Verkamaðurinn - 31.03.1953, Qupperneq 3
Æskulýðssíðan
Uppvakningurinn auðnulausi
Sem kunnugt er standa nú fyrir
dyrum kosningar til Alþingis og
því ekki seinna vænna fyrir
„ungmenni" borgaraflokkanna að
hrista rykið af gömlum slagorð-
um, ef freista á þess að ná nokkr-
um hluta íslenzks æskulýðs til
fylgis við þá landsöluflokka, sem
landinu hafa stjórnað undanfarin
ár.
Það kom því ekki mjög á óvart,
þegar fjörkippir nokkurir tóku að
færast í félagsskap ungra íhalds-
manna hér í bæ, sem annars hef-
ur legið rólegur í gröf sinni síðan
i síðustu kosmngum. Uppvakn-
mgur þessi kvaddi sér hljóðs í
síðasta tölublaði íslendings, en
hafði sýnilega gleymt að þurrka
stýrurnar úr augunum og hefur
því göngu sína heldur sjóndapur.
Það er því ei að undra, þó að
nokkuð sé hann valtur á fótum á
vegi sannleikans. En þið skuluð
bara flýta ykkur hægt, ungir
Sjálfstæðismenn, gæta ykkar í
hverju spori meðan þið eruð að
vakna og gera engar tilraunir til
að gleypa sólina. Þið eruð auðvit-
að ákaflega hrifnir af blessuðum
stjórnarvöldunum og þakklátir
fyrir hvernig þeim hefur tekizt
að halda lífinu í vanþakklátum og
óstýrilátum landslýðnum með til-
styrk hins æruverðuga Marshalls.
Þið lítið björtum augum fram
á við og segið orðrétt: „Framtíð-
in virðist því blasa við og bjóða
framsæknum æskumönnum upp
á óteljandi möguleika til starfs.“
En ekki virðizt þið skeyta mikið
um samræmið í málflutningi
ykkar, þegar þið skömmu síðar
viðurkennið að þjóðlífið sé sjúkt,
með því að fullyrða að sýkill
„kommúnismans“ geti aðeins
þrifist í sjúku þjóðlífi, eftir að
hafa áður harmað þroska þess
sýkils í okkar eigin þjóðlífi. En
þið hafið auðvitað verið að flýta
ykkur og ekki mátt vera að því
að hugsa um hverja smámuni áð
ur en þið skrifuðuð og er slíkt
skiljanlegt. En væri ekki verra
ef einhverjum, sem sæi augljósar
rökleysur ykkar í því smáa dytti
í hug, að ef til vill færuð þið ekki
rétt með í öðrum stærri málum,
sem hann hefði ekki eins aðstöðu
til að komast að hinu rétta? Það
er nú tímabært fyrir unga Sjálf-
stæðismenn að hugleiða. Annars
talið þið mest um vonzku komm-
únista og kveður þar við gamlan
tón. Maður fer ac' verða hissa á,
að þið getið hugsað ykkur að
stíga fæti á sömu jörð og slíkt ill-
þýði. Þið kætist mjög yfir andláti
Stalins og væntið nú betra gengis
í baráttunni gegn kommúnisman-
um. í hinni ótímabæru sigurgleði
gleymið þið alveg því, sem lengi
hefur talizt til mannasiða á ís-
landi, þ. e. að segja og tala sæmi-
lega kurteislega um látna menn.
Annað er veikleikamerki.
öruggrar lífsafkomu. Ungir Sjálf-
stæðismenn segja þá hina glæsi-
legustu og engu þurfi að kvíða.
En þeir ættu að reyna að nálgast
veruleikann örlítið meir. Þá
myndu þeir sjá, að í dag eru
hundruð og þúsundir ungi'a al-
þýðumanna og -kvenna, sem
vegna atvinnuleysis og fjárskorts
sjá bresta vonir sínar um góða
lífsafkomu, menntun og annað
þvílíkt. Samt benda ungir Sjálf-
stæðismenn réttilega á, að í eigu
íslendinga eru nú langtum stór-
virkari atvinnutæki en nokkru
sinni fyrr; atvinnutæki, sem geta
aflað þjóðinni slíks auös, að allir
gætu lifað mannsæmandi menn-
ingarlífi, aðeins ef landinu væri
stjómað með hag alþýðu fyrir
augum. En það er ekki nóg að til
séu stórvirk atvinnutæki, ef auð-
urinn, sem með þeim er aflað
rennur að mestu leyti til nokk-
urra gróðamanna, en verkalýður-
inn býr við hin verstu kjör eftir
sem áður; það er að segja, ef
flokkar íslenzku auðstéttarinnar
hafa áfram völd í þessu landi.
Það helzta bjargráð, sem ungir
Sjálfstæðismenn bjóða atvinnu-
lausum, íslenzkum æskumönn-
um, er að hvetja þá til auðmýkj-
andi starfa hjá hinu ameríska
innrásarliði á Keflavíkurflugvelli,
þar sem þeir geta í viðlögum lært
að skera menn á háls. Og von-
andi muna allir eftir frásögn
stjórnarblaðsins „Tímans“ fyrir
nokkrum dögum um það er
Ameríkani barði íslenzkan ungl-
ing í andlitið fyrir það eitt að
hlæja, þegar hann hélt í sakleysi
að það væri „vemdaranum"
þóknanlegt og var síðan af yfir-
manni hótað brottrekstri úr
vinnu, ef hann dirfðist að kæra
ofbeldi þetta.
Eiu þetta hinir glæstu mögu-
leikar, sem ungir Sjálfstæðis-
menn bjóða íslenzkum æsku-
mönnum ?
íslenzk æska er ekki ginkeypt
fyrir slíkum boðum. íslenzk æska
vill fá að búa við mannsæmandi
skilyrði í frjálsu landi. Hún vill
fá tækifæri til að vinna fyrir sér
við heiðarleg störf ,tækifæri til
menntunar og tækfæri til að
stofna heimili.
Sú ríkisstjórn og þeir pólitísku
flokkar, sem hér fara með völd,
torvelda alþýðuæskunni allt
þetta. Stjórnarvöld landsins
legg^a stein í götu heilbrigðs
þroska íslenzkrar alþýðuæsku.
Auðstéttin og ríkisstjórn henn-
ar eru þær drápsklyfjar, sem ís-
lenzk alþýða ber á herðum og er
nú að sligast undir. Unga fólkið
verður að rísa upp og varpa af sér
því oki.
Þeir ungu menn, sem skreyta
blaðarúm sitt með ránfuglsmerk-
inu, eru ekki málsvarar alþýðu,
heldur leigupennar íslenzkrar yf-
irstéttar, sem glatað hefur sjálfs-
virðingu sinni og gengið á mála
hjá amerískum auðmönnum.
Sá uppvakningur, sem kvaddi
sér hljóðs í síðasta tölubl. Islend-
ings, mun því ekki finna hljóm-
grunn hjá íslenzkri alþýðu.
Islenzk æska mun fjölmenna
á Búkaresfmótið
Eins og áður hefur verið getið
og almenningi er kunnugt, verður
fjórða alþjóðamót Alþjóðasam-
bands lýðræðissinnaðrar æsku og
Alþjóðasambands stúdenta, hald-
ið í höfuðborg Rúmeníu, Búka-
rest, dagana 2.—16. ágúst í sum-
ar. Þegar er kunnugt varð um,
hvar mótið yrði haldið, vatt Al-
þjóðasamvinnunefnd íslenzkrar
æsku, sem sér um allan undir-
búning þátttöku héðan, bráðan
bug að því, að vinna að sem
mestri þátttöku íslnzkrar æsku í
þessu móti.
Nú vendi eg mínu kvæði í
kross og vil ræða lítillega þá
möguleika, sem ungir íslendingar
úr alþýðustétt hafa til góðrar og
Hátt á annað hundrað hafa þegar
tilkyimt þátttöku.
Jafnvel áður en tilkynnt hafði
verið, hvar mótið yrði haldið,
fóru Alþjóðasamvinnunefndinni
að berast þátttökutilkynningar,
og eftir að mótstaðurinn hafði
verið auglýstur, hafa þátttökutil-
kynningar streymt að, þannig, að
nú þegar hafa hátt á annað
hundrað ísenzkra æskumanna og
kvenna tilkynnt þátttöku sína, og
óefað eiga margir eftir að bætast
við. Allar horfur eru á, að leigja
verði sérstakt skip til að flytja
hópinn til Kaupmannahafnar.
Hvað kostar þátttaka í mótinu?
Ferðin til Búkarest mun taka
5 vikur og kostnaður (fyrir utan
vasapeninga), þ .e. allar ferðir,
húsnæði og fæði, verður aðeins
3.500 krónur. Farið verður til
Kaupmannahafnar með viðkomu
í Þórshöfn, þaðan til Gedser og
með ferju yfir til Wamemúnde í
Þýzkalandi. Þaðan farið með
járnbraut austur gegnum Pólland
og m. a. komið við í Varsjá og
fleiri borgum og áfram suður að
Svartahafi og upp með Dóná til
Búkarest og síðan sömu leið til
baka að mótinu loknu og er á
heimleiðinni gert ráð fyrir að
dvelja þrjá daga í Kaupmanna-
höfn.
Hvert á að tilkynna þátttöku?
Þátttöku í mótinu á að tilkynna
til Eiðs Bergmanns, Skólavörðu-
stíg, Reykjavík. Allt æskufólk er
velkomið á mótið og skiptir engu
máli, hvaða stjórnmála- eða trú-
arskoðun viðkomandi hefur. Þeg-
ar er vitað um nokkra þátttak-
endur héðan frá Akureyri, en
þeir þurfa að verða fleiri.
ÆSKUFÓLK A AKUREYRI!
FJÖLMENNUM TIL BÚKA-
REST!
sv'Ve'
1 I
ooo
Happdrætti Háskóla íslands
F.ndurnýjun til 4. flokks er hafin.
Verður að vera lokið 9. apríl.
Munið að endurnýja i tíma.
Bókaverzlun Axels Kristjánssonar h.f.
Orðsending
frá Brunabótafélagi íslands
Vegna aukinna brunavarna t Akureyrarbæ hafa
iðgjöld ai fasteignum lækkað frá 15. janúar síðastl.
Verður því endurgreiddur hluti af iðgjöldum þeim,
er innheimt voru síðastliðið haust, og mega húseigend-
ur vitja endurgreiðslnanna á skrifstofu umboðsins.
Þeir, sem enn eiga ógreidd iðgjöld, eru beðnir að
gera skil nú þegar, eða í allra síðasta lagi fyrir 15. apríl
næstkomandi.
Munið, að félagið tryggir einnig alls konar lausafé
(nema verzlunarvörur); enn fremur búfé, bæði fyrir
bruna og vanhöldum.
Umboðsmaður R. I. á Akureyri,
Viggó Ólafsson
Brekkugötu ö.
Frá Iðnskólanum á Akureyri.
Námskeið í undirbúningsteikningu (þ. e. fríhendisteikningu,
llatarteikningu, rúmteikningu og teikniskrift) hefst rmðvihudag-
inn 8. apríl nrestk., kl. -t i/2 siðdegis. ICennslan fer fram að kvöld-
inu, kl. 4i/2—7 e. h. hvern virkan dag, og er svo til ætlazt, að
námi. sem svarar til 1. og 2. bekkjar kennslu í skólanum að
undanförnu í þessum greinum, verði iokið á 4—5 vikum. Þdtt-
tökugjald er hr. 300.00, er greiðist fyrirfram. Nemendtlr rtiæti til
skrásetningar í skólanum þriðjudaginn 31. þ. m., kl. 5 íiðdegis.
— A það skal bent, að ekki er líklegt, að slíkt námskeið verði
haldið í skólanum á næsta skólaári, og væri því athugandi fyrir
þá, sent gera ráð fyrir að hefja iðnnám á því tímabili, að ljúka
þessu undirbúningsnámi af nú með þeim, sem þegar eru skráðir
iðnnemar og ekki hafa lokið áskildum prófum í nefndum greinum.
Við skrásetninguna verður og athugað, hverjir nemendanna
muni þurfa á viðbótartilsögn að halda i bóklegum greinunt til
þess að standast prófkröfur 2. bekkjar skólans í íslenzku, dönsku
og reikningi, og verður, að þeirri athugun lokinni, ákveðið, hvað
skólinn getur gert til þess að hjálpa þeim, er þess .þurfa með, til
þess að búa sig undir slíkt próf.
Ættu þeir nemendanna, sem nám hafa stundað í framhalds-
skólum, því að taka prófskírteini sín með sér til skrásetningarinnar
og vera að öðru leyti viðbúnir að gefa þær upplýsingar, sem nauð-
synlegar eru í þessu sambandi.
Akureyri, 24. marz 1953.
Skólanefndin.