Verkamaðurinn - 23.04.1954, Page 3
Föstudaginn 23. apríl 1954
VERKAMAÐUSINN
S
Vísindamennirnir vita ekki . . .
Um allan heim hljómar krafan um algert bann við frarn-
leiðslu kjarnorkuvopna og annarra múgmorðstækja af sívax-
andi krafti. Þessum kröfum er einkum beint til Bandaríkj-
anna, sem nú á undanförnum vikum hafa ógnað öryggi
manna í stórum heimshlutum með tilraunum sínum einum
saman. Eftirfarandi grein, lauslega þýdd úr brezka blaðinu
Reynolds News, gefur nokkra hugmynd um, hvernig brezk
borgarblöð ræða þessi mál, og eins og menn sjá, kveður þar
við nokkuð annan tón en í íslenzku borgarapressunni, sem
reynir að þegja skömm húsbænda sinna í hel.
Þetta. er sú geigvænlega stað-
reynd, sem blasir við eftir vítis-
sprengjutilraunina í Kyrrahafi.
Vísindamennimir reiknuðu
skakkt út langdrægni og áhrif
sprengjunnar, sem sprakk 1.
marz, eins og Eisenhower forseti
hefur viðurkennt.
Þeir byggðu útreikninga sína á
fyrri sprengingu. En sú sprengja
hafði einnig óþekkta eiginleika,
en þeir drógu úr áhrifum hennar.
1. marz hafa annað hvort verið
ólík hitaskilyrði eða sérstakar og
óþekktar breytingar hafa verið
gerðar á samsetningu sprengj-
unnar.
En hver sem skýringin er, er
víst að víðátta dauðasvæðisins
varð gífurlega miklu meiri en
vísindamennirnir höfðu reiknað
með.
Þeir eru enn jafn óvissir um
þriðju sprengjuna, sem sprengja
átti á þriðjudaginn. Þess vegna
hefur Eisenhower forseti frestað
tilraiminni, eins og viturlegast
var (þetta er ritað áður en þriðja
tilraunin var gerð).
En frestun um nokkra daga eða
vikur er ekki nægjanlegur.
Brezka stjómin og aðrir vinir
Ameríku verða að knýja Banda-
ríkin til þess að fallast á að
sprengingu annarrar og jafnvel
enn öflugri sprengju verði frest-
að fyrir fullt og allt.
Of margir óútreiknanlegir
kraftar hafa verið leystir úr læð-
ingi í máttarforðabúri náttúrunn-
ar, það eru of margir möguleikar,
sem vísindamennimir hafa ekki
séð fyrir, til þess að öruggt sé
að halda þessum tilraunum
áfram.
En frestun er ekki fullnægj-
andi. Það verður að horfast í
augu við þá staðreynd að kjarn-
orkuvopn em til, og svo lengi
sem hvert stórveldanna heldur
áfram framleiðslu þeirra vofir sú
hætta yfir að einhvern daginn
geri vísindamennirnir síðustu
villurnar í útreikningum sínum
— og dagar siðmenningarinnar
séu taldir.
Hér er ekki um að ræða lög-
mæta áhættu fyrir málstað, sem
þjóna mundi hamingju mann-
kynsins. Vítissprengjan hlýtur,
verði henni einhvern tíma beitt,
að kollvarpa menningunni, bæði
í austri og vestri. Vissulega er sá
sannleikur að verða ljós beggja
megin jámtjaldsins. Enginn getur
lengur unnið styrjöld.
Hvaða leið er út úr ógöngun
um? Það er aðeins ein leið — al
þjóðlegt samkomulag um baún
við framleiðslu kjarnorkuvopna
sem verði stutt alþjóðlegu eftir-
liti.
Það er að svara út í hött að
segja að tihaunir til samninea
hafi hingað til verið árangurs-
lausar. Það verður að endurtaka
oær aftur — og aftur — og aftur.
Mennimir eiga langa leið að
baki, frá því að þeir höfðust við í
toppum trjáa. Á sú leið nú að
enda í gjallhrúgu?
Svarið við því er háð vilja al-
jýðunnar. Hún verður að skapa
þá hreyfingu sem krefst tröllauk-
inna átaka af stjómendum þjóð-
anna til þess að forða mannkyni
öllu frá yfirvofandi ógnum.
Kennaramót
Ákveðið er að Samband norð-
lenzkra kennara stofni til kenn-
aramóts á Akureyri á vori kom-
anda.
Hefst mótið 30. maí og stendur
til og með 4. júní. Ætlast er til að
mót þetta verði einkum fyrir
kennara á námstjórasvæði Snorra
Sigfússonar, en öðrum einnig
heimil þátttaka. Nánari greinar-
gerð um verkefni og tilhögun
mótsins mun send kennurum í
bréfi.
Nánari upplýsingar um mótið
gefur Eiríkur Sigurðsson, yfir-
kennari, Akureyri.
N ÝBÓK!
Nú er hlátur nývakinn
kemur út næstu daga. í bókinni er aragrúi af gaman-
sögum og kveðlingum úr flestum byggðarlögum norðan-
lands. Rósberg G. Snædal safnaði og skráði.
Fólk úti á landi, sem hefur hug á að eignast bókina,
ætti að panta hana tafarlaust frá útgefanda. Kostar aðeins
kr. 10,00 ef greiðsla fylgir pöntun. Ath. að enn eru til
nokkur eintök af gamanvísnasafninu Nú er eg kátur
nafni mirm, sem tilheyrir sama flokki.
Bókaútgáfan Blossinn Akureyri
Dagheimilið Pálmholt
verður opnað 1. júní og verður starfrækt í 31/2 mánuð.
Tekin eru börn á aldrinum 2^—5 ára. — Þeir, sem ætla
að koma börnum til dvalar þar, snúi sér til undirritaðra
kvenna.
Kristín Pétursdóttir, Spítalaveg 8,
Soffía Jóhannesdóttir, Eyrarveg 29,
Jónína Steinþórsdóttir, Hafnarstr. 12.
AUGLÝSING
NR. 5, 1954.
frá Innflutningsskrifstofunni.
Samkvæmt heimild í 22. gr. reglugerðar frá 28 des.
1953 um skipan innflutnings- og gjaldeyrismála, fjárfest-
ingarmála o. fl. hefur verið ákveðið að úthluta skuli nýjum
skömmtunarseðlum, er gildi frá 1. apríl til og með 30. júní
1954. Nefnist hann „ANNAR SKÖMMTUNARSEÐILL
1954“, prentaður á hvítan pappír með fjólubláum og brún-
um iit. Gildir hann samkvæmt því, sem hér segir:
REITIRNIR: Smjörlíki 6—10 (báðir meðtaldir) gildi fyrir
500 g. af smjörlíki, hver reitur.
REITIRNIR: SMJÖR gildi hvor um sig fyrir 500 g. af
smjöri (einnig bögglasmjöri).
Verðið á bögglasmjöri er greitt niður jafnt og mjólkur-
og rjómabússmjör, eins og verið hcfur.
„ANNAR SKÖMMTUNARSEÐILL 1954“ afhendist
aðeins gegn því, að úthlutunarstjóra sé samtímis skilað
stofni af „FYRSTI SKÖMMTUNARSEÐILL 1954“ með
árituðu nafni og heimilisfangi, svo og fæðingardegi og ári,
eins og form hans segir til um.
Reykjavík, 1. apríl 1954.
Innf lutningsskrif stof an.
1
AUGLÝSING
um skoðun bifreiða í lögsagnar-
umdæmi Eyjafjarðar
Samkvæmt bifreiðalögunum tilkynnist hér með, að
aðalskoðun bifreiða fer fram frá 4. maí til 1. júní n.k„
að báðum dögum meðtöldum, sem hér segir:
Þriðjudagur 4. maí A- 1—A- 50.
Miðvikudagur 5. — A- 51—A- 100
Fimmtudagur fi. — A-10I-A- 150
Föstudagur 7. — A-151-A- 200
Mánudagur 10. — A-201-A- 250
Þriðjudagur 11. — A-251-A- 300
Miðvikudagur 12. — A-301-A- 350
Fimmtudagur 13. — A-351-A- 400
Föstudagur 14. — A-401—A- 450
Mánudagur 17. — A-451-A- 500
Þriðjudagur 18. — A-501-A- 550
Miðvikudagur . . . 19. — A-551-A- 600
Fimmtudagur 20. — A-601-A- 650
Föstudagur 21. — A-651—A- 700
Mánudagur . 24. — A-701-A- 750
Þriðjudagur 25. — A-751-A- 800
Miðvikudagur 26. — A-801-A- 850
Föstudagur 28. — A-851-A- 900
Mánudagur 31. — A-901-A- 950
Þriðjudagur 1. júní A-951—A-1000
F.nnfremur fer fram þann dag skoðun á bifreiðum,
sem eru í notkun í bænum, en skrásettar eru annars-
staðar. Ber bifreiðaeigendum að koma með bifreiðir
sínar til bifreiðaeftirlitsins, Gránufélagsgötu 4, þar sem
skoðunin er framkvæmd frá kl. 9—12 og 12—17 hvern
dag. Við skoðun skulu ökumenn bifreiða leggja fram
fullgild ökuskírteini. Ennfremur ber að sýna skilríki
fyrir því, að lögboðin vátrygging fyrir hverja bifreið
sé í gildi. X'anræki einhver að koma bifreið sinni til
skoðunar á tilteknum tíma, verður hann látinn sæta
ábyrgð samkvæmt bifreiðalögunum og bifreiðin tekin
úr umferð hvar, sem til hennar næst.
E1 bifreiðaeigandi getur ekki af óviðráðanlegum á-
stæðúin fært bifreið sína til skoðunar á réttum tíma,
ber honum að tilkynna það bifreiðaeftirlitinu.
Athygli skal vakin á því, að umdæmismerki bifreiða
skulu ávallt vera vel læsileg og vel fyrir komið. Er því
Iiér rneð lagt fyrir þá bifreiðaeigendur, sem þurfa að
endurnýja eða lagfæra númeraspjöld á bifreiðiun sín-
um, að gera það tafarlaust. Þetta tilkynnist hér með
öllum, er hlut eiga að máli til eftirbreytni.
Skrifstofa Akureyrarkaupstaðar og Eyjafjarðarsýslu,
14. apríl 1954.
V7>}