávegum höfð, bæru þess merki
alla ævi sína.
Ég kynntist Sveini sál. ekki
fyrr en um og eftir 1920, og þau
kynni voru ekki mikil fyrstu ár-
in, en þau áttu eftir að aukast og
verða ógleymanleg. Við áttum
einkum eitt sameiginlegt áhuga-
mál: sönglistina. Hann lék prýði-
lega á hljóðfæri og hafði aflað sér
furðumikillar þekkingar á söng-
list, og áhugi hans var logandi.
Og hann hafði mikinn áhuga á
fleiri fögrum listum, einkum var
skáldskaparlistin honum hug-
stæð, bæði í bundnu og óbundnu
máli. Hann var líka vel hagmælt-
ur, þótt hann léti lítið yfir því
sjálfur og flíkaði því ekki að
jafnaði.
Það er ekki efamál ,að Sveinn
Bjarman hefði orðið ágætur tón-
listarmaður, ef hann hefði getað
lagt út á þá braut. Til þess hafði
hann marga hæfileika: ágætt
eyra og hljómnæmi, innri skiln-
ing og tilfinningu og þá auðlegð
hjartans og hlýju, sem er grund-
vallaratriði allrar sannrar listar.
Hann var óvenjulega vandaður
maður í þess orðs bezta skilningi,
enda hvers manns hugljúfi, þeirra
er nokkur kynni höfðu af honum.
Sveinn fékkst nokkuð við söng-
stjórn, og fórst það vel. Kom þar
mjög í ljós smekkvísi hans í með-
ferð laga. Einn vetur stjórnaði
hann „Geysi“ og annan vetur
Karlakór Akureyrar (1942—43).
í söngför Karlakórs Akureyrar
til Reykjavíkur 1938 var hann
fararstjóri. Minnist ég þeirrar
ánægjulegu samvinnu með sökn-
uði. — Hann var heiðursfélagi
Karlakórs Akureyrar.
Öll störf, er Sveinn sál. Bjarm-
an tók að sér, rækti hann með
dugnaði og trúmennsku. Starf
aðalbókara við Kaupfélag Ey-
firðinga er bæði umfangsmikið
og vandasamt, en ég held að það
sé ekki ofmælt, að hann hafi leyst
það snilldarlega af hendi.
Allir hinir mörgu vinir og
kunningjar Sveins Bjarmans
harma fráfall þessa ágætismanns,
þótt hinir nánustu ástvinir eigi
þar einkum um sárt að binda.
Blessuð sé minning hans.
Á. S.
IÐJA -
(Framhald af bls. 1).
hrósað happi yfir þessum full-
trúakosningum, ætti það að gæta
hófs í gleði sinni. Iðja var áreið-
anlega ekki til þess stofnuð að
verða einhver skóþurrka at-
vinnurekenda og það mun hún
ekki verða. Iðjufólkið mun læra
af þessum úrslitum að standa
betur saman um sitt félag og láta
ekki utanfélagsmönnum haldast
uppi að sundra röðum sínum.
Iðja, eins og önnur verkalýðs-
félög, hafa áreiðanlega brýnna
verkefni nú og framvegis en að
verða vettvangur pólitískra
átaka, en það er ætlun aftur-
haldsins. Iðnverkafólkið þarf að
sameinast um hagsmunamál sín
undir forystu þeirra, sem mest og
bezt vinna félaginu til eflingar og
hagsmunum fólksins til fram-
dráttar.
Diska-serviettur, margar
stærðir.
Hillupappír, margir litir.
Dúkkulísubækur og lita-
bækur, margar teg.
Skóla- og skrifstofuvörur
í miklu úrvali.
Bókabúð Akureyrar.
★ Á sunnudaginn kemur er hinn
árlegi söfnunardagur Samb.
íslenzkra berklasjúklinga. —
★ Tónlistarskólinn verður settur
að Lóni, kl. 5 e. h. í dag.
★ Frá Amtsbókasafninu. Safnið
verður opið til útlána í vetur
frá 2. okt. þriðjud., föstud. og
laugardaga kl. 4—7 e. h. —
Lesstofan opin á sama tíma
alla virka daga. — Fyrir utan
bæjarmenn innan Eyjafjarðar-
sýslu, sem eiga óhægt með að
sækja safnið á útlánstíma, verð
ur safnið opið til útlána kl. 1.30
—3 e. h. alla föstuflaga.
★ Sósíaíistafél. Akureyrar held-
ur félagsfund na^stk. þriðjud.
kl. 8.30 e. h. í Hafnarstræti 88.
Á dagskrá eru atvinnumál,
vetrarstarfið og að lokum
verður sýnd kvikmynd.
★ Fimmtugur varð sl. mánudag
Daníel Kristinsson, til heimilis
í Hafnarstræti 88 hér í bæ.
★ Fertugur varð sl. laugardag
Sigtryggur Helgason gullsmið-
ur hér í bæ.
★ Þann 26. sept. sl. voru gefin
saman í hjónaband ungfrú Jó-
hanna Sigurðardóttir, Gránu-
félagsgötu 39, Akureyri og
Arnbjörn Vigfús Kristjánsson,
bifreiðastjóri frá Kópaskeri. —
Heimili brúðhjónanna er að
Snartarstöðum við Kópasker.
— Þann 27. sept. sl. voru gefin
saman í hjónaband í Reykja-
vík Jón Ragnar Steindórsson,
flugnemi, Víðivöllum 18, og
ungfrú Auður Albertsdóttir. —
Heimili brúðhjónanna er að
Grenimel 2, Reykjavík.
★ Frá Skákfél. Akureyrar. Æf-
ingar hefjast föstud. 3. október.
Teflt verður í Verkalýðshús-
inu tvisvar í viku, miðviku-
daga og föstudaga.
★ Bridgefélag Akureyrar heldur
aðalfund sinn í Verkalýðshús-
inu n.k. þriðjud. kl. 8.30 e. h.
★ Kantötukór Akureyrar. Söng-
æfing í kvöld kl. 8.30 í kirkju-
kapellunni.
★ Munið Þjóðviljahappdrættið.
Miðar eru seldir í skrifstofu
Sósíalistafél. Akureyrar, Hafn-
arstræti 88, hjá Ásgrími Al-
bertssyni gullsmið og í Bóka-
búð Akureyrar. — Komið á
skrifstofima og takið blokkir
til sölu.
★ Bifreiðarslys varð sl. laugard.
framan við húsið Aðalstræti
74. Lítil telpa hljóp í veg fyrir
bifreiðina A—45 og rakst bif-
reiðin á hana með þeim afleið-
ingum að hún lærbrotnaði og
meiddist á höfði. Líðan telp-
unnar er nú batnandi.
Sósíalistafélag Akureyrar
lieldur félagsíund í Hafnarstræti 88 þriðjudaginn 7.
október, kl. 8.30 e. h.
DAGSKRÁ:
1. FÉLAGSMÁL
2. ATVINNUMÁL
3. VETRARSTARFIÐ
4. KVIKMYND
Félagar, fjölmennið stundvíslega!
STJÓRNIN.
Ósvífin skaftheimfa -
(Framhald af bls. 1).
er miðað við í landinu, samþykkir
hún að miða skattheimtuna við
gömlu vísitöluna og hefur þann-
ig meir en tvöfaldað skattana. í
stað þeirra 220 þúsund króna,
sem sambandsþingið gerði ráð
fyrir, og orðið hefðu rúmlega 320
þús. með hinni viðurkenndu vísi-
tölu, munu tekjur sambandsins
nú í ár verða rúmlega 490 þús-
und krónur eða nærri hálf millj.
króna.
Þessi fjárkúgun sambands-
stjórnar er alvarlegt umhugsun-
arefni fyrir meðlimi stéttarfélag-
anna. Á sama tíma sem tekjur
félaganna hafa lítið sem ekkert
aukizt, því að ekki hefur þótt
vænlegt að hækka mikið árgjöld
félagsmanna eftir að atvinnu-
leysið og skorturinn tók fyrir al-
vöru að herja á heimilum verka-
fólksins, þá tvöfaldar sambands-
stjómin skattheimtu sína af fé-
lögunum. Þetta þýðir það, að
þeim er gert stórum erfiðara fyr-
ir með sína starfsemi og kannski
er sambandsstjórn ósárt um það.
Það fer að verða nokkurt íhug-
unarefni fyrir félagsmenn hvað
félögin fá fyrir þessi gífurlegu
útgjöld.
Hvemig er t. d. viðhorfið hér
á Akureyri? Skattar þeir, sem
sambandsstjórn heimtar af félög-
unum hérna munu nema hátt á
annan tug þúsunda króna. Það
eina, sem félagsmenn hér hafa
orðið varir við af starfsemi sam-
bandsins, er svo það, að mann-
veslingur Jón nokkur Hjálmars-
son, kenndur við Fjós, hefur sést
skjótast hér milli húsa eða læp-
ast um í jeppa og hefur æfinlega
komið upp óværð við veru hans
hér. Þá sjaldan manntetur þetta
hefur sýnt sig á fundum félag-
anna, þá hefur það verið til að
stuðla að sundrungu og úlfúð, en
jafn oft hefur hann orðið sér og
húsbændum sínum til skammar.
Hvað verður svo af þessum
gífurlegu fjárfúlgum, sem krafð-
ar eru af félögunum? Því er erf-
itt að svara. Ekki er vitað að
starfsemi sambandsins hafi auk-
izt það, að svo aukins fjár hafi
verið þörf. Ekki er safnað í sjóði,
því að sambandstjóm ber sig
mjög aumlega, þegar hún er að
heimta inn skattana og áminnst-
Herstjórnartilkynning
Braga
Bragi er auðsjáahlega farinn að
hugsa sér sig í hlutverki mikils
hershöfðingja. í blaðsnepli sín-
um sl. þriðjudag birtir hann stóra
herstjórnartilkynningu: „Gamalt
vígi kommúnista hrunið“. í gleði
sinni- yfir „sigri“ sínum í Iðju
kemur hann svo upp um það,
hvernig hann og hans nótar líta
á þessi mál. Þeir skoða verklýðs-
félögin réttilega sem vígi félags-
mannanna og þar af leiðandi til-
raunir sínar til að ná þar yfir-
ráðum sem árásir á þessi vígi.
Iðja hefur verið vígi „kommún-
ista“ í þeim skilningi, að félags-
menn hafa ávallt staðið þar sam-
an um sitt félag og sína forystu-
menn, sem sumir eru „kommún-
istar“ en aðrir ekki. Þar hefur
ávallt ríkt hin bezta eining, þar
til nú, að erindrekum stéttarand-
stæðinganna tókst að sundra
röðum þess í þessum kosning-
um. Hins vegar veit hvorki Bragi
né aðrir, hvort Iðjufélagar hafa
verið eða eru nú að meirihluta
fylgjandi „kommúnistum“ í
stjómmálum. Sennilegt að svo
hafi ekki verið og sé ekki nú.
Það eru miklar tálvonir hjá
Braga og öðrum dindlum aftur-
haldsins ,ef þeir halda að nú sé
Iðja „hrunin“. Atvinnurekend-
urnir eiga áreiðanlega eftir að
komast að raun um að þeim hefur
ekki tekizt að yfirbuga félagið.
ur sendill hennar gengur hér sem
bónbjargarmaður milli félaganna
ef þau eiga ógreiddan eyri í skatt
til að kría út aura fyrir næsta
málsverði eða til að komast í
næstu sveit.
Hvað verður þá af peningun-
um? Væntanlega verða gefin
svör við því á næsta sambands-
þingi. Á fyrri stjórnarárum Al-
þýðuflokksins í Alþýðusam-
bandinu ríkti sem kunnugt er
hin mesta spilling, þegar m. a.
voru tekin erlend lán, sem námu
hundruðum þúsunda til útgáfu
Alþýðublaðsins og Alþýðusam-
bandið síðan látið borga. Sporin
hræða og ferill núverandi ráða-
manna í ASÍ hefur einkennst af
öðru meir en heiðarleik í með-
ferð á fé verkalýðssamtakanna.
Haustið nálgast
!; Þá fara mœðurnar að hugsa um vetrarfötin
|! handa fjölskyldunni.
Gefjunardúkar, garn og lopi
verða nú eins og endranœr bezta skjólið gegn
;! vetrarkuldanum.
Gefjunarvörur henfa bezf
íslenzku veðurfari og þœr fást i fjölbreyttum
!; gerðum, miklu litaúrvali og verðið er mjög
!; hagkvæmt.
Ullarverksmiðjan GEFJUN